Dagur - 18.03.1985, Síða 7
6 - DAGUR - 18. mars 1985
18. mars 1985 - DAGUR - 7
KA átti ekki mikla möguleika
gegn IS er karlaliö félaganna í
blaki léku í undanúrslitum
bikarkeppninnar um helgina í
Glerárskóla. ÍS vann 3:0 og
var sá sigur fremur auðveldur.
ÍS vann fyrstu hrinuna með
miklum yfirburðum, 15:5, en
strax í byrjun þeirrar næstu náði
KA forustunni, komst í 4:0. ÍS
jafnaði fyrst 8:8 og síðan var
jafnt 10:10. Pá komst KA yfir
12:10 en ÍS skoraði þá 5 í röð og
tryggði sér sigur.
í næstu hrinu byrjaði KA aftur
með látum og komst aftur í 4:0
en ÍS jafnaði 5:5. En þar með
var allt búið hjá KA og ÍS sigraði
15:5 og því í leiknum með 3:0.
Svo virtist sem ÍS sem er 2.
besta blaklið landsins léki slakan
leik þrátt fyrir úrslitin, og það
sem háði liði KA greinilega er
hversu smávaxnir leikmenn liðs-
ins eru flestir. Par hafði ÍS einnig
vinninginn og vann þennan leik
fyrst og fremst á yfirburðahæð
við netið.
KA átti ekki mögu-
leika gegn liði ÍS
- og tapaði 0:3 í undanúrsiitum Bikarkeppni Blaksambandsins
Tottenham
- upp að hlið Everton
Skömmu fyrir kl. 14.30 á laug-
ardag gerðust undur og stór-
merki í enska boltanum. Þetta
var í leik Tottenham og Liver-
pool á Anfield Road. Mike
Hazard sem þá var nýkominn
inn á átti góða sendingu fyr-
ir mark Liverpool. Þar kom
Gart Crooks aðvífandi og
skoraði eina mark leiksins.
Þegar dómarinn flautaði til
leiksloka stukku leikmenn
Tottenham hæð sína í loft upp
og það ekki að ástæðulausu.
Fyrsti sigur Tottenham á An-
field síðan 1912 og Tottenham
skaust við sigurinn upp að hlið
Everton, bæði liðin hafa 57
stig. Þeir sem spá hvaða lið
hljóti enska meistaratitilinn
virðast nú vera sannfærðir um
að Tottenham muni sigra í ár.
Leikur liðanna var mjög
skemmtilegur og áttu markverðir
liðanna Ray Clemence og Bruce
Grobbelar báðir stórleik. Þegar
stutt var til leiksloka skaut Ian
Rush yfir mark Tottenham í
dauðafæri. Stuttu síðar varði
Ciemence með tilþrifum skot frá
Phil Neal.
Á meðan Tottenham náði í 3
stig á Anfield gerði Everton að-
eins jafntefli gegn Aston Villa og
missti þar af tveimur dýrmætum
stigum. Leikur Everton var ekki
sannfærandi og lítið fór fyrir
meistaratöktum í leik liðsins.
Kevin Richardson kom þeim yfir
á 42. mínútu þegar hann komst
inn í sendingu Steve McMahon
til markvarðar. Leikur Villa
breyttist mikið þegar franski
landsliðsmaðurinn Didier Six
kom inn á í síðari hálfleik. Hann
átti stórkostlegan leik og á 83.
mínútu var dæmd umdeild víta-
spyrna á Everton eftir að Six hafi
leikið varnarmenn Everton upp
úr skónum. Alan Evans skoraði
af öryggi úr vítaspyrnunni.
Manchester United lék gegn
West Ham fyrir framan sjón-
varpsvélarnar á föstudagskvöld-
ið. West Ham tók forustu á 27.
mínútu þegar Ray Stewart skor-
aði beint úr aukaspyrnu. Staple-
ton jafnaði með þrumuskalla eft-
ir aukaspyrnu. West Ham náði
forustunni á nýjan leik er Mike
Duxbury skoraði sjálfsmark.
