Dagur - 18.02.1985, Page 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Kennarar MA útskýra sjónarmið sín á blaðamannafundi. Mynd: KGA
Tillögur hitaveitustjóra um Gerðahverfi II:
Hitaveitan taki við
- Aldrei reynt á hvort íbúar gætu fengið hitaveitu
Rúmlega
200 ára
kennslu-
reynsla
í boði
- 21 kennari við MA
óskar eftir vinnu
í Degi í dag er birt augtýsing
frá 21 fastráðnum kennara við
Menntaskólann á Akureyri þar
sem óskað er eftir vinnu frá 1.
mars nk. Er auglýsing þessi í
sama dúr og nýleg auglýsing
kennara við Menntaskólann í
Hamrahlíð og samkvæmt
heimildum Dags eru þessar
auglýsingar birtar í fuliri al-
vöru. Kennarar við framhalds-
skóla sem eru innan Hins ís-
lenska kennarafélags og sagt
hafa upp störfum, ganga út 28.
febrúar nk. hafí þeir ekki feng-
ið lausn sinna kjaramála fyrir
þann tíma.
- Það standa allir fastráðnir
kennarar skólans sem sagt hafa
upp störfum að þessari auglýs-
ingu utan einn sem þegar hefur
fengið aðra vinnu, sagði Magnús
Kristinsson einn talsmanna
kennara við MA í samtali við
Dag. Að sögn Magnúsar kenna
þessir kennarar í um tveim þriðju
hlutum þeirra kennslustunda sem
kenndar eru við MA.
í auglýsingunni er lögð áhersla
á að óskað sé eftir atvinnu og við-
unandi kjörum: „Við höfum flest
langa reynslu í ábyrgðarstarfi
hjá ríkinu og mörg okkar einnig
á öðrum stöðum. Við erum vön
verkstjórn og þjálfuð í mann-
legum samskiptum, auk þess sem
við getum unnið sjálfstætt. Við
erum vön löngum vinnudegi auk
heimavinnu um kvöld og helgar.
Við erum vön því að leggja til
vinnuaðstöðu á heimilum
okkar,“ segir í auglýsingunni.
Samtals hafa þessir kennarar
starfað við kennslu hátt á þriðja
hundrað ár ef allur starfsaldur er
lagður saman eða yfir 10 ár að
jafnaði hver kennari. Önnur
starfsreynsla en við kennslu er
einnig veruleg. - ESE
„Ég tel það ekki vera rétt að
segja að íbúar í Gerðahverfí II
á Akureyri geti ekki fengið
hitaveitu í hús sín, vegna þess
að það hefur ekki á það
reynt,“ segir Wilhelm V.
Steindórsson hitaveitustjóri á
Akureyri, vegna þeirra um-
ræðna sem átt hafa sér stað
um raforkuverð íbúa í Geröa-
hverfí II sem hita hús sín með
rafmagni.
Páll Flygenring ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu sagði
í samtali við Dag sl. föstudag að
það yrði kannað hjá Hitaveitu
Akureyrar hvort þessir íbúar
ættu þess kost að fá hitaveitu í
hús sín, og myndi það ráða miklu
varðandi það hvort rafmagns-
verðið yrði niðurgreitt af ríkinu
ef svo væri.
Wilhelm V. Steindórsson á
sæti í nefnd á vegum iðnaðar-
^ráðuneytisins, ráðgjafanefnd fyr-
ir orkusparnaðarátak, og þar
hafa þessi mál borið á góma, t.d.
hvort greiða ætti þeim olíustyrk
sem búa á hitaveitusvæðum og
kynda nteð olíu og hvort greiða
ætti niður raforku til þeirra sem
búa á hitaveitusvæðum og kynda
með rafmagni.
„Allar upphaflegar áætlanir
Hitaveitu Akureyrar miðuðust
við það að hún tæki allan upphit-
unarmarkað á Akureyri," sagði
Wilhelm. „í dag stöndum við þó
þannig að við höfum ekki allan
þennan markað, en ef litið er á
þetta með augum Hitaveitunnar
þá á hún að yfirtaka allan mark-
aðinn. Ég hef því lagt það til að
þeim aðilum sem eru með raf-
magnshita á svæði Hitaveitu Ak-
ureyrar verði veitt aðstoð í formi
lána eða styrkja til þess að kom-
ast inn á hitaveitukerfið. Ég er
því hlynntur að Hitaveitan yfir-
taki þetta allt, en Rafveitan kann
að meta það þannig að íbúarnir í
Gerðahverfi II geti ekki fengið
hitaveitu vegna þess að það eru
ekki lagnir í hverfinu."
- En þið hafið nóg vatn til þess
að taka við þessu?
„Hitaveita Akureyrar hefur
það hlutverk að hita upp þetta
bæjarfélag, og ég hef enga
ástæðu til að ætla annað en að
það muni þetta fyrirtæki gera.
Nú liggur fyrir hvernig staðið
verður að stofnun hlutafélags
um fískirækt í Ólafsfírði, en
þau mál hafa verið í deiglunni
í nokkurn tíma.
Stofnfundi var frestað í haust
vegna ósamkomulags um skipt-
ingu hlutafjár og í framhaldi af
því ákváðu Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og tveir aðrir aðilar
að draga hlutafjárloforð sín til
baka.
