Dagur - 03.07.1985, Side 9
3. júlí 1985 - DAGUR - 9
Góður liðs-
auki til KA
KA-menn hafa fengið góðan
liðsauka fyrir keppnistímabilið
í handknattleik sem er fram-
undan. Áður höfum við sagt
frá því að Þórsarinn Sigurður
Pálsson hafi gengið í raðir KA-
manna, Guðmundur Guð-
mundsson hefur gengið til Iiðs
við KA að nýju og heyrst hefur
að Árni Stefánsson hyggist feta
í fótspor hans en það hefur
ekki fengist staðfest.
Nú mun ákveðið að markvörð-
urinn Sigmar Þröstur úr Vest-
mannaeyjum komi til liðs við
KA, og er það mikill styrkur fyrir
liðið. Sigmar Þröstur hefur um
nokkurt skeið verið í hópi al-
bestu markvarða landsins, hann
hefur leikið fjölda leikja með
unglingalandsliðum og einnig
nokkra a-landsleiki.
KA-menn hafa þegar byrjað
æfingar, en íslandsmót 1. deildar
verður spilað með allóvnjulegum
hætti að þessu sinni. Áformað er
að ljúka mótinu fyrir aramót, og
er þessi ráðstöfun til komin
vegna þess að landsliðið á að hafa
algjöran forgang eftir áramótin
og fram að HM. Bikarkeppnin
verður hins vegar spiluð eftir að
HM keppninni í Sviss lýkur.
Eins og við höfum sagt frá hef-
ur KA ráðið júgóslavneskan
þjálfara fyrir 1. deildar lið sitt.
Enn hefur ekki verið gengið frá
því hver muni þjálfa lið Þórs sem
féll niður í 3. deild í vor, en aðal-
fundur deildarinnar var haldinn
fyrir skömmu.
Tekst KS að
leggja ÍBÍ?
Heil umferð verður í 2. deild
íslandsmótsins á laugardag og
þriðjudag.
Á laugardag leika UMFS og
Leiftur, Völsungur og UMFN,
KS og ÍBÍ, ÍBV og KA og á
þriðjudag Fylkir og Breiðablik.
Þarna geta verið hörkuleikir á
ferðinni, KA fær erfitt hlutverk,
að leggja Eyjamenn á heimavelli
þeirra. Þá má búast við hörkuleik
á Sigló og fróðlegt verður að sjá
hvað Ólafsfirðingarnir gera gegn
UMFS í Borgarnesi.
Bikarkeppni KSÍ:
Þór náði að snúa
dæminu við og sigra
- vann Reyni 5:3 - Akranes sigraði KR 5:3
og Víðir 4. deildar lið Árvakurs 5:2
Gylfi Þorkelsson
leikur með Þór
ur gróflega í vítateignum, Jónas
Róbertsson tók aukaspyrnuna
og skoraði af öryggi.
Staðan í hálfleik var 2:1 fyrir
Reyni en Kristján Kristjánsson
skoraði jöfnunarmark Þórs
fljótlega í síðari hálfleik, komst
inn fyrir og skoraði með föstu
skoti í nærhornið. En varla
höfðu Þórsarar lokið við að
fagna jöfnunarmarkinu er
Reynir hafði skorað og tekið
forustuna að nýju 3:2.
Það var svo Siguróli Krist-
jánsson sem jafnaði 3:3 með
skallamarki eftir aukaspyrnu.
Kristján Kristjánsson skoraði
síðan 4:3 fyrir Þór eftir mjög
laglega sókn þar sem vörninni
var splundrað og Jónas Ró-
bertsson átti síðasta orðið eftir
að Reynisvörnin hafði aftur ver-
ið tætt í sundur.
Úrslitin því 5:3 Þór í vil.
Segja má að Reynismenn hafi
verið með hátt í 100% nýtingu
úr færum sínum, en Þórsvörnin
virkaði lengi vel óörugg og var
mildi að það kostaði ekki það
að verr fór. Hins vegar var
sóknarleikur liðsins beittur og
liðið skapaði sér aragrúa tæki-
færa, og miðjan var mjög góð á
köflum.
