Dagur - 11.02.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 11. febrúar 1986 28. tölublað
k
Filman þín
áskiliöþaö
besta!
r
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106 Sími 22771 ■ Pósthólf 198
f/Y/A Iffl/. f/>///7/ ////rfw/Æw//
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tiibúnar
kl. 16.30.
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Kennarar:
Einhu
um harðari
aðgerðir
- ef þessar duga ekki
Engin kennsla var í grunnskól-
um á Norðurlandi eystra í gær.
Kennarar notuðu daginn til að
funda um kjaramál sín.
Til þessara aðgerða var gripið
til að þrýsta á að stjórnvöld leið-
rétti þann 5% mun sem er á laun-
um kennara innan HÍK annars
vegar og KÍ hins vegar. Ekkert
var heldur kennt í grunnskólum á
Vesturlandi í gær. í dag verður
engin kennsla í Reykjavík og á
Vestfjörðum og á morgun og
hinn grípa kennarar annars stað-
ar á landinu til hliðstæðra að-
gerða ef „stjórnvöld sjá ekki að
sér“, eins og einn kennarinn orð-
aði það.
Fundir voru haldnir í flestum
skólum á Norðurlandi eystra og
Vesturlandi í gær og ríkti mikill
einhugur meðal kennara. Harð-
orðar ályktanir voru samdar þar
sem fram kom að kennarar lýsa
fullri ábyrgð á hendur ríkisvald-
inu vegna þeirrar stöðu sem upp
er komin í launamálum kennara
og þeirrar röskunar sem verður á
skólahaldi af þeim sökum. Kenn-
fjármálaráðherra hefur lýst því
yfir að hann vilji ekki semja við
kennara nema sem eina heild.
Kennarafélögin eru hins vegar
tvö, HÍK og KÍ og er sameining
þeirra ekki á dagskrá fyrr en á
miðju næsta ári. Kennarar vilja
ekki leggja út í kjarasamninga
fyrr en allir sitja við sama borð og
telja þessar aðgerðir nú ekki snú-
ast um launahækkun heldur sjálf-
sagða leiðréttingu. BB.
í Gagnfræðaskólanum funduðu kennarar eins og í öðrum skólum.
Mynd: KGA
Vandræðaástand í Síðuskóla:
Ríkissjóður skuldar Bæjar-
sjóði 30 milljónir!
-vegna bygginga grunnskóla á Akureyri sl. 15 ár
arar telja að ítrekuð svik á lof-
orðum um jöfnun þessa launa-
mismunar hafi neytt þá til að
grípa til harðra aðgerða.
Rætt var um hvað gera ætti ef
þessar aðgerðir dygðu ekki til.
Ýmsar tillögur voru ræddar svo
sem frekari niðurfelling kennslu á
næstu vikum, fjöldauppsagnir og
„veikindaforföll“ í anda flugum-
ferðarstjóra. Engin ákvörðun var
tekin og ætla kennarar að sjá til
hvað gerist í þessari viku.
Fjármálaráðuneytið hefur ekki
sýnt nein viðbrögð við þessum
aðgerðum. Þorsteinn Pálsson
„Miðað við óbreytt húsnæði
hér í Síðuskóla frá því sem nú
er, þá verður það mjög hæpið
að við getum haft hér kennslu
í 0.-6. bekk næsta vetur,
m.a. vegna þess að sá hópur
sem nú er í forskóladeild er
mun stærri en aðrir árgangar
og mun stærri en sá hópur sem
er í 6. bekk og gengur út,“
sagði Ingólfur Armannsson
skólastjóri í Síðuskóla í samtali
við Dag í gær.
Á fundi Skólanefndar Akur-
eyrar fyrir skömmu var kynnt
bréf sem sent var fjárveitinga-
nefnd Alþingis vegna fjárveitinga
til nýframkvæmda, en þar sagði:
„Samkvæmt áætlun um upp-
gjör milli Akureyrarbæjar og
Menntamálaráðuneytis virðist
Rfkissjóður skulda Bæjarsjóðl
um 30 milljónir króna vegna
bygginga grunnskóla undanfarin
15 ár. í fjárlögum ársins 1986,
sem nú eru til meðferðar á Al-
þingi, er gert ráð fyrir að veita
fjórar milljónir króna til smíði
grunnskóla á Akureyri.
