Dagur - 06.05.1986, Qupperneq 9
-íþróttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
6. maí 1986 - DAGUR - 9
Afríkuhlaupið:
Hlaupið í kapp
við tímann
Sunnudaginn 25. maí mun ein-
hver mesti íþróttaviðburður
sögunnar eiga sér staö þegar
milljónir manna um allan heim
munu hlaupa til styrktar bar-
áttunni gegn hungurvofunni í
Afríku. A íslandi verður
hlaupið kallað Afríkuhlaupið,
en á ensku er þessi viðburður
kallaður Sport Aid og er eins
og nafnið bendir til tengdur
uppákomum þeim sem tónlist-
armaðurinn Bob Geldoff hefur
staðið fyrir síðastliðið eitt og
hálft ár.
Hlaupið verður á sama tíma
uin heim allan, og má til dæmis
geta þess að um leið og íslending-
ar hefja hlaupið klukkan þrjú
síðdegis leggja Ástralir af stað
um hánótt. Þegar hafa íþrótta-
menn í um 60 stórborgum út um
allan heim tilkynnt þátttöku, og
er reiknað með að þátttakendur í
þessu hlaupi verði fleiri en í
nokkrum einstökum íþróttavið-
burði fyrr eða síðar.
Þar í hópi verður fjöldi
stórstjarna á ýmsum sviðum,
bæði heimsfrægt íþróttafólk,
Knattspyrna:
Tvo top
Tindastóls
Knattspyrnulið Tindastóls
frá Sauðárkróki keppti tvo
æfingaleiki fyrir sunnan um
mánaðamótin. Leikið var
gegn Fylki og Ungmennafé-
lagi Hveragerðis og töpuð-
ust báðir leikirnir.
Leikurinn gegn Fylki tapað-
ist 3:0 en 3:1 gegn liði Hver-
gerðinga. Það sem helst var að
hjá leikmönnum Tindastóls í
þessari ferð var almennt
áhugaleysi leikmanna.
Liðið á fyrir höndum langa
og harða baráttu í 3. deildinni
sem hefst seinni partinn í maí
en í fyrra var Tindastóll aðeins
hársbreidd frá því að vinna sér
sæti í 2. deild.
leikarar og tónlistarfólk. Nægir
þar að nefna menn eins og Geld-
off sjálfan, Bryan Robson og
Maradonna.
Erlendis er einna helst stílað á
reynda skokkara sem þátttakend-
ur í hlaupinu, en hér á landi verð-
ur frekar reynt að höfða til
almennings, bæði með lægra
þátttökugjaldi en erlendis og svo
með því að bjóða upp á mismun-
andi vegalengdir.
Óhætt er að hvetja alla til að
leggja hönd á plóginn og gera
sjálfum sér greiða með því að
skokka nokkra kílómetra um leið
og þeir leggja sitt af mörkum í
baráttunni við hungurvofuna í
Afríku. Búið er að ákveða að
ágóðinn af hlaupinu hér á landi
renni óskiptur til rekstrar heimil-
is fyrir munaðarlaus börn í Eþí-
ópíu á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar, sem verið er að reisa
fyrir ágóðann af sölu hljómplöt-
unnar „Hjálpum þeim“, sem ís-
lenskir popparar gáfu út fyrir síð-
ustu jól. Segja má því að almenn-
ingi gefist nú kostur á því að reka
heimilið sem poppararnir byggðu.
Til þess að öðlast þátttökurétt
þarf aðeins að kaupa barmmerki
á 100 kr. Á mönnum liggur að
sjálfsögðu engin kvöð um að
skokka þótt þeir kaupi merki, en
stefnan er að selja nógu mörg
merki til þess að hægt sé að reka
heimilið í að minnsta kost 3 ár.
Auk merkjasölunnar verður
reynt að afla fjár með auglýsing-
um, svo og með því að safna
áheitum hjá einstaklinguin og
fyrirtækjum. Þeir sem áhuga hafa
á því að styrkja hlaupið eða taka
þátt í undirbúningi þess í sínu
héraði ættu að hafa samband við
Framkvæmdanefnd Afríkuhlaups-
ins, en hún hefur aðsetur að
Suðurgötu 22, 101 Reykjavík, s:
91-25290 - 91-26440.
