Dagur - 01.10.1982, Síða 4

Dagur - 01.10.1982, Síða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM,: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Hagsmunafélag aldraðs fólks Næstkomandi sunnudag, 3. október, verður haldinn á Akureyri stofnfundur Félags aldr- aðra í bænum. Upphaf þessa máls er það að á fundi í ágúst sl. ákvað félagsmálaráð Akureyr- ar að gangast fyrir stofnun samtaka aldraðra á Akureyri ef áhugi reyndist fyrir stofnun slíks félags. Að nokkru var litið á þetta sem skerf félagsmálaráðs í tilefni af ári aldraðra, en þess utan hefur vantað vettvang þar sem unnt væri að ræða við aldraða um málefni þeirra sjálfra og þá þjónustu sem opinberir aðilar vilja veita þeim. Það er vel til fallið að stofna slík samtök á þessu ári aldraðra. Fáir vita betur en aldraðir sjálfir hvað þeim kemur best en til þessa hefur of lítið verið gert af því að leita álits þeirra á eigin málefnum, enda ef til vill ekki hægt um vik. Vonandi er að þessi samtök verði til þess að aldrað fólk fari að hafa meiri áhrif á eigin mál en verið hefur. Hagsmunahópar hvers konar hafa risið upp á undanförnum árum og komið ýmsu til leiðar fyrir sjálfa sig. Ekki hefur það allt verið af hinu góða, en ef einhver hagsmunahópur er rétt- lætanlegur til að knýja á um úrbætur eigin mála, þá er það hagsmunahópur aldraðra. Hingað til hefur ekki mikið farið fyrir áliti aldr- aðs fólks varðandi málefni er það snertir, beint og óbeint. Um hlutverk félags aldraðra á Akureyri seg- ir í drögum að lögum þess eigi að vinna að hagsmunamálum aldraðra, svo sem kynn- ingu á réttindum aldraðra og skyldum í sam- félaginu, úrbótum í húsnæðismálum aldraðra, atvinnumálum, félagsmálum og fjármálum og að vera tengiliður milli hinna öldnu og þess opinbera og vera umsagnaraðili um málefni sem þá snerta. Meðal þess sem nefnt hefur verið sem til úrbóta horfir eru skattamál aldr- aðra. Þá er það mörgum áhyggjuefni hve aldr- að fólk á Akureyri og vafalaust víðar virðist vera einangrað. Einnig er ljóst að mikilla úr- bóta er þörf í dvalar- og húsnæðismálum. Gert er ráð fyrir að heimilað verði að stofna sérstakar deildir innan félagsins er fáist við til- tekin verkefni og í því sambandi hefur verið nefnt að stofna mætti nokkurs konar bygginga- samvinnufélag, eins og gert hefur verið í Reykjavík, og einnig hefur verið hugað að stofnun sérstakrar ferðadeildar til að annast milligöngu og komast að hagstæðum kjörum um ferðalög innanlands og erlendis. Með stofnun félaga fyrir aldraða er stigið mikilvægt skref í réttindamálum þeirra. Von- andi verða slík félög til þess að þoka málefnum aldraðs fólks á íslandi til betri vegar, en staða aldraðra í þjóðfélaginu hefur að mörgu leyti verið til vansa. Liður í áróðurs- herferð Sj álístæðisflokksius '■ - Af hverju ætli þeir á Degi séu ekki rætnir og illgjamir, þaö em einmitt svoleiðis hlutir, sem selja blöð, sagði maður út í bæ við mig á dögunum. - Þeir eiga að hæða fólk og vera örlítið nastí, bætti hann við orðum sín- um til áréttingar, þegar hann sá að tillagan fékk ekki góðar undirtektir. - Það er hrein og klár vitleysa að reyna að vera málefnalegur. Fólk vill ekki lesa þannig greinar, sagði hann þeg- ar við vorum búnir að karpa í dálitla stund. Ég varð fyrir vonbrigðum. Ég harðneitaði að trúa því að Ies- endur blaða væru þannig þenkj- andi, en bæjarmaðurinn vitnaði í víðfræg erlend blöð, sem byggj a tilveru sína aðallega á illu umtali, rógi og æsiskrifum. Hann gerðist líka svo djarfur að benda á íslensk blöð, sem öðm hvoru fjalla um, menn og mál- efni á óviðurkvæmilegan hátt - ég stundi þungan. Við leiddum talið að málgagni sjálfstæðis- manna á