Dagur - 16.09.1982, Side 5
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉtAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Betrahráefni
í viðtali sem dagblaðið Tíminn átti við Árna
Benediktsson, formann stjórnar Sambands-
frystihúsanna, fyrir skemmstu koma fram at-
hyglisverðar upplýsingar um stækkun fisk-
veiðiflota landsmanna undanfarin ár. Hann
byrjar á því að rekja þá byltingu sem varð í
uppbyggingu togaraflotans og þær jákvæðu
hliðar sem hún hafði í för með sér; Rekstur
minni togaranna hefur borið sig betur en önn-
ur útgerð, laun sjómanna hafa hækkað, skipin
eru stærri og traustari og öryggi sjómanna því
meira, skuttogararnir hafa tryggt jafna og
stöðuga vinnslu í landi og árvisst atvinnuleysi
hefur að mestu horfið, tilfærsla starfsfólks
milli landshluta er nú hverfandi miðað við það
sem áður var, vinnutími hefur jafnast og styst,
nýting hráefnis hefur batnað vegna stöðug-
leika vinnuafls og aukinnar þjálfunar
starfsfólks.
Neikvæðu hliðarnar við þessar breytingar
eru hins vegar þær að flotinn hefur orðið of
stór og myndast hafa innan sjávarútvegsins
hagsmunaárekstrar sem erfitt hefur verið að
ráða við. Árni segir:
„Sú vísvitandi stefna að byggja upp öruggt
atvinnulíf hringinn í kringum landið hefði átt að
leiða til þess að einhver samdráttur yrði við
suður- og suðvesturströndina, eða í best^ falli
að flotinn stæði í stað á þessum stöðum.
Stækkun flotans og aflaaukning hefði þá kom-
ið á þá staði þar sem nauðsynlegt hefði verið
að byggja upp atvinnulífið. Þessi varð þó ekki
raunin og ég hygg að það komi mörgum á
óvart að á síðasta áratug stækkaði flotinn
ekki nema um 18% á Vestfjörðum, Norður-
landi og Austfjörðum, á því svæði þar sem
gjörbreyting varð í atvinnuháttum. A Suður-
og Suðvesturlandi, þeim landssvæðum sem
sífellt hefur þótt á sig hallað á þessum áratug,
hefur flotinn stækkað um 56%."
Árni rekur síðan þær óheillavænlegu afleið-
ingar sem þessi gífurlega stækkun flotans við
suðvesturhornið hefur haft í för með sér og
nefnir helst til aukna sókn á tiltölulega þröngu
veiðisvæði, árekstra milli bátaflotans og tog-
araflotans og í kjölfarið óhagkvæmari sókn
bæði báta og togara sem þýði einfaldlega
minni fiskgæði. Um þá erfiðleika sem við er að
fást í dag segir Árni Benediktsson:
„Um sl. áramót var rekstrargrundvöllur flot-
ans betri en oft áður og reyndar náíega halla-
laus, ef miðað var við sama skipafjölda og sókn
sem var á árinu áður. Sú mikla fjölgun skipa á
þorskveiðum sem varð á þessu ári ásamt
minnkandi afla veldur þeim erfiðleikum sem
við er að fást.“
Árni Benediktsson telur að bæta megi stöðu
flotans í heild um 5% eða meira með bættum
hráefnisgæðum á stuttum tíma. Of stór floti
um minnkandi afla sem ekki fær nógu góða
meðhöndlun eru þau vandamál sem við er að
fást. Þetta eru vandamál sem þjóðfélagið
verður að taka á ásamt þeim sem við vinna.
Spurningin er fyrst og fremst sú hversu hratt
er hægt að vinna sig upp úr þessum erfiðleik-
um. Aflaþurrð vegna stöðvunar flotans flýtir
ekki fyrir batanum.
Við Mitsuhishi-vélina með flíkumar í pokum. T.f.v. Þórsteinn Gunnarsson, Þórður Valdimarsson, Sigurður
Arnórsson og Skarphéðinn Gunnarsson.
Ullarvöruúrvalio stóraukio
á erlendum mörkuoum
Sigurður Amórsson með Stefáni Gunnlaugssyni og konu hans, og
Gerald Barber, umboðsmaður fyrir fatnað á Bretlandseyjum.
Vegna mikilla erfiðleika á
ullarvörumörkuðum er-
lendis að undanförnu, sem
meðal annars stafa af
breyttum markaðsaðstæð-
um og breyttum kröfum á
markaðinum, hefur ullar-
iðnaðardeild Sambandsins
brugðist við með því að
kynna erlendis mun fjöl-
breyttara vöruúrval en
nokkru sinni fyrr og einnig
með því að vera mun fyrr á
ferðinni með vörukynning-
ar erlendis en áður hefur
tíðkast.
