Dagur - 18.02.1985, Síða 5
18. febrúar 1985 - DAGUR - 5
Tölvuaflestur í verslunum?
- Kaupfélögin íhuga þann möguleika
Flestir neytendur hafa án efa
tekið eftir einkennilegum
þverstrikamyndum sem sjá
má á umbúðum fjölmargra
tegunda af innfluttum neyslu-
vörum. Þetta er sérstök al-
þjóðleg vörumerking, sem gef-
ur möguleika á mjög auknum
hraða við afgreiðslu á búða-
kössum, með aðstoð sérstaks
tölvubúnaðar. Samvinnuversl-
unin hér á landi hefur eins og
kunnugt er jafnan lagt á það
áherslu að fylgjast sem best
með öllum nýjungum á sviði
verslanarekstrar, og nú er það
í athugun hvort hagkvæmt geti
orðið að innleiða þessa tækni í
kaupfélagabúðunum hér á
landi, eftir því sem segir í nýj-
ustu Sambands-fréttum.
Það er Sigurður Jónsson for-
stöðumaður markaðsráðs sem
hefur einkum fylgst með þessu
máli af hálfu samvinnuhreyfing-
arinnar. Hann gaf okkur þær
upplýsingar að þetta gengi undir
nafninu EAN-kerfið, en á ís-
lensku hefur m.a. verið notað
orðið stuðlamerkingar um þessa
tækni. Á síðasta ári voru stofnuð
sérstök samtök, EAN-nefndin á
íslandi, og auk Sambandsins eiga
þar aðild Félag ísl. iðnrekenda,
Félag ísl. stórkaupmanna, Kaup-
mannasamtök íslands og Versl-
unarráð íslands. Auk þess eiga
Neytendasamtökin áheyrnarfull-.
trúa í nefndinni. Þetta eru þeir
aðilar, sem hagsmuna eiga að
gæta vegna vörumerkinga, og til-
gangur nefndarinnar er að kynna
og koma á EAN-númerakerfi á
vörum sem framleiddar eru og
verslað með á íslandi. Nefndin er
aðili að EAN-alþjóðasamtökun-
um í Brussel. en Iðntæknistofn-
un Islands mun annast rekstur
númerabanka hér á landi og ráð-
gjöf í umboði EAN-nefndarinn-
ar.
EAN-númerakerfið saman-
stendur af röð af strikum, sem
prentuð eru á umbúðirnar, og
standa þessi strik fyrir 13 tölu-
stafi. Fyrstu tveir stafirnir standa
fyrir upprunaland vörunnar, en
næstu 10 stöfum getur hvert land
ráðstafað að eigin vild, og tákna
venjulega 5 fyrri stafirnir fram-
leiðandann og næstu 5 vörunúm-
er hans. Síðasti stafurinn er svo-
nefnd vartala sem gegnir hlut-
verki í sambandi við sjálfvirkan
aflestur.
Við kassaborðið er síðan lesið
af þessu merki á sjálfvirkan hátt,
og er sá verknaður nefndur
skönnun (scanning á ensku). Þá
ýtir gjaldkerinn vörunni undir
aflestrarauga skannans, og ljós-
geislar frá auganu lesa númerið,
sækja upplýsingar um vöruna inn
í tölvu, færa þær yfir í kassann
þar sem verð hennar og e.t.v.
fleiri upplýsingar prentast á
kassamiðann. Að því er snýr að
neytendum þá er meginkosturinn
sá að þessi tækni flýtir mjög allri
vinnu við kassana, dregur úr
villuhættu og gerir í stuttu máli
alla afgreiðslu fljótari. Fyrir
verslanir hefur þessi tækni auk
þess ýmsa kosti, t.d. auðveldar
hún birgðabókhald og innkaup
verulega.
Það virðist ljóst að þessi tækni
muni fyrr eða síðar hefja innreið
sína í íslenska smásöluverslun.
