Dagur - 16.09.1982, Page 8

Dagur - 16.09.1982, Page 8
Akureyri, fímmtudagur 16. september 1982 Pakkningaefni korkur, skinn og hercules. sími 96-22700 Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri í morgun. Slátrun er hafin Tvær og hálf milljón í grunnvöruafslátt Grenivík: Lítill aflien næg atvinna Grenivík 14. sept. Afli báta sem róa frá Grenivík hefur verið mjög lélegur að undanförnu. Tveir bátar róa með net og nokkrir línubátar leggja einnig upp á Grenivík. Eitthvað hefur verið um síld- veiði að undanförnu, en hún hef- ur einnig verið léleg þar til á þriðjudagsmorgun að eitthvað virtist vera að glæðast. Þrátt fyrir lélegan afla hefur veið næg atvinna á Grenivík. Bjargar þar miklu afli togbátanna Hákons og Súlunnar sem leggja þar upp. Þá hefur verið talsverð vinna við skreið sem hengd var upp í vor og sumar og er jafnvel talið að þegar unglingar hefja nám í skólum í næstu viku og hverfa af vinnumarkaðnum muni vanta fólk til ýmissa starfa. Á Grenivík hefur verið unnið við gatnagerð og holræsalögn. Byggingaframkvæmdir eru tals- verðar og má nefna framkvæmdir við nýja skólahúsið og þrjú fisk- verkunarhús sem unnið hefur ver- ið við í sumar. Sauöfjárslátrun hófst hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur- eyri í morgun, og að sögn Þór- arins Halldórssonar sláturhús- stjóra er áformað að slátra 41.100 fjár í haust sem er um 5% aukning frá síðasta hausti. Þórarinn sagði að undanfarið hefði verið slátrað hátt á fimmta hundrað nautgripum í sláturhús- inu á Akureyri og aftur yrði tekið til við nautgripaslátrun er sauð- fjárslátruninni lýkur. Slátursala til almennings hefst í þessari viku, en áformað er að slátra til 22. október. Á Dalvík hófst slátrun í gær- morgun, og einnig hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar. Á Dalvík verður slátrað um 14.000 fjár, minna af dilkum en í fyrra, en meira af full- orðnu fé. Fyrir skömmu var gerð athug- un á því hjá Innflutningsdeild hvað mikill afsláttur hefði verið gefinn af grunnvöru kaupfélag- anna fyrstu sex mánuðina af af- mælisárinu. Kom í ljós að hann nam 2.477.837 kr. eða nær hálfri þriðju milljón. Það er ljóst að hér er um veru- legan afmælisafslátt samvinnu- verslunarinnar í heild að ræða sem án efa hefur komið mörgum til góða í ódýrari nauðsynjum. Eðlilega hafa stór og barnmörg heimili borið þar mest úr býtum, því að grunnvörurnar saman- standa af almennum vörum sem öll heimili þurfa að kaupa meira eða minna af. Á afmælisárinu hafa samvinnu- menn boðið fjölmörg tilboð, „Það er verið að bora í holu 6 núna, og þeir eru komnir þar á 40 metra dýpi,“ sagði Örn Kjartansson oddviti í Hrísey, aðspurður um hvað væri að gerast í hitaveitmálunum í eyjunni. „Við höfðum það í gegn eftir nokkurn barning að fá holu 5 sprengda út og það gaf okkur 4.5 fjölda vörutegunda og margvís- lega þjónustu, sem oft hefur verið á ótrúlega lágu verði. Grunnvör- urnar, sem hér eru mældar sér- staklega, ná hins vegar eingöngu til matvöru frá Innflutningsdeild Sambandsins. Þær eru frábrugðn- ar öðrum tímabundnum tilboðum samvinnufélaganna að því leyti að þær hafa stöðugt verið til í öllum matvöruverslunum samvinnufé- laganna þessa fyrstu sex mánuði afmælisársins. Þessi verðlækkun náðist m.a. vegna þess að margir lögðust á eitt, þannig gaf Skipa- deild afslátt af flutningsgjöldum, Samvinnutryggingar gáfu afslátt af iðgjöldum, Innflutningsdeild gaf afslátt frá heildsöluverði og kaupfélögin gáfu afslátt af smá- söluverði. lítra af 70 stiga heitu vatni. Það má segja að bjartsýni okkar hafi aukist nokkuð við þetta, og við báðum um að sú hola yrði sprengd út aftur. Við höfum þegar fengið öflugri dælur til þessa verks og við bara vonum að þær aðgerðir muni bera meiri árangur. Ekki veitir af,“ sagði Örn. Hrísey: Auknar vonir Talsvert tjón varð er kveikt var í timbri hjá BTB í vor. Fleiri útköll hjá Slökkviliði Akureyrar Slökkviliðið á Akureyri hefur alls 57 sinnum verið kallað