Dagur - 18.03.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 18.03.1985, Blaðsíða 1
GULLSMIÐIR I SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI FERMINGAR- GJAFIR í MIKLU ÚRVALI 68. árgangur Akureyri, mánudagur 18. mars 1985 32. tölublað - segir Sigurður Jóhannesson um afstöðu sjálfstæðismanna til álagningar fasteignagjalda - Viðbrögð almennings voru mjög góð og það má segja að við höfum með þessu verið að kanna liðið, sagði Ásbjörn Dagbjartsson á Akureyri er við spurðum hann hvernig undirtektir Áhugafólk um úr- bætur í húsnæðismálum, hefði fengið á Akureyri. Auglýst var símanúmer á Akureyri eins og víðar á landinu og áhugafólk var hvatt til að hafa samband og láta skrá sig. - Við sátum við símann á sunnudaginn frá hádegi og fram úr og eins á mánudagskvöld frá kl. 19.30 og þrátt fyrir að þá hafi aðeins ein lína af sex virkað, gekk þetta ótrúlega vel, sagði Ás- björn Dagbjarrtsson. Á föstudag voru um 300 fjöl- skyldur komnar á skrá á Akur- eyri eða alls rúmlega eitt þúsund manns. - ESE Önnur umræða um fjárhags- áætlun Akureyrarbæjar verður í bæjarstjórn á morgun. Meiri- hlutinn hefur lagt fram nokkr- ar breytingartillögur við fjár- hagsáætlunina og veigamiklar breytingartillögur frá Sjálf- stæðisflokknum hafa verið lagðar fram. - Það fór eins og við mátti bú- ast að andstaða sjálfstæðismanna við hækkun fasteignagjalda var bara sýndarmennska, sagði Sig- urður Jóhannesson bæjarráðs- maður er hann var inntur álits á breytingartillögum minnihlutans. - Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir frá okkur hafa þeir ekki upplýst hverjar væru þeirra hugmyndir um álagningu fast- eignagjaldanna né hvar í fjár- hagsáætluninni væri hægt að mæta þeim tekjumissi sem minnkun fasteignagjaldanna hefði haft í för með sér. Með þessu eru þeir auðvitað að sam- þykkja tillögur meirihlutans, sagði Sigurður Jóhannesson. Sjá nánar viðtal við Gunnar Ragnars, bls 3. -ESE Óvinur landsbyggðarinnar nr. 1: Baldur til Akureyrar Ég gaf eiginlega ekkert annað samtali við Dag en hann hefur eins og hún legði sig í nokkrar gert en boðið manninum í boðið „óvini landsbyggðarinnar blokkir í Breiðholtinu, í náðar- heimsókn. Ég sagði að vísu nr. 1,“ Baldri Hermannssyni í faðm fjármagnsaflanna í að ef þetta hefði gerst á 16. heimsókn til Akureyrar. Reykjavík. - Manninum er fúl- öldinni þá hefði ég skorað asta alvara, á því leikur enginn hann á hólm en fyrst þetta Þe>r Sverrir og Baldur rædd- vafi en ég held að hann hefði væri á þeirri 20., væri ekki ust fyrst v'ð 1 útvarpsþætti á samt sem áður gott af því að um annað að ræða en sýna dögunum og þar notaði Baldur koma hingað, kynna sér starf- mannkærleika tækifærið til að koma enn einu semi fyrirtækja og ræða við sinni að þeim hugmyndum sín- framámenn í atvinnulífinu, Petta sagði Sverrir Leósson i um að flytja bæri landsbyggðina sagði Sverrir Leósson. - ESE A fulltrúafundi eignaraðila „verkalýðshallarinnar“ að Skipagötu 14, sem haldinn var á föstudaginn, var samþykkt að fela hlutlausum aðilum að athuga, hvort hugsanlega hafi verið greitt of mikið fyrir hönnun hússins og jafnframt hvort kostnaður hafi hlotist af hönnunargöllum, sem eigend- ur hússins hafi þurft að greiða. Það var Heimir Ingimarsson, fulltrúi Iðju á fundinum, sem var flutningsmaður að tillögu þessa efnis og kom hún í beinu fram- haldi af bréfi frá endurskoðend- Agreiningurinn um hönnunarkostnað verkalýðshallarinnar: endumir vilja utlausa úttekt um framkvæmdanefndarinnar. í bréfi þeirra segir m.a.: „Við samanburð gagna er ljóst, að tímaáætlun og kostnaðaráætlun Tækniteiknistofunnar sf. hafa ekki staðist og ber þar mikið á milli. Þá er ljóst að sumir verk- takar hafa talið sig tefjast í verki vegna vöntunar gagna frá Tækniteiknistofunni,' aðrir telja sig í vandræðum vegna gallaöra