Dagur - 18.11.1985, Blaðsíða 7

Dagur - 18.11.1985, Blaðsíða 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson 18. nóvember 1985 - DAGUR - 7 imassa“ boltann í gólfið hjá Frömurum, Mynd: KGA r fyrri hálf- iröi útslagið 8 í handbolta 1. deild var bestur í sókninni. Þá var Guðmundur Guðmundsson nokkuð góður, en alveg er skelfi- legt hvað hann vælir mikið og er leiðinlegur á leikvelli. Langbestir í KA-liðinu voru Erlingur sem skoraði mörg glæsi- mörk og þar á meðal 1 sirkus- mark með aðstoð Loga og Er- lendur, en Logi átti góðan dag í vörninni. Þá var Þorleifur Anan- íasson góður. Mörk Víkings: Páll Björgvins- son 9 (6), Steinar Birgisson 7, Guðmundur Albertsson 2 og Guðmundur Guðmundsson 2. Mörk KA: Erlingur Kristjáns- son 8 (3), Erlendur Hermanns- son 4 og aðrir minna. AE/Reykjavík um helgina. Mynd: KK Islandsmótið 1. deild: Grófir Valsmenn r unnu öruggan sigur á KA Á laugardag unnu Valsmenn öruggan sigur á slöku KA-Iiði með 20 mörkum gegn 16 í LaugardalshöII. Staðan í hálf- leik var 14:8 Val í vil og má segja að eftir það hafi KA ekki átt sér viðreisnar von. KA-menn byrjuðu leikinn á því að skora fyrsta markið og var það eina skiptið sem þeir höfðu yfir í leiknum. Valsmenn svör- uðu með 3 mörkum í röð og juku muninn svo jafnt og þétt þar til þeir voru komnir 6 mörkum yfir í hálfleik. í seinni hálfleik hélst munurinn svo til óbreyttur þar til á síðustu mínútunum að Erlendur Her- mannsson skoraði 2 síðustu mörkin og minnkaði muninn í 4 mörk. Leikurinn á laugardag var ekk- ert augnayndi og einkenndist mest af barningi og grófum leik Valsmanna. Ótrúlegt reyndar hvað Þorbjörn Jensson og fleiri Valsmenn komust upp með. í Valsliðinu var einn maður sem stóð upp úr, en það var Jakob Sigurðsson. Þá var Júlfus Jónsson nokkuð góður. KA-liðið átti mjög dapran leik fyrir utan Sigmar markvörð sem varði 16 skot. Einna helst að þeir Erlingur Kristjánsson og Erlend- ur Hermannsson reyndu að krafla í bakkann. Mörk KA: Erlendur Her- mannsson 6, Erlingur Kristjáns- son 4, Guðmundur Guðmunds- son 2, Anton Pétursson 1, Logi Einarsson 1, Pétur Bjarnason 1 og Þorleifur Ananíasson 1. Mörk Vals: Valdimar Gríms- son 6, Jakob Sigurðsson 4, Theó- dór Guðfinnsson 2, Geir Sveins- son 2, Júlíus Jónsson 4, (2), Jón Pétur Jónsson 1 og Þorbjörn Jensson 1. AE/Reykjavík Erlingur Kristjánsson var langbestur KA-manna í Reykjavík um helgina. Mynd: KGA fslandsmótið 3. deild Vamir beggja liða í molum „Varnarleikur okkar var mjög íélegur og þar af leiðandi náðu markmenn okkar sér ekki á strik eins og tölurnar bera með sér. Sóknarleikurinn var ágæt- ur og með smá heppni hefðum við unnið þennan leik,“ sagði Helgi Helgason fyrirliði Völs- ungs í handbolta eftir jafntefli við Reyni Sandgerði í 3. deild- inni. Völsungar byrjuðu vel og kom- ust í 8:2, en Reynismenn náðu að jafna fyrir hlé og var staðan þá 13:13. Reynismenn byrjuðu bet- ur í seinni hálfleik og voru komn- ir með 3ja marka forystu snemma í hálfleiknum. Völsungar náðu síðan að jafna 22:22 og skiptust liðin síðan á um að skora til leiks- loka. Það voru Reynismenn sem jöfnuðu leikinn 30:30 þegar um 1 mínúta var eftir. Völsungar höfðu boltann síðustu mínútu leiksins en þeim tókst ekki að skora og úrslitin því jafntefli 30:30 eins og áður sagði. Það var gamla kempan Arnar Guðlaugsson sem var bestur Völsunga í leiknum, en hjá Reyni bar mest á þeim Heimi Karlssyni þjálfara og Daníel Ein- arssyni. Mörk Völsungs: Arnar Guð- laugsson 8, Pálmi Pálmason 8 (4), Bjarni Bogason 4, Ómar Rafnsson 3, Sigurður Illugason 3 og frændurnir Helgi Helgason og Pétur Pétursson 2 mörk hvor. Flest mörk Reynis skoruðu Heimir Karlsson 12 (4) og Daníel Einarsson 6. - í handbolta 3. deild „Þetta var gott, baráttan var góð. Vörnin er að vísu ekki alveg í nógu góðu lagi þó að það hafi dugað í dag. Reynismenn voru fyrir þennan leik aðeins búnir að tapa tveimur stigum, þannig að það er allt hægt, það sást í dag,“ sagði Gunnar Gunnarsson þjálfari og leikmaður Þórs í handbolta eftir sigur á Reynismönnum í 3. deildinni. Leikurinn fór rólega af stað, liðin skoruðu á víxl, en þess á milli komu algjörlega dauðir kaflar og ekkert gerðist. Staðan «hálfleik 8:7 Þór í vil. Þórsarar skoruðu 9. markið strax í upphafl síðari hálfleiks en síðan hvorki gekk né rak og Reynismenn komust yfir 11:9. Þórsarar jafna á 12. mínútu 11:11 og Hörður Harðar- son kemur Þór aftur yfír með marki úr hraðaupphlaupi. Þegar um 13 mínútur voru til leiksloka var staðan 15:12 Þór í vil. Þá var komið að þætti Gunnars þjálfara Gunnars- sonar en hann skoraöi næstu 4 mörk Þórs á móti 3 mörkum Reynismanna. Reynismenn skora síðan 2 mörk í lokin gegn 1 marki Þórs og úrslitin eins og fyrr sagði 20:17 Þór í vil. Reynismenn reyndu á síðustu mínútum leiksins að taka báðar skyttur Þórs úr umferð, en það dugði ekki til. Bestir í liði Þórs voru þeir Gunnar Gunn- arsson, Kristinn Hreinsson og Hermann Karlsson markvörður. í liði Reynis var Heimir Karlsson skástur. Mörk Þórs: Jóhann Samúclsson 5, Gunn- ar Gunnarsson 5 (2), Ingólfur Samúelsson 4 (3), Kristinn Hreinsson 3, Hörður Harðar- son 2 og Sigurpáll Aðalsteinsson 1. Flcst mörk Reynis skoruðu Heimir Karls- son og Daníel Einarsson. Dómarar voru þeir Ólafur Haraldsson og Stefán Arnaldsson og dæmdu þeir vel. Aðalfundur - Knattspyrnudeildar KA Aðalfundur knattspyrnudeildar KA verður haldin miðvikudaginn 20. nóvember í KA-miðstöðinni í Lundarskóla. Venjuleg aðalfundarstörf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.