Á þessu stigi er ekki unnt að
se^ja hvenær, en af hálfu Sam-
bandsins verður fylgst grannt
með framgangi þessara mála og
allar upplýsingar sendar jafnóð-
um út til kaupfélaganna. Einnig
er ljóst að íslensk útflutningsfyr-
irtæki hljóta að vera vakandi yfir
þessari nýjung, því að nauðsyn-
legt getur orðið að merkja ís-
lenskar vörur, sem seldar eru er-
lendis, með þessum hætti.
Trérennibekkirnir
vinsælu komnir aftur.
Verð aðeins kr. 14.220,-
Áltröppur - Álstigar.
Rúllugardínur, nýefni í vikunni.
Fljót og góð þjónusta.
Norðurfell hf.
byggingavöruverslun Kaupangi
602 Akureyri, sími 23565.
Aðalfundur
Hestamannafélagsins Léttis
verður haldinn sunnudaginn 24. febrúar nk. í Félagsmiðstöð-
inni Lundarskóla og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stofnun kvennadeildar Léttis.
Kaffiveitingar.
Félagar mætum vel og stundvíslega.
Y Stjórn Léttis.
Aðalfundur íþróttadeildar Léttis
verður haldinn fimmtudaginn 21. febrúar nk. í Lundarskóla kl.
20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið. Stjórn Í.D.L.
LETTIH
ACTIGENER
HRINGDU í SÍHHA 26911
og fáðu nánari upplýsingar um útvarpsauglýsingaþjónustu
okkar. Með tilkomu Rásar 2, og staðbundins útvarps
á Norðurlandi, eru útvarpsauglýsingar orðnar
sterkur möguleiki fyrir auglýsendur á Norðurlandi.
LEITAÐU TIL FAGFÓLKS ÞAÐ BORGARSIG
/4UGLÝSING/4STOM FMÐHÚSTORGI 3 SÍMI 2 6911
21 kennari Menntaskólans
á Akureyri auglýsir
eftir vinnu frá 1. mars:
Við höfum flest langa reynslu í ábyrgðarstarfi hjá ríkinu og
mörg okkar einnig á öðrum stöðum.
Við erum vön verkstjórn og þjálfuð í mannlegum samskiptum,
auk þess sem við getum unnið sjálfstætt.
Við erum vön löngum vinnudegi auk heimavinnu um kvöld og
helgar.
Við erum vön því að leggja til vinnuaðstöðu á heimilum okkar.
Við óskum eftir atvinnu og viðunandi kjörum.
Við veitum sjálf upplýsingar og svörum tilboðum. Upplýsinga
um starfsferil má einnig leita hjá skólameistara Mennta-
skólans á Akureyri og Menntamálaráðuneytinu.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, Smárahlíð 22h.
B.A. próf í sagnfræði og félagsfræði. Góð kunnátta í Norður-
landamálum. Reynsla á sviði sjálfstæðrar stjórnunar, skiplagn-
ingar, verkstjórnar, erlendra bréfaviðskipta, hótelstarfa og
blaðaútgáfu.
Bragi Guðmundsson, Tjarnariundi 19e.
Cand. mag. próf í sagnfræði og 11/2 árs nám í uppeldis- og
kennslufræðum. 3ja ára starfsreynsla við kennslu. Rannsókna-
störf í sagnfræði í nokkur ár.
Erlingur Sigurðarson, Vanabyggð 10c.
B.A. í íslensku og sagnfræði. 8 ára starfsreynsla við kennslu.
Auk þess blaðamennska o.fl.
Grétar Ingvarsson, Hrísalundi 6g.
B.S. próf í jarðfræði. 8 ára starfsreynsla. Er vanur forritun og
tölvuvinnslu.
Gunnar Frímannsson, Daisgerði 5b.
Fil. kand. próf í félagsfræði, hagfræði, tölfræði og sálarfræði.
Starfsreynsla: Kennslu- og stjórnunarstörf í 121/2 ár.
Jón Hafsteinn Jónsson, Þórunnarstræti 128.
Cand. mag. í stærðfræði frá Kaupmannahöfn. Framhaldsnám i
Sviss 1 ár. Hefur fengist við forritun í BASIC og PASCAL.
