Dagur - 18.02.1985, Side 7
6 - DAGUR - 18. febrúar 1985
18. febrúar 1985 - DAGUR - 7
Friðjón Jónsson reynir að komast í gegnum vörn Þórsara en er stöðvaður og honum
Mynd: KGA
haldið.
Anton tiyggði
KA sigur
- er liðið vann Þór með 26:25
„Þetta var mjög gaman, það er alltaf
gaman þegar manni gengur vel,“
sagði Anton Pétursson, 17 ára piitur
í KA sem var maður kvöldsins er KA
sigraði Þór 26:25 í fyrri leik liðanna í
Akureyrarmótinu í handknattleik á
fímmtudagskvöldið. Anton sem er
nýliði í meistaraflokki var betri en
enginn á lokamínútu leiksins, hann
jafnaði metin 25:25 þegar 40 sek.
voru til leiksloka og 4 sek. fyrir leiks-
lok slapp hann inn úr horninu og
skoraði sigurmark KA við mikil fagn-
aðarlæti áhorfenda. Hann á ekki
langt að sækja það pilturinn að geta
slegið um sig á handboltavellinum,
Pétur Antonsson faðir hans var hér á
árum áður einn af snillingum gullald-
arliðs FH.
Hvorugt liðið stillti upp sínu sterkasta
á fimmtudagskvöldið, KA án Þorleifs
Ananíassonar, Erlings Kristjánssonar
og Erlends Hermannssonar og Þór án
Kristjáns Kristjánssonar og Davíðs Þor-
steinssonar. En það var sami gaura-
gangurinn og venjulega er þessi lið
mætast, og aldrei gefin þumlungur eftir.
Á köflum var talsverð harka í leiknum
og verður að segjast eins og er að dóm-
ararnir einbeittu sér meira að því að
reka menn útaf fyrir nöldur og þvíum-
líkt en að leggja áherslu á að hafa hemil
á brotum leikmanna.
Leikurinn þróaðist þannig i fyrri hálf-
leik að jafnt var á öllum tölum upp í 7:7
en þá komust Þórsarar yfir, forskot
þeirra mest 3 mörk er staðan var 12:9 en
í hálfleik leiddi Þór 13:11.
í upphafi síðari hálfleiks var nánast
um einvígi þeirra Friðjóns Jónssonar
KA og Rúnars Steingrímssonar Þór að
ræða, þeir skoruðu á víxl og talsvert
gekk á. KA jafnaði 15:15 og eftir það
má segja að jafnt hafi verið á öllum
tölum og liðin skiptust á um að skora á
undan. Lokamínútunni er áður lýst, eða
þætti Antons Péturssonar þar, en vissu-'
lega geta Þórsarar nagað sig í handar-*
bökin, þeir höfðu mark yfir og fengu
boltann er ein og hálf mínúta var eftir,
en tókst ekki að nýta sér það til sigurs.
Bestu menn KÁ í þessum leik voru
þeir Þorvaldur Jónsson í markinu sem
varði oft mjög vel og Friðjón Jónsson,
en ekki má gleyma þætti Antons í lokin.
Hjá Þór var Rúnar seigur í horninu og
Sigurður Pálsson sýndi takta á köflum
en getur meira. í heild var leikurinn hin
besta skemmtun, en handboltinn hefði
þó getað verið mun burðugri.
Mörk KA:
Friðjón Jónsson 9 og þar af nokkur víti,
Jón Kristjánsson 5, Ragnar Gunnars-
son, Anton Pétursson og Logi Einarsson
3 hver, Pétur Bjarnason 2, Hafþór
Heimisson 1.
Mörk Þórs:
Sigurður Pálsson 12 og þar af nokkur
víti, Rúnar Steingrímsson 6, Gunnar M.
Gunnarsson 3, Guðjón Magnússon 2,
Árni Stefánsson og Hörður Harðarson 1
hvor.
Framarar áttu ékki
nokkurn möguleika
- þegar
Þórsarar
unnu þá
93:82
Þórsarar áttu ekki í vand- var alltaf öruggur í síðari hálf-
ræðum með að sigra Framara leik, og verður að telja það
í síðari leik liðanna í körfubolt- furðulegt að Þór sé búið að
anum um helgina. Sigur Þórs tapa þvívegis í vetur fyrir þessu
Þórsarar töpuðu
á lokamínútunum
slaka liði Fram. Urslitin í ósigrinum illa, og einn þeirra
leiknum 93:82 fyrir Þór og bæði sparkaði niður auglýs-
hefði sá sigur hæglega getað ingaskiltum og hrækti á gólfíð
verið stærri. Framarar tóku er honum var vísað úr hús-
______________________________ inu!!!
Fyrri leikur Þórs og Fram í 1.
deildinni í körfubolta um helg-
ina var vægast sagt köflóttur
hjá Þórsurum. Liðið lék afar
vel í fyrri hálfleik og virtist þá
hafa leikinn í hendi sér en í
þeim síðari var allt annar svip-
ur á leik liðsins og Framarar
náðu að tryggja sér sigurinn
verðskuldað.