Öðrum aðilum sem gefið
höfðu loforð um hlutafé var þá
skrifað og gefinn kostur á að
Málið gegn
Offsetstofunni:
Beðið
eftir
vöm
Rannsókn er nú lokið í máli
bókagerðarmanna gegn Off-
setstofunni á Akureyri. Hefur
verjenda Offsetstofunnar verið
gefínn mánaðarfrestur til að
leggja fram vörn í málinu.
Málið gegn Offsetstofunni
snýst um meint fagbrot og eins
blandast skattamál þar inn í.
Langt er um liðið síðan bóka-
gerðarmenn kærðu eiganda Off-
setstofunnar en skriður komst
svo ekki á málið fyrr en í verkfalli
bókagerðarmanna í október sl.
en þá rituðu bókagerðarmenn á
Akureyri undir lista þar sem
skorað er á fógetaembættið að
hraða rannsókn málsins. Er al-
mennt litið svo á að hér sé um
prófmál að ræða þar sem Offset-
stofan er aðeins ein af mörgum
prentstofum í landinu sem deilt
hefur verið um.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Eiríkssonar hjá embætti
bæjarfógetans á Akureyri er ekki
um munnlegan málflutning að
ræða í þessu máli. Eftir að vörnin
hefur verið lögð fram hefur dóm-
arinn þrjár vikur til að kveða upp
úrskurð, þannig að niðurstaða
ætti að liggja fyrir í síðasta lagið
í byrjun apríl. - ESE
kaupa hlut þessara aðila. „Það
eru komin svör og allir þessir að-
ilar ætla að vera með, og ég á von
á því að félagið verði formlega
stofnað strax í byrjun mars,“
sagði Valtýr Sigurbjarnarson
bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Veiðifélag Ólafsfjarðarár,
Samband íslenskra samvinnufé-
laga og Kaupfélag Eyfirðinga
munu eiga 20% hver aðili í hinu
nýja félagi, frystihúsin í Ólafs-
firði munu eiga samtals rúmlega
10% og aðrir aðilar í Ólafsfirði
minni hlut. gk-.
gk--
Félag um fiskeldi í Ólafsfirði:
Stofnfundur
á næstunni
Það er útlit fyrir vestan-
vinda í dag og á morgun
og samkvæmt upplýs-
ingum Veðurstofunnar
kólnar aðeins og hætta
er á að él nái allt til
Eyjafjarðar. Hæg vest-
læg átt verður á morgun
og élin verða ekki langt
undan.
# Auglýsingar
á Rásina
Athafnamaður einn úr
Reykjavík hefur gengið á
milli fyrirtækja á Akureyri,
kynnt sig á þann veg að hann
væri að safna auglýsingum
fyrir Rás 2 og falast eftir aug-
lýsingum af fyrirtækjunum.
Þetta er ekki rétt nema að litlu
leyti. Maðurinn var alls ekki
á vegum Rásar 2, heldur á
vegum fyrirtækis í Reykjavík
sem vill gjarnan græða á
norðanmönnum og búa til
auglýsingar sem síðan eiga
að birtast á Rás 2. Þess má
geta að á Akureyri er til tækni
til að gera leiknar auglýsing-
ar - og menn sem kunna til
verka.
# Heiman
og heim
Vélsleðamenn á Akureyri ótt-
ast nú mjög að þeim verði al-
farið bannað að aka á tækjum
sínum um bæinn. Gæti þá
orðið erfitt fyrir þá að koma
sleðum sínum frá heimahús-
um út í auðnina. Nema málið
verði leyst eins og gerðist á
Ólafsfirði. Vélsleðamönnum
var sem sagt heimilað að aka
vélsleðum sínum heiman og
heim. Menn geta svo ímynd-
að sér hvaða túlkunarerfið-
leikar geta skapast þegar
svona er að orði komist.
# Nýju fötin...
Þá eru „hreinsanirnar“ í Al-
þýðuflokknum komnar í full-
an gang. Stuðningsmenn
Kjartans Jóhannssonar, fyrr-
verandi formanns Alþýðu-
flokksins eru sviptir hverju
embættinu á fætur öðru en
Jón Baldvin velur vana menn
í staðinn. Nýjasta „rósin“ f
hnappagat hinna nýju fata
formannsins, er kraftaverka-
maðurinn 09 umboðsmaður-
inn snjalli, Amundi Ámunda-
son, sem tekið hefur við
starfi framkvæmdastjóra
flokksins. Ámundi sem er
nýútskrifaður af landsfundi
Bandalags jafnaðarmanna er
þekktastur fyrir störf sín sem
umboðsmaður skemmti-
krafta og er það því vel við
hæfi að hann og Jón Baldvin
hjálpist að við að finna út
„hver á ísland“ í revíuferð
formannsins um landið. Auk
þess sem Ámundi er glúrinn
við að útvega peninga, hefur
hann einkum hlotið frægð
fyrir að flytja inn nektardans-
meyjar. Fólk má því eiga von
á skemmtilegum uppákom-
um í kringum Ámunda í hinu
nýja starfi og vfst er að marg-
ir bíða í ofvæni eftir að sjá
hvort það verða „nýju fötin
keisarans" sem verða í
sviðsljósinu í framtíðinni á
fundum Jóns Baldvins og
Bryndísar.