Dagur - 10.10.1986, Blaðsíða 3
Fræðimannsíbúð
í Davíðshúsi
Kirkjan á Hólum.
Fyrsta prests-
vígsla séra
Sigurðar
Á sunnudaginn fór fram á Hól-
um í Hjaltadal prestsvígsla er
séra Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup á Hólum vígði
Svavar Alfreð Jónsson til
prests, en Svavar Alfreð hefur
verið skipaður prestur í Olafs-
fjarðarprestakalli þar sem
hann hlaut lögmæta kosningu.
Var þessi vígsla fyrsta emb-
ættisverk Sigurðar Guðmunds-
sonar sem vígslubiskups, en
hann var vígður til þess emb-
ættis árið 1982.
Auk séra Sigurðar þjónaði séra
Vigfús Þór Árnason á Siglufirði
fyrir altari. Vígsluvottar voru
prófastarnir Birgir Snæbjörnsson
á Akureyri og Hjálmar Jónsson á
Sauðárkróki og prestarnir Þór-
hallur Höskuldsson á Akureyri
og Hannes Örn Blandon á
Laugalandi í Eyjafirði, sem áður
var prestur í Olafsfirði. Kirkju-
kór Hóla- og Viðvíkursóknar og
Kirkjukór Ólafsfjarðar sungu við
athöfnina sem var hin hátíðleg-
asta og fjölsótt, m.a. af væntan-
legum sóknarbörnum séra
Svavars, Ólafsfirðingum.
Eins og sagt hefur verið frá í
blaðinu hefur Bílaleiga Akur-
eyrar og lögreglan nokkurn
viðbúnað vegna leiðtogafund-
arins í Reykjavík um helgina.
Sagt var frá því að Bílaleiga
Leiðrétting
í blaðinu í gær birtist frétt þess
efnis að ófaglært starfsfólk fari
fram á 30% launahækkun. í frétt-
inni er talað við Sævar Frímanns-
son, formann verkalýðsfélagsins
Einingar, en vegna mistaka er
þess hvergi getið. „Við fréttum
að þetta bréf hefði verið
sent. . og afgangurinn af
fréttinni eru orð Sævars. Er beð-
ist velvirðingar á þessum mistök-
um. -HJS
„Það er geysilegur áhugi hjá
nefndarmönnum að geta boðið
fræðimönnum til Akureyrar til
lengri eða skemmri dvalar og
hafa þá aðsetur í kjallaranum á
Davíðshúsi,“ sagði Þórey
Eyþórsdóttir, varaformaður
Menningarmálanefndar Akur-
eyrar í samtali við Dag. Nefnd-
in hefur skoðað Davíðshús og
rætt um viðhald hússins og
fræðimannsíbúð í kjallara.
Segir í bókun nefndarinnar að
ljóst sé að viðgerð á kjallara-
íbúð sé kostnaðarsöm og eðlilegt
að skoða þetta mál í samhengi
við aðra útgjaldaliði á næstu
vikum. „Þetta er allt á umræðu-
stigi en það er a.m.k. mikill áhugi
fyrir þessu. Mér finnst þetta
geysilega spennandi viðfangsefni
og ég tel að dvöl fræðimanna hér
gæti verið lyftistöng fyrir menn-
ingarlíf bæjarins. í tengslum við
þetta mætti halda fyrirlestra sem
gætu orðið hvati að umræðum
sem myndu víkka sjóndeildar-
hringinn og gert okkur að betra
fólki,“ sagði Þórey.
Blaðið bar þetta mál upp við
Stefán Stefánsson, bæjarverk-
fræðing og sagði hann að málið
væri í höndum menningarmála-
nefndar og alfarið hennar að
ákveða um framhaldið. „Á sín-
um tíma var kosin nefnd sem átti
að fylgjast með rekstri hússins og
hún hefur skilað af sér. Lagði
hún tillögu fyrir síðustu bæjar-
stjórn og var sú tillaga samþykkt.
í dag er verið að vitna í þessa til-
Staða bæjarsjóðs Sauðárkróks
er nijög slæm um þessar mund-
ir og að sögn Þorbjörns Árna-
sonar forseta bæjarstjórnar
Sauðárkróks hefur hún sjálf-
sagt aldrei verið jafn slæm.
Fyrir utan þessa slæmu stöðu
sjóðsins bætist svo við hluta-
Akureyrar sendi tugi bíla suð-
ur en nú hefur frést að Bíla-
leigan Örninn mun einnig
senda aila tiltæka bfla frá sér.
„Jú það er rétt. Við sendum
alla bíla sem við mögulega getum
og erum búnir að senda tólf
bíla,“ sagði Páll Valdimarsson
hjá Erninum. Örninn er með 25
bíla og sagði Páll að ekki væri
ólíklegt að óskað yrði eftir fleiri
bílum. Páll sagði að það væru
aðallega aðilar sem hefðu aðsetur
á Selfossi sem hefðu leigt af þeim
og hefðu þeir leigt bílana allan
tímann sem fundurinn og undir-
búningur hans stendur. Bílarnir
eru leigðir út á taxta frá því í
sumar en hann er hærri en taxt-
inn sem nú gildir. Páll sagðist
telja að allar bílaleigur leigðu
bíla til þessa verkefnis á þessum
kjörum. ET
lögu og þ.á m. ^ar lagt til að
endurnýja íbúðina í kjallaranum
sem nota mætti sem aðsetur fyrir
gest bæjarins eða fræðimann.
