Dagur - 28.05.1986, Síða 10
10 - DAGUR - 28. maí 1986
Til sölu fjaðrir undir Chevrolet
Nova. Notaðar en í góðu standi.
Uppl. í sima 23486.
Til sölu Kawasaki Z-750 árg. ’82.
Ekin 13 þúsund. Uppl. í vinnusíma
23003 og heimasími 21689.
Til sölu er Kvernelands hey-
blásari ásamt tveimur rörum,
beygju og dreifistýri. Uppl. í síma
43615.
Til sölu Toyota prjónavél. Verð
15 þúsund. Uppl. í síma 24596.
Til sölu Candy M 133 þvottavél.
Uppl. í síma 25362 milli kl. 5-8 á
kvöldin.
Til sölu vegna flutnings tvö gull-
falleg ullargólfteppi með pers-
nesku munstri 2.5x3.5. m verð
15.000 og 12.000 kr. Ljós svefn-
bekkur með skúffu.
Fiskabúr með öllu kr. 1000 10 kg
af blönduðu LEGO og ýmislegt
smádót úr búslóð. Vínpressa og
kútar með fleiru. Selst á mjög góðu
verði. Uppl. í síma 25104.
Til sölu varahlutir I Saab árg.
'74 t.d. 2 lítra vél. Uppl. í síma
24964 eftir kl. 20.
Tek hesta í tamningu og þjálfun
í sumar á Hofi á Höfðaströnd frá
og með 15. júní.
Anton Nielsson,
Uppl. í síma 96-61135 fram til 15.
júní en eftir það í sima 95-6444.
Hestamenn ■ Hestamenn.
2 básar til sölu í hesthúsi á albesta
stað í Breiðholti. Hringið í síma
23862.
Garðeigendur ■ Bændur
Lóðavinna
Tek að mér alla venjulega lóða-
vinnu svo sem hellulagnir, þöku-
lagningu og fleira. Hef einnig allt
fyllingarefni í lóðir svo sem mold,
sand, möl og hellur.
Get tekið að mér að grafa fyrir
vatnslögnum og fleiru með full-
komnum tækjum.
Friðrik Bjarnason sími 96-26380
eftir kl. 18.
Sýni nýja tjaldvagna öll kvöld
frá kl. 20-22 við Þverholt 10. Góðir
greiðsluskilmálar.
Teppahreinsun-Teppahreinsun.
Hreinsið teppin sjálf. Leigjum úl
nýjar hreinsivélar til hreinsunar á
teppum, stigagöngum, bílaáklæð-
um og húsgögnum.
Teppaland Tryggvabraut 22,
sími 25055.
íbúð til leigu.
3ja herb. rúmgóð íbúð á 2. hæð
við Smárahlíð til leigu. íbúðin er í
mjög góðu standi og er laus strax.
Tilboð leggist inn á afgreiðslu
Dags merkt: „Smárahlíð“.
2ja-3ja herb. íbúð óskast á leigu
fyrir skólastráka frá og með 1.
september. Helst sem næst
Menntaskólanum. Uppl. í síma
21891 í hádeginu.
Vantar herbergi.
Ungan og reglusaman pilt vantar
herbergi upp úr mánaðamótum.
Helst nálægt Menntaskólanum.
Uppl. veitir Bernharð í síma 23336
á kvöldin.
Herbergi óskast til leigu næsta
vetur. Helst með aðgangi að eld-
húsi. Uppl. í síma 25937.
4ra herb. íbúð í Kjalarsíðu,
Glerárhverfi til leigu til eins árs.
Tilboð ásamt upplýsingum um fjöl-
skyldustærð o.þ.h. leggist inn á
afgreiðslu Dags merkt: Stór íbúð.
Hjón með eitt barn óska eftir
íbúð 3ja-4ra herb. Öruggum
greiðslum heitið. Uppl. í síma
23376.
Stúlka óskast til að hugsa um 6
ára stelpu ásamt smáverkum á
heimilinu. Uppl. í Tungusíðu 27.
Við erum tvö lítil systkini. Vill
einhver passa okkur á meðan
mamma vinnur á kvöldin (óreglu-
legur vinnutími). Uppl. í síma
25507 frá kl. 13-17.
Jörð til sölu. Rauðaskriða 1 í S.-
Þing. er til sölu. Uppl. gefa Ríkarð-
ur í síma 96-43504 og Sigurður í
sím 96-41690.
Tún til leigu.
Uppl. í síma 21960 á kvöldin.
3ja ára gömul læða (Skuggi) leit-
ar sér að góðu heimili vegna
brottflutnings fjölskyldu. Skuggi er
ofsa músaveiðari. Uppl. í síma
25104.
Ökukennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Lærið á hagkvæman og öruggan
hátt á nýja GM Opel Ascona 1600.
Útvega öll prófgögn og vottorð.
Egill H. Bragason, ökukennari,
simar 23347 * 22813.
Ungur maður óskar eftir vinnu.
Uppl. í síma 21779.
Til sölu 2ja tonna trilla í góðu
ástandi. Vél: Hydro Marine 17
hestöfl, dýptarmælir og talstöð.
Uppl. í síma 81177.
Óska eftir að kaupa 2-3ja tonna
trillu. Uppl. í síma 23456 í hádeg-
inú.
Tilboð óskast í Ford LTD
Brougham. Ljósbrúnn. Nýupptek-
in vél. Uppl. í síma 26956.
Ford Cortina árg. '77 til sölu og
niðurrifs. Einnig til sölu barnabíl-
stóll. Uppl. (síma 61227 í hádeg-
inu og á kvöldin.
Tilboð óskast í Volvo 144 árg.
’71 með bilaða sjálfskiptingu.