Whiteside meiddist í leiknum og
varamaðurinn Brian Robson
kom inn á og Robson hafði að-
eins verið með í 6 mínútur er
hann náði að jafna metin eftir
hornspyrnu Jesper Olsen.
Arsenal komst í 4. sætið eftir
2:0 sigur á Leicester. Mikið gekk
á og átti Leicester að skora þrjú
mörk í fyrri hálfleiknum. Steve
Williams kom Arsenal yfir í fyrri
hálfleiknum með sínu fyrsta
marki fyrir félagið og var markið
einkar laglegt. í síðari hálfleik
misnotaði Paul Davis hjá Arsenal
vítaspyrnu, en Rafael Meade
tryggði Arsenal síðan öll 3 stigin
er hann skoraði tveimur mínút-
um fyrir leikslok.
Chelsea vann sinn annan úti-
sigur í morgunleiknum gegn
Watford. John McClelland skor-
aði sjálfsmark en Luther Blissett
jafnaði fyrir Watford. í síðari
hálfleik var Chelsea sterkara og
Speedy og Dixon bættu tveimur
mörkum við.
Ljót hefur frammistaðan verið
hjá Ipswich upp á síðkastið. í síð-
ustu viku var liðið slegið út úr
bikarkeppninni og á laugardag
sá liðið ekki til sólar í leik sínum
við QPR. Wayne Fereday skor-
aði tvisvar á sömu mínútunni og
Garry Bannester bætti því þriðja
við, sínu 22. marki í vetur.
Norwich og Sunderland léku
nokkurs konar forleik fyrir úr-
slitaleik Mjólkurbikarsins sem
fram fer á sunnudag. Sunderland
vann 3:1. Ian Wallace skoraði á
10. mínútu og á 31. mín. varð
Greg Downes fyrir því að skora
sjálfsmark. Norwich minnkaði
muninn í 2:1 en David Hodgson
tryggði sigur Sunderland.
I 2. deild heldur Manchester
City áfram sigurgöngu sinni, og
nú kom stórsigur gegn
Schrewsbury 4:0. Peter Lorimer kom Leeds á bragðið gegn Barns- ley og Leeds vann 2:0 eftir mikið
af jafnteflum að undanförnu.
A.Villa-Everton 1:1 X
Liverpool-Tottenham 0:1 2
Newcastle-Coventry fr. 1
Norwich-Sunderland 1:3 2
N.Forest-WBA 1:2 2
QPR-Ipswich 3:0 1
Arsenal-Leicester 2:0
Watford-Chelsea 1:3
West Ham-Man.Utd. 2:2
Southampton-Stoke 0:0
Sheff.Utd.-Luton 1:1
Blackburn-Birmingham 2:1 1
Brighton-Oxford 0:0 X
Grimsby-Portsmouth 2:3 2
Middlesb.-Sheff.Utd. 1:0 1
Wimbledon-Huddersf. fr. 1
A.B.
Dags-mótið:
17 íslandsmet
Það var sannkallað metaregn á
fyrsta Dags-mótinu í kraftlyfting-
um sem haldið var um helgina á
Akureyri. Hvorki fleiri né færri en
17 íslandsmet, 2 unglingamet og 26
Akureyrarmet voru sett á mótinu
sem er það mesta sem sett hefur
verið á kraftlyftingamóti í háa herr-
ans tíð.
Þeir fjölmörgu áhorfendur sem
fylgdust með mótinu fengu svo
sannarlega að sjá hádramatíska
keppni á milli flestra af snjöllustu
kraftlyftingamönnum landsins.
„Kraftur, leikni, fegurð" voru ein-
kunnarorð mótsins og það var því
vel við hæfi að tvær stúlkur tóku
þátt og sýndu karlpeningnum hvað
fólst í þessum orðum.
Að öðrum ólöstuðum má segja
að þær Laufey Kristjánsdóttir og
Valdís Hallgrímsdóttir hafi stolið
senunni. Valdís keppti í 56 kg fl.
og setti alls níu íslandsmet, lyfti
mest 70 kg í hnébeygju, 45 kg í
bekkpressu og 110 í réttstöðulyftu
eða samtals 225 kg.
