Dagur - 10.10.1986, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 10. október 1986
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Tap á rekstri
- í fyrsta sinn í mörg ár
Töluvert tap varð á rekstri
Fiskiðjusamlags Húsavíkur í
fyrra en mun betur lítur út með
reksturinn á þessu ári.
Aðalfundur Fiskiðjusamlags
Húsavíkur var haldinn nýlega.
Að sögn Tryggva Finnssonar
framkvæmdastjóra gekk rekstur-
inn erfiðlega í fyrra og töluvert
tap varð á rekstrinum en slíkt
hefur ekki gerst hjá fyrirtækinu í
mörg ár. Margar orsakir eru fyrir
þessu m.a. gengisþróunin og
hráefnisskortur eftir uppboðið á
Kolbeinsey. Pað sem af er þessu
ári hefur rekstur fyrirtækisins
gengið mun betur en í fyrra. Þó
sagði Tryggvi að það þyrfti ekki
að þýða að rekstrarniðurstaða
yrði mjög góð því erfiðasti tím-
inn væri eftir. Kolbeinsey verður
í fullum rekstri út árið, hún er
langt komin með að veiða upp í
kvóta og spurning er hvernig
tekst að raða saman þeim teg-
undum sem eftir er að veiða af
kvótanum. Reynt verður að
tryggja samfelldan rekstur hjá
rækjuvinnslunni en þar eru nán-
ast engar birgðir til af frystri,
óunninni rækju. IM
Útvarpsréttarnefnd:
Málefni veitustofnana voru
mikið rædd á fundi bæjar-
stjórnar síðastliðinn þriðjudag.
Hækkun gjaldskráa bæði hita-
veitu og rafveitu var þar efst
á baugi en á fundi stjórnar
veitustofnana var samþykkt að
hækka gjaldskrá Rafveitu
Akureyrar tii jafns við
gjaldskrá HA.
Vegna fyrirhugaðrar hækkun-
ar á gjaldskrá Rafveitu Akureyr-
ar bar Sigurður Jóhannesson
fram tillögu um það að sá tekju-
auki sem þannig skapaðist yrði
nýttur til lækkunar á almennum
töxtum og afltöxtum veitunnar,
t.d. A2 og Bl. Tillagan var sam-
þykkt með níu samhljóða
atkvæðum en fulltrúar Alþýðu-
bandalags sátu hjá. Sigríður Stef-
ánsdóttir gerði grein fyrir þessari
afstöðu á þann veg að þar sem til-
lagan byggði á hækkun sem þau
Heimir væru á móti gætu þau
ekki samþykkt hana.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir bar
fram tillögu þess efnis að vegna
fyrirhugaðrar breytingar á
gjaldskrá veitustofnana verði
kannað með hvaða hætti hægt
væri að sameina innheimtustörf
veitustofnana bæjarins og rekstur
tæknideilda þeirra. Einnig kveð-
ur tillagan á um að rekstur bif-
reiða og tækja veitnanna svo og
húsnæðisaðstaða þeirra verði
tekin til endurskoðunar þannig
að gætt sé ýtrustu hagræðingar í
þeim efnum. Þessi tillaga var
samþykkt með níu samhljóða
atkvæðum en fulltrúar Alþýðu-
flokks sátu hjá. ET
Harður árekstur varð milli
tveggja bíla á Hvammstanga í
fyrradag. Ekki urðu nein slys
á fólki.
Óhapp þetta varð um hádegi
á miðvikudag. Land Rover
jeppi og Datsun fólksbíll lentu
saman. Skemmdist fólksbíllinn
mikið og er það mikið happ að
ekki skuli hafa orðið alvarlegt
slys. EHB
Veitti leyfi til sjón-
varps á Akureyri
Útvarpsréttarnefnd hefur nú I
afgreitt umsóknina frá |
Éimskip:
Vikuleg við-
koma á Dalvík
Eimskipafélagiö hefur nú
ákveðið að hafa vikulega við-
komu á Dalvík í tilrauna-
skyni, einkum til að taka þar
ferskan fisk í gámum og auð-
velda mönnum útflutning á
honuni. Skip félagsins munu
koma til Dalvíkur og lesta þar
seinni hluta sunnudags og
kemur fyrsta skipið, Espana,
þangað um helgina.
Að sögn Guðmundar Hall-
dórssonar hjá Eimskip, scnt
hefur m.a. umsjón mcð strand-
siglingum félagsins, hefur orðið
vart töluverðs áhuga meðal
aðila á Dalvík að selja ferskan
fisk á Englandsntarkaö. Frá
Dalvík munu skipin fara til
ísafjarðar og taka þar gámafisk,
sem verður síðan umskipað í
Reykjavík í skip sem fer til
Englands á miðvikudegi. Valdi-
mar Snorrason á Dalvík er full-
trúi Eimskips á staðnum vegna
þessara siglinga. HS
Eyfirska sjónvarpsfélaginu hf.
og hefur félaginu verið veitt
heimild til sjónvarpssendinga á
Akureyri og á Eyjafjarðar-
svæðinu.