Að sögn Sigurðar Arnórs-
sonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra Iðnaðardeildar Sam-
bandsins, hefur verið lögð
mikil áhersla á sölu- og mark-
aðsmálin að undanförnu, til
að bregðast við þeim erfið-
leikum sem upp hafa komið á
mörkuðum erlendis. Hann
sagði að þrátt fyrir kreppu-
ástand í vestrænum ríkjum
hefði tekist að halda í horfinu
og raunar meira en það. Ný-
lega var haldinn fundur með
umboðsmönnum erlendis, að
þessu sinni í London, um það
bil tveimur mánuðum fyrr en
venjulega. Þar mættu um-
boðsmenn frá 10 markaðs-
svæðum, um tuttugu manns,
til að velja úr þeim 260 flíkum
sem hannaðar voru sérstak-
lega fyrir fundinn. Þar voru
kynntar margvíslegar flíkur,
aílt frá peysum upp í síðar
kápur, bæði úr prjónuðum og
ofnum efnum. Fjölbreytnin
hefur aldrei verið meiri hvað
varðar gerð og liti.
Ullardeildin leggur nú
meiri áherslu en áður á að
komast inn á tískuvörumark-
aðinn, þar sem litagleði er
meiri heldur en hingað til hef-
ur tíðkast í íslenskri ullar-
vöruframleiðslu. Til þessa
hafa íslenskar ullarflíkur að
mestu verið í hefðbundnum
náttúrulegum litum og vegna
sérstöðu hefur verið hægt að
halda þeim í háu verði. Hins
vegar hafa sveiflur á þessum
markaði, sem einkum hefur
verið í Norður-Evrópu,
Bandaríkjunum og Kanada.
Ekkert lát virðist vera á eftir-
spurn eftir þessum hefð-
bundnu ullarvörum á þessum
markaðssvæðum, en erfitt
hefur reynst að halda sam-
keppnisfæru verði, bæði
vegna kostnaðarhækkana
innanlands og aukinnar hlut-
deildar eftirlíkinga á mörkuð-
um. Eins og áður sagði er nú
meiri áhersla lögð á tísku-
vörumarkaðinn í Mið- og
Suður-Evrópu. Á umboðs-
mannafundinum voru undir-
tektir við þessari nýju fram-
leiðslu mjög góðar.
Þeir sem fóru frá Iðnaðar-
deild á umboðsmannafundinn
í London voru Sigurður Arn-
órsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeild-
ar, Þórður Valdimarsson,
markaðsstjóri ullariðnaðar,
Ármann Sverrisson og Skarp-
héðinn Gunnarsson, mark-
aðsfulltrúar, Þórsteinn Gunn-
arsson, hönnuður, og Bene-
Mitsubishi-skrúfuþota FN millilenti á flugvellinum í Glasgow.
dikt Guðmundsson, deildar-
stjóri prjónadeildar. Um-
boðsmaður ullariðnaðar Sam-
bandsins í Englandi hafði veg
og vanda af undirbúningi,
ásamt skrifstofu Sambandsins
í London og íslenska við-
skiptafulltrúanum við sendi-
ráð íslands, Stefáni Gunn-
laugssyni. Veitti viðskiptafull-
trúinn margvíslega aðstoð og
hélt auk þess boð inni fyrir
þátttakendur fundarins. Voru
íslensku þátttakendurnir á
einu máli um það hversu
mikilvægt væri að hafa við-
skiptafulltrúa við sendiráð fs-
lands erlendis.
Á umboðsmannafundinum.
Þess má að lokum geta að
fulltrúar Iðnaðardeildar flugu
beint frá Akureyri til London
með Mitsubishi-skrúfuþotu
Flugfélags Norðurlands.
Flugstjóri var Gunnar
Karlsson.
Vel heppnuð
keppnisferð
Jan Larsen skrifar undir samninginn hjá KA.
Kaninn kemur
um helgina
Um helgina er væntanlegur hing-
að til Akureyrar bandaríski
körfuboltaþjálfarinn sem ráðinn
hefur verið hjá Þór. Hann heitir
Robert McField og kemur frá
borginni St. Luis. Hann er
blökkumaður 195 cm á hæð og er
mjög góður bakvörður. Hann
hefur leikið um skeið með há-
skólaliðinu Indiana State en það
er eitt þekktasta háskólalið
Bandaríkjanna. Þá er það vitað
að hann stóð í samningamakki við
sýningarliðið fræga Harlem
Globetrotters en ekkert varð þó
úr þeim samningum. Alla vega er
vitað að það eru engir aukvisar
sem standa í samningum við það
lið.