Reyndar töpuðu Þórsarar þess-
um leik ekki endanlega fyrr en á
lokamínútum leiksins, en þá var
liðið komið í mikil villuvandræði.
Hins vegar er lið Fram það slakt
að með þokkalegum leik í 40
mínútur á Þór alls ekki að tapa
fyrir Fram á heimavelli sínum.
Þór hafði ávallt forustuna í
fyrri hálfleiknum. Liðið komst
strax í 6:2 og síðan 16:8 og Þórs-
arar virtust hafa þeta í hendi sér.
Minnsti munurinn í hálfleiknum
var 2 stig, en staðan í leikhléi
41:37 Þór í vil.
Leikurinn var áfram í járnum
í síðari hálfleik, liðin skiptust á
um forustuna og er staðan var
61:61 voru 7 mínútur eftir. En
þá datt allur botn úr leik Þórsara.
Fram skoraði næstu 8 stig, staðan
orðin 69:61 þeim í vil og úrslit
leiksins ráðin. Lið sem skorar
ekki nema 8 stig á síðustu 7
mínútum leiks sigrar varla og það
sannaðist hér.
Jóhann Sigurðsson var besti
maður Þórs að þessu sinni. Hann
er orðinn mun betri skotmaður
en hann hefur verið, og var t.d.
með um 76% hittni í þessum leik
sem er geysilega gott. Jón Héð-
insson lék ekki með liðinu að
þessu sinni og veikti það liðið
verulega.
Jóhann var stigahæstur Þórsara
með 26 stig, Konráð Óskarsson
með 19, Björn Sveinsson 10,
Guðmundur Björnsson 7, Björn
Sigtryggsson 5, Þórarinn Sigurðs-
son 2 stig. - Hjá Fram var Þor-
valdur Geirsson stigahæstur með
24 stig, Jóhann Bjarnason 19.
Handbolti 2. deild:
Mikilvægir
leikir um
helgina
Geysilega mikilvægir leikir
verða hjá Akureyrarliðunum í
2. deild handboltans um næstu
helgi, en þá leika bæði liðin
tvo leiki syðra. Má segja að
hér geti úrslit mótsins ráðist að
miklu leyti fyrir liðin.
KS, sem keppir um sæti í 1.
deild á að leika við þau lið sem
einnig berjast á toppnum, Fram
og HK. Er ekki að efa að þar fá
KA-menn erfitt verkefni, en sigr-
ar í þessum leikjum geta svo gott
sem tryggt KA sæti í 1. deild að
ári þrátt fyrir að talsvert sé eftir
að leikjum.
Þórsarar eiga að leika gegn
Fylki og Haukum, og tapi Þórsar-
ar þessum leikjum eru þeir
endanlega fallnir í 3. deild eftir
árs veru í 2. deildinni. Svo virðist
sem liðið hafi verið að sækja sig
mjög að undanförnu og liðið á
möguleika, en þó verður róður-
inn án efa erfiður gegn Haukun-
um sem hafa verið í mikilli fram-
för að undanförnu.
Það er því óhætt að segja að
um næstu helgi sé það alvaran
sem gildir, og það þýðir ekkert
hálfkák hjá Akureyrarliðunum ef
þau ætla sér að koma með fjóra
sigra úr þessum leikjum.
Fyrri hálfleikurinn var oftast
mjög jafn, en þó voru Þórsarar
yfirleitt með forustu. Þannig var
staðan 21:16 fyrir Þór eftir 10
mínútur en síðar mátti sjá á töfl-
unni 31:31 og í hálfleik 38:38.
Þórsarar náðu strax yfirhönd-
inni í síðari hálfleik. Konráð
Óskarsson fór hreinlega á kost-
um þá og réðu Framarar ekkert
við hann. Fór þetta greinilega í
skapið á þeim, þeir voru sínöldr-
andi út í allt og alla og komust
reyndar upp með það. Staðan var
orðin 61:48 fyrir Þór um miðjan
hálfleikinn og eftir það var spurn-
ingin aðeins hversu stór sigur
liðsins yrði, lokatölur sem fyrr
sagði 93:82.
Þrátt fyrir sigurinn var leikur
Þórs ansi köflóttur að þessu
sinni. Langir kaflar í fyrri hálfleik
voru afar slakir, og það er eins og
strákarnir nái ekki og ætli seint
að læra að taka mótlæti í leik.
