Dagur - 11.02.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 11.02.1986, Blaðsíða 5
11. febrúar 1986 - DAGUR - 5 Jú þetta eru þeir sjálfir, hinir einu og sönnu Hljómar. Björgvin Halldórsson. Haldið þið það séu tilþrif?!!! Góðir listamenn eiga það til að hafa töluverð áhrif á samtíð sína og seinni tíma. Hafi þeir engin áhrif, þá eru þeir ein- faldlega ekki nógu góðir. Og það er víst engum blöðum um það að fletta að sá tónlistar- maður íslenskur sem hefur haft mest áhrif á músíkmenn- ingu okkar íslendinga síðustu tvo áratugina er Gunnar Þórð- arson. Eiríkur Hauksson, toppurinn i dag. Hann heillaði alla upp úr sætunum með „Gaggó West“ og fleiri góðum „smellum“. Helga Möller fer á kostum og slær ekkert af. . . . og hver man ekki eftir „Ðe Lónlí Blú Bojs“ - Er ég kem heim í Búðardal . . Pálmi Gunnarsson. Maður kvöldsins, að Gunnari undanskild- um, að mati undirritaðs og þessi frá- bæri söngvari fór hreinlega á kostum. Gunnar Þórðarson er ekki aðeins fjölhæft tónskáld og mikilhæfur útsetjari með persónulegan stð, heldur er hann afkastamesta tón- skáld sem uppi hefur verið á íslandi. Og þótt ísland sé ekki fjöl- mennt land, hafa hljómplötur með verkum hans selst í heilli milljón eintaka, eða því sem næst, en það hlýtur að teljast ótrúlegt afrek hérna norður á hjara veraldar. Undanfarin misserihefur Gunnar verið stjórnandi og útsctjari stór- hljómsveitarinnar hér á Broadway. Það er mjög krefjandi starf og hentar ekki nerna afburðamönnum. En á hinn bóginn má segja að viðaminna starf hentaði honum ekki. Gunnar er einfaldlega þannig gerður að hann verður að vinna að verkefnum sem gera miklar kröfur til hans. Á vegum Broadway hefur hann meðal annars sett upp Bítlahátíð, Rokkhátíðina 1984, skemmtidagskrár af ýmsu tagi og ýmislegt annað. Það er hcldur ekkert smáverkefni sem Gunnari hefur verið falið að stjórna fyrir Broadway í þetta sinn: Það er hvorki meira né minna en Söngbók Gunnars Þórðarsonar! Þeim leiðist greinilega ekki gömlu „Keflavíkurbítlunum“ Gunnari og Rúnari Júlíussyni. ír \ Bændur ★ Búalíð ^ Bæjarbúar Skinnasýning á vegum Loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar verður haldin að Hótel KEA sunnudaginn 16. febrúar 1986 frá kl. 10.00-15.00. Happdrætti verður í gangi og úrvals blárefaskinn í vinning. Komið og sjáið sýnishorn af framleiðslu eyfiskra loð- dýrabænda. Nefndin. Fyrirtæki! Félög! Húsnæði til leigu Til leigu er húsnæði, hentugt fyrir skrifstofur og fé- lagsstarfsemi að Ráðhústorgi 3, 3. hæð samtals um 95 fm. Húsnæðið skiptist í 4 herbergi, 25,8 fm, 18,2 fm, 14,0 fm og 10,3 fm ásamt göngum, snyrtingu og geymslu. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Trésmiðafélags Akureyrar og Lífeyrissjóðs trésmiða Alþýðuhúsinu Skipagötu 14 sími 22890. Lausar stöður Við embætti bæjarfógetans á Akureyri eru eftir- taldar stöður lausar til umsóknar: 1. Staða fulltrúa (tollafgreiðsla). 2. Staða skrifstofumanns. Um er að ræða hálfsdags starf. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar undirritaðum fyrir 8. mars n.k. Bæjarfógetinn á Akureyri. 8. febrúar 1986. Elías I. Elíasson. EIMSKIP * Hf. Eimskipafélag íslands óskar eftir að ráða til starfa á skrifstofu sína á Akureyri starfsmenn í eftirfarandi stöður: Skrifstofustjóra: Starf skrifstofustjóra felst í aaglegri stjórn á skrifstof- unni, ásamt almennum skrifstofustörfum er tengjast afgreiðslu Eimskips á Akureyri og skrifstofunni í Reykjavík og tengslum við viðskiptavini Eimskips. Ritara/afgreiðslumanns: Starf ritara felst í allri almennri skrifstofuvinnu á vinnustað þar sem þarf að framkvæma hin ólíkleg- ustu verkefni af samviskusemi og nákvæmni. Við leitum að starfsmönnum: - Til framtíðarstarfa - Með góða menntun og reynslu af sambæri- leg um störfum - Með góAa tungumálakunnáttu - Með frumkvæði og vilja til þess að tileinka sér ný og sérhæfð vinnubrögð - Með trausta og góða framkomu og áhuga á samskiptum við annað fólk. Við bjóðum góðar vinnuaðstæður hjá traustu fyrir- tæki. Ofangreindir starfsmenn munu þurfa að sækja tímabundið starfsnám til Reykjavíkur á aðalskrif- stofu Eimskips. Umsóknareyðublöðjiggja frammi á skrifstofu Eim- skips, Strandgötu, Akureyri, og skal umsóknum skil- að fyrir 18. febrúar n.k. á sama stað. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Eimskips í síma 91-27100, ámilli kl. 10.00 og 12.00 daglega. STARFSMANNAHALD.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.