Dagur - 10.12.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 10.12.1982, Blaðsíða 8
Skóvinnustofa Akureyrar Nú er svarta og bláa skósprayið komið aftur. Einnig mikið úrval af skóáburði fyrirliggjandi. Mannbroddar og tréklossar. Verið velkomin. Skóvinnustofa Akureyrar Hafnarstræti 88, sími 23450. Leikfélag Akureyrar Siggi var úti Nýtt barnaleikrit eftir Signýju Pálsdóttur sem einnig er leikstjóri. Leikmynd geröi Þráinn Karlsson. Búninga gerði Freygerður Magnúsdóttir. Lýsingu annaðist Viðar Garðarsson. Tónlist: Bara-flokkurinn. Sýning laugardag kl. 17.00. Sýning sunnudag kl. 15.00. Aðgöngumiðasalan er opin alla daga frá kl. 13.00-17.00. Sími 24073. Skyrtur jt Peysur Mikið og fjölbreytt úrval * Velour- sloppar * Frotté- sloppar Framleitt úr íslenskum úrvals kartöflum. sími (96) 25800 VISNAÞATTUR Jón Bjarnason Vfir sollinn sæ ég flýt Maður sem ekki vill láta nafns síns getið, en við getum kallað gamlan Eyfirðing, kom heim frá vinnu sinni. Þá sat húsfreyjan við símann, eins og hendir á bestu bæjum. Karl orti að bragði: Siturhún viðsímaborð sæl með brosi hlýju. Parfað nota þúsund orð, þarsem dygðu tíu. Þegar Ijóðabókin Dvergmál, eftir Baldur Eiríksson kom út 1981, orti gamall Eyfirðingur: Hverjirlesa Hávamál? Hlustar þú á Daglegt mál? Það varorðið meira en mál að maður heyrði dvergamál. Á verkstæði nokkru voru strák- ar að gaspra um kvennamál og þóttust verða þess varir að einn þeirra hefði verið rændur kær- ustunni. Þá kvað gamall Eyfirð- ingur: Ástin brennir ungdóminn. - Oft slær henni niður -. Á því kennir einn um sinn okkar rennismiður. Þetta hefur gamall Eyfirðingur að segja um hin svokölluðu órímuðu ljóð: Atombullið, þaðýmsa særir, enerað komast í móð. Peir eru ekki lengur ferskeytlufærir sem fást viðaðyrkja Ijóð. Um meðalanotkun sína hefur gamli maðurinn þetta að segja: Óðum þrek og dugur dvín. Daprast bæði heyrn og sýn. Einu meðul eru mín alkóhól og nikótín. Ekki er umsjónarmaður þáttar- ins það kunnugur veraldarsög- unni að hann þori að fara með nafn þess er næstu vísu orti, en hún er orðin nokkuð gömul. Tveir ungir menn mættust á götu á Blönduósi og spurði annar hinn, hvert hann væri að fara. Svarið kom án tafar: Út í skóla ætla ég auðarsól að finna. Þennan róla verð ég veg vegna tóla minna. Rósberg Snædal virðist hafa ver- ið eitthvað hnugginn er hann orti þessa vísu: Yfir sollinn sæ ég flýt, syndum hlaðinn gæi. Öskabyrinn aldrei hlýt, æski samt hann lægi. Ekki virðist næsta vfsa heldur hafa verið ort í k-átínu. Hún er eftir Aðalstein Ólafsson frá Melgerði: ímörgu ég snúast mátti frá morgni til sólarlags. Smiðursem aldrei átti efnitilnæsta dags. Um drukkinn mann með hár- kollu orti Kristján Benedikts- son: Kallinn svallarmeir en má, en mesta gallann hylur að fallegt hallast hausnum á hárerskallan dylur. Fyrr á þessu hausti birtist f Tímanum grein eftir Helga Hannesson. Öldungur þessi hef- ur aldrei farið dult með áhuga sinn fyrir dýraverndun. í nefndri grein fer hann hlýlegum orðum um bóndann á Bergþórshvoli vegna þess hve hrossskrokkur hans fékk að liggja lengi á tún- inu, hröfnunum til glaðningar. Þetta varð umsjónarmanni þátt- arins að strákslegri vísu: Hvað sem skrafast manna milli merka sögustaðinn kring um, fyrir víst á Haukdal hylli hrafnanna í Rangárþingum. 8 - DAQUR -1Q. de$embeM 98£, DELFI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.