Dagur - 06.02.1985, Síða 1
uiwki-SMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
sssfaal °| T
i dfce/.
Litmynda-
framköllun
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 6. febrúar 1985
15. tölublað
Er fíkniefnaneysla
að aukast á Akureyri?
Er fíkniefnaneysla að aukast á
Akureyri? - Daníel Snorrason
rannsóknarlögreglumaður í
bænum segir það skoðun sína
að neyslan hafi aukist talsvert
án þess að hann rökstyðji það
nánar.
„Ég held að það sé ekki vafa-
mál að sú þróun sem hefur átt sér
stað víða um land, t.d. í Reykja-
vík, sé að eiga sér stað hér,“ segir
Daníel. Hann segir að langflestir
þeirra sem teknir hafa verið með
fíkniefni á Akureyri séu um
tvítugt, og eingöngu hafi verið
um hass að ræða.
Geir Friðgeirsson læknir á Ak-
ureyri sem á sæti í starfshópi um
fyrirbyggjandi aðgerðir vegna
notkunar fíkniefna meðal ungl-
inga segir hins vegar að hann sé
ekki í aðstöðu til að dæma um
Vaðandi
smásíld
á Eyjafirði!
Nýlokið er síldarleit á Eyja-
firði. Það var hafrannsókna-
skipið Árni Friðriksson sem
var notað í þessum rannsókna-
leiðangri og eru niðurstöður
vissulega uppörvandi þó að
leitað hafi verið á Iitlu svæði.
Samkvæmt heimildum Dags
fannst óvenju mikið magn af
smásfld á firðinum sem gefur
góð fyrirheit um veiðina eftir
nokkur ár.
- Þetta kom ágætlega út en
það ber að hafa það í huga að
leitin stóð aðeins í um tvo sólar-
hringa og að ekkert hefur verið
leitað á fjörðunum hér í kring,
sagði Ólafur Halldórsson sem var
leiðangursstjóri í umræddri ferð.
- Við fundum tvo árganga af ís-
lenskri sumargotssíld sem er eini
síldarstofninn sem máli skiptir
hér við land. Eldri árgangurinn
er frá 1982 en meðallengd þeirrar
síldar var um 19 sentimetrar.
Þessi árgangur var dreifður með
fjörum allt frá Skjaldarvík
norður að Hjalteyri. Of dreifður
til að ég treysti mér að spá neinu
um hann. Yngri árganginn, frá
1983 fundum við á Laufásgrunni.
Þetta er hin svokallaða kræða,
um 11 sentimetra löng og ég verð
að segja að við erum þokkaiega
bjartsýnir með þennan árgang,
sagði Ólafur Halldórsson.
Að sögn Ólafs þarf fleiri leið-
angra og meiri rannsóknir áður
en hægt verður að segja til um
horfur. Síldin byrjar að koma inn
í veiðina við þriggja ára aldur en
fimm ára er hún að fullu komin
inn. Kynþroska verður hún frá
fjögurra ára aldri en á því aldurs-
skeiði eru um 50-70% síldarinn-
ar kynþroska. íslenska sumar-
gotssíldin er svo að fullu kyn-
þroska fimm ára.
Þessar upplýsingar eru svo
sannarlega uppörvandi og miðað
við það sem heyrst hefur frá Haf-
rannsókn er mun meira líf í haf-
inu út af Norðurlandi en verið
hefur til fjölda ára. Veldur þar
sennilega hitastigið miklu en
samkvæmt upplýsingum Jóns
Ólafssonar, haffræðings hjá Haf-
rannsókn, var hitastigið í nóvem-
ber er síðustu rannsóknir fóru
fram, um tveim til þrem gráðum
hærra en vant er á þessum árs-
tíma t.d. á hafsvæðinu utan við
Siglunes. Að sögn Jóns voru árin
1981-1983 mjög köld en hann
sagðist vonast til að hitastigið
væri nú að ná því meðallagi sem
var hér áður fyrr.
