Dagur - 29.01.1986, Blaðsíða 8

Dagur - 29.01.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 29. janúar 1986 Sveitarstjómarlög í brennipunkti Núgildandi sveitarstjórnarlög eru að verða 25 ára gömul. Þessi lög voru í niörgum efnum vel úr garði gerð. Ljóst er þó að þau þurfa endur- skoðunar við, þar sem sum ákvæði þeirra fá ekki staðist lengur. Endurskoðun sveitarstjórnarlaga verður að spanna yfir tvo megin- þætti. I fyrsta lagi lagaákvæði um stjórnsýslu sveitarfélaga og meðferð sveitarstjórna á verkefnum sínum og í öðru lagi um uppbyggingu sveitar- stjórnarkerfisins. Það er um samtök sveitarfélaga og samvinnu þeirra, ennfremur lagalega stöðu gagnvart ríkisvaldi og um millistig í stjórn- sýslu. í ráðherratíð Svavars Gestssonar var skipuð endurskoöunarnefnd sveitarstjórnarlaga. Þessi nefnd var skipuð fulltrúum tilnefndum af þing- flokkum og Sambandi ísl. sveitarfé- laga. Forntaður nefndarinnar var til- nefndur af ráðherra, án tillagna frá öðrum aðilum. Fyrir valinu varð kunnur dómari við bæjarþingið í Reykjavík, sem ekki var kunnur af að hafa fengist við sveitarstjórnar- málefni í starfi sínu. Hér var ólíkt farið að þegar félags- málaráðherra skipaði á sínum tíma nefnd er undit bjó frumvarp til núver- andi sveitarstjórnarlaga. Til for- mennsku valdist þáverandi ráðuneyt- isstjóri félagsmála, sem hafði að baki langa reynslu sem bæjarstjóri og sýslumaður. Með honunt í nefndinni voru m.a. valinkúnnir menn úr hópi landsbyggðarmanna. Sumar tillögur nefndarinnar bera vott um að auka eigi á ný umsjón valdsmanna ríkisins með sveitar- stjórnarmálefnum. Einnig vottar í verulegum mæli fyrir þeirri áleitni að taka upp í íslensk sveitarstjórnarlög ýmis ákvæði erlendra laga, sem ekki eiga rætur í ríkjandi sveitarstjórnar- hefð. Sumir þessara ágalla voru lag- færðir áður en frumvarpið kom til Alþingis, en aðrir hafa flotið áfram í frumvarpi því sem nú er til af- greiðslu. Hér ska! drepið á nokkur atriði, sem bera vott um þess konar uppá- finningarsemi: 1. Vald sveitarstjórna til að úr- skurða kosningakærur, verði fært til nefndar sem valdsmenn ríkisins hafa sjálfdæmi um að skipa. 2. Ný sveitarstjórn taki ekki við völdum strax að loknuni sveitar- stjórnarkosningum. 3. Öll sveitarfélög verði skyldug að gera framkvæmda- og fjárhags- áætlun 5 ár fram í tímann, sem verði rammi árlegra fjárhagsáætlana. 4. Tekið upp löngu aflagt kerfi um fjárhagsáætlanagerð, sem byggist á yfirfærslu niðurstaðna fyrra reikn- ingsárs. 5. Gera sveitarfélögum nánast ókleift að veita atvinnurekstrinum fyrirgreiðslu í formi ábyrgða. Sömu reglur um sam- einingu sveitarfélaga Sú almenna regla er í frumvarpinu að ekki rnegi breyta mörkum sveitar- félaga, nema að um það sé sam- komulag á milli viðkomandi sveitar- félaga eða með lögum frá Alþingi. Hins vegar gegnir öðru máli um sveitarfélög með færri en 50 íbúa. Ráðherra getur sameinað þau öðrum sveitarfélögum eða jafnvel skipt sveitarfélagi upp á milli tveggja eða fleiri sveitarfélaga, ef honum sýnist svo miðað við landfræðilegar aðstæð- ur, þótt ekki liggi fyrir samkomulag á milli sveitarfélaga um samruna. Hér virðist gilda tvöfaldur réttur, sem er