Dagur - 16.12.1982, Side 8
Kveðjuorð
Arthúr Guðmundsson
fulltrúi
Fæddur 8. mars 1908 - Dáinn 6. desember 1982
Laugardaginn 11. desember 1982
var til moldar borinn frá Akureyr-
arkirkju Arthúr Guðmundsson,
fyrrverandi fulltrúi hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga en hann lést hér í bæ þann
6. desember. Hann fæddist á Akur-
eyri 8. mars 1908 og var því 74 ára, er
hann lést. Foreldrar hans voru hjón-
in Guðmundur Vigfússon, skó-
smíðameistari, og Helga Guðrún
Guðmundsdóttir, sem bæði voru
ættuð úr Húnavatnssýslu. Þau áttu
heima inni í fjörunni hér á Akureyri
og var heimili þeirra annálað fyrir
snyrtimennsku og myndarskap, sem
setti svipmót á Arthúr allt hans líf.
Fjölskyldan varð fyrir því sviplega
áfalli, að heimilisfaðirinn lést 1927,
þegar Arthúr var við nám í þriðja
bekk Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Hætti hann þá námi og varð fyrir-
vinna fjölskyldunnar aðeins 19 ára
gamall. Hann hóf síðan störf hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga 1. september
1929 og var fljótlega falinn mikill
trúnaður. Hann var deildarstjóri
Vefnaðarvörudeildar KEA 1931 til
1939 og fulltrúi kaupfélagsstjóra um
vöruinnkaup frá 1939 til 1978, en
þann 31. júlí það ár lét hann af störf-
um fyrir aldurs sakir. Hafði hann þá
starfað nærfellt hálfa öld hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga. Störf hans voru
vandasöm og hann gengdi þeim
ávallt af mikilli trúmennsku. Hann
hafði mikil samskipti við viðskipta-
vini félagsins utan lands sem innan
og ávann sér traust þeirra og hylli.
Hann var því góður fulltrúi kaupfé-
lagsins hvar sem hann fór.
Ég veit að það var mikill gleði og
gæfudagur í lífi Arthúrs Guðmunds-
sonar þegar hann þann 29. septem-
ber 1942 kvæntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Ragnheiði Bjarnadóttur
Benediktssonar, kaupmanns og
póstafgreiðslumanns á Húsavík.
Fyrstu fimm árin bjuggu þau sér
heimili í byggingu Hótel KEA, en
reistu sér síðan hús að Austurbyggð
10 á Akureyri, þar sem myndarheim-
ili þeirra stóð alla tíð síðan. Voru
þau hjónin aila tíð samhent í glað-
værð og glæsileik, einlægni og vel-
vilja. Arthúr var alla tíð einstaklega
mikill barnavinur og það var því
mikil gleði í lífi þeirra hjóna að þau
eignuðust þrjú myndarleg börn, sem
öll eru komin til manns og ára og
hafa stofnað sín eigin heimili. Þau
eru Guðmundur Garðar, bankafull-
trúi á Blönduósi, sem kvæntur er
Katrínu Ástvaldsdóttur og eiga þau
þrjú börn, Bjarni Benedikt, for-
stöðumaður að Kristnesi, kvæntur
Jónínu Jósafatsdóttur og eiga þau
einnig þrjú börn, og Þórdís Guðrún,
meinatæknir á Akranesi, gift Hann-
esi Þorsteinssyni og eiga þau tvö
börn. Fjögur systkin átti Arthúr.
Tvö hin eldri Dagný og Garðar eru
látin, en eftirlifandi eru þau Lára
húsfreyja í Reykjavík og Fanney
húsfreyj a hér á Akureyri .Árthúrvar
mikill vinur vina sinna. Ástvini sína
umvafði hann hlýju og ræktarsemi.
