Dagur - 18.02.1985, Side 3
.
18. febrúar 1985 - DAGUR - 3
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NÝLAGNIR
VIÐGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Bridgefélag Akureyrar
Minningarmót um
Mikael og Angantý
- Selfyssingar sigruðu
Minningarmót Bridgefélags Ak-
ureyrar um þá félaga Mikael
Jónsson og Angantý Jóhannsson
var haldið um helgina í Síðuskóla
og var þátttaka mjög góð, eða
alls 70 pör, þar af 30 aðkomupör.
Spilaður var tvímenningur.
Segja má, að Selfyssingarnir
Sigfús Þórðarson og Vilhjálmur
Þ. Pálsson hafi komið, séð og
sigrað f þessu móti, en þeir voru
yfirburðasigurvegarar, hlutu alls
149 stig. í öðru sæti urðu Eiríkur
Helgason og Jóhannes Jónsson,
Dalvík, með 65 stig. í þriðja sæti
Jón Baldursson og Þórarinn Sig-
þórsson, Reykjavík 57 stig. Ak-
ureyringarnir Þórarinn B. Jóns-
son og Páll Jónsson urðu í fjórða
sæti með 53 stig og Örn Arnþórs-
son og Hörður Arnþórsson,
Reykjavík í fimmta sæti með 44
stig.
Framkvæmd mótsins tókst
með miklum ágætum undir ör-
uggri stjórn keppnisstjóranna,
Ólafs Lárussonar, Reykjavík og
Alberts Sigurðssonar, Akureyri,
en undirbúningur mótsins hvíldi
aðallega á herðum Þórarins B.
Jónssonar og Grettis Frímanns-
sonar.
Mikael Jónsson og Angantýr
Jóhannsson voru um árabil virkir
félagar í Bridgefélagi Akureyrar,
en þeir létust báðir á síðasta ári.
Þátttakendur voru víða af
landinu, t.d. frá Akranesi, Sel-
fossi, Suðurnesjum, Reykjavík,
Kópavogi auk þess frá flestum
bridgefélögum á Norðurlandi.
Sigurvegarar mótsins, Selfyssingarnir Vilhjálmur Þ. Pálsson og Sigfús Þórð-
arson við spilaborðið.
Gert við
Allir kannast við grjótflugið á
þjóðvegunum á sumrin. Þeir eru
margir sem hafa lent í því að
koma með brotna framrúðu heim
úr annars vel heppnuðu ferðalagi
og þó tryggingarnar bæti skaðann
vegna framrúðutryggingarinnar
hlýst af þessu mikið óhagræði.
Nú er komið á markað efni
hjá BSA
var þá meðfylgjandi mynd tekin.
Og árangurinn er ótrúlegur þó
mörgum finnist kannski verðið
fullhátt enn sem komið er en
rúðuviðgerðin kostar 1.524 krón-
ur fyrir fyrstu skemmd en síðan
400 kr. til viðbótar fyrir hverja
„rós“. Gjaldið er 30% hærra fyrir
vörubíla og rútur. - ESE
bílrúður
sem hægt er að nota til að gera
við minni háttar skemmdir á
rúðum. Það er Bílaborg í
Reykjavík sem er umboðsaðili
hér á landi en á Akureyri fer
BSA með viðgerðarþjónustuna.
Umboðsmönnum tryggingafélag-
anna á Akureyri var kynnt þessi
nýja þjónusta sl. fimmtudag og
Nýkomið
Sokkabuxur barna.
Stærðir 2-6. Verð frá kr. 145,-
Barnatrimmgallar.
Stærðir 116-164. Verð kr. 935,-
Barnajogginggallar.
Stærðir 92-110. Verð kr. 468,-
Dömugallabuxur.
Stærðir 28-35. Verð aðeins kr. 550,-
Dömubolir, langerma.
Stærðir S-XL. Verð kr. 247,-
Herragallabuxur.
Stærðir 30-40. Verð kr. 645,-
Á skíðum og vélsleðum á Tungnahryggsjökli 1983.
Ferðaáætlun
Ferðafélag Svarfdæla hyggst gangast fyrir eftirtöídum skíða-
ferðum á þessum vetri:
Laugardaginn 23. febrúar:
Ferð frá Koti í Svarfaðardal upp að Skeiðsvatni. Létt ferð fyrir
alla.
Laugardaginn 9. mars:
Ferð frá Syðra-Holti fram „heiðar" með viðkomu á Nykurtjörn
og niður hjá Steindyrum. Tveggja til þriggja tíma ganga, ca.
700 metra hæð.
Laugardaginn 23. mars:
Ferð suður yfir Hamarinn frá þjóðvegi á Hrísamóum á þjóð-
veg hjá Sökku. Lauflétt ferð fyrir alla.
Laugardaginn 5. aprfl, föstudaginn langa:
Yfir Heljardalsheiði frá Atlastöðum að Hólum í Hjaltadal. Ca.
5-6 tíma gangur.
Sunnudaginn 25. apríl, sumardaginn fyrsta:
Ferð í Tungnahryggsskála upp úr Skíðadal með aðstoð vél-
sleða.
Allir eru velkomnir til þátttöku í öllum ferðunum, ekki síst fé-
lagar í ferðafélögunum á Akureyri og í Hörgárdal.
Stjórn Ferðafélags Svarfdæla.