Dagur - 18.02.1985, Blaðsíða 1
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Litmynda-
framköllun
FILMUhúsio
AKUREYRI
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 18. febrúar 1985
20. tölublað
Mokveiði á Skagagrunni við „bæjardyr“ Siglfirðinga:
Sigluvíkin verður
að hunsa þorskinn
- þar sem togarinn er búinn með úthaldsdagana
Það verður ekki við öllu séð
þegar kvótakerfi er annars
vegar. Það fá stjórnendur
Þormóðs ramma hf. á Siglu-
firði að reyna þessa dagana.
Þegar Sigluvíkin kemur úr
veiðiferð í dag er hún búin
með þá 44 daga sem gera má út
í janúar og febrúar samkvæmt
sóknarmarkinu og skipverjar
verða því að snúa sér að ein-
hverju öðru en þorskveiðum á
meðan. Það grátlega við þetta
er að síðustu daga hefur verið
mokveiði á Skagagrunni, nán-
ast við bæjardyrnar á Siglu-
firði.
- Þetta er auðvitað fáránleg
staða sem er komin upp og ég
trúi ekki að skömmtunarstjórarn-
ir verði það harðir í framtíðinni
að þeir taki ekki mið af stað-
reyndum, sagði Einar Sveinsson,
framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma hf. er rætt var við hann.
- Við völdum sóknarmarkið
fyrir togarana vegna þess að afli
okkar var það lítill tímabilið sem
kvótakerfið tekur mið af. Ef allt
Heilsugæslulæknar á Akureyri:
Flestir hafa
sagt upp
Um 90% allra heilsugæslu-
lækna á landinu hafa sagt upp
störfum sínum og eru flestir af
10 heilsugæslulæknum á Akur-
eyri í þeim hópi. Uppsagnirnar
voru lagðar fram 10. febrúar
og eiga því að koma til fram-
kvæmda 10. maí.
Að sögn Hjálmars Freysteins-
sonar heilsugæslulæknis á Akur-
eyri eru það einkum tvö atriði
sem snerta lækna hér í bænum og
blandast í kjaradeilu þessa. í
fyrsta lagi er það ágreiningur um
gjaldskrá og hins vegar varðandi
greiðslur fyrir vaktir.
„Við viljum fá endurskoðun á
gjaldskránni varðandi greiðslu
fyrir hvert læknisverk, en við
höfum ekki fengið neitt tilboð
um tejandi hækkun á henni. Það
sem heilsugæslulæknar hafa farið
fram á er að þessi gjaldskrá verði
í stórum dráttum eins og
gjaldskrá sérfræðinga, við fáum
sömu greiðslu og aðrir sér-
fræðingar fá fyrir sama verk.
Hitt málið er varðandi vaktir.
Það hafa verið greiddir í hverju
heilsugæsluumdæmi 300 klukku-
tímar á mánuði sem skiptist á þá
lækna sem þar eru. Það eru um
500 klukkutímar á mánuði sem
falla utan dagvinnu, greitt er fyrir
300 þeirra og þarna er því verið
að ræða um 200 klukkutíma sem
ekki er greitt fyrir. Við viljum fá
lagfæripgu á þessu, og okkar
krafa er sú að greitt verði fyrir
þessar vaktir eins og greitt er fyr-
ir bakvaktir á sjúkrahúsum. í dag
erum við talsvert undir þeim
greiðslum,“ sagði Hjálmar
Freysteinsson. gk,-
gengur að óskum ætti sóknar-
markið að geta fært okkur um
450 tonn af þorski umfram afla-
markið en aðrar fisktegundir eru
meira spurningarmerki, sagði
Einar Sveinsson.
Stjórnendur Þormóðs ramma
hf. munu auðvitað hlýta kvóta-
kerfinu og settum reglum um út-
haldsdaga og að sögn Einars hef-
ur sú ákvörðun verið tekin að
gera tilraun með veiðar á úthafs-
rækju í stað þess að binda togar-
ann við bryggju í tíu daga.
- Það má kannski segja að
þessi staða sem upp er komin sé
sjálfskaparvíti. Við hefðum get-
að stjórnað úthaldinu með
þriggja daga stoppi milli allra
túra en vegna verkfallsins sem
var yfirvofandi þorðum við ekki
að taka þá áhættu, sagði Einar
Sveinsson.
