Dagur - 16.12.1982, Page 12

Dagur - 16.12.1982, Page 12
Akureyri, fimmtudagur 16. desember 1982 RAFGEYMAR í BfLINN. BÁTINN, VINNUVÉLINA VEUIÐ RÉTT MERKI Hjálpar- sveit skáta fær nýja vélsleða Nú fyrir skömmu festi Hjálpar- sveit skáta á Akureyri kaup í tveimur vélsleðum. Þeir eru af gerðinni Polaris og eru keyptir af Hjólbarðaþjónustu Tómasar Eyþórssonar. Sleðarnir eru sérstaklega pant- aðir fyrir hjálparsveitina, en þeir eru mun sterkari en þeir sleðar sem á markaðnum eru, með lengra belti og sérstaklega gerðir til að draga á þeim. Skátarnir eru nú að smíða aftan í þá sérstaka sjúkrasleða. Með tilkomu sleð- anna auka skátarnir ennþá tækja- kost sinn og veita þá um leið rnikið öryggi. Blönduós: Nær engar framkvæmdir Á Blönduósi hafa nær engar opinberar framkvæmdir verið í gangi á þessu ári og hefur það sett nokkurt strik í reikninginn með allar byggingafram- kvæmdir, sagði Hilmar Krist- jánsson, oddviti á Blönduósi á fundi sem haldinn var með al- þingismönnum fyrir nokkru. Á fjárlögum fyrir árið í ár voru ætlaðar verulegar upphæðir til heilsugæslustöðvar, en fyrir klúður heimamanna og kerfis- ins hefur þetta verk ekki fari í gagn ennþá. Það kom einnig fram á fundin- um að Pólarprjón átti í verulegum rekstrarerfiðleikum, en nú virðist vera að rætast úr þeim málum. Framan af árinu voru verkefnin ákaflega lítil og vandinn safnaðist upp en um þessar mundir virðast verkefnin vera næg og fyrir skömmu a.m.k. vantaði fólk til starfa. Samvinnufélögin hafa verið geysilega framsækin í sinni upp- byggingu á Blönduósi. Fyrr á ár- inu keypti Sölufélagið hluta í hót- elfélagi, en þó það vegi ekki þungt þá veitir þetta hótel 6 til 8 ársstörf á Blönduósi. Aldrei borið eins mikið á peruþjófnaði og nú „Það er furðulegt að fólk skuli leggja sig niður við þetta at- hæfí, og því miður hefur aldrei borið eins mikið á þessum peruþjófnaði og núna,“ sagði Björn Ævar Guðmundsson, hjá fyrirtækinu Ljósgjafanum hf. á Ákureyri. Það fyrirtæki sá m.a. um uppsetningu á jóla- Ijósunum við kirkjutröppurnar á Akureyri og hefur eftirlit með þeim. „Við settum ljósin við kirkju- tröppurnar upp á föstudagskvöldi og á sunnudag var búið að stela þar um 100 perum. Perurnar eru skrúfaðar úr og það er ekkert um annað að ræða fyrir okkur en að skipta um perur á meðan menn gefast ekki upp á því að standa fyrir þessum skreytingum." Jón Björnsson starfsmaður garðyrkjustjóra, sem hefur um- sjón með jólatrjám víðsvegar um bæinn, tjáði Degi að mikil brögð væru að því að ljósaperum væri stolið af jólatrjánum. „Um síð- ustu helgi var t.d. stolið 58 perum af trénu sem er við höfnina. Á föstudag hvarf af þessu eina tré 31 pera og voru settar nýjar perur á daginn eftir. Á mánudaginn mátti síðan bæta við um 20 perum fyrir jafnmargar sem stolið hafði verið. Þá er tré við Glerárskóla og það hefur miklu verið stolið af því,“ sagði Jón. Aðspurður sagðist Jón telja að hér væri ekki eingöngu um börn og unglinga að ræða. „Ég tel að fullorðnir eigi líka'hlut að máli,“ sagði Jón. Um síðustu helgi þurfti að skipta um 100 perur í Ijósaskreytingunni á kirkju- tröppunum. Mynd: H.Sv. Búið að selja tvo togara af fimm Tveir togarar sem geröir voru út frá Siglufirði hafa verið seld- ir þaðan, eins og kunnugt er, en án þess þó að samsvarandi aukning hafi orðið á skipakosti. Afleiðingin er sú að allmargir sjómenn hafa flutt úr bænum. Það eru togararnir Dagný og Sigurey sem hér um ræðir. Hið opinbera hefur hlaupið undir bagga með því að leigja Sigl- firðingum togarann Hafþór sem landaði á Siglufiröi í nokkrar vikur fyrr á árinu og hann er búinn að landa þar tvis- var að undanförnu. Kolbeinn Friðbjarnarson, formaður atvinnumálanefndar Siglufjarðar, sagði að það væri lífsnauðsynlegt fyrir Siglfirðinga að eignast sjálfir a.m.k. tvö skip í stað togaranna tveggja sem voru seldir, en hann tók það fram í við- tali við Dag að eins og málum væri háttað í dag væri ekki hægt að fá skip. Þegar best lét áttu Sigl- firðingar sjálfir fimm togara en í dag eru þeir þrír. „Við höfum misst sjómenn frá Siglufirði,“ sagði Kolbeinn, „og það er ófrágengið hve lengi Haf- þór verður hér að þessu sinni. Þegar við höfðum fimm skuttogara var ágætt atvinnuástand á Siglu- firði, sem var nýtt fyrir okkur. Það má segja að áttundi áratugur- inn hafi verið sá eini sem atvinnuástand hefur verið gott síðan síldarævintýrinu lauk.