Dagur


Dagur - 14.11.1986, Qupperneq 11

Dagur - 14.11.1986, Qupperneq 11
Kveðja til Kristjáns frá Djúpalœk sjötugs, 16. juLí 1986 Haf þökk fyrir bókinn, bióðir, og braganna töfraseið, hann lætur í áfjáðum eyrum sem ómur frá Ijúflinga reið, ég heyri, hvar gangvarinn góði grípur hið dunandi skeið. Skammt var til hafs og til heiðar, þar hófstu veraldarför, þokur og válegir vindar veittu þér nöpur svör, en aldrei þú vildir verða að visnaðrí ísastör. Pá hófsóley græn og gullin gerðist þinn vin á braut, þið unduð í sælu saman ísólvermdrí mosalaut, uns Valur, sú voðaskepna, vakti þér geig og þraut. Þú heyjaðir upp um heiðar í hrakviðrum mýrarstrá, bjargaðir skjátum úr skeri, er skollin var nóttin á, en kóngsdóttir Atlantsála yljaði brjóstum þá. Svo fórstu til Akureyrar og undir þar vel um skeið, en það var samt austur á Eiðum, sem eftir þérgæfan beið, því Unnur var sú, sem þú unnir á ævinnar björtu leið. Orðin í íslensku máli urðu þitt gullasafn. Pinn leikur varð óðum að íþrótt, sem alþjóð gaflistar nafn, - listar, sem lýsti þér síðan leiðina fram um stafn. Sú leið hefir einkum legið til leitar að fegurð og sól, sem myrkríð í mannsins eðli margoft í skuggum fól. Pú tapaðir aldrei áttum, þig aldrei á hjarta kól. Og bjarminn af eldi þíns anda yljar og lýsir í senn langt inn í hugskot og hjarta og heima með eðlin tvenn, og sannleikans síhreina pería sindrar í djúpunum enn. Þín skynjun er næm og nemur nánd við hin duldu rök, frá tíma við öróf alda áttu þín vængjatök, - frá lífstraumsins upptakaósi að ævinnar hinstu vök. Þú lýkur upp bergsins leyndum, og Ijósin þar kvikna rauð, sú náttúra logar af IfS, sem lengi var kölluð dauð, og álfaborgimar opnast með óskasteina og brauð. Ungan þig dreymdi hér áður við æskunnar tæru lind, að heimurinn allur hefði jafnhreina og bjarta mynd, þér duldist enn heiftin og heimskan og hatrið, - vor dauðasynd. En ófreskjur grimmdar og græðgi gægðust þó brátt á skjá. Pú hófst við þær heilaga styrjöld afhugsjón og réttlætisþrá, og Ijóð þitt varð blikandi brandur, þín brynja varð listin há. Hið illa í hugum og hjörtum hvergi þú tekur í sátt, um lífið og h'tilmagnann þú lætur þér aldrei fátt. hið sanna og fagra skal fagna fríði og réttlæti brátt. Þú siglir enn seglum þöndum sólgullin höf og breið, nýtur enn náðarstunda, þvf nóttin er björt og heið, - fyllir enn bækurnar, bróðir, braganna töfraseið. Sverrir Pálsson. -Jr- r W'*'" » ~W" isr * 'W • , - , - " ' Ir- Wr "W Júdódagar á Akureyri Um helgina verða haldnir júdó- dagar í KA-heimilinu á Akur- eyri. Tilgangurinn með því er að kynna það starf sem unnið er inn- an júdódeildar KA. Allir flokkar félagsins munu þá æfa í KA-heimilinu undir stjórri Reino Fagerlund landsliðsþjálf- ara íslands og Jóns Óðins Óðins- sonar þjálfara KA. Einnig mun Fagerlund skoða unga og efni- lega KA-menn með tilliti til landsliðsvals. Verður æft frá kl. 10 á laugar- dagsmorgun til kl. 21 um kvöldið og síðan frá kl. 9 á sunnudags- morgun til kl. 18. Almenningi gefst tækifæri á að koma í KA- heimilið og sjá hvernig æfingar fara fram. Báða dagana frá kl. 