Það voru piltar úr Keflavík sem
voru við æfingar fyrir vestan sem
kynntust McField og lýsti hann þá
yfir áhuga sínum á að komast til
Islands og þjálfa og leika. Hann er
vanur unglingaþjálfari og þykir
mjög efnilegur á því sviði.
Jafnframt því að þjálfa og leika
með meistaraflokki mun hann
þjálfa alla flokka félagsins og
vænta Þórsarar góðs af veru hans.
Hann er fjölskyldumaður og kem-
ur hingað með konu sína.
Þetta verður þá fjórði Banda-
ríkjamaðurinn sem kemur til
Þórs, en fyrstur kom Mark Christ-
iansen sem var talinn besti
körfuboltamaður sem þá lék á ís-
landi. Hann var mjög sterkur leik-
maður og vann nánast úrvals-
deildarleiki á eigin spýtur.
Að sögn forráðamanna körfu-
boltadeildar Þórs munu allir leik-
menn sem léku með í fyrra, að Er-
lingi undanskildum, vera með í
vetur. Það er fjárfrekt fyrirtæki að
ráða erlendan þjálfara til körfu-
boltadeildarinnar og vonast því
stjórnarmenn deildarinnar að
áhorfendur fjölmenni á heima-
leikina og hvetji liðið til dáða
jafnframt því að greiða aðgangs-
eyrir að leikjunum, því það gerir
starfið léttara. Allt of mikill tími
fer í það hjá stjórnarmönnum
íþróttafélaga að afla peninga til
rekstursins.
Um síðustu helgi fór annarar
deildar lið KA í handbolta í
keppnisferð til Reykjavíkur. Lið-
ið hefur æft fimm sinnum í viku
síðan 20. júlí undir stjom danska
þjálfarans Jans Larsen. Að sögn
Þorleifs Ananíassonar hafa æfing-
ar gengið mjög vel og áhugi
mikill. Einnig æfa með liðinu og
keppa tveir Danir og styrkja þeir
liðið mjög mikið að sögn Þorleifs.
KA-strákarnir kepptu fimm
sinnum um helgina og einnig voru
strangar æfingar á milli leikja.
Þeir kepptu einu sinni við annarra
deildar lið Gróttu og sigruðu með
14 marka mun. Þeir töpuðu síðan
tvívegis fyrir Fram með fjórum og
fimm mörkum. Þá léku þeir tvo
leiki við KR og töpuðu þeim fyrri
með 6 marka mun og þeim síðari
með 32 gegn 30. Sá leikur var
mjög góður að sögn Þorleifs og
hvað hann KR-ingana með Al-
freð Gíslason í fararbroddi hafa
þurft að taka á honum stóra sín-
um til að sigra.
Þá sáu þeir viðureign Kópa-
vogsliðanna HK og Breiðabliks
sem bæði leika í annarri deild, en
þeir verða fyrstu mótherjar KA í
vetur, eða um aðra helgi. Þorleif-
ur sagði þennan leik hafa verið í
anda Þórs og KA leikjanna, eða
mikið um pústra og fátt um fínan
handbolta.
Á síðasta HSÍ-þingi var sam-
þykkt nýtt keppnisfyrirkomulag,
en það er þannig að fyrst eru
leiknar þessar hefðbundnu 14 um-
ferðir heima og heiman. Fjögur
efstu liðin leika síðan sérstaka
úrslitakeppni um tvö eftu sæti sem
jafnframt gefa fyrstu deildar sæti.
Fjögur neðstu liðin leika síðan til
úrslita um það hvaða lið falla í
þriðju deild. Þorleifur sagðist að
lokum telja að Haukar væru með
mjög sterkt lið en við þá verður
fyrsti heimaleikur eða um næstu
mánaðamót.
Jón Héðinsson, ein sterkasta stoð
Þórs í körfuknattleik.
Gullsmíða-
bikarinn
Um síðustu helgi var keppt um bergur Ólafsson, sá vaxandi kylf-
Gullsmíðabikarinn svokallað ingur sem hefur sýnt ótrúlegt ör-
hjá golfklúbbi Akureyrar, en yggi á golfbrautum upp á síðkast-
það er 36 holu keppni og er ein- ‘ö: Hann lék á 147 höggum, og var
ungis keppt með forgjöf. nvjög óheppinn að eigin sögn. í
Leikar fóru svo að Sverrir Þor- þriðjn til fjórða sæti urðu þeir
valdsson sigraði, en hann lék á Gunnar Þórðarson og Björn
140 höggum. í öðru sæti varð Þor- Axelsson á 148 höggum.
4 - DAGUR -16. september 1982
16. september 1982 - DAGUR - 5