Dagur - 23.09.1985, Síða 4

Dagur - 23.09.1985, Síða 4
4 - DAGUR - 23. september 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 300 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Rannsókn á svartri atvinnustarfsemi Starfsmenn skattaeftirlitsins munu á næstu tveimur vikum heimsækja rúmlega 400 fyrirtæki úr 27 atvinnugreinum, sem eiga mikil viðskipti við almenna neytendur og eru skyldug til að gefa út reikninga í þeim viðskiptum. Litið verður í bókhald þessara fyrirtækja en fyrst og fremst er ætl- unin að kanna hvort fyrirtækin hafa farið eftir þeim reglum sem gilda um skyldu þeirra til að skrá viðskiptin á nótur, reikn- inga og önnur gögn. Þessi könnun er gerð í framhaldi af þeim mikla áróðri sem fjár- málaráðuneytið hefur rekið að undanförnu fyrir því að almenningur biðji um nótur og reikninga í samskiptum við fyrirtæki sem inna af hendi margvíslega þjónustu. Þau 400 fyrirtæki sem skoða á eru valin úr rúmlega 3.700 sem starfandi eru í þeim atvinnugreinum er um ræðir. Þau eru í þremur skattaumdæmum, þ.e. Reykjavík, Reykjanesi og Norðurlandi eystra. Fyrir- tækin sem heimsótt verða eru bæði stór og smá. Það er kunnara en frá þurfi að segja að söluskattssvik hafa viðgengist í stórum stíl í mörgum greinum. Um er að ræða svokall- aða svarta atvinnustarfsemi, þar sem við- skiptavinum er sagt að þeir geti losnað við að greiða kostnaðinn vegna söluskattsins, ef ekki þurfi að gefa nótu fyrir viðskiptun- um. Þannig losnar seljandinn við að gefa greiðsluna upp og að gera skil á sölu- skattinum og kaupandinn fær þjónustuna fyrir eitthvað lægri upphæð. Raunar er það ekki sjálfgefið að hagnaður kaupandans sé sá sem af er látið. Þessi viðskiptamáti, sem því miður hefur verið mjög algengur, hefur haft afleit áhrif á allt viðskiptasiðgæði. Með sífelldri hækk- un söluskattsins hefur þetta færst í vöxt. Þess hefur ekki verið gætt að halda skatt- heimtunni innan þeirra marka sem borgar- anum þykir réttlátt að greiða. Þegar yfir þessi mörk er farið, sem reyndar eru óljós og breytileg eftir afkomu fólks, aukast lík- urnar á því að fólk réttlæti misferlið fyrir sjálfu sér. Þessi könnun er af hinu góða og vænleg til að skapa aðhald í þessum efnum. Menn munu hins vegar halda áfram að reyna að komast hjá skattgreiðslum, meðan þeim finnst þær ósanngjarnar og allt of háar. Ríkisvaldið þarf að finna þann gullna með- alveg sem gefur hámarkstekjur án þess að gjaldþoli neytenda og fyrirtækja sé ofboð- ið. Karlar hafa að jafnaði 49% hærri laun en konur - Ræða Úlfhildar Rögnvaldsdóttur á Landsþingi framsóknarkvenna sem haldið var á Laugarvatni Fundarstjóri, góðir áheyrendur. „Vér óskum fulls jafnréttis fyr- ir konur og karla að lögum og í framkvæmd laganna, og vér vilj- um gera alla þjóðina færa um að nota sér slík réttindi. Vér óskum að tryggja konum jafngóð lífs- skilyrði og körlum við alla þá at- vinnu sem þær komast að.“ Þessar óskir bar Bríet Bjarn- héðinsdóttir fram í ræðu sem hún flutti á hátíðisdegi kvenna 19. júní 1918. Mikið vatn hefur runn- ið til sjávar síðan þá og lög um launajöfnuð karla og kvenna tók gildi í áföngum á árunum 1961- 67 og lög um jafnrétti kvenna og karla árið 1976. En hún Bríet hefur séð það þarna um árið að ekki er nóg að hafa lögin fullgild, ef menn láta sér framkvæmd þeirra í léttu rúmi liggja. Það er í sjálfu sér ekki einfalt mál að framfylgja lögum sem kveða á um að greiða skuli kon- um