Dagur - 30.09.1986, Blaðsíða 2

Dagur - 30.09.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 30. september 1986 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT P. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiðari.__________________________________ Heldur bókin velli? Á Bókaþingi 1986 sem nú er nýlokið varð mönn- um tíðrætt um stöðu bókarinnar í því fjölmiðlafári sem nú er allsráðandi. Á þinginu komu saman fulltrúar frá öllum þeim aðilum sem nálægt bóka- útgáfu koma og því eðlilegt að þetta atriði yrði miðpunktur umræðunnar. Öllum ætti að vera ljóst að bókin skipar nokkra sérstöðu í heimi fjölmiðla. Málið þarfnast ræktun- ar, umhyggju og verndunar og enginn miðill gegnir eins veigamiklu hlutverki varðandi við- gang og viðhald tungumálsins og bókin. Þar get- ur ekkert komið í staðinn. Um stöðu bókarinnar á þeim tímamótum sem óneitanlega eru í íslensku samfélagi eru menn ekki á eitt sáttir. Heldur bók- in velli ellegar lýtur hún í lægra haldi fyrir þeim fjölmiðlum sem senda út á öldum ljósvakans? í erindi sínu á Bókaþingi fjallaði Pétur Gunn- arsson rithöfundur um þetta mál og sagði m.a.: „Sem stendur erum við stödd á tímabili sem er heldur óhallkvæmt lestri. Yfirburðir sjónmiðla eru ærnir sem stendur. Sjónvarp spyr ekki hvort við- komandi ætli að horfa — það kippir mönnum til sín, leggur undir sig híbýlin, breytir lýsingu og varpar út hljóðum. Flaumurinn hrifsar viðstadda með sér, þá sem ekki tekst að bjarga sér inn í önnur herbergi. Bókin aftur á móti er hógvær og hljóðlátur mið- ill þar sem lesandinn verður jafnan að eiga frum- kvæðið. Bókin nær ekki í neinn, hún er sótt. Og mestur vandinn hefst kannski einmitt þá: Inni- hald bókar hellist ekki fyrirhafnarlaust yfir les- andann í einni heildarskynjun, heldur verður hann að sækja það sjálfur, þýða orðin yfir í merk- ingu og hrif." Síðar í erindi sínu segir Pétur: „Að horfa á mynd er sambærilegt við að ferð- ast í bíl eða flugvél, farartækið getur flutt mann ólíkt lengra en fæturnir en líkamanum hættir til að koðna niður. Sambandið við umhverfið er allt annars eðlis en á göngu. Gönguferðin er full við- burða sem við leggjum til sjálf úr okkar eigin hugskoti og eflumst þar með andlega og endur- nærumst." Með öðrum orðum má segja að meginmunur á bókalestri og sjónvarpsglápi felist í mismunandi mikilli tilreiðslu. Lesandinn er ólíkt virkari þátt- takandi en áhorfandinn. Vonandi uppgötva sem flestir þessa sérstöðu bókarinnar og gera sér ljóst að útvarp, sjónvarp og myndbönd geta aldrei komið í hennar stað. Framtíð bókarinnar er að verulegu leyti háð því hvaða áhrif það hefur til lengdar á þá kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi, svo og komandi kynslóðir, að alast upp við 3-7 stunda sjónvarps- og myndbandanotkun á dag. í þeim efnum skipta gæði myndefnisins ekki höfuðmáli. Slík ofnotkun þessara miðla rænir flestum frístundunum notendanna og nær ef til vill með tíð og tíma að eyðileggja þau móttöku- skilyrði bókarinnar sem fyrir hendi eru í persónu- leika hvers og eins. BB. j/iðtal dagsins. Mynd: HJS „Erfitt í byrjun“ segir Inga Huld Pálsdóttir, sem dvaldi síðastliðið ár í Houston, Texas á vegum AFS „Mig hafði lengi langað til að fara eitthvað út og frétti af AFS í gegnum frænku mína sem dvaldi í Bandaríkjunum á þeirra vegum árið áður en ég fór. Nú, ég sótti um og komst að,“ sagði Inga Huld Pálsdótt- ir, 18 ára Akureyrarmær sem gerðist skiptinemi síðastliðið ár og dvaldi í Houston í Texas. Þar sem allt er svo stórt. Það er einhver ævintýraþrá eða löngun til að kynnast einhverju nýju sem fær ungmenni til að setjast að í öðru landi í 1 ár eða sumarlangt, eignast nýja fjöl- skyldu og fullt af nýjum vinum og kunningjum. Inga var spurð hvers vegna hún hefði sótt um Bandaríkin, hvort ekki væri meira spennandi að kynnast t.d. Kína eða Suður-Ameríku? „Ég sótti um Bandaríkin, Ástralíu eða eitthvert land í Evrópu. Ég var mjög ánægð með að fá Bandaríkin því