Verði öðrum áfanga hins nýja
Síðuskóla ekki lokið að fullu fyrir
1. september 1986 er ekki unnt
að halda skóla fyrir öll börn og
unglinga á aldrinum 7-16 ára á
Akureyri næsta skólaár, sbr. 1.
grein laga um grunnskóla. . .“
Ingólfur Ármannsson sagði að
ekki væri vitað með vissu hvað
forskólahópurinn næsta vetur
verður stór en miðað við þær töl-
ur sem nú eru fyrir hendi þá má
búast við að um stóran árgang
verði að ræða. „Hér eru nýttar
allar kompur og vel það og við
þurfum a.m.k. eina skólastofu í
Aukin miðstýring fjármagns
- segja menn um aukna bindiskyldu hjá lífeyrissjóðunum
Hugmyndir þær sem Guö-
mundur J. Guðmundsson
nánast hótaði landsmönnum
með í sjónvarpsfréttum á
sunnudagskvöld, um að stór-
auka bindiskyldu lífeyrissjóð-
anna þannig að þeir hætti að
lána einstökum félagsmönn-
um en leggi þess í stað stærst-
an hluta ráðstöfunarfjár í
byggingalánasjóðina í Reykja-
vík, hafa farið mjög fyrir
brjóstið á mönnum. Við-
kvæðið er gjarnan það, að
þetta sé aðeins ein leiðin enn
til að soga fjármagn til höfuð-
borgarsvæðisins og miðstýr-
ingarinnar þar.
„Vei sé þeim sem eru á mót:
þessu,“ sagði Guðmundur
áðumefndu sjónvarpsviðtali.
Þessar hugmyndir eru á um-
ræðustigi í nefnd aðila vinnu-
markaðarins um húsnæðismál.
Þær snúast um það að lífeyris-
sjóðirnir verði skyldaðir til að
leggja 70% ráðstöfunarfjár síns
í byggingalánasjóðina í stað 40%
sem nú er farið fram á. Þetta
þýðir að t.d. lífeyrissjóðir í
Eyjafirði hafa ekki lengur ráð-
stöfunarrétt yfir því fé sem fé-
lagar í þeim hafa lagt í þá.
Margir telja að með þessum
fjármagnsflutningi sé verið að
bjarga byggingariðnaðinum í
Reykjavík. Pað muni skapa
þenslu þar með ófyrirsjáanlcg-
í um afleiðingum m.a. þeim að
nýbyggingar verði nær eingöngu
á höfuðborgarsvæðinu en legg-
ist nær af á landsbyggðinni.
Auk þess muni viðskiptavinir.
lánastofnana út um land, fyrir-
tæki og einstaklingar, ekki
njóta góðs af geymslufé þvf sem
lífeyrissjóðirnir hafa gjarnan
ávaxtað heim á stöðunum.
Sem dæmi um það hversu
mikla fjármuni um er að ræða
má geta þess að ráðstöfunarfé
Sameiningar var um 52 millj.
kr. á síðasta ári, lífeyrissjóðs
KEA um 50 millj., lífeyrissjóðs
verksmiðja SÍS um 25 millj. og
lífeyrissjóðs starfsmanna Akur-
eyrarbæjar 13-14 milljónir
króna. Með ráðstöfunarfé er átt
við iðgjöld og endurgreiðslur af
lánum að frádregnum lífeyris-
greiðslum. Samtais er hér um
að ræða 140 milljónir króna.
Hingað til hefur 40% bindi-
skyldan þýtt 56 milljónir króna,
en ef þessar hugmyndir verða
að veruleika fara 98 milljónir
króna frá launþegum í þessum
fjórum lífeyrissjóðum við
Eyjafjörð beint til Húsnæðis-
stofnunar í Reykjavík. Pening-
arnir hverfa af svæðinu og verða
að líkindum notaðir til að fjár-
magna húsbyggingar í Reykja-
vík og nágrannabyggðum að
stærstum hluta.
Sjá nánar bls. 3
og leiðara bls. 2.
viðbót næsta vetur miðað við
óbreytt ástand." sagði Ingólfur.
______________________gk^_
Sviptingar í
bæjarstjórn?
Fjárhagsáætlun Bæjarsjóðs
Akureyrar fyrir árið 1986 verð-
ur tekin til seinni umræðu á
bæjarstjórnarfundi í dag.
Fjárhagsáætlunin hefur tekið
nokkrum breytingum í meðför-
um bæjarráðs og náðist góð
samstaða þar um breytingarnar.
Dagur hefur þó fregnað að lík-
legt sé að upp komi ágreiningur
á bæjarstjórnarfundinum í dag
vegna hugmynda sjálfstæðis-
manna um niðurskurð á fram-
kvæmdaáætlun Vatnsveitu Akur-
eyrar. Á fjárhagsáætluninni eins
og hún er nú er gert ráð fyrir að
hafnar verði framkvæmdir við
byggingu geymslutanks fyrir
vatnsveituna, sem alls á að kosta
um 25 milljónir króna. Við fyrri
umræðu var áætlað að veita 15
milljónum króna til þessara fram-
kvæmda í ár, en sjálfstæðisménn
vilja nota fjármagnið til annarra
hluta, m.a. til framkvæmda í
Dvalarheimilinu Hlíð. Fulltrúar
Kvennaframboðsins munu vera
hlynntir þessum hugmyndum
sjálfstæðismanna. Pví er allt eins
líklegt að sviptingasamt verði á
bæjarstjórnarfundi í dag þegar
fjárhagsáætlunin verður tekin til
afgreiðslu. BB.