Dagur - 15.08.1986, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 15. ágúst 1986
„Islenskir steinar
óvenju magnaðir“
- segir Harry Oldfield, sem þróað hefur aðferð til lækninga
sem byggist á útgeislun steina og krystalla
„Læknar hafa sýnt þessari
aðferð töluverðan og vaxandi
áhuga sem einstaklingar, en
læknastéttin sem heild er frem-
ur íhaldssöm, eins og vera ber
þegar um er að ræða nýjungar
hvað varðar lækningaaðferðir,
lyf og fleira. Eg hef kynnt
þessa aðferð á sjúkrahúsum
víða erlendis og við læknahá-
skóla og ég held að þeir sem
stunda hefðbundnar lækningar
séu sífellt að verða opnari fyrir
nýjum aðferðum til lækninga.
Mér þótti sérstaklega vænt um
það að fá að kynna þessi mál á
Landspítalanum í Reykjavík
og þar sem annars staðar virtist
þessi aðferð sem ég hef þróað
vekja mikla athygli,“ sagði
Harry Oldfield, breskur lífeðl-
isfræðingur, sem nú er staddur
á Akureyri í viðtali við Dag.
Aðferð sú sem Harry Oldfield
nefnir er nýjung í greiningu og
lækningu sjúkdóma, þar sem
byggt er á mælingu á líforkusviði
kringum Iifandi líkama og lækn-
ingu með krystal-geislunartæki,
en tækjabúnaðinn hefur hann
hannað og þróað frá upphafi.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að efnið er orka og með
svokallaðri kirlian-ljósmyndun
hefur tekist að sýna geislun frá
lifandi vefum. Sé um sýkta vefi
að ræða kemur það glöggt fram í
því að geislunin verður frábrugð-
in því sem er við eðlilegar kring-
umstæður. Með greiningar- eða
leitartæki sínu hefur Oldfield
tekist að mæla þær bylgjur sem
líkaminn gefur frá sér. Þegar
hann ber mælitækið að líkama
manns sýnir vísir á tækinu hvort
bylgjur þessar eru eðlilegar eða
„heiibrigðar". Sjúkdómar lýsa
sér sem frávik frá eðlilegri mæl-
ingu.
Til þess að leitartækið virki
þarf viðkomandi „sjúklingur" að
halda um staut sem í eru stein-
krystallar í vökva. Rafstraumur
er sendur i gegnum krystallana
og svo virðist sem rafpúlsarnir
örvi krystallana á einhvern hátt
til að senda frá sér orkugeislun
sem berst um líkamann. Sama
tæki er síðan notað til að senda
orku frá krystöllum með því að
leggja það við sýkta líkamshluta.
Tilgátur eru uppi um það að þessi
aðferð verki á svipaðan hátt og
nálarstungulækningar, sem ýmist
eru gerðar með nálum eða raf-
straumi, en það er þó engan veg-
inn sannað. Ekki verður reynt að
fara frekar út í tæknilega hlið
þessa máls, en fjölmargir telja sig
hafa fengið bata eftir meðferð af
þessu tagi. Pað er þekkt fyrirbæri
í læknisfræðinni að fólk fái
ímyndaðan bata eða bata af
ímynduðum sjúkdómi með að-
ferðum sem engan lækningamátt
hafa. Aðferð Oldfields hefur ver-
ið notuð á dýr og sýnt árangur,
en erfitt er að halda því fram að
hægt sé að sefja t.d. hund þannig
að honum batni slæmska í fæti.
Frá Kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
Verslið ífallegrí búð
Harry Oldfíeld mælir útgeislun með greiningartæki sínu. Mynd: HS
Pá má geta þess að ýmsar rann-
sóknir hafa verið gerðar á þess-
ari aðferð Oldfields, t.d. hvað
varðar greiningarhæfni hennar.
Hafa niðurstöður slíkra rann-
sókna sýnt svo ekki verður um
villst að með þessum tækjabún-
aði er hægt að greina sjúkdórna
og einnig hvaða sjúkdómar það
eru í vissum tilvikum. í breska
læknatímaritinu „British Medical
Journal" birtist fyrir nokkru
grein um rannsóknir Harry Old-
fields þar sem sagði, að líkja
mætti þessari aðferð við bernsku-
daga röntgentækninnar, áður en
ýmsir þeir möguleikar sem nú eru
þekktir í röntgengreiningu og
lækningum voru kunnir. Eitt af
því sem þessar rannsóknir hafa
leitt í ljós er að sjúkdómar virð-
ast koma fram sem breyting á
gervöllu orkusviði líkamans, en
ekki aðeins þar sem sjúkdóms-
einkennin birtast.
Þó að margt sé óljóst í þessum
efnum er í öllu falli öruggt, að
leitartæki Oldfields sýnir ef
eitthvað er ekki eins og það á að
vera í líkamsstarfseminni og tæk-
ið er sjálfu sér samkvæmt, þannig
að hver sem á því heldur fær
sömu niðurstöðu. Eftir meðferð
telja menn sig svo hafa séð óyggj-
andi breytingar, sem koma fram
á mælingum. Frávik frá eðlilegri
mælingu hefur þá minnkað eða
horfið. Svo virðist þó að í alvar-
legum sjúkdómum sæki fljótlega
í sama farið aftur og þá þurfi
endurtekna meðferð áður en
lækning fæst, fáist hún þá á ann-
að borð, sem enn er ekki full-
komlega ljóst.
Harry Oldfield er staddur á
Akureyri að tilhlutan Nuddstofu
Brynjólfs og er þetta ekki í fyrsta
sinn sem hann kemur hingað.
Raunar hefur hann komið árlega
til íslands frá því 1981 og skýring-
in:
„Ég kynntist fyrst íslenskri
fjölskyldu í London sem leitaði
aðstoðar hjá mér vegna sjúk-
dóms sem ég tók til meðferðar. í
framhaldi af því var ég fenginn til
að koma hingað til lands og úr
varð eins konar ástarsaga. Ég
varð einfaldlega heillaður af
landinu og fólkinu. Landið er
ægifagurt og í náttúru þess er svo
mikil orka að mér finnst ég geta
endurhlaðið sjálfan mig. Þegar
ég er hér á ferðum hef ég einnig
safnað steinum og krystöllum
sem ég nota við „krystal-lækn-
ingarnar", en mér virðist sem
íslenskir steinar séu óvenju kraft-
miklir og magnaðir. Enda eru
íslendingar fullir af lífsorku,
vinnuglaðir með afbrigðum,
skýrir í hugsun og eiga snjalla
vísindamenn og listamenn,“
sagði Harry Oldfield.
Hann tekur á móti fólki til
meðferðar hjá Nuddstofu Brynj-
ólfs eins og áður sagði og verður
hér að þessu sinni til 26. ágúst.
Fjölmargir Akureyringar hafa
þegar leitað til hans, bæði þeir
sem kynntust þessari meðferð í
fyrri heimsóknum hans og hinir
sem ekki hafa reynt þetta áður.
Þetta er í fjórða skiptið sem
Harry Oldfield er á Akureyri á
vegum Nuddstofu Brynjólfs, en
Brynjólfur Snorrason hefur lært
þessa meðhöndlun og öðlast rétt-
indi til að beita meðferðinni og
tækjunum. Tækjabúnaður af
þessu tagi er til staðar á nuddstof-
unni og hefur verið notaður þar í
rúm tvö ár. Harry Oldfield held-
ur námskeið á Akureyri um helg-
ina fyrir nuddara og sjúkraþjálf-
ara og sækir það fólk víðs vegar
af landinu, HS