A.E./Reykjavík.
Þessir herrainenn ætla að taka þátt í Sport-Aid hlaupinu. Frá vinstri: Bryan Robson fyrirliði Man. United og enska
landsliðsins, Bob Geldof forsprakki Sport-Aid hlaupsins og Sebastian Coe hinn heimsfrægi hiaupari frá Englandi.
Knattspyrna:
Völsungur
sigraði
Einherja
- í tveimur leikjum
Yölsungar fengu Einherja frá
Vopnafirði í heimsókn á föstu-
dag og léku liðin tvo æfinga-
leiki í knattspyrnu um helgina.
Völsungar sigruðu í þeim báð-
um með tveimur mörkum gegn
engu.
Leikirnir voru leiknir við erfið-
ar aðstæður og var töluverð
harka í leikmönnum beggja liða.
í fyrri leiknum skoruðu þeir Jón-
as Hallgrímsson og Svavar Geir-
finnsson mörk Völsungs en þeir
Jónas og Magnús Hreiðarsson í
þeim síðari.
Völsungar hafa átt í töluverð-
um vandræðum með að æfa við
sæmilegar aðstæður þar sem mal-
arvöllurinn á Húsavík hefur verið
í mjög slæmu standi. Hafa þeir
þá gripið til þess ráðs að æfa á
flugvellinum í Aðaldal.
Þorleifur get-
raunakóngur
Ómar Rafnsson meiddist illa á æfingu fyrir skömmu og er óvíst hvort hann
leikur með Völsungum í sumar.
Ómar úr leik?
Knattspyrnulið Völsungs varð
fyrir miklu áfalli fyrir skömmu
er hinn firnasterki varnarmað-
ur þeirra Ómar Rafnsson
meiddist alvarlega á æfingu.
Ómar meiddist á hné og er
jafnvel talið að krossband hafi
slitnað. Ef svo er kenrur hann
ekki til með að leika meira með
Völsungum á þessu keppnistíma-
bili. Það er þó ekki ljóst enn
hversu alvarleg meiðsli hans eru
en það kemur í Ijós á næstu
dögurn.
Ömar gekk til liðs við Völs-
unga fyrir keppnistímabilið í
fyrra og var einn albesti leikmað-
ur liðsins í 2. deildinni á síðasta
ári. Ekki þarf að fjölyrða um það
hversu rnikill missir það er fyrir
Völsunga ef Ómar verður úr leik
í sumar.
Þá er getraunalcik Dags lokið
að þessu sinni. Nú um helgina
kepptu þeir Askell Þórisson
starfsmannastjóri hjá KEA og
Alfreð Almarsson og fóru leik-
ar þannig að Alfreð sigraði af
miklu öryggi. Hann hafði 8
leiki rétta en Áskell aðeins 3.
Áskell hefur engu að síður
staðið sig vel fram að þessu ef
tekið er tillit til þess að hann hef-
ur ekkert vit á fótbolta.
Sigurvegari í getraunaleiknum
varð Þorleifur Ananíasson hand-
knattleikskappi úr KA en hann
lagði 6 andstæðinga að velli í vet-
ur og þar á meðal nokkra Þórs-
ara. Þorleifur fær sín verðlaun
afhent innan tfðar en á þessu stigi
er ekki hægt að láta uppi hver
þau eru.
Þar sem Alfreð Almarsson
sigraði nú um helgina hefur verið
ákveðið í samráði við Þorleif sig-
urvegara að þeir tveir hefji leik-
inn á hausti komanda í getrauna-
leík Dags, þegar enska deildar-
keppnin fer af stað að nýju.
Vonandi hafa keppendur svo
og aðrir lesendur blaðsins haft
gaman af keppninni.
Þorleifur Ananíasson getrauna-
kóngur Dags.