Jónas Helgason, Kringlumýri 33.
B.S. próf í landafræði. Kennsla við grunnskóla í Reykjavík
1978-1981. Kennsla í menntaskóla frá hausti 1981. Meirapróf
og rútupróf og margvísleg reynsla viö störf í iðnaði og landbún-
aði.
Kristján Kristjánsson, Arnarsíðu 8a.
B.A. í heimspeki og þýsku. Reynsla af bankastörfum í 2 ár og
kennslu í 3 ár.
Magnús Jónsson, Brekkusíðu 11.
Fil. kand. í veðurfræði auk viðbótarnáms í veður- og stærð-
fræði. Kennslureynsla 7 ár. Starf sem veðurfræðingur 2 ár.
Meirapróf bifreiðastjóra og 30 tonna skipstjórnarréttindi.
Magnús Kristinsson, Dalsgerði 4d.
B.A. enska, þýska. Löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur. Rút-
upróf. 17ára starfsreynsla við kennslu, stjórnun, fararstjórn inn-
an lands og utan og þýðingar.
Margrét Baldvinsdóttir, Dalsgerði 7c.
íþróttakennari. 5 ára starfsreynsla við kennslu, þjálfun og fé-
lagsmál.
Níels Karlsson, Steinnesi.
B.S. í eðlisfræði. 7 ára starfsreynsla við kennslu. Kennslugrein-
ar eðlisfræði, stærðfræði, stjörnufræði. Auk þess reynsla við
tölvunotkun.
Olafur Rafn Jónsson, Þingvallastræti 22.
B.A. í stjórnvísindum. Starfsreynsla: 15 ára kennsla við
menntaskóla, löggiltur skjalaþýöandi í ensku. Reynsla af starfs-
mannahaldi og ferðaþjónustu.
Rafn Kjartansson, Byggðavegi 134.
M.A. í ensku og enskum bókmenntum. 17 ára starfsreynsla við
kennslu. Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi í ensku. Hótel-
stjórn og önnur störf sem tengjast ferðamálum.
Ragnheiður Gestsdóttir, Furulundi 10h.
Háskólapróf í dönsku frá Kaupmannarhafnarháskóla. 12 ára
kennslureynslja. Þýðingar. Auk þess nokkur reynsla við hótel-
störf, verksmiðjustörf (Tuborg, Kaffibrennsla Akureyrar) og
barnagæslu.
Sigríður Pálína Erlingsdóttir, Þingvallastræti 24.
B.A. í frönsku og sögu. 20 ára kennslureynsla. 4ra ára starfs-
reynsla við almenn skrifstofustörf og bókhald.
Stefania Arnórsdóttir, Oddeyrargötu 24.
M.A. próf í þýsku og rússnesku. Meinatæknir. 12 ára starfs-
reynsla. Auk þess 18 ára starfsreynsla viö matreiðslu og ræst-
ingar.
Stefán Jónsson, Kringlumýri 4.
Fil. kand. í eðlisfræði og stærðfræði. Doktorspróf (fil. dr.) í eðl-
isfræði. Starfsreynsla: Kennsla í 7 ár, rannsóknastörf í 5 ár.
Reynsla af tölvunotkun.
Sverrir Páll Erlendsson, Ásvegi 29.
B.A. í íslensku og sagnfræði auk uppeldis- og kennslufræða.
12 ára reynsla viö kennslu, stjórnun og ráðgjöf í félagsmálum.
Auk þess reynsla við dagskrárgerö o.fl. í útvarpi og þýðingar.
Valdimar Gunnarsson, Brekkugötu 43.
B.A. í íslensku og sagnfræði. Meirapróf bifreiðastjóra með rútu-
prófi. 13 ára kennslureynsla. Er vanur tölvuvinnslu, forritun og
stjórnun.
Þórir Haraldsson, Furulundi 11 d.
B.S. 120 einingar í líffræði. Uppeldis- og kennslufræði.
Kennslureynsla í 13 ár.
GEYMIÐ AUGLYSINGUNA.