Það var gert ráð fyrir því að það
yrði byrjað á þessu ári og lagt fé í
það. Á fjárhagsáætlun núna er
veitt fé í viðhald og fræði-
mannsíbúð í húsinu en það er
aðeins til byrjunarframkvæmda
og þetta mál er nú algjörlega í
höndum menningarmálanefnd-
ar,“ sagði Stefán. -HJS
Prestslaust á
Skagaströnd
- Eini umsækjandinn
hætti við
Aðeins einn umsækjandi var
um Höfðaprestakall þegar það
var auglýst fyrir nokkru, en sá
hefur nú dregið umsókn sína til
baka.
Það er því allt útlit fyrir að
prestslaust verði á Skagaströnd
enn um sinn, en séra Oddur Ein-
arsson sem þar gegndi er fluttur
til Njarðvíkur þar sem hann tók
við embætti bæjarstjóra. Að sögn
sóknarnefndarmanns á Skaga-
strönd er búist við að séra Árni
Sigurðsson sóknarprestur á
Blönduósi gegni í Höfðapresta-
kalli til vors, en þá verði auglýst
aftur. G.Kr.
fjáraukning bæði t útgerðarfé-
laginu og í SteinuIIarverk-
smiðjunni sem hann kemur til
með að þurfa að útvega að
miklu leyti. Segir Þorbjörn
þetta dæmi sem á undan er lýst
líta þannig út að bæjarsjóð
muni vanta um 60 milljónir um
næstu áramót.
Ástæðuna fyrir þessari slæmu
stöðu bæjarsjóðs nú telur Þor-
björn kannski fyrst og fremst
vera hvernig peningamál hafi
almennt þróast í landinu á síðari
árum og ekki hafi verið völ á
neinu lánsfé fyrir sveitarfélögin.
Miklar framkvæmdir hafi átt sér
stað á Sauðárkróki undanfarin ár
og bæjarsjóður lagt í þær mun
meira fjármagn en framlög ríkis-
ins á móti geri ráð fyrir. Fram-
kvæmdir sem allir eru sammála
um að hafi verið þarfar eins og
t.d. bygging íþróttahúss og skóla-
mannvirkja. Samt sem áður sé
staðreyndin sú að framkvæmt
hafi verið um efni fram. Skuldir
bæjarsjóðs um síðustu áramót
kvað Þorbjörn hafa numið ríflega
150 milljónum sem í sjálfu sér sé
ekkert rosalegt, en af þeim séu
skammtímalán 90 milljónir og
þar af 30-40 milljónir í vanskil-
um. Bæjarsjóður Sauðárkróks
hafi á dögunum lagt inn beiðni
um erlenda lántöku að upphæð
40 milljónir króna sem enn hefði
ekki fengist leyfi fyrir og í dag sé
engan pening að fá. „En menn
eru sammála um að vinna sig út
úr þessum vanda og við höfum
séð það svart áður, en það er
alveg ljóst að framkvæmdageta
bæjarsjóðs á næstu árum verður
ekki mikil,“ sagði Þorbjörn að
lokum. -þá
Leiðtogafundurinn í Reykjavík:
Örninn sendir
12 bíla
- ieigðir út á sumartaxta
Sauðárkrókur:
Gífurlegir erfið-
leikar bæiarsjóðs
10. október 1986' - DAGUR - 3
★ Norsk blöð.
★ Sænsk blöð.
★ Dönsk blöð.
★ Ensk blöð.
★ Amerísk blöð.
★ Tölvublöð.
★ Frönsk blöð.
★ ítölsk blöð.
★ Þýsk blöð.
★ Askriftarþjónusta
Bókabúðin
Hafnarstræti 100 - Pósthólf 633 - Akureyri - Sími 24334.
Þróunarfélag
íslands hf.
auglýsir viðfalstíma á Húsavík 13. október
og Akureyri 14. október nk.
Nánari upplýsingar og móttaka viðtalsbeiðna eru á
bæjarskrifstofunum sími 21000 og hjá Tækniþjón-
ustunni Húsavík, sími 41877.
Styrktarfélag vangefinna Norðurlandi
heldur almennan
félagsfund
í iðjulundi, mánudaginn 13. október kl. 20.30.
Stjórnin.
Dansleikur
Gömlu dansarnir verða dansaðir á Þinghús-
inu Grund laugardaginn 11. október frá kl.
22-02.
Alli ísfjörð og félagi leika fyrir dansi.
Nýir félagar velkomnir.
EÍdridansaklúbbur Dalvíkinga og Svarfdælinga.
^orni
iStoraBenciingUifra
iflanelsKnxÍMMSv. 1
blussuSiitMouxur ogj
voru m . OlllD 'V ■; /
vuRunui > s ■/
■7 ÖLl f (GlJÉiCOt