Önnur bikarúrslit í gær urðu
þau að ÍA sigraði KR 5:3 og
þriðji leikurinn í gærkvöld end-
aði 5:2, Víðir vann Árvakur eft-
ir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni.
Þórsarar munu fá gódan liðs-
auka í körfuknattleiknum
næsta vetur, en landsliðsmað-
urinn úr ÍR, Gylfi Þorkelsson
flytur til Akureyrar í haust.
Gylfi er ákaflega traustur leik-
maður sem átti mjög gott keppn-
istímabil með ÍR sl. vetur. E.t.v.
er hér kominn sá hlekkur sem
hefur vantað í keðjuna til þess að
hún sé nógu sterk til að færa Þór
sæti í Úrvalsdeild. Heyrst hefur
að Gylfi muni einnig þjálfa lið
Þórs en það hefur ekki fengist
staðfest, og er þá líklegt að Eirík-
ur Sigurðsson sem þjálfaði í fyrra
muni leika með liðinu af fullum
krafti.
Jón Hédinsson fær góðan liðsstyrk í frakostunum næsta vetur.
Það leit ekki vel út hjá Þórs-
urum í bikarleik þeirra gegn
Reyni Sandgerði úr 3. deild|
er liðin mættust í bikarkeppn-
inni í Sandgerði í gærkvöld.
Eftir um 20 mínútna leik var
lið Reynis komið í 2:0 og far-
ið að fara um Þórsarana.
En strax eftir að Reyni skoraði
annað mark sitt í leiknum var
dæmd vítaspyrna á liðið er
Bjarni Sveinbjörnsson var felld-
Kristján Kristjánsson skoraði tvívegis fyrir Þórs í Sandgerði.
KA-Einherji
Það er í nógu að snúast hjá
leikmönnum KA þessa dag-
ana. Um helgina léku þeir á
Isafírði, í kvöld mæta þeir Ein-
herja í Bikarkeppni KSÍ á Ak-
ureyrarvelli og um næstu helgi
eiga þeir að fara til Eyja og
Saab-
Toyota
um
helgina
Um helgina fer fram Saab-
Toyota golfkeppnin hjá Golf-
klúbbi Ákureyrar, en það er
opið 36 holu mót með og án
forgjafar.
Keppnin hefst kl. 10 á laugar-
dagsmorgun og verður fram hald-
ið kl. 9 á sunnudag. Samkvæmt
mótabók GSÍ er um þessa sömu
helgi KÞ-keppnin hjá Golfklúbbi
Húsavíkur og einnig er bæja-
keppni á milli Ólafsfjarðar og
Sauðárkróks á dagskrá. Furðuleg
niðurröðun því ekki er það mikið
um opin mót á Norðurlandi að
nauðsynlegt sé að setja niður
önnur stórmót á sama tíma.
Ieika þar gegn heimamönnum.
Einherji og Austri léku um það
hvort liðið mætti KA í 16 liða
úrslitum bikarkeppninnar og
vann Einherji þann leik 1:0.
Leikur KÁ og Einherja hefst
kl. 20 í kvöld og ætti KA að vera
sigurstranglegra í þeirri viður-
eign, en þó skyldu þeir varast
KA-menn að ganga of sigurvissir
til leiks.
J»órí
Kapla-
krika
Tekst Þór að vinna sinn fyrsta
útisigur í 1. deildinni á laugar-
dag?
Þá leikur liðið gegn FH í
Kaplakrikanum en þar er FH-lið-
ið nokkuð sterkt og er skemmst
að minnast er FH vann upp
þriggja marka forskot Víkings
þar á dögunum. Þórsarar eru enn
án stigs í útileikjum sínum en
hafa hlotið 13 stig á heimavelli.
Væri æskilegt að þeir gætu einnig
tekið upp þann sið að sækja eitt-
hvað af stigum á útivöll.
Aðrir leikir í 1. deild um helg-
ina eru Ákranes-Fram, Keflavík-
Víkingur, KR-Valur og Þróttur-
Víðir.