Laufey setti 6 íslandsmet, lyfti 65
kg, 40 kg og 100 kg, samtals 205 kg.
Skammt á eftir stúlkunum f feg-
urð kom kraftajötuninn ógurlegi,
Hjalti Úrsus Árnason. Hjalti sýndi
allar sínar bestu hliðar á mótinu og
undir dúndrandi diskótónlist reif
hann upp 345 kg í réttstöðulyftu -
heimsmet unglinga sem því miður
fæst ekki staðfest þar sem alþjóðlega
dómara vantaði. Þrátt fyrir þetta
gífurlega afrek varð Hjalti samt
sem áður að láta í minni pokann
fyrir „Heimskautabangsanum"
Víkingi Traustasyni, sem var væg-
ast sagt hrikalegur á þessu móti.
Víkingur er aldrei betri en þegar
hann hefur „Úrsus á milli hramm-
anna“ og það kom glögglega í ljós
á Dags-mótinu. 330 kg í hné-
beygju, 195 kg í bekkpressu og 320
kg í réttstöðulyftu, samtals 845 kg
skipa Víkingi í hóp mestu afreks-
manna íslendinga í kraftlyftingum
- árangur á alþjóðlegan mæli-
kvarða. Hjalti lyfti hins vegar 832,5
kg í samanlögðu sem er hreint
ótrúlegt miðað við að „Úrsusinn"
hafði ákveðið að sýna júdó á móti í
Reykjavík þennan sama dag. Af
því gat þó ekki orðið en júdómenn
eiga þá upplifun eftir að fá Hjalta
til að koma fram.
Það liggur við að það gleymist að
tvö frábær afrek voru unnin á þessu
móti, slík var stemmningin í kring-
um keppni „bangsans“ og Úrsusar.
Ólafur Sigurgeirsson, formaður
nýstofnaðs kraftlyftingasambands,
„tjakkaði" upp 192,5 kg í bekk-
pressu í 90 kg flokki sem er nýtt,
glæsilegt íslandsmet. Góðvinur
hans, Kári Elíson „kraftaköttur-
inn“ stóð honum ekki að baki.
Þeytti upp 168 kg í bekkpressu í 75
kg flokki sem er nýtt íslandsmet.
Kári setti auk þess glæsileg Akur-
eyrarmet í öllum greinum, lyfti 240
kg í hnébeygju og 270 kg í rétt-
stöðulyftu, samtals 678 kg og það
er ljóst að Skúli Óskarsson verður
að fara að æfa aftur ef hann á ekki
að missa metin í þessum flokki til
Kára innan fáeinna ára.
Auk þeirra Hjalta og Ólafs,
keppti annar góður gestur úr
Reykjavík á þessu móti. Hörður
Magnússon var með sýnikennslu í
vel útfærðum hnébeygjum og sann-
aði svo ekki varð um villst að hann
verðskuldar nafnbótina „hné-
beygjutröll“. Hörður svitnaði varla
undir 332,5 kg í hnébeygju, lyfti
175 kg í bekk og 300 í réttstöðu-
lyftu, samtals 807,5 kg sem er frá-
bær árangur.
Mest þátttakan var í 90 kg
flokknum en þar sigraði gullsmiður-
inn snjalli, Flosi Jónsson. Það var
góðmálmaglampi í augunum á
Flosa fyrir þetta mót og hann inn-
byrti gullpeninginn auðveldlega.
Lyfti samtals 645 kg en átti mikið
inni. Á góðum degi ætti Fiosi að
vera upp á 680 til 690 kg þannig að
700 kg múrinn gæti brostið hvenær
sem er.
Annar í 90 kg flokki varð ís-
landsmethafinn Ölafur Sigurgeirs-
son með 600 kg, Eiríkur St. Eiríks-
son þriðji með 467,5 kg og Haukur
Ásgeirsson fjórði með 455 kg.
í 82,5 kg flokki var einn kepp-
andi, Björn Broddason, vaxtar-
ræktarmaður með meiru og hann
sýndi að hann getur gert fleira en
bara hnyklað á sér vöðvana. Björn
lyfti samtals 380 kg, nokkuð sem
hann gæti bætt verulega með auk-
inni reynslu.