Eins og áður hefur komið fram
er nú verið að smíða sendibúnað
fyrir félagið í Frakklandi og er
gert ráð fyrir að hann ætti að geta
verið kominn til Akureyrar um
mánaðamótin. Þá verður strax
hafist handa við uppsetningu, en
sendinum verður valinn staður í
Vaðlaheiðinni. Reiknað er með
að þessi aðalsendir nái út að
Hjalteyri og fram undir Grund,
en svæðið verði síðan útvíkkað
með litlum endurvarpssendum.
Þá verður hægt að ná sendingum
stöðvarinnar á Dálvík og ná-
grenni og einnig austan fjarðar-
ins.
Bjarni Hafþór Helgason hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Eyfirska sjónvarpsfélagsins og
starfar nú af fullum krafti við
undirbúning. Fyrst í stað verður
efni Sjónvarps Akureyrar, sem er
undirtitill stöðvarinnar, nær ein-
göngu frá íslenska sjónvarps-
félaginu, Stöð 2, sem hóf útsend-
ingar í gærkvöld. HS
Fyrirhuguð hækkun á húshitunartaxta Rafveitu Akureyrar:
Tekjuaukinn nýttur til lækkunar
á almennum töxtum og afltöxtum
- innheimtustörf veitustofnana bæjarins sameinuð
VMA
manna í fyrstu að við það hefði
skolplögn getað skaddast. Heil-
brigðisfulltrúi fór fram á að graf-
ið yrði niður að lögninni en hún
reyndist heil. Hins vegar kom í
ljós að drenlögnin var það neðar-
lega að þegar rann í brunninn var
hætta á að skólp færi inn í dren-
lögnina sem þá var í raun orðin
opin skólplögn.
Eftir að glugginn hafði verið
límdur aftur létu maurarnir ekki
sjá sig innan dyra en að sögn
Valdimars hefði þetta getað orð-
ið talsvert vandamál ef skólplögn
inni í húsinu hefði bilað. Húsa-
meistari bæjarins vinnur nú að
frágangi á drenlögninni svo von-
andi er þetta mál úr sögunni. ET
Hvammstangi:
Harður árekst-
ur í fyrradag
í morgun voru sendar til Reykjavíkur mokkakápur sem saumaðar voru á saumastofu Sambandsins á Akureyri. Ekki
er það í frásögur færandi að kápur séu sendar þangað. En í þessu tilfelli bjó annað undir. Kápurnar eru ætiaðar
leiðtogum stórveidanna, þeim Reagan og Gorbachév ásamt eiginkonum þeirra. Starfsfólk á saumastofunni fékk
málin send af Reagan og frú Nancy, en meira þurfti að treysta á myndir varðandi stærðir á sovéska leiðtogann og
frú hans. Það tók ekki nema einn dag að sauma og ganga frá þessum glæsilegu loðkápum sem vonandi eiga eftir að
veita leiðtogum risaveldanna og frúm þeirra góðan yl á köldum dögum. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
mun afhenda kápurnar.
A myndinni eru Hanna Guðmundsdóttir, Erla Traustadóttir og Ingólfur Ólafsson, en þau ásamt öðrum starfs-
mönnum saumadeildar framleiddu kápurnar. Kápa Reagans er lengst til vinstri, þar næst er kápa Nancyar konu
hans, því næst kápa frú Gorbachév og síðan kápa Gorbachéfs sjálfs. Mynd: gej-.
Hoppmaur í
- drenlögn lá of djúpt
í hlýindakafla fyrir skömmu
varð vart við maura í húsi
Tæknisviðs Verkmenntaskól-
ans. Að sögn Valdimars Brynj-
ólfssonar heilbrigðisfulltrúa
reyndist þetta vera svokallaður.
poneramaur eða hoppmaur.
Nafnið kemur til af því að
maurarnir hafa litla vængi sem
þeir geta svifið á.
Maurar þessir eru á stærð við
mýflugur og við fyrstu sýn ekki
ósvipaðir í útliti. Þeir komu til
landsins fyrir um það bil tíu árum
og verður þeirra vart annað slag-
ið og þá yfirleitt vegna bilunar í
skolpleiðslum en þar virðist
drottningin halda sig. Fyrir nokkr-
um árum ollu maurar þessarar
tegundar því að fólk á Dalvík
þurfti að flýja hús sitt sem síðan
var rifið og nýtt byggt.
Valdimar sagði að maurarnir
hefðu greinilega komið upp með
vegg og hefðu þeir komist í eina
stofu í kjallara hússins inn um
glugga. í fyrra var skipt um dren-
lögn við skólann og var það hald
Fjölskyldutilboð
á Bauta og í Smiðju sunnudagiiui 12. okt.
Matseðill
Prinsessusúpa, brauð og salatbar
með sykurbrúnuðum kartöflum, rauðkáli og ribsberjahlaupi
Kr. 450-540. Bautaborgari Kr. 100.
Hálft verð fyrir böm yngri en 12 ára