Dagur - 03.12.1984, Blaðsíða 2
14 - DAGUR - 3. desember 1984
Fjöldi manns kom og þáði kaffiveitingar.
Stund milli stríða.
Gestur Jónsson „messar“ og pollarnir fylgjast með af áhuga.
Mörg hundruð
manns mættu
á KA-daginn
Einn liðurinn í starfí knattspyrnudeildar
KA á árinu, var að gangast fyrir svo-
kölluðum KA-degi sem haldinn var í
ágúst. Var þetta í fyrsta skipti sem slíkur
dagur er haldinn hjá KA en örugglega
ekki í það síðasta.
Leitað var samstarfs við nýstofnað
Foreldrafélag KA og tók félagið að séi
að sjá um veitingar á svæðinu. Megintil-
gangur með KA-deginum var að sjálf-
sögðu að kynna starfsemi knattspyrnu-
deildarinnar, og þá sérstaklega ungl-
ingastarfið sem hefur staðið með mikl-
um blóma.
Mjög margt fólk kom á KA-svæðið á
KA-daginn til þess að fylgjast með því
sem þar fór fram og þiggja veitingar.
Þessar góðu undirtektir, þrátt fyrir að
veðurguðirnir hafi ekki leikið við hvern
sinn fingur þennan dag, verða án efa til
þess að KA-dagurinn verður árlegur
viðburður í starfinu.
Sem fyrr sagði var sérstök áhersla
lögð á kynningu á unglingastarfinu hjá
knattspyrnudeildinni sem Gunnar Kára-
son stýrir með miklum ágætum. Strák-
arnir í 7., 6., 5., og 4. flokki léku knatt-
spyrnu á svæðinu og 3, flokkurinn fékk
það erflða verkefni að glíma við „Old
boys“ lið félagsins. Gamlingjarnir léku
þarna við hvern sinn flngur, voru greini-
lega ánægðir með að komast á hinn
góða grasvöll sem félagið hefur komið
sér upp og strákarnir í 3. flokki urðu að
bíta í það súra epli að tapa leiknum.
Einar Helgason sýndi snilldartakta í marki „öldunganna“.
Útigrillið var til staðar - og margir kunnu vel að meta.
Gestur „Ted“ Jónasson að sníkja sér sleikju í eldhúsinu.
Árni Ingimundarson mætti á svæðið og greip í píanóið. Jón Arnþórsson fylgist hugfanginn
með.
Svipmyndir frá KA-degi - Svipmyndir frá KA-degi