teikninga. Þá eru ýmis verkalýðs- félög í vandræðum í dag, sem teystu loforðum um fullnustu byggingarinnar, sem ekki hafa staðist. Það er því ljóst að mikill styr stendur um hlut Tækniteikni- stofunnar sf. í þessari fram- kvæmd. Allir eiga sér máls- bætur, eins og t.d. seinagang í ákvörðunum um nýtingu hússins frá eigenda hálfu, seinagang í ákvörðunum nefnda Akureyrar- bæjar og nýjar ófyrirséðar kröfur, sem ollu seinkun fram- kvæmda. Dæmi um þetta eru aukakröfur um brunavarnir. Að öllu þessu athuguðu er ljóst, að sínum augum lítur hver á silfrið. Það er álit okkar sem farið höfum yfir bækur, skjöl og reikninga framkvæmdanefndarinnar, að nú þurfi fagmenn að koma til, svo meta megi hver aukakostnað- ur er orðinn af framkvæmdinni af framangreinum orsökum. Á lokastigi þeirrar faglegu rann- sóknar þurfa lögfræðingar sjálf- sagt að skera úr um hvað er brot á samningum og hvað er kostnað- arauki af ófyrirsjáanlegum sökum.“ or- Endurskoðendur eru Guð- laugur Guðmundsson og Jón Arnþórsson. í lok bréfs þeirra kemur fram, að þeir hafi einnig gert athugasemd af sama tilefni í bréfi til framkvæmdanefndarinn- ar í fyrrasumar. 15 ára á stolnum bíl 15 ára piltur kom talsvert við sögu hjá lögreglunni á Akur- eyri um helgina. Hann stal Bronco jeppa aðfara- nótt sunnudags og er lögregl- unni var tilkynnt um það hafði hann m.a. ekið inn á lóð við hús í bænum og misst bílinn fram af moldarbarði. Lögreglan hafði upp á piltinum og elti hann. Á Helgamagrastræti tókst að króa hann af en þegar það gerðist ók hann á lögreglu- bifreiðina og skemmdi hana, og að auki á kyrrstæða bifreið. Bronco jeppinn skemmdist einn- ig, en lyklarnir höfðu verið skild- ir eftir í honum þannig að piltur- inn gat stolið honum án erfið- leika. Þegar farið var að athuga mál piltsins sem var ölvaður kom í ljós að hann hafði fleira á sam- viskunni, tvö innbrot í fyrirtæki á Oddeyri en ekki stal hann miklu á þeim stöðum. Mjög mikil þátttaka Það voru margir sem notuðu veðurblíðuna í gærdag til útiveru, sumir fóru í Hlíðarfjall á skíði en aðrir fóru á sjó en þessi mynd var einmitt tekin í Sandgcrðisbót í gær þegar trillukarlarnir voru að leggja að. Mynd: KGA Slímhúð í meltingarvegi skaddaðist Mistök urðu í síðustu viku á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri þegar sjúklingi, sem átti að fara í ristilspeglun og smá- aðgerð, var gefin stólpípa með þeim afleiðingum að slímhúð í meltingarvegi skaddaðist. Þurfti að leggja sjúklinginn á Gjörgæsludeild. Að sögn aðstandenda sjúkl- ingsins fengu þeir þær upplýsing- ar að það efni sem notað var í stólpípuna hafi verið of sterkt blandað og hafi þau mistök átt sér stað nóttina áður. Annar starfsmaður sjúkrahússins gaf því stólpípuna en sá sem bland- aði vökvann. Mun slímhúðin í þörmum, görnum og hluta af maga hreinlega hafa leyst upp. Samkvæmt þeim upplýsingum sem aðstandendur fengu á sjúkrahúsinu á slímhúðin að myndast aftur eftir einhvern tíma. Sjúklingurinn heldur litlu sem engu niðri, er illa haldinn og á sterkum verkjalyfjum. - HS Fundur og aðgerðir í kvöld verður haldinn í Sjall- anum almennur fundur um ástandið í skólamálum vegna uppsagna kennara. Á fundin- um munu bæði framhalds- skólakennarar og grunnskóla- kennarar flytja ávörp, auk nemenda í framhaldsskólun- um. Fundurinn hefst kl. 20.30 og eru allir áhugamenn um skóla- mál, og eru foreldrar væntanlega þar á meðal, hvattir til að fjöl- menna. Þá hefur heyrst að ein- hverjar aðgerðir verði í grunn- skólunum á þriðjudag, a.m.k. fyrir sunnan og hugsanlega á Norðurlandi einnig. Eru þær til stuðnings framhaldsskólakennur- um sem sagt hafa upp störfum. - HS Anrictartan cii nrloKmonnoLa“ „anasiaoan sy 1 lUdll 1 lcl II ISKd ■! Á |1 i mt/. r%//A%M/Æ% i Litmynda- framköllun

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.