Sennilega hefur verið „messa“ í
búningsklefanum í leikhléi því
það var allt annar bragur á liðinu
í síðari hálfleik, meiri keyrsla og
betri vörn.
Konráð Óskarsson var besti
maður vallarins að þessu sinni.
Jón Héðinsson lék nú með liðinu
og sýndi enn einu sinni að hann
þarf ekki að æfa mikið til þess að
geta haft svokallaða toppmenn í
1. deild í vasanum. Aðrir leik-
menn voru jafnir, og nú er bara
að sjá hvað liðið gerir gegn ÍBK
um næstu helgi. Framarar bíða
spenntir eftir þeim leikjum því
eina von þeirra um sæti í Urvals-
deild byggir m.a. á sigri Þórs í
báðum leikjum liðsins við ÍBK.
Stig Þórs:
Konráð Óskarsson 29, Jón Héð-
insson 21, Jóhann Sigurðsson 15,
Björn Sveinsson 11, Hólmar Ást-
valdsson 6, Björn Sigtryggsson
og Guðmundur Björnsson 5
hvor.
Stig Fram:
Hjá Fram voru þeir stigahæstir
Þorvaldur Geirsson með 17,
Ómar Þráinsson með 15 og Björn
Magnússon með 14 stig.
Það var lítið gefið eftir í leikjum Þórs og Fram eins og sjá má á þessari mynd úr fyrri leiknum.
Mynd: KGA
íslandsmótið í knattspyrnu innanhúss:
Úvænt er Fylkir varð
íslandsmeistari!
Fylkir varð um helgina íslands-
meistari í knattspyrnu innan-
húss er liðið sigraði Akranes í
úrslitum með 6:3 í leik sem var
mjög tvísýnn fram undir lokin.
Leikið var í 4 riðlum í keppn-
inni og eftir að riðlakeppninni
lauk var ljóst að Víkingur, Víðir,
HSÞ-b og ÍBÍ höfðu fallið í 2.
deild, HSÞ-b á markahlutfalli.
HSÞ tapaði fyrir ÍBK 4:5, vann
UBK 6:5, tapaði fyrir Fylki 6:9.
Þórsarar töpuðu fyrir Akranesi
2:3 og Skallagrími 1:2, en unnu
ÍBÍ 6:5. í öðrum riðli lék KA sem
gerði jafntefli við Val 4:4, vann
Víking 6:4 en tapaði fyrir FH 4:5.
3. deild:
Þar kepptu einnig 16 lið í fjórum
riðlum, en leikið var með öðru
fyrirkomulagi en í 1. deild.
Neðstu iiðin í riðlakeppninni
féllu í 4. deild en það kom í hlut
Súlunnar, Tindastóls, Augna-
bliks og Magna. Þau lið sem urðu
í efstu sætum riðlanna og komust
í 2. deild voru hins vegar HV,
Neisti, Reynir S. og ÍK.
Konur:
Konurnar kepptu í tveimur riðl-
um og þegar upp var staðið sigr-
aði Breiðablik, vann Akranes í
úrslitum 3:2.
Þór lék við Hveragerði og vann
4:1, Þór vann Víði 4:2 og Selfoss
3:0 en stóri skellurinn kom gegn
Akranesi en þeim leik tapaði Þór
1:7.
KA gerði jafntefli gegn Fylki
2:2, en tapaði 1:7 fyrir ÍBÍ og 0:7
fyrir Akranesi.
Gísli fer til
Siglufjarðar
Við höfum áður hér á íþrótta-
síðunni fjallað um fyrirhuguð
félagaskipti Gísla Sigurðssonar
markvarðar Tindastóls tii KA.
Reyndar feðruðum við Gísla
ekki rétt í blaðinu sl. miðviku-
dag, sögðum hann Bjömsson
og er beðist velvirðingar á því.
Frá því var sagt samkvæmt
upplýsingum frá Siglufirði að
Gísli myndi leika með KS í
sumar. Eftir samtal við Árna
Stefánsson þjálfara Tindastóls
síðar, var sagt frá því að Gísli
væri hættur við að fara til Siglu-
fjarðar, en fyrir helgina tjáði
Karl Pálsson formaður KS að
Gísli væri ákveðinn í að skipta
um félag og myndi leika með KS
í sumar.
Gísli varði mark Tindastóls á
sl. ári og stóð sig vel, enda talinn
mikið markmannsefni. Ef hann
fer til KS er því ekki annað fyrir-
sjáanlegt en að Árni Stefánsson
verði að klæðast markmanns-
hönskunum að nýju og eru
Tindastólsmenn reyndar ekki á
flæðiskeri staddir með þennan
fyrrverandi landsliðsmarkvörð á
milli stanganna.
ennþá í sviðsljósinu
Vetur konungur heldur áfram
að gera knattspyrnumönnum
Evrópu lífíð leitt. Þetta
ástand er farið að hafa erfíð-
leika í för með sér fyrir félög-
in sem eiga sum hver í hinu
mesta basli fjárhagslega.