Annar vaxtarræktarmaður Giss-
ur Agnarsson tók þátt í keppni í 75
kg fl. Lyfti samtals 255 kg.
Aðalsteinn Kjartansson hinn 18
ára kraftlyftingamaður sem aðeins
hefur æft í nokkrar vikur, keppti í
60 kg flokki og af ótrúlegu harð-
fylgi togaði hann upp 138 kg í rétt-
stöðulyftu og bætti þar með eld-
gamalt Akureyrarmet Haraldar
Ólafssonar. Aðalsteinn lyfti sam-
tals 273 kg.
Þá er aðeins ótalinn 100 kg flokk-
urinn en þar sigraði Jóhannes Már
Jóhannesson, nýbakaður íslands-
meistari unglinga. Jóhannes setti
nýtt íslandsmet unglinga í rétt-
stöðulyftu, 262,5 kg og lyfti samtals
600 kg.
Fyrirfram var búist við mikilli
keppni á milli hans og Konráðs Jó-
hannssonar en Konráð varð að
hætta keppni vegna tognunar.
Konráð sem nú er 42ja ára lætur
hins vegar engan bilbug á sér finna
og það kæmi ekki á óvart þó að Ak-
ureyrarmet fykju í hnébeygjunni í
100 kg flokki næst þegar hann verð-
ur með.
Kári Elíson varð stigahæsti mað-
ur mótsins og vann því Dags-bikar-
inn, hinn glæsilega farandbikar sem
keppt var um. 15 keppendur tóku
þátt sem er nýtt Akureyrarmet og
áhorfendur gerðu einnig atlögu að
Akureyrarmeti í aðstókn. Dags-
mótið skipaði sér með þessu í röð
helstu kraftlyftingamóta landsins
og það ætti að vera hægt að lofa
unnendum þessarar stórbrotnu
íþróttar því að „kraftur, leikni og
fegurð“ munu setja svip á Dags-
mótið í framtíðinni.
60,0 kg Aðalsteinn Kjartansson Hb. 85 Bp 50 Rl. 138 Samt. 273
75,0 kg Kári Elíson 240 168 270 678
Gissur Agnarsson 90 50 115 255
82,5 kg Björn Broddason 115 105 160 380
90,0 kg FIosi Jónsson 245 150 250 645
Ólafur Sigurgeirsson 200 192,5 207.5 600
Eiríkur St. Eiríksson 185 97,5 185 467,5
Haukur Ásgeirsson 170 80 205 455
100,0 kg Jóhannes M. Jóhannesson 210 127,5 262,5 600
110,0 kg Hörður Magnússon 332,5 175 300 807,5
125,0 kg Víkingur Traustason 330 195 320 845
Hjalti Úrsus Árnason 300 187,5 345 832,5
.56,0 kg Valdís Hallgrímsdóttir 70 45 110 225
67,0 kg Laufey Kristjánsdóttir 65 40 100 205
Tveir sigrar Þórs
gegn UMFG
Þórsarar unnu tvo leiki gegn
UMFG í 1. deildinni í körfu-
knattleik um helgina, en
leikimir voru háðir á Akur-
eyri.
í fyrri leiknum á föstudags-
kvöld voru vægast sagt miklar
sveiflur. Leikmenn Þórs voru í
hlutverki áhorfenda lengi framan
af fyrri hálfleik og voru leikmenn
UMFG fljótir að ganga á lagið.
Eftir nokkuð jafna byrjun
skoruðu Grindvíkingarnir 12 stig
í röð og var þá staðan orðin 18:7
þeim í vil, og þeir komust síðar í
32:14 á 12. mínútu.
Þá fyrst var eins og Þórsarar
vöknuðu til lífsins, og í hálfleik
höfðu þeir minnkað muninn í 5
stig, staðan 42:37 fyrir UMFG.