og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf, því alltaf er erfitt að vega og meta þegar verið er að bera slíkt saman. En staðreyndin er nú samt sú að hefðbundnu kvenna- störfin virðast alltaf lenda neðar í starfsmati, miðað við önnur hliðstæð störf. Við höfum í höndunum niður- stöður úr ótal könnunum sem gerðar hafa verið á undanförnum árum sem segja m.a.: Skipting í karla- og kvennastörf er augljós, meiri hluti kvenna vinnur við þjónustu- verslunar- og iðnaðar- störf, þær eru í meirihluta í störf- um ófaglærðs verkafólks, þær eru mun færri í stéttum eigenda, sér- fræðinga, stjórnenda og fag- lærðra, mjög margar konur vinna hlutastörf. Þegar laun hafa verið urnreikn- uð og miðuð við fullt starf allt árið kemur í ljós að karlar hafa að jafnaði 49% hærri laun en konur. Auk þessa er mikill mun- ur á launum kvenna innbyrðis eftir búsetu, en vegna mikillar þenslu í atvinnulífi í Reykjavík undanfarið hafa laun þar hækkað langt umfram laun annars staðar á landinu. Ég held að niðurstöður þessara kannana hafi ekki komið konum svo mjög á óvart hvað launamis- mun kynja varðar, því vafalaust þekkja flestar útivinnandi konur dæmi um slíkt frá eigin vinnu- stað. Ástæðurnar eru ótalmarg- ar. Hin aldagamla verkaskipting kynjanna á sér djúpar rætur. Lit- ið er á karlinn sem fyrirvinnu heimilisins. Konur fara síður í langskólanám. Virðingarleysi og vanmat er á þeim störfum sem unnin eru inni á heimilunum. Þetta vanmat er því miður allt of algengt meðal okkar kvenna og við erum gjarnar á að sætta okk- ur við lítið. Bónusvinna sem við- gengst í mörgum kvennastarfs- greinum er kafli út af fyrir sig sem ég hætti mér ekki inn á að þessu sinni. Algengt er að giftar konur líti á laun sín sem viðbót við tekjur húsbóndans og því skipti ekki öllu máli hvort jiau séu aðeins hærri eða lægri, þar sem aðeins sé um hlutastarf að ræða. Þetta bitnar svo á konum sem þurfa að sjá fyrir öðrum á ein- földum launum og staðreynd er það, að þeim fer fjölgandi kon- unum sem eru fyrirvinnur heim- ila. Oft hefur heyrst að ekki sé að búast við breytingum á kjörum kvenna innan blandaðra stéttar- félaga, þar sem karlar ráða lögum og lofum og viðsemjendur undantekningarlítið karlar. En það hefur sýnt sig að málin ganga ekkert skár hjaf élögum sem eru kynskipt. Það er nefnilega ekki aðal- atriðið hvort formaður stéttarfé- lagsins er karl eða kona, það sem skiptir máli er áhugi og samstaða félaganna sjálfra um málefni heildarinnar. Ég veit að konur sem vinna langan vinnudag utan heimilis og innan finnst það lítið spennandi að sækja fundi í stéttarfélaginu, þegar úr mörgu er að velja til að verja frítímanum. Én er ekki von að hægt gangi í launamálapólitíkinni, þegar sam- an fer vanmat á eigin vinnufram- lagi og áhugaleysi á þeim leiðum sem þó eru tiltækar til að breyta hlutunum. Ég vinn hjá verkalýðsfélagi og það er sama sagan þar og í flest- um öðrum slíkum félögum , ákaf- lega mikil félagsdeyfð, þó innan um séu einstaklingar sem hafa virkilegan áhuga á að breyta kjörum sínum til batnaðar með því að leggja eitthvað á sig sjálfir. Það er með kjaramálin eins og svo mörg önnur mál sem snerta heildina, við ræðum vandann fram og aftur, við sjáum ótal lausnir meðan við tölum saman yfir kaffibolla í eldhúsinu, síðan ekki söguna meir. Þetta dugir ekki, konur verða að ræða málin og berjast fyrir úrbótum á réttum vígstöðvum. Það er á vinnustaðn- um