Nýjar rannsóknir á hitastigi
sjávar fara fram upp úr miðjum
febrúar. - ESE
hvort neyslan sé að aukast í
bænum. „Þetta er til staðar, en
við höfum ekki sannanir í hönd-
unum til að fullyrða um hvort
neyslan er að aukast,“ segir
hann. Sjá nánar bls. 3.
Daníel Snorrason rannsóknarlögreglumaður. Á borðinu fyrir framan hann
er hass og hasspípur sem lögrcglan á Akureyri hefur gert upptækt. Talið er
að smásöluverð hasskögglanna fremst á myndinni sé um 45 þúsund krónur.
Mynd: gk-.
norður?
- Þrjú vel rekin
norðlensk fyrirtæki
meðal bjóðenda
Nú er Ijóst að þrjú útgerðarfyr-
irtæki á Norðurlandi a.m.k.
keppa um það við útgerðarfyr-
irtæki annars staðar á Iandinu
að fá togarann Bjarna Herj-
ólfsson AR 200 sem Lands-
bankinn keypti nýlega á upp-
boði. Áður hefur verið greint
frá áhuga Útgerðarfélags Ak-
ureyringa og Útgerðarfélags
KEA og nú hefur Útgerðarfé-
lag Skagfirðinga bæst í hópinn.
- Það er rétt að við höfum sent
inn tilboð í togarann, sagði
Bjarki Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri US í samtali við
Dag.
Að sögn Bjarka er vinnslugeta
fiskvinnslunnar langt um meiri en
það sem togararnir þrír færa að
landi. Nýr togari sé því nauðsyn.
- Við höfum ástæðu til að vera
ánægðir með þau tilboð sem við
höfum fengið, sagði Stefán Pét-
ursson, lögfræðingur Landsbank-
ans þegar hann var spurður hvort
búið væri að taka afstöðu til til-
boðanna átta sem bárust í Bjarna
Herjólfsson. Að sögn Stefáns
hefur ákvörðun enn ekki verið
tekin um hver hreppir togarann
en þar mun vega þungt á metun-
um, staða viðkomandi fyrirtækja
því bankinn vill ekki fyrir nokk-
urn mun fá togarann aftur í haus-
inn. Bankastjórnarfundur verður
í Landsbankanum í dag og þá
Landsbankanum í dag og þá
skýrist kannski hvort Bjarni
Herjólfsson fer norður.
- ESE/GS
Pétur Einarsson, flugmálastjóri, í samtali við Dag:
L m f
ma
Fyrirhugaðar ratsjárstöðvar á Vestfjörðum og
Langanesi, yrðu óneitanlega hernaðarmann-
virki, en fyrst og fremst yrðu þær ómetanleg ör-
yggistæki fyrir allt almcnnt flug.
( bfgerð er að fjárfesta í nýjum aðflugsradar
fyrir Akureyrarflugvöll, sem kostar um 50
m.kr., en heildarfjárveitingar til framkvæmda
flugmálastjórnar á árinu eru 61 m.kr.
Til samanburðar má geta þess, að kostnaður
Bandaríkjahers við að halda .Keflavíkurflug-
velli snjólausum yfir vetrarmánuðina nemur
svipaðri upphæð.
• Stefnt er að því að Ijúka við flugstöðina við
Húsavíkurflugvöii í haust.
• Áfram er unnið að undirbúningi fyrir fram-
kvæmdir við lokaírágang og hitalögn í Sauðár-
króksflugvöll. sem að líkindum verður gerður
að varaflugvelli fyrir alþjóðaflugið.
Samkvæmt úttekt bandarísks sérfræðings er
ástand í flugumferðarþjónustu á íslandi eins og
best vcrður á kosið.
Þessi atriði, ásamt ýmsu öðru fróðlegu, koma
fram í viðtali við Pctur Einarsson, flugmálastjóra,
í opnu blaðsins í dag. - GS