“ En hvaða möguleika hafa Sigl- firðingar til að bæta stöðu útgerð- armála á Siglufirði? „Við höfum reynt að tryggja okkur skip í stað- inn fyrir þau tvö sem voru seld. Það hefur ekki tekist, enda er ekki auðvelt að fá skuttogara. Þeir fáu togarar sem vitað er um að hægt sé að kaupa hafa verið svo dýrir að þeir eru ókaupandi." Kolbeinn sagði að í raun væri málið í sjálfheldu og hann vildi engu spá um hvort úr rættist á næstunni. Miklar skemmdir á Siglufirði Greinilegt er að gífurlegar skemmdir áttu sér stað á Siglu- firði í óveðrinu mikla sem gekk yfir Norðurland í síðasta mán- uði. Mestar urðu skemmdirnar á Siglufirði við höfnina. Flóðvarnargarðurinn gamli kvaddi kóng og prest og hélt sína leið og fjaran hefur færst innar. Fremri hluti öldubrjóts er stór- skemmdur og sjór gengur í gegn um hann á kafla. Við Hafnar- bryggju tók talsvert úr uppfyll- ingu og sunnan á Eyrinni varð talsvert landbrot þegar sjórinn gekk upp Gránugötu. Ljóst er að skemmdirnar urðu meiri en talið var í fyrstu. Virðist sem af Siglfirðingum eigi ekki að ganga, því stuttu áður en þetta veður gekk yfir kom óveður þar og skemmdir urðu þá talsverðar víðar um bæinn, og fyrr á árinu urðu einnig talsverðar skemmdir er aurskriður féllu á bæinn. I rrj - >—* ð "ll u ^> UlíLI # Skörðótt sálarlíf Eins og fram kemur í frétt annars staðar í blaðinu er mjög mikið um það að perum sé stolið eða þær eyðilagðar í jólaskreytingum í bænum. Þannig þurfti að bæta um 100 perum í skreytinguna í kfrkju- tröppunum eftir fyrstu helg- ina sem hún var uppi. Nú er eins víst að ekki verði bætt meiru í skörðin sem aftur eru orðin stór. Það verður verð- ugur minnisvarði um skörðótt sálarlíf þeirra Akureyringa sem að þessu standa. # Jóla- sveinarnir í Hafnarstræti Það spurðu margir sig þeirrar spurningar hvort jólasvein- arnir, sem sungu á svölum Vöruhússins á dögunum hefðu ekki mátt æfa sig örlítið betur áður en þeir tróðu upp. Að auki stöidruðu þeir stutt við - eða í röskar 15 mínútur. Eflaust munu þeira gera betur næsta ár - eða hvað? # Hækjurnar vantar enn Um þessar mundir er mikill skortur á hækjum hjá Sjálfs- björgu. Eftir því sem S&S hef- ur heyrt og fengið staðfest þá eru um 100 hækjur í útláni og næsta öruggt að meirihluti þeirra er ekki lengur í notkun, en lánþegarnir hafa trassað að skila þeim. # Blönduós- búar óánægðlr Blönduósbúar eru óánægðir með skiptingu rækjukvótans í Húnaflóa, telja hana ósann- gjarna. Þeir munu fá um 10% af því sem aflað er en íbúar á Blönduósi eru mun fleiri en íbúar allra hinna staðanna sem einnig gera út á rækju í Húnaflóa. Þá eru forráða- menn Blönduóss ekki ánægðir með þróun mála hjá Vegagerð ríkisins á Blöndu- ósi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað t.d. hjá RARIK á Blönduósi, starfsmenn þar eru tæplega 20 og sömu sögu er að segja hjá Pósti og síma og hjá sjúkrahúsinu, en á báðum þessum stöðum hefur starfsmönnum fjölgað veru- lega. Hins vegar eru starfs- menn Vegagerðarinnar jafn margir í dag og þeir voru fyrir 10 til 15 árum. Á sama tíma hefur orðið geysileg fjölgun starfsmanna hjá Vegagerð- inni á Sauðárkróki og Hvammstanga. Hftt er svo aftur annað mál hvort for- ráðamenn Vegagerðarinnar á Blönduósi búi ekki yfir þeirri gætni i mannaráðningum sem svo sannarlega mætti einkenna fleiri ríkisfyrirtæki, sem þenjast út eins og blaðra.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.