ákaflega hæpinn og reyndar mismunar stöðu sveitarfélaga, sem eru með áþekkan íbúafjölda. Ekki er hér verið að draga dul á það, að minnstu sveitarfélögin eru oftast ein sér of fámenn til að annast verkefni sín. Hins vegar verður ekki á móti mælt að mörg hinna fámennari sveit- arfélaga hafi í samstarfi við önnur sveitarfélög leyst sín mál það vel að ekki er klögunarefni, því að mörg þeirra stærri hafa staðið verr í ístað- inu. Það er eðlilegt og nauðsynlegt, að ráðherra hafi frumkvæði um sam- einingu sveitarfélaga að ákveðnu íbúamarki og hafi frumkvæðið að lagasetningu, ef samkomulag á milli aöila næst ekki, og ef full rök eru fyr- ir því að sameina sveitarfélög. Það verður liins vegar að vera á valdi Al- þingis hverju sinni að meta það hvort leggja skuli niður sveitarfélög með lögum. Frumvarpið bcr með sér að stækk- unarmenn sveitarfélaga hafa rifað seglin nú um sinn. Ljóst er að fyrri hugmyndir um æskilega stærð sveit- arfélaga, fá ekki staðist, ef stofna á til sveitarfélags, sem er nægilega fjöl- mennl til að veita nútímaþjónustu á viðunandi hátt. Mönnum er að verða æ Ijósara að sveitarfélög þurfa að vera með a.m.k. 1 þús. íbúa til þess að geta verið fullburða um nútíma- þjónustu, án þess að þurfa að leysa hin nærtækustu verkefni í samvinnu við önnur sveitarfélög. Það er öllum að verða ljóst, að ekki eru fyrir hendi félagsleg eða land- fræðileg skilyrði til þess að koma á almennt séð sameiningu sveitarfé- laga til að ná þessu marki. Þótt ekki megi afneita sameiningarleiðinni, er ljóst að sveitarfélög verða að leita í vaxandi mæli eftir því að leysa verk- efni sín í samstarfi, sín á milli. Vafasöm nýmæli Meðal ákvæða í frumvarpinu eru uppáfinningar sem telja verður hæpnar. Ætlast er til þess að gefin séu út sérstök kjörbréf til varamanna í sveitarstjórn. Gangur mála er sá, að oft kemur fyrir að kalla þarf til vara- mann með stuttum fyrirvara, svo að iðulega þarf að boða menn á sveitar- stjórnarfund, sem eru neðar á lista en eðlileg röðun varamanna segir til um. Gefa út kjörbréf í hvert sinn er hæpið mál í daglegri önn. I kaupstöðum og stærri sveitarfé- lögum hefur markast hefðbundin verkaskipting á milli formanns sveit- arstjórnar og framkvæmdastjóra sveitarfélags, en miðað við ákvæði frumvarpsins er komið losi á þá skipan, sem er vísasti vegurinn til að koma á truflunum í samstarfi þeirra manna, sem eru í forsvari fyrir sveit- arfélagið. Það kann að vera lýðræðislegt að hafa í sveitarstjórnarlögum heimild sveitarstjórna til að skjóta málum sínum til úrskurðar í atkvæða- greiðslu eða til afgreiðslu á borgara- fundum. Ennfremur að tiltekinn hópur kjósenda geti krafist atkvæða- greiðslu um mál. Vandinn er sá að þetta veikir sveitarstjórnirnar nema að baki sé samheldur pólitískur meirihluti, en svo er ekki í flestum sveitarstjórnum. Hætt er við að raun- in verði sú, að upp komi f mörgum sveitarfélögum eins konar lýðræði götunnar, sem gerir sveitarstjórnir nánast óvirkar í störfum. Það er væg- ast sagt gáleysi að setja svona ákvæði í lög, án skoðanakannanna á meðal sveitarstjórnar um málið áður en ákvæðin eru sett í frumvarpið. Gagngerð endurskoðun frumvarpsins