Þórsarar komust strax yfir (
byrjun síðari hálfleiks og jafnt og
þétt jókst munurinn til leiksloka,
úrslitin 87:74 fyrir Þór. Pressu-
vörn liðsins kom vel út í leiknum
og boltinn vannst á henni 18
sinnum, en í heildina var leikur-
inn ákaflega köflóttur, afar slak-
ur framan af en ágætur af hálfu
Þórs er á leið. Stigahæstir voru
Guðmundur Björnsson og Björn
Sveinsson með 22 stig hvor, Jó-
hann Sigurðsson með 18 og
Konráð Óskarsson með 15.
Björn Sigtryggsson tók 15
fráköst fyrir Þór í leiknum.
91:77
Þessi sigur Þórs var enn auðveld-
ari en sá fyrri. Aðeins í byrjun
sem liðin fylgdust að en síðan
komust Þórsarar yfir '18:14 og
33:23, staðan í hálfleik 45:30.
Grindvíkingarnir reyndu allt
hvað þeir gátu til að jafna metin
í síðari hálfleik. Þeim tókst að
minnka muninn í 8 stig 61:53 um
miðjan hálfleikinn en lengra
komust þeir ekki.
Guðmundur Björnsson skor-
aði 30 stig fyrir Þór, Björn
Sveinsson og Konráð Óskarsson
16 hvor, Jóhann Sigurðsson 14 en
aðrir minna.
Guðmundur Bjurnsson skoraði 52 stig í leikjum Þórs gegn UMFG.
„Við vorum settir
upp að vegg“
- segir Páll Stefánsson formaður handknattleiksdeildar Þórs,
„Þetta ferðalag kostar okkur
hátt í 200 þúsund krónur,“
sagði Páll Stefánsson formaður
handknattleiksdeildar Þórs í
samtali við Dag í morgun, en
þá voru Þórsarar nýkomnir til
Akureyrar úr keppnisferð með
4 unglingalið sín sem léku í
úrslitakeppni Islandsmótsins.
Ekki tókst okkur að hafa upp
á úrslitum leikja hjá liðunum, en
4. flokkur og 3. flokkur höfnuðu
í 4. sæti af 8 liðum. 5. flokkur
hafnaði í 5. sæti og 3. flokkur
kvenna í 6. sæti.
HSÍ hafði ákveðið að úrslitin í
4. flokki skyldu háð á Akureyri,
en það breyttist skyndilega fyrir
keppnina. Heyrðist að Þór hefðu
verið boðnar 40 þúsund krónur
og við spurðum Pál að því hvort
þeir hefðu selt leiki 4. flokks
suður fyrir þann pening.
„Nei, það sem gerðist var ein-
faldlega það að við vorum settir
upp að vegg og okkur skipað suður
með 4. flokkinn. Ég held að mál-
in hafi þróast þannig að við áttum
ekki um neitt annað að velja en
að fara með 4. flokkinn suður.
Við erum að sjálfsögðu mjög
„Þetta var í fyrsta skipti sem
við förum í fótbolta í vetur
þannig að það var ekki hægt að
búast við miklum árangri,“
sagði Nói Björnsson fyrirliði
Þórs í knattspyrnu, en meist-
araflokkurinn lék 4 æflngaleiki
í Reykjavík um helgina.
Fyrst var leikið á malarvelli
Fram og þar sigraði Þór 2:1.
Halldór Askelsson og Bjarni
Sveinbjörnsson skoruðu mörk
Þórs og Rúnar Steingrímsson
óhressir með þessa framkomu og
munum senda frá okkur greinar-
gerð um þetta mál til birtingar í
blöðunum," sagði Páll.
sjálfsmark.
Aftur var leikið gegn Fram en
nú á gervigrasinu og Fram vann
4:2. Halldór skoraði bæði mörk
Þórs. Því næst var leikið gegn
Víkingi og tapaðist sá leikur 4:3.
Sigurður Pálsson skoraði tvö fyrir
Þór, Oddur Jónsson eitt og Hall-
dór Áskelsson sjálfsmark.
Síðasti leikurinn var gegn
Þrótti og vann Þróttur hann 4:2.
Einar Arason og Kristján Krist-
jánsson skoruðu mörk Þórs.
Einn sigur en
tap þrívegis