13-17 verður selt kaffi og kökur. Er það gert í fjáröflunarskyni og eru því foreldrar, aðstandend- ur og allir velunnarar júdómanna á Akureyri hvattir til að mæta og styrkja um leið starf júdódeildar KA. : -14. n'övenib'Ör i986 - ÖAÖUR - 11 Lionsklúbburinn Huginn: Selur dagatöl og Ijósaperur á morgun Það hefur löngum verið svo að fyrsti jólaglaðningurinn hjá yngri kynslóðinni, er þegar jóladagatalið er fengið í hendurnar. Lionsklúbburinn Huginn hefur um langt árabil staðið fyrir sölu á jóladagatöl- um sem þykja ómissandi þátt- Hinir eldhressu og sívinsælu Skriðjöklar standa fyrir tveimur dansleikjum á Norðurlandi nú um helgina. Fyrri dansleikurinn verður nú í kvöld í Laugaborg og hefst hann klukkan 23.00. Sá síðari er síðan á laugardagskvöldið í Víkurröst og hefst hann á sama tíma. Fríar ur unga fólksins við jólaundir-. búninginn. Einnig selur klúbb- urinn ljósaperur, sem eru hverju heimili nauðsynlegar. Næstkomandi laugardag fara félagar úr Lionsklúbbnum af stað um bæinn og bjóða íbúum þessi ágætu jóladagatöl og ljósaperur. sætaferðir verða frá Ráðhústorgi á báða dansleikina, kl. 23 í Laugaborg og kl. 22.30 í Víkur- röst. Aðdáendum hljómsveitarinnar er bent á það að sennilega verða þetta siðustu dansleikirnir sem Skriðjöklarnir standa fyrir á árinu. Ætla þeir að hefja söluna klukk- an 11:00 á laugardagsmorguninn og vera að fram eftir degi. Ef svo illa fer að ekki nái að fara um all- an bæinn á laugardaginn, ætla þeir að nota sunnudaginn líka, svo allir eiga að fá sín almanök og ljósaperur. Fað þarf vart að taka fram að ágóðinn af sölunni rennur til líknarmála. Undanfarin ár hefur Lionsklúbburinn Huginn sýnt uppbyggingu að Botni í Eyjafirði sérstakan áhuga og rennur allur ágóðinn því til uppbyggingar þar. Að Botni er það Foreldrafélag fjölfatlaðra barna sem sér um reksturinn og hefur Lionsklúbb- urinn Huginn styrkt starfsemina eftir megni. Þeir Lionsmenn segja að við- tökur bæjarbúa hafi verið með ágætum undanfarin ár og vonast til þess að svo verði áfram, svo hægt verði að vinna markvisst að uppbyggingunni að Botni. Leiðrétting Ásbjörn Dagbjartsson hjá Rann- sóknastofu fiskiðnaðarins vill taka það fram í sambandi við frétt um rækju frá K. Jónssyni í gær, að ekki kemur til greina að setja þessa rækju á innanlands- markað. Heilbrigðisyfirvöld eru búin að innkalla alla rækju frá þeim. Þetta leiðréttist fúslega hér með en eftir stendur þó að kröf- urnar eru minni innanlands. Fjórir Jöklar ásamt Gulla Helga á Rás 2. Skriðjöklar með dansleiki örbylgjuofnar « eru hluti i; * f f \ afhenni! WýjTW Föstudaginn 14. nóvember milli kl. 16 og 18 kynnir Dröfn Farest- veitToshiba örbylgjuofna í Járn- *]Vog glervörudeild KEA, Hafnar- “ *fístræti 91. Þeir sem hafa nú þegar keypt Toshiba örbylgju- ofna, og ekki verið á námskeiði hjá Dröfn, eru beðnir um að hafa samand við Steingrím Björns- son hjá Járn- og glervörudeild. Ætlunin er að efna til sérstaks námskeiðs fyrir eigendur Toshiba ofna. Vinsamlega hafið samband við Steingrím fyrir klukkan þrjú á föstudag.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.