Á síðasta fjórðungsþingi Norðlend- inga 1985, var samþykkt að gagngerð endurskoðun færi fram á fyrstu átta köflum frumvarpsins, sem fjalla um stjórnsýslu sveitarfélaga, samvinnu og samtök sveitarfélaga og samskipti ríkis og sveitarfélaga, áður en frum- varpið verði afgreitt frá Alþingi nú í vetur. Jafnframt lagði þingið til að niður verði felldur 9. kafli frum- varpsins, sem fjallar um héraðs- nefndir. í stað hans komi sérstök lög um millistjórnstig, sem kosið verði til með beinum kosningum. Milli- stjórnstigið hafi sjálfstæða tekju- stofna og fái verkefni frá ríkinu. Það hefur komið fram gagnrýni á þessa ályktun þingsins, um það að ekki hafi komið fram rökstuðningur fyrir því hvað er átt við með gagn- gerðri endurskoðun. í því sambandi er rétt að taka fram að framkvæmda- Áskell Einarsson. stjóri Fjórðungssambands Norðlend- inga vann fyrir rúmu ári athugasemd- ir á frumvarpi nefndarinnar, með vit- und fjórðungsráðs, sem sendar voru sveitarstjórnum á Norðurlandi til leiðsagnar og félagsmálaráðuneytinu vegna umfjöllunar um tillögur endur- skoðunarnefndar. Nú í haust, þegar frumvarpið var lagt fyrir Alþingi til afgreiðslu, vann framkvæmdastjórinn breytingar- tillögur upp úr athugasemdunum og sendi félagsmálanefnd neðri deildar Alþingis, sem hefur frumvarpið til meðferðar. Breytingartillögum þess- um var skipt í tvo meginflokka. í fyrsta lagi voru breytingartillögur við fyrstu 8 kafla frumvarpsins, sem fjalla um stjórnsýslu sveitarfélaga og í öðru lagi breytingartillögur við ákvæði, sem fjalla um sameiningu sveitarfélaga, samstarf sveitarfélaga og samskipti við ríkisvaldið. Verkefni og stjórnsýsla sveitarfélaga Um 96 greinar frumvarpsins fjalla um sveitarfélögin sérstaklega, stjórn- sýslu þeirra og málefnameðferð. Þetta eru þeir hlutar frumvarpsins, sem kalla að um endurskoðun og eru mjög þýðingarmiklir. Hér verður drepið á nokkur atriði: 1. Ráðherra hafi aðeins einhliða rétt til að breyta mörkum sveitarfé- lags, hafi sveitarfélagið fallið úr byggð. 2. Öll sveitarfélög hafi sömu skyldur við þegna sína og réttur þegna gagnvart sveitarfélagi verði hinn sami í sveitarfélögum landsins. 3. Sé sveitarfélagi ofviða að leysa einstök verkefni sín, er því skylt að leita samstarfs við önnur sveitarfélög um starfrækslu þeirra, er því skylt að leita samstarfs við önnur sveitarfé- lög, einnig ef sú tilhögun eykur á hagkvæmni í rekstri sveitarfélaga. 4. Hlutlaus aðili tilnefndur af Hæstarétti úrskurði kærur vegna sveitarstjórnarkosninga, í stað ráð- herra. 5. Heimild sé til að efna til nýrra sveitarstjórnarkosninga náist ekki nægilegur stuðningur við ráðningu framkvæmdastjóra. 6. Skýlaus ákvæði um verkaskipt- ingu framkvæmdastjóra og formanns sveitarstjórnar. 7. Heimilt sé að veita tímabundna aðstoð úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að örva tvö eða fleiri sveitarfélög eða samrekstrarbandalög sveitarfé- laga til að ráða sameiginlegan fram- kvæmdastjóra. 8. Heimilt sé að fela sveitarfélagi, sem hafi framkvæmdastjóra í þjón- ustu sinni, umboðsstörf á vegum ríkisins. 