mig langaði til að læra ensku. Þó var ég mikið að hugsa um að sækja um lönd sem eru ólíkari íslandi, en ég býst ekki við að ég gæti mikið notað kínversku ef ég hefði farið til Kína. Það er hins vegar ákaf- lega gott að kunna ensku." - Hvernig borg er Houston, mikið af kúrekum? „Það eru ekki margir kúrekar í sjálfri borginni, en ef maður fór eitthvað út í sveitina var fullt af kúrekum með ekta Texashreim. Það búa 2 milljónir manna í Houston og ég kunni ágætlega við mig þar. Borgin er það sunn- arlega að þar er enginn vetur, en mér skilst að þetta ár sem ég var þarna hafi verið óvenju gott. Það var yfir 30 stiga hiti í janúar og febrúar." - Hvernig líkaði þér dvölin? „í heildina var þetta mjög skemmtilegt, en ákaflega erfitt í byrjun. Ég var um 3 mánuði að komast almennilega inn í málið, þótt ég hafi auðvitað getað bjarg- að mér fyrr. Þetta var alveg ömurlegt fyrst, ég var alveg mál- laus. Skólinn byrjaði þremur vik- um eftir að ég kom út og ég skildi ekki orð af því sem kenn- ararnir sögðu. Ég glápti bara á þá. Svo var fólk að tala við mig, ég bara brosti og kinkaði kolli. Skildi eitthvað takmarkað. En þegar ég var komin inn í málið varð tilveran allt önnur og ég fór að kunna vel við mig.“ - Hvernig var fjölskyldan þín? „Hún var ágæt, en mjög ólík minni eigin. Konan er alveg frá- bær og talaði mikið við mig. Maðurinn er hins vegar frekar skrýtinn. Hann er prófessor, tal- aði mikið og hátt en var ekkert að eyða of mörgum orðum á mig. Það hefur kannski verið mér að kenna líka, ég sóttist ekki bein- línis eftir samræðum við hann. Auk þeirra var strákur jafngam- all mér. Hann var svo sem ágæt- ur, en dálítið villtur fyrir minn smekk. Hann var í eiturlyfjum eins og flestallir unglingar þarna. Það er ótrúlega mikið um alls kyns eiturlyf þarna, mun meira en ég bjóst við. Margir reykja marijúana daglega og flestir a.m.k. einu sinni í viku. Það virð- ist ekki vera nokkur vandi fyrir unglingana að útvega þessi efni.“ - Bandarískir unglingar? „Mér fannst þeir krakkar sem ég kynntistferlega bamalegir. Þeir líta út fyrir að vera á svipuðum aldri og íslenskir unglingar, en eru miklu barnalegri í sér. Ég held að það sé vegna þess að for- eldrarnir treysta þeim ekki. Þau fá allt upp í hendurnar og verða þess vegna ferlega ósjálfstæð. Stelpurnar mála sig á hverjum degi og það ekkert lítið. Þær hljóta að vakna kl. 5 á morgnana til að taka sig til. Hárið er krullað eða blásið og andlitið stífmálað. Síðan eru þær alltaf að bæta á sig málningu í skólanum, hlaupa inn á klósett í frímínútunum og hanga þar fyrir framan speglana. Mér fannst þetta alveg ótrúlegt." - Hallærislegt? „Mér fannst það, já. Stelpurn- ar gátu ekki komið í sömu fötun- um 2 daga í röð. Þær voru oft í stuttum pilsum og stutterma bómullarbolum með myndum. Ég vakti athygli vegna þess að ég var allt öðruvísi, ég málaði mig aldrei og þótti skrýtin af þeim sökum." - Hvernig var skólinn? „Mér fannst hann lélegur, mun lélegri en íslenskir skólar. Þetta var almenningsskóli, „public", síðan eru einkaskólar sem eru mun betri. Það voru rúmlega 2000 nemendur í skólanum og helmingurinn var svertingjar." - Hvað finnst þér þú hafa lært af þessari dvöl? „Ég lærði fyrst og fremst að standa á eigin fótum. Það er ákaflega þroskandi að fara svona. Mér finnst ég skilja fólk betur. Þarna kynntist ég fullt af fólki frá ólíkum löndum. í Bandaríkjunum er fólk frá öllum heimshornum, í Houston er mjög mikið af ólöglegum innflytjend- um frá Mexíkó og einnig mikið af svertingjum. Ég mæli svo sannar- lega með því að fara sem skipti- nemi. Þetta er alveg rosaleg lífs- reynsla." - Ekkert sem þú saknar frá Houston? „Jú, auðvitað sakna ég krakk- anna sem ég umgekkst mest og líka sólarinnar og góða veðurs- ins. Mig langar bara svona í lokin að hvetja fjölskyldur á Akureyri til að taka skiptinema, það er ekki eins mikið mál og fólk heldur. Það er bara gaman." -HJS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.