Bikarkeppnin átti að vera á
dagskrá, en aðeins tókst að
leika þrjá leiki í henni. Á föstu-
dagskvöld léku Blackburn og
Manchester United og var þeim
leik sjónvarpað um England.
Strax á 7. mínútu gerði bak-
vörður Blackburn, Mike Rath-
bone sig sekan um herfileg mis-
tök þegar hann rann á rassinn í
eigin vítateig, og Gordon
Strachan fékk boltann í fæturn-
ar í dauðafæri og skoraði.
Mikið líf færðist í heimaliðið
þegar markaskorarinn Simon
Garner kom inná sem varamað-
ur og m.a. átti kappinn skot í
stöng. Á 82. mínútu var dæmd
vítaspyrna á Blackburn þegar
Rathbone sparkaði Mark
Huges niður í teignum. Strach-
an tók spyrnuna en skaut vel
yfir markið. í lokin lagði Black-
burn allt í sölurnar til að jafna
en það reyndist liðinu dýrt því
Paul McGrath komst einn inn-
fyrir vörnina og skoraði.
í ágætum sjónvarpsleik feng-
um við að sjá óvænt úrslit, jafn-
tefli 3. deildar liðsins York Citv
og Evrópumeistara Liverpool.
Það var erfitt í fyrri hálfleik að
sjá hvort liðið bæri Evrópu-
meistaratitilinn því Jórvíkingar
áttu fullt eins mikið í leiknum.
Eftir að John Wark komst í
dauðafæri strax í byrjun var
leikurinn algjörlega í höndum
3. deildar liðsins. Þeir Allan
Hansen og stóri Keith Walwyn
áttu í mikilli baráttu allan leikinn
og gerði Walwyn Hansen oft líf-
ið leitt. York skoraði reyndar
mark sem við fyrstu sýn virtist
löglegt en dómarinn dæmdi það
ógilt. Ricky Spragia sem áður
lék með Birmingham átti góðan
skalla á mark Liverpool sem
Grobbelar varði vel.
Eftir hlé komst Liverpool
meira inn í leikinn og á 52. mín-
útu skoraöi Ian Rush feikifal-
legt mark og héldu nú flestir að
dagar York væru taldir. En þeg-
ar 6 mínútur voru til leiksloka
kom jöfnunarmarkið. Tvívegis
fór boltinn í marksúlur Liver-
pool og loks náði Ricky Sprakia
að koma boltanum í markið og
tryggja York annan leik sem
háður verður á Anfield.
Everton vann utandeildarlið-
ið Telford United með þremur
mörkum gegn engu. Telford
varðist í 68 mínútur og hinir 47
þúsund áhorfendur sem komu
til að sjá hclling af mörkum
voru farnir að örvænta. Engu
munaði að Colin Williams kæmi
utandeildarliðinu yfir á 28. mín-
útu, en Southall í í marki Ever-
ton varði meistaralega.
Á 68. mínútu sendi Kevin
Sheedy fyrir Telfordmarkið.
Garry Stevens skaut á markið
en boltinn fór í varnarmann
Telford, þaðan fyrir fætur Peter
Reid sem kom Everton yfir.
Fjórum mínútum síðar felldi
bakvörður Telford Tony
Turner, Allan Harper inn í
teignum og Sheedy skoraði úr
vítaspyrnunni. Trevor Steven
tryggði svo Everton öruggan
sigur í lokin með vinstri fótar
snúningsbolta.
Aðeins einn leikur var Ieikinn
í 1. deild, leikur Chelsea og
Newcastle. Chelsea mátti eyða
8 þúsund pundum til að gera
völlinn leikhæfan. Mikið var á
sig lagt og fyrir vikið fær David
Speedy að leika seinni leikinn í
deildarbikarnum á miðvikudag-
inn, en hann var dæmdur í
tveggja leikja bann á dögunum.
Eina mark leiksins var skorað
strax á 2. mínútu þegar bak-
vörður Chelsea Darren Wood
skoraði af 20 metra færi, fyrsta
mark hans fyrir liðið. Newcastle
sem lék án Chris Woddle barð-
ist vel en uppskar ekki mark.
Pat Nevin hjá Chelsea átti
magnaðan leik.
Tveir leikir voru í 2. deild.
Huddersfield vann Crystal Pal-
ace 2:0 og Cardiff vann óvæntan
útisigur á Oldham 1:0. í 3. deild
mættu 14 þúsund áhorfendur á
leik Hull og Bradford, Bradford
vann 2:0 og hefur nú 12 stiga
forustu í 3. deild. - A.B.