9. Settar séu eðlilegar reglur til aðhalds um ábyrgðarþjónustu sveitar- félaga við atvinnulífið. Gleggri ákvæöi um samstarf sveitarfélaga Áberandi er að í frumvarpinu er mikil áhersla lögð á fyrirmæli til fé- > lagsmálaráðuneytisins um að ástunda sameiningu sveitarfélaga. Jafnvel er gert ráð fyrir að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veiti verulega styrki, um lengri tíma til þess að efla sam- einingu sveitarfélaga. Ekki er gert ráð fyrir þess konar styrkveitingum til að koma á samstarfi fleiri sveitarfé- laga um verkefni sín. í þessum efnum gerir frumvarpið upp á milli leiða til þess að efla sveit- arfélög, til að leysa hlutverk sitt. Ákvæði um byggðasamlög eða byggðabandalög 'bera vott um að ekki er lögð nægilega rík áhersla á þá leið til að efla sveitarfélögin. Ákvæði um landshlutasamtök sveit- arfélaga eru nánast sýndaratriði. Sambandi ísl. sveitarfélaga er einu ætlað að vera tengiliður gagnvart ríkisvaldinu, en ekki landshlutasam- tökum sem eru þó málsvari íbúanna, eftir búsetu þjóðarinnar í landinu. í tillögum til félagsmálanefndar neðri deildar voru gerðar tillögur til breytinga á 15 af 24 greinum frum- varpsins, sem fjalla um ofangreind efni. Meginatriði tillagnanna eru þessi: 1. Gerðar tillögur að glöggum rammaákvæðum um hin ýmsu sam- starfsform sveitarfélaga, til þess að leysa verkefni sín. 2. Skilmerkileg ákvæði um tengsl á milli þátttöku aðila, miðað við greiðsluskyldu, um vægi atkvæða einstakra sveitarfélaga varðandi stjórnun byggðabandalaga. 3. Hlutverk og tilvera landshluta- samtaka sveitarfélaga sé viðurkennd í sveitarstjórnarlögum og mörk þeirra, ásamt aðild sveitarfélaga verði tryggð að lögum. 4. Einföld ákvæði um sameiningu sveitarfélaga miðuð við sameiningu minnstu sveitarfélaganna fyrst og fremst. Verður frumvarpið hespað í gegn á þessu Alþingi? Greinilega kemur fram hjá félags- málaráðherra og formanni Sambands ísl. sveitarfélaga í ritinu „Skipu- lagsmál Höfuðborgarsvæðis" þar sem þeir lýsa hug sínum um þriðja stjórnsýslustigið, að lögð er rík áhersla á að frumvarpið til sveitar- stjórnarlaga, þar með talinn kaflinn um héraðsnefndir verði að lögum á þessu þingi. Friðrik Sophusson for- maður félagsmálanefndar neðri deildar Alþingis, lýsti því yfir í morg- unútvarpi nýlega, að mikil þrýstingur sé að afgreiða frumvarpið á yfir- standandi Alþingi og jafnvel það tímanlega að kosningaákvæði þess gætu komið til framkvæmda við komandi sveitarstjórnarkosningar. Meginatriðið er að landsbyggðar- menn átti sig á því að hér er um veigamikla löggjöf að ræða. t þessum efnum mega menn ekki vakna til vit- undar eftir á, þegar ýmis vafasöm laga- atriði hafa hlotið staðfestingu á Ál- þingi, eins og oft hefur brunnið við. Grein þessi er rituð í þeim tilgangi að hvetja menn til þess að fylgjast með gerðum Alþingis nú og til að gefa mönnum kost á því að kynnast þeim sjónarmiðum, sem hafa verið færð fram á vegum Fjórðungssambands Norðlendinga og frá framkvæmda- stjóra þess persónulega. Áskell Linarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga. Ný sending af Van Gils jakkafötum, stökum buxum með föllum, margir litir. Comby settin vinsælu frá Faibe væntanleg í vikunni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.