Dagur - 03.12.1984, Side 1
FRETTIR
- blað Knattspyrnudeildar
adidas^
- segir Gústaf Baldvinsson þjálfari meistaraflokks
deildin verður sterkari en áður og
það verða ekki nema tvö lið sem
komast upp eins og allir vita.“
- Hvernig verður undirbún-
ingur KA fyrir sumarið?
„Pað er meiningin að hefja
æfingar um miðjan febrúar eða
nokkru síðar en í fyrra, en við
vorum e.t.v. of fljótir í gang þá.
Ég er ekki búinn að setja það
niður endanlega fyrir mig hvernig
þessu verður háttað en auðvitað
reynir maður að læra af reynsl-
unni sem þegar er fengin. Ég get
því sagt að þetta verður á ein-
hvern annan hátt byggt upp.“
- Vilt þú eitthvað úttala þig
nánar um möguleika KA í 2.
deildinni?
„Ég held að menn verði að
vera raunsæir og gera sér grein
fyrir því að þetta verður erfitt.
Ég held að það verði ekki miklar
breytingar hjá okkur, Ormarr
mun þó fara og Þorvaldur Þor-
valdsson úr Þrótti kemur í hans
stað. Við erum ekkert í því að
reyna að laða hingað mannskap
annars staðar að, en við verðum
að byggja á þeim mannskap sem
hér er fyrir hendi.“
- Hvað með þig sjálfan. Nú
lékst þú ekki mikið með liðinu
vegna meiðsla?
„Nei, ég meiddist fljótlega og
var ekki mikið með eftir það. Ég
hef átt við slæm meiðsli á hásin
að stríða en er nýkominn úr upp-
skurði vegna þess. Það má segja
að ég hafi verið á einum fæti í
sumar en vonandi hefst þetta vel
við svo ég verði tilbúinn í slaginn
eins og aðrir."
ið erum alltaf
höflega bjartsýnir
„Markmiðið að komast
upp næsta sumar“
Erlingur Kristjánsson.
„Það er auðvitað áfall fyrir
okkur að falla í 2. deild, en það
þýðir samt ekki að leggja árar
í iiát. Við verðum að vera
ákveðnir og setja stefnuna
strax aftur á 1. deild og hafa
það markmið að komast upp
næsta sumar,“ sagði Gústaf
Baldvinsson, en Gústaf hefur
verið endurráðinn þjálfari
meistaraflokks karla hjá KA
fyrir næsta keppnistímabil.
„Ég sé ekki betur en að félögin
sem verða í 2. deild séu með stór-
ar yfirlýsingar uin að þau ætli sér
að komast upp úr deildinni og
það er ýmislegt í gangi hjá
sumum þessara félaga til þess að
af því geti orðið. Keppnin í 2.
deild verður geysilega erfið,
Nú fer að Ijúka sölu á KA-
peningnum 1984. Þeir sem
hafa ætlað sér að ná í pening
ættu að gera það sem fyrst.
Ath. Þetta er fyrsti KA-pen-
ingurinn sem gefinn er út, og
því dýrmætur í safnið.
KA-peningurinn er núm-
eraður.
Gefiö KA-peninginn í
jólagjöf.
Knattspyrnudeild KA.
KA -peningurínn
góð gjöf
stöðuna enn og eins og fram hef-
ur komið hefur KA sótt um við-
bótarsvæði til þess að koma upp
sparkvöllum og gera félögum
okkar auðveldara fyrir að ná ár-
angri.“
- Hvað með fjármálin?
„Fjármálin standa vel. Þegar
ég segi þetta á ég við að við eig-
um fyrir skuldum þótt ekki eigum
við peninga þar fyrir utan. Við
erum þó lausir við þrúgandi
vaxtagreiðslur af lánum og
óreiðuskuldir og við sjáum ekki
annað en við getum rekið þetta
fjárhagslega þótt dýrt sé.“
- Þannig að þú ert bjartsýnn
þegar þú horfir fram á næsta ár?
„Við erum alltaf hóflega bjart-
sýnir. Við gerum okkur grein fyr-
ir því að það tekur mörg ár að ná
góðum árangri á öllum vígstöðv-
um. Það má segja að knatt-
spyrnudeildin sé 10 ára, því það
eru ekki nema 10 ár síðan KA og
Þór fóru að senda aðskilin lið í
meistaraflokki. Starfið í yngri
flokkunum varð ekki nógu þrótt-
mikið fyrr en þessi skipting átti
sér stað, þannig að ég er ósam-
mála þeim sem eru að ræða um
að æskilegt væri að sameina liðin
aftur undir merki ÍBA. Fyrir nú
utan það aö helmingi færri fengju
tækifæri til að leika. Mér sýnist
að það sé frekar grundvöllur fyrir
þriðja sterka félagið f bænum er
fram líöa stundir en að KA og
Þór fari að rugla saman reytum
sínum aftur.“
Gústaf á hækjunum eftir uppskurðinn.
Ljósi punkturinn er sá að við
vorum með yngri flokka sem
voru greinilega í mikilli framför,
á því er ekki vafi. Við erum
ákveðnir í því að halda unglinga-
starfinu áfram og reyna að efla
Stefán Gunnlaugsson.
það enn, m.a. með því að halda
áfram að fá hæfa leiðbeinendur
til að starfa að þessum málum.
Það var stofnað unglingaráð inn-
an deildarinnar og þá var stofnað
foreldrafélag. Það hefur viljað
brenna við undanfarin ár að for-
eldrar og aðstandendur væru
ekki nægilega virkir í starfinu.
Mér sýnist þetta vera að breytast
mjög til batnaðar og við höfum
fengið öfluga starfskrafta frá
þessum aðilum. Þá er því ekki að
leyna að bætt aðstaða eins og KA
hefur boðið upp á gerir beinlínis
kröfur um bættan árangur. Nú er
bara að stefna að því að bæta að-
Stefán Gunnlaugsson var á
aðalfundi knattspyrnudeildar
KA sem haldinn var á dögun-
um, endurkjörinn formaður
deildarinnar. Af því tilefni var
Stefán spurður hvernig hann
teldi að til hefði tekist á sl.
starfsári og hvað væri fram-
undan.
„Ég er auðvitað sáttur við sumt
og miður sáttur við annað hjá
okkur á síðasta starfsári eins og
gerist og gengur. Árangur liða
okkar var vel viðunandi á sl.
sumri þótt fallið í 2. deild sé auð-
vitað hlutur sem olli öllum KA-
mönnum vonbrigðum. Meistara-
flokkurinn vann þó til verðlauna
á árinu, sigraði í Akureyrarmóti
og KRA-móti.
Erlingur
bestur
Fimm leikmenn KA léku með
landsliði íslands í knattspyrnu
sl. sumar.
Þeir Njáll Eiðsson og Erlingur
Kristjánsson léku báðir með A-
landsliði, og Njáll m.a. í leik
Wales og Islands í Cardiff á
dögunum. Þá léku þeir Hafþór
Kolbeinsson, Mark Duffield og
Steingrímur Birgisson allir með
landsliði 21 árs og yngri.
Erlingur Kristjánsson var í
haust útnefndur „Knattspyrnu-
maður Akureyrar 1984“. Erl-
ingur náði einnig þeim áfanga á
árinu að leika sinn 100. leik með
meistaraflokki í mótum á vegum
KSÍ og þeim áfanga náði einnig
Ásbjörn Björnsson.