sjálfum og með því að standa við bakið á trúnaðarmanni vinnu- staðarins og síðast en ekki síst að vera virkar í starfi stéttarfélags- ins. Konur eru alltof tregar til að taka við hvers kyns trúnaðar- störfum fyrir hönd stéttarfélaga, oft vegna þess að þær vantreysta sér sökum reynsluleysis, einnig vegna hræðslu við óvinsældir trúnaðarstarfsins og þegar á reyni standi vinnufélagarnir ekki nógu þétt saman. Því miður eru dæmi um slíkt alltaf að gerast vegna þess að fólki finnst það ekki í þess verkahring að vinna að eigin kjarabótum, heldur sé það for- ystumannanna í verkalýðshreyf- ingunni. En forustan nær aldrei lengra en hinn almenni félagsmaður hef- ur áhuga á sjálfur, ef hann er óvirkur, er forystan lömuð. Þá finnst mér það dragbítur innan kjarabaráttunnar, hvað við vitum lítið og erum áhugalitlar um störf og kjör hverrar annarr- ar. Það næst aldrei nein samstaða eða áhugi til breytinga, nema vandamálin sem fjallað er um hverju sinni, séu öllum kunn. ’85 nefndin á Akureyri hefur haft forgöngu um vikulegan þátt í blaðinu Degi undanfarna mán- uði, sem nefnist Kvennakjör. Þar hafa konur frá ólíkum vinnu- stöðum lýst störfum sínum, að- búnaði og kjörum. Það gekk illa að hleypa þessum þætti af stokk- unum, því konur voru hræddar við að segja frá einhverju sem neikvætt var við vinnustaðinn, vegna ótta við atvinnurekand- ann. En eftir að fyrsta viðtalið birtist, komu fleiri í kjölfarið og eitt er víst að margt athyglisvert hefur komið fram í þessum þátt- um sem líta má á sem jákvæða tilraun til fræðslu og upplýsinga um hin ólíku störf og kjör kvenna. Á þessu síðasta ári kvennaára- tugarins líta konur til baka og sjá, að vissulega hefur margt áunnist í jafnréttismálum síðustu tíu árin. Hvað varðar launamál kvenna, þá er ljóst að lítið hefur miðað á tímabilinu og á sumum sviðum er um afturför að ræða. Á fundi í miðstjórn ASÍ í janúar síðastliðnum, var sam- þykkt tillaga þess efnis að hvetja þær nefndir sem annast undir- búning vegna loka kvennaára- tugarins, til að taka launamál kvenna til umfjöllunar og gera þau að aðalmáli í þeim aðgerðum sem framundan eru vegna loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna. Á Akureyri er starfandi ’85 nefnd, á svipaðan hátt og í Reykjavík, og undirbýr hún ýms- ar sýningar og uppákomur vegna ársins. Ákveðið hefur verið að nvetja konur til að endurtaka kvennafrídaginn og leggja niður vinnu, utan heimilis sem innan, 24. október nk. og halda fundi um launamálin. Þær raddir hafa heyrst að ekki sé hægt að endurtaka þá miklu þátttöku og stemninguna sem ríkti 24. október ’75. Annað kom þó í ljós á fjölmennum fundi á Akureyri í vetur. Bæði kom fram hjá eldri kon- um eftirsjá vegna þess að þær tóku ekki þátt ’75, en sögðust hiklaust verða með nú. Einnig kom fram sú ábending frá ungum konum að 10 árgangar kvenna hefðu bæst við hópinn frá ’75 og þær konur hefðu ekki hvað síst ástæðu til að ræða þessi mál. Ég vil að lokum nota þetta tækifæri hér til að hvetja ykkur allar, hvar og hvernig sem störf- um ykkar kann að vera háttað, að hugleiða hvort ekki sé ærin ástæða fyrir konur að taka sér frí einn dag og nota hann til að kryfja til mergjar stöðuna í launamálum kvenna og jafnfrant leita raunhæfra leiða til úrbóta. Staðreyndin er nefnilega sú, að við verðum að gera það sjálfar, því það gerir það einginn annar fyrir okkur. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.