Dagur - 16.12.1982, Blaðsíða 3
Mikið annríki
hjá Flugleiðum
„Það má reikna með að aðal-
straumurinn fari af stað strax
eftir helgina, en þá fer skóla-
fólk t.d. að halda heim í jóla-
leyfi,“ sagði Sæmundur Guð-
vinsson, fréttafulltrúi hjá Flug-
leiðum, er Dagur spjallaði
stuttlega við hann um flug fé-
lagsins yfir hátíðarnar.
„Það er mjög mikið bókað í
ferðir síðustu dagana fyrir jól,
enda verða Flugleiðir með mikið
af aukaferðum. Við fljúgum einar
nfu ferðir til Akureyrar, fimm til
Húsavíkur og á Sauðárkrók verða
aukaferðir auk þess sem í nokkur
skipti verður skipt yfir á Fokker í:
þeirri áætlun í stað Twin Otter.“
Að sögn Sæmundar verða síð-
ustu ferðir fyrir jól á aðfangadag.
Þá verður t.d. flogið um morgun-
inn til Akureyrar, þaðan til Húsa-
víkur og loks Reykjavíkur. Um
hádegið verður svo flogið á Sauð-
árkrók, þaðan til Akureyrar og
áfram til Reykjavíkur og er þetta
síðasta ferð frá Norðurlandi fyrir
jól.
Ekkert flug verður á jóladag,
fremur en venjulega, en flogið á
suma staði á 2. dag jóla. Á gaml-
ársdag verður flogið á Akureyri,
Sauðárkrók og Húsavík en ekkert
flogið á nýjársdag. Og strax upp
úr áramótum hefst svo önnur törn
hjá Flugleiðum, þegar þeir sem
fóru í jólafrí á milli staða halda til
baka aftur.
Sæmundur sagði að flug til
Norðurlands hefði gengið vel að
undanförnu og það væri óvenju-
legt að það sem af væri desember
hefði aldrei verið ófært á alla staði
sama dag. Ávallt hefði verið hægt
að fljúga á einhverja áætlunar-
staði þótt ófærð hefði hamlað
flugi á aðra.
. .........
Nýjung:
Marineruð ýsa.
Algjört lostæti.
HRÍSALUNDI 5
J
Betri jólakaup
Jólapappír, stór rúlla ..... kr. 13.95
Jólapappír, lítil rúlla .... kr. 10.95
Jólamerkimiðar ............. kr. 4.15
Jólamerkimiðar ............ kr. 5.75
Jólatré, plast .......... frá kr. 499.00
Jólaseríur .............. frákr. 279.00
Mjög gott úrval jólagjafa
á okkar verði
HAGKAUP
Norðurgötu 62 Sími 23999
Herradeild
sími23599
Herradeild
sími23599
16. desember 1982 - DAGUR - 3