Akureyri, sem hefur leiðst út á þessa Ieiðu braut. Fyrir þá sem ekki vita er rétt að geta þess að á forsíðu íslendings er dálkur sem ritstjórinn notar til að þruma fýluskotum í allar áttir. Þessi dálkur er svolítið sér á parti í íslenskri blaðamennsku og ég leyfi mér að efast um að flestir þeirra sem starfa sem blaðamenn vildu leggja nafn sitt við dálk af þessu tagi. Og áfram með smjörið. Það má vera að þessi slúðurdálkur sé liður í áróðursherferð Sjálfstæð- isflokksins, en ég leyfi mér þó að efast um það eftir að hafa rætt við marga mæta sjálfstæðismenn um þau rógskrif sem í dálkinum birtast. Komdumeð dæmi, kann einhver að segja. Því er til að svara að dærtiin eru mýmörg og að auki má minna á svartleturs- greinar á innsíðum blaðsins eftir ritstjórann og aðstoðarmann hans í sorpblaðamennsku. Sem betur fer hefur slíkum greinum fækkað, en þeirra frægust var e.t.v. grein er fjallaði um bæjar- fógetann á Akureyri. Þar var hann léttvægur fundinn og sak- aður um óbilgirni í starfi svo ekki sé fastar að orði kveðið. Sannanir voru síður en svo lagð- ar fram, aðeins fullyrðingar, sem entust sögusmettum bæjar- ins svo vikum skipti. Víkjum aftur að forsíðudálki íslendings. Síðasta afrekið var árás á Jónas Jónasson, útvarps- mann, og gefið í skyn að maður- inn gerði fátt annað en stara í gaupnir sér. Að sjálfsögðu gerði ritstjórinn sér ekki það ómak að hringja í Jónas eða hitta hann og fá forvitni sinni svalað, heldur páraði hann á blað hugdettur sem eru engu lagi líkar. Dæmi: . . . að lítið hafi heyrst í nýja út- varpsstjóranum með aðsetur norðan heiða - nema þá helst að hann standi fyrir leiklistarnám- skeiðum frammi í fírði. . . að aftur á móti sé almenn ánægja með nýja fréttamanninn á Akur- eyri, séra Páhna Matthíasson. Það eina sem satt er í tilvitnun- um er sú staðreynd að Pálmi hef- ur staðið sig mæta vel í starfi sem fréttamaður og er ekki nema gott eitt um það að segja enda er Jónas fundvís á góða útvarps- menn. Hinsvegar kemur hin klausan eins og þruma úr heið- skíru lofti. Á hverju átti ritstjór- inn von? Að Jónas notaði tæki- færið og meinaði öllum öðrum en sjálfum sér að koma nálægt hljóðnemanum? Spyr sá sem ekki veit. Og hvaða máli skiptir það þó umræddur Jónas sinni hugðarefni sínu, leiklistinni? Og skiptir það engu máli að Jónas hefur virkjað fjölda fólks í starfi við útvarpið, lagt grundvöllinn að enn víðtækari starfsemi? Dettur einhverjum í hug að það sé hrist fram úr erminni að leita að fólki, skipuleggja starfsemi útibús Ríkisútvarpsins og þjálfa það fólk sem vill vinna fyrir stofnunina? Dettur einhverjum í hug að slíkt fólk stökkvi fram úr næsta skoti fullfært að taka að sér stjórn útvarpsþátta? Að sjálfsögðu er svarið neikvætt, fólk þarf mikla leiðsögn ef vel á að vera og ég trúi því og veit að Jónas Jónasson er fullfær um að gegna slíku leiðbeinandastarfi eftir að hafa starfað hjá Ríkis- útvarpinu um árabil. Ég held að Akureyringar - og raunar Norðlendingar allir-eigi að taka vel á móti þeim sem koma norður yfir heiðar og vilja starfa á Norðurlandi. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef mót- tökumar eiga að vera skætingur og illkvittnisleg skrif. Þvert á móti eigum við að fagna þeim og aðstoða eftir mætti, við eigum að sýna þeim og öðrum að hér býr fólk sem kann almenna mannasiði, en veður ekki um stofur í forugum skóm. Það er ekki ástæða til að rekja öllu frekar fýluþrumur ritstjór- ans, þær dæma sig sjálfar, en sú von er látin í ljós að blaðstjórn íslendings grípi í taumana enda er full ástæða til. Njörður. i\X>* T&ytS Kk. 1 4 - DAGUR -1. október 1982

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.