Sigluvíkin verður því að sigla í
gegnum þorsktorfurnar á leið til
rækjumiðanna en Stálvíkin sem
landaði tæpum 70 tonnum af
þorski á Siglufirði fyrir helgina
fær tækifæri til að veiða þorskinn
við bæjardyrnar. Þökk sé átta
daga bilun sem togarinn lenti í
fyrir nokkru. - ESE
Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, var meðal gesta á síðustu sýningunni
á „Ég er gull og gersemi“ hjá Leikfélagi Akureyrar á laugardagskvöldið. Að
lokinni sýningu heilsaði forsctinn upp á leikarana og hér ræðir hún við Tlico-
dór „Sólon“ Júlíusson.
Útgerðarfélag Ólafsfjarðar:
Hlutafé aukið
Ólafsfjarðarbær, Hraðfrysti-
hús Ólafsfjarðar hf. og Hrað-
frystihús Magnúsar Gamalíels-
sonar hf. hafa fengið lán úr
Byggðasjóði til þess að auka
hlutafé sitt í Útgerðarfélagi Ól-
afsfjarðar hf.
„Þessir aðilar fengu eina millj-
ón hver að láni til þessarar hluta-
fjáraukningar," sagði Valtýr Sig-
urbjarnarson bæjarstjóri í Ólafs-
firði er við ræddum við hann, en
þessir aðilar eru stærstu hluthafar
Útgerðarfélagsins.
„Það hefur verið mikill rekstr-
arfjárskortur hjá Útgerðarfélag-
inu og fyrirtækið hefur liðið fyrir
það. Reksturinn hefur þó gengið
vel að undanförnu, en skort hef-
ur rekstrarfé og þessar þrjár
milljónir eru fengnar að láni til
að reyna að bæta úr því," sagði
Valtýr. gk-.
Breytt innheimta Hitaveitu Akureyrar:
Einn reikningur á hvert
fjölbýlishús!
„Sölufyrirkomulagi hjá hita-
veitunni verður breytt 1. júlí á
þessu ári, þá kemur inn nýtt
áætlana- og innheimtukerfí og
það mun gerast að sjálfu sér að
sendur verður einn reikningur
á hvern mæli, þetta vandamál
verður þá úr sögunni,“ segir
Wilhelm V. Steindórsson hita-
veitustjóri á Akureyri.
Deilur hafa komið upp á Akur-
eyri ef lokað hefur verið fyrir
vatn til viðskiptavina hitaveit-
unnar þótt þeir hafi staðið f
skilum með greiðslur sínar. Hef-
ur þetta t.d. komið upp í fjöibýl-
ishúsum þar sem einn aðilinn hef-
ur verið í vanskilum, þá hafa hin-
ir orðið að gjalda þess.
„Ég get að sumu leyti skilið
þau viðhorf Akureyringa sem
hafa komið upp. Hjá nær öllurn
orkuveitum er skilgreindur
ákveðinn notandi, og notandinn
er mælirinn eða heimillinn, hvort
sem við á. Það er sendur út einn
reikningur til þessa notanda, þ.e.
einn reikningur á mæli eða
hemil.
Þannig var innheimtan fram-
kvæmd hér í upphafi, eða þar til
beiðni kom frá nokkrum fjölbýl-
ishúsum í bænum um að reikn-
ingunum væri skipt upp, það væri
auðveldara að eiga við slíkt í stað
þess að einn gjaldkeri þyrfti að
vera að eltast við peningana hjá
öllum. Þetta var fyrir minn tíma
og ég hefði lagst gegn þessu því
þetta hefur alls staðar kallað á
vandamál.
Hitaveitan leit á það sem þjón-
ustu að verða við þessum óskum.
Síðan þróuðust mál þannig að
farið var að senda út þessa skiptu
reikninga og þá kom sú staða upp
að við okkur var sagt: „Ég er
sjálfstæður notandi og greiði
minn reikning á réttum tíma og
þoli ekki að það sé lokað á mig
þótt einhver annar skuldi.“ Við
höfum hins vegar iitið á reikning-
inn einan og sér og hafi hann ekki
vcrið að fullu greiddur höfum við
lokað á viðkomandi mæli.“ gk-.
Skákþing Akureyrar:
Áskell
sigraði
Áskell Örn Kárason varð um
helgina skákmeistari Akureyrar
1985. Kom það ekki á óvart þar
sem Áskell hafði hálfan annan
vinning í forskot á helsta and-
stæðing sinn, Pálma R. Pétursson
þegar tvær umferðir voru eftir.
Pálmi Pétursson varð annar að
þessu sinni en skákmeistari Ak-
ureyrar frá í fyrra Kári Elíson,
hafnaði í þriðja sæti.
Nánar verður gert grein fyrir
úrslitum á Skákþinginu í mið-
vikudagsblaði en þá verða skákir
jafnframt skýrðar. - ESE