Uppl. eftir kl. 5 ( sima 24398.
Til sölu vegna flutnings Fiat 128
árgangur 1977. Vetrardekk og
verkfæri fylgja með. Staðgreiðslu-
verð 10.000. Uppl. í síma25104.
Bílar til söiu.
Dodge Dart Swinger árg. ’72.
Peugeot 504 árg. 72.
Uppl. í síma 21960 á kvöldin.
Til sölu Fiat 131 árg. 77.
Malibu árg. 71.
Mjög góðir bílar. Ýmisleg skipti
koma til greina, sími 43560.
Veiði hefst í Litluá í Kelduhverfi
1. júní. Veiðileyfi fást hjá Margréti
Þórarinsdóttur, Laufási, frá og
með 20. maí. Sími: 96-41111.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir. Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott. Ný
og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, sími
26261. _________________________
Hreingerningar, teppahreinsun,
gluggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Aron í síma
25650 og Tómas í síma 21012.
Hreingerningar-Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagna-
hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Akureyrarprestakall. Minningarkort Krabbameinsfélags
Messað verður í Akureyrarkirkju Akureyrar fást í Bókabúð Jónas-
næstkomandi sunnudag 1. júní kl. ar-
11 f.h. Sálmar: 447, 428, 179, 345,
531. B.S.
Laufáskirkja.
Fermingarguðsþjónusta nk.
sunnudag á þrenningarhátíð kl. 11
árdegis.
Fermingarbörn:
Anna Bára Bergvinsdóttir,
Áshóii.
Bolli Pétur Bollason, Laufási.
Guðrún Elfa Skírnisdóttir, Skarði.
Valdimar Gunnar Kristjánsson,
Grýtubakka II. Sóknarprestur
Minningarkort Hjarta- og
æðaverndarfélags Akureyrar fást í
Bókabúð Jónasar og Bókvali.
Minningarkort
Möðruvallaklausturskirkju í Hörg-
árdal fást í Bókaverslun Jónasar,
Blómabúðinni Akri, hjá Jónínu
Árnadóttur Birkimel 10 b Reykja-
vík og hjá sóknarprestinum
Möðruvöllum.
Til sölu
varphænuungar
2ja—3ja mánaða gamlir.
Uppl. í síma 31280.
Um skoðanakannanir
- að gefnu tilefni - eftir Sigríði Stefánsdóttur
Dagur - málgagn Framsóknar-
flokksins - er talsvert hreykinn af
skoðanakönnun sinni sem gerð
var fyrir síðustu helgi. Ég hef
tvisvar sinnum verið beðin að segja
álit mitt á skoðanakönnunum
blaðsins. Þar sem svör mín hafa
síðan verið bútuð niður og orðið
tilefni athugasemda ritstjórnar í
þeim virðulega dálki „smáu og
stóru“, vil ég gjarnan koma eftir-
farandi ábendingum á framfæri:
Til þess að skoðanakannanir
geti talist marktækar þurfa þær
að uppfylla viss vísindaleg skil-
yrði, t.d. um úrtak, réttan prós-
entureikning o.s.frv.
Pessi skilyrði uppfyllir skoð-
anakönnun Dags, enda er það
ekki ákaflega vandasamt. Aftur á
móti er hlutfall þeirra, sem ekki
svara eða gefa ekki upp hug sinn,
svo hátt að það setur mjög mikla
óvissu í niðurstöðuna. Dagur sér
hins vegar ekki ástæðu til að
halda því mjög á lofti.
Eitt atriði verður ekki mælt
með prósentureikningi, en allir
sem kunna til verka vita af því.
Ef það er ekki hlutlaus aðili, sem
spyr, þá fæst ekki marktæk niður-
staða. Ef þeir sem svara tengja
spyrjandann t.d. beint við einn af
þeim stjórnmálaflokkum, sem
valið stendur um, verður niður-
staðan því alls ekki marktæk.
Það er mögulegt að ritstjórn
Dags reyni að halda því fram að
blaðið sé ekki í beinum tengslum
við Framsóknarflokkinn. Flestir
Akureyringar vita þó betur enda
hefur blaðið verið leiðandi í
kosningabaráttu Framsóknar-
flokksins, svo sem eðlilegt er, sé
litið til aðstandenda þess.
Túlkun ritstjórnar blaðsins á
skoðanakönnuninni nú er einn
liður í þeirri baráttu. Útkoma
Alþýðubandalagsins í henni er
þessu áliti óviðkomandi. En það
er áberandi að flokkurinn kemur
því verr út úr skoðanakönnunum
því tengdari sem þær eru Fram-
sóknarflokknum. Um útkomu
Framsóknarflokksins gegnir svo
þveröfugu máli. Hvernig skyldi
standa á því?
Úrslit kosninganna ráðast á
kjördag. Ég tel að þá komi í ljós
að Framsókn og Dagur hafi haft
ærna ástæðu til að óttast sókn
Alþýðubandalagsins.
Mínar innilegustu kveðjur sendi ég öllum
þeim sem glöddu mig með gjöfum og skeyt-
um á 70 ára afmæli mínu þann 16. maí sl.
Lifið heil.
JÓN STEFÁNSSON
Brekkugötu 5b.
Innilegt þakklæti til allra
sem glöddu mig á níræðisafmælinu
með heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Óska ykkur allra heilla.
GUÐMUNDUR JÓNATANSSON
Byggðavegi 101 e.
xR Húsavík xR
Stefán Haraldsson
4. sæti B-listans.
Við segjum:
„Kosningarnar á laugardaginn snúast fyrst og
fremst um það hvort Framsóknarflokkurinn verði
áfram stærsta og sterkasta aflið, eins og verið
hefur um langt skeið. “
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222