Ég veit að söknuður þeirra er sár og
ég sendi þeim öllum mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur, sérstaklega
eftirlifandi eiginkonunni, frú Ragn-
heiði, sem nú sér á bak hjartfólgnum
lífsförunaut sínum. Vissulega hafði
Arthúr ekki gengið heill til skógar
langa hríð og kallið kom því ekki að
öllu leyti á óvart. En sorgin er þung-
bær fyrir því og ég bið öllu þessu
góða fólki blessunar og huggunar
Guðs. Um leið flyt ég Arthúr Guð-
mundssyni hinstu kveðjur og þakkir
Kaupfélags Eyfirðinga og samvinnu-
manna í Eyjafirði fyrir langa sam-
fylgd og fyrir trúmennsku í vanda-
sömum störfum.
Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri.
Minning
Hallfríður Gunnarsdóttir
Fædd 15. apríl 1907 - Dáin 21. nóvember 1982
Hafdu gud í huga og minni
hafdu guð fyrir augum þér
hugsaðu um guð, hverju sinni
heyrirguð og til þín sér.
Virtu guð í velstjórn þinni.
Vittu að hann þinn hcrra er.
Hallgrímur Pctursson.
Fyrsta minning mín um frænku mína
Hallfríði Gunnarsdóttur er frá því að
ég er 7 ára gömul. Þá vann hún á
Sjúkrahúsi Sauðárkróks. Fannst mér
hún mjög tíguleg kona í hvítum
slopp og með hvíta slæðu á höfði,
þegar hún gekk með móður minni og
mér ofan tröppurnar og niður á göt-
una. Þegar hún kvaddi mig gaf hún
mér pínulitla brúðu þá fyrstu og síð-
ustu sem ég hef eignast. Þá grunaði
mig ekki að við ættum eftir að búa
saman næstum hlið við hlið í 8 ár.
Hallfríður Gunnarsdóttir var fædd
15. apríl 1907 dáin 21. nóv. 1982.
Hún var ein af hinum stóra systkina-
hópi frá Keflavík á Hegranesi,
Skagafirði, er taldi 14 alsystkini auk
1 hálfbróður og 1 uppeldisbróður.
Foreldrar voru þau mætu hjón Sigur-
laug Magnúsdóttir frá Utanverðu-
nesi, Hegranesi, Skagafirði og Gunn-
ar Ólafsson frá Ögmundarstöðum,
Staðahreppi, Skagafirði. Voru þessar
ættir báðar stórbrotnar. Hallfríður
ólst upp í þessum stóra bamahópi,
sem nú fækkar óðum í, en minning-
arnar lifa samt. í Keflavík sleit Hall-
fríður barnsskónum og var þessi
staður henni ætíð helgur því þar
lærði hún að starfa í kærleika guðs og
gera 'öllum gott sem að garði báru.
Hér verður ekki rakin lífsganga
Hallfríðar, aðeins minnst á það
helsta.
Þegar Hallfríður var 23 ára giftist
hún Aðalgeiri Sigurðssyni á Máná á
Tjörnesi. Eftir eins árs sambúð
missti hún sinn ástkæra förunaut.
Þann söknuð hygg ég að hún hafi
borið til hinstu stundar. Síðan vann
hún við hjúkrunarstörf á Sjúkrahúsi
Sauðárkróks í 7 ár og fékk mikið lof
fyrir hjartahlýju og dugnað. Hún
lærði klæðskerasaum hjá Stefáni
klæðskera í Skjaldarvík og saumaði
jafnt karlmannaföt og kápur sem
fína kjóla, upphluti og peysuföt.
Hallfríður eignaðist eina dóttur, Sig-
urlaugu Öldu Þorvaldsdóttur, sem
svo sannarlega hefur verið ljósgeisli í
lífshimni hennar.