út á árinu það sem af er, og er það nokkuð oftar en á sama tíma á síðasta ári. Öll hafa þessi útköll verið innan bæjarlandsins nema eitt, en þá kviknaði í bif- reið í Saurbæjarhreppi. Segja má að þrír eldsvoðar skeri sig talsvert úr hvað tjón snertir. Það eru eldsvoðarnir sem urðu er kviknaði í hjá Eini í Hafn- arstræti, í íbúð í Furulundi og að svínabúinu á Hamraborgum. Að sögn Gísla Lórenssonar hjá Slökkviliði Akureyrar er alltaf talsvert um útköll á vorin vegna sinubruna, og einnig alltaf tals- vert vegna smábruna við vinnu- skúra og þess háttar allt árið. Sjúkraflutningar taka sífellt meiri og meiri tíma hjá bruna- vörðum á Akureyri. Þannig höfðu þeir farið í 744 sjúkraflutninga fyrstu 8 mánuði ársins. Af þeim voru 141 í sveitirnar í nágrenni Akureyrar. Af þessum útköllum voru 114 bráðatilfelli. Samsvar- andi tölur frá síðasta ári eru 705 flutningar, 135 í sveitirnar og bráðatilfelli voru þá áiíka mörg og nú. Brynjólfur Sveinsson látinn Brynjólfur Sveinsson fyrrum menntaskólakennari á Ak- ureyri lést s.l. þriðjudag 84 ára að aidri. Hann var fædd- ur í Skagafirði 29. ágúst 1898. Brynjólfur varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, og fljótlega eftir það gerðist hann kennari við skólann og kenndi þar í áratugi, eða þar til hann lét af störfum sökum aldurs. Hann starfaði mikið að félagsmálum, sat í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga um ára- bil og var formaður stjórnar kaupfélagsins 1958-1972. Hann sat í bæjarstjórn Akur- eyrar og starfaði í ótal nefnd- um á vegum bæjarins og sinnti mörgum öðrum trúnaðar- störfum. Brynjólfur var kvæntur Þór- dísi Haraldsdóttur sem lifir mann sinn, og eignuðust þau þrjár dætur. • 100. tölublaðið Dagur sló eigið met fyrr í vik- unni, en síðasta þriðjudags- blað var hundraðasta tölu- blað ársins og hafa aldrei fyrr komið út svo mörg tölublöð á ári, hvað þá á hluta úr ári eins og nú hefur gerst. Má raunar í þessu sambandi geta þess að stækkun blaðsins frá fyrra ári nemur tæpum 100% þegar bæði er tekið mið af fjölgun tölublaða og fleíri blaðsíðum. Rétt er að geta smámistaka sem urðu í 100. tölublaðinu, sem sagt þeirra að það var vitlaust dagsett, var sagt út- gefið 13. september en átti að vera 14. september. # Af fréttalestri Sjónvarp hefur þá ótvíræðu kosti umfram útvarp að lifandi myndir fylla upp í og segja jafnvel oft á tíðum meira en lesinn texti. Nokkuð hefur hins vegar borið á því, sér- staklega í erlendum fréttum sjónvarpsins, að þessir möguleikar sjónvarps væru ekki nýttir. Allt of mikið er um það að fréttamenn lesi langa texta og séu sjálfir á skjánum meiri hluta lestursins. Þegar þannig er að staðið er ekki einu sinni hægt að tala um myndskreyttar útvarpsfréttir með góðu móti. Möguleikar fjölmiðilsins eru ekki nýttir - samræmí er ekki milli texta og myndefnis. # Þrisvar sinnum meira á SV-landi Það er athyglisverð stað- reynd að fiskiskipafioti lands- manna hefur stækkað langt- um mest á suðvesturhorni lansins á síðastliðnum ára- tug. Þannig stækkaði floti þeirra sem mest hafa fjarg- viðrast út af Þórshafnartogar- anum og öðrum skipum og bátum sem nauðsynleg hafa veríð atvinnulífi á stöðum útiá landi um hvorki meira né minna en 56%. Á sama tíma stækkaði flotinn á Vestur-, Norður- og Austurlandi um 18%. • Afbökuð byggðastefna Eitthvað hefur nú byggða- stefnan afbakast í meðförum hinna háu herra sem ráða fjár- magni landsmanna. Þeirra á meðal er Framkvæmdastofn- un ríkisins með deildum sín- um og er byggðadeild þeirra mest áberandi. Ekki veit sá sem þetta ritar nákvæmlega hvernig mannavalið á þessari stofnun skiptist á landshlut- ana, en grun hefur hann um að flestir séu stjórnarmenn og aðrir áhrifamenn ( þessari stofnun frá höfuðborgar- svæðinu, f víðasta skilningi þess orðs, þ.e. frá suðvestur- horninu. Skyldi þá engan furða þó skiptingin hafi orðið með þeim hætti sem raun hef- ur orðið á.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.