Þá réði hún sig sem ráðskonu hjá
Kristjáni Kristjánssyni frá Birnings-
stöðum. Þar hitti hún Mikael Þor-
finnsson frá Hrísey, er síðar varð
sambýlismaður hennar. Hann er
drengur góður og vill allt fyrir alla
gera. Þegar Alda var þriggja ára
keyptu þau Rauðumýri 9 hér á Akur-
eyri. Þar ólst Alda upp við ástríki og
kærleika allra. Um Kristján Krist-
jánsson annaðist Hallfríður með
sóma til hinstu stundar
Hallfríður var greind kona og átti
óvenju mikinn lífskraft. Hún var fín-
örtuð kona alla tíð og selskapsmann-
eskja alveg fram í fingurgóma. Hún
var vinamörg og afskaplega gestrisin
kona. Hún mátti ekkert aumt sjá án
þess að vilja leggja lið og þannig er
Mikael einnig. Hallfríður vann af-
skaplega mikið meðan heilsa og
kraftar leyfðu. Hún unni náttúrunni
mikið og var hverja stund í garðinum
sfnum og gaf úr honum á báðar
hendur. Einnig bar húsið hennar
þess merki, stofan var eitt blómahaf.
Stærsti þáttur Hallfríðar var hvað
hún var hjartahlý og góð, hún ferð-
aðist mikið og var afskaplega frænd-
rækin. Öll samskipti hennar við fólk
voru góð, hún sópaði fólki að sér en
ekki frá.
Hún var rík kona af hjartans auð-
legð, hún fékk líka að deila lífi sínu
með dóttur sinni og hjartfólgnum
tengdasyni, Ólafi Hauki Amarsyni
og fjórum ömmubörnum sem hún
unni heitt, allt vildi hún fyrir þau
gera er gæti glatt þau. Þau kunnu
líka að meta afa og ömmu í Rauðu-
mýri 9.
Hallfríður var mjög trúuð kona og
fannst engin jól nema að fara í
kirkju. Hún bar efri ár sín og veik-
indi með miklum sóma eins og allt
sitt líf. Hún naut umönnunar og
kærleika dóttur sinnar og allra bam-
anna sinna í Birkilundi 16 eins og
hún sagði og eins Mikaels sem létti
henni ævisporin. Og umvafín faðmi
og kærleika sinna nánustu fékk hún
að kveðja þessa jarðvist sem lítið
barn að drottins náð að Rauðumýri
9. Það voru afskaplega margir hlýir
hugir sem fylgdu Hallfríði síðustu
sporin. Þá fannst mér eins og sagt
væri: „Eins og maður sáir, eins mun
maður uppskera“.
Persónulega þakka ég frænku
minni alla hennar gleði og hlýju og
hvert gengið spor og bið algóðan guð
að blessa minningu hennar.
Ég votta Mikael Þorfinnssyni
mína dýpstu samúð. Einnig Sigur-
laugu Öldu Þorvaldsdóttur, Ólafi
Hauki Arnarsyni, Hallfrfði, Erni,
Ólöfu og Sigurlaugu Elfu.
Sigurlaug Oddsdóttir.
Lýsið upp skammdegið með
aðventuljósum
GLERARGOTU 20 — 600 AKUREYRI - SIMI 22233
Húseign til sölu
Tilboð óskast í húseignina, Strandgötu 29,
(Snorrahús). Tilboðum skal skilaðtil Fasteignasöl-
unnar hf., Gránufélagsgötu 4, sem veitir allar nán-
ari upplýsingar.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf Opið frá
Gránufélagsgötu 4,
efri'hæð, símT21878
kl. 5-7 e.h.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur
Hermann R. Jónsson, sölumaður
... “ '
Skipagótu 5,
Akureyri,
simi 22150.
■"satb
/ Efþúeðaþínir
/ ætla ekki að lenda
undir tönnum Jólakattarins,
ættirðu aðlíta við hjáokkur.
Full búð af buxum, peysum, vestum,
skyrtum og fleiru, bæði á dömur og herra
Þá minnum við á jólatilboðið
^ 20% afsláttur .
af öllum peysum, J
» bolumogjökkum. Æ
8-DAGUR -16: desember 1982