Dagur - 26.11.1986, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 2e.'Hóvember1986
M0Dt
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SfMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÓRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari.__________________________________
Skerðing jöfnunarsjóðs
tilfærsla skattheimtu?
Mikið hefur verið um það rætt, bæði í ræðu og riti,
að nauðsyn bæri til þess að auka sjálfstæði sveit-
arfélaga - færa verkefni frá ríkinu til stjórnkerfis-
ins sem stendur nær fólkinu út um landið. Til
þess að svo megi verða þarf að auka tekjur sveit-
arfélaganna og það verður vart gert nema með
tvennum hætti. Annars vegar að láta þegnana
greiða meira til sveitarfélaganna og auka þar
með skattheimtuna, hins vegar með því að færa
tekjur frá ríkinu til sveitarfélaganna.
Sveitarstjórnarmenn hafa af því þungar
áhyggjur þessa dagana, að stefna sú sem fram
kemur í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1987 sé
þvert á þessar hugmyndir. Þessar áhyggjur eru
vel skiljanlegar þegar þess er gætt að ætlun
fjármálaráðherra er að skerða framlög ríkisins til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 300-400 milljónir
króna. Reiknað hefur verið út að þessi skerðing
nemi um 250 krónum á hvern íbúa að óbreyttu
verðlagi. Sveitarstjórnarmenn kalla þetta enn
eina atlöguna að jöfnunarsjóðnum og þótti þeim
víst nóg komið fyrir.
Sveitarfélögin hafa átt í miklum fjárhagserfið-
leikum á undanförnum árum og það er ljóst að
þessi skerðing á jöfnunarsjóði þeirra gerir þeim
ekki auðveldar fyrir. Raunar bendir flest til þess
að þeim verði nauðsynlegt að auka tekjur sínar til
mótvægis við þessa skerðingu með hækkun
útsvara. Fróðir menn telja að álagningarstig
útsvara verði að hækka um 10% til að vega upp
skerðinguna á fé til jöfnunarsjóðsins. Til viðbótar
má svo geta þess, að hugmyndir menntamála-
ráðherra um að færa hlut ríkisins í skólaakstri yfir
á þennan síminnkandi jöfnunarsjóð gerir málið
ennþá alvarlegra. Þar mun vera um að ræða 130
milljónir króna.
Það er athyglisvert að skoða samhengið í
þessu máli. Fjálglega er fjasað um aukið sjálf-
stæði sveitarfélaga og tilfærslu fjármagns og
verkefna frá ríki til þeirra. Á sama tíma eru tekjur
sveitarfélaga skertar þannig að þau neyðast að
líkindum til þess að auka skattheimtu heima í
héraði. Þegar fjármálaráðherra talar um að lækka
tekjuskattsinnheimtu um 300 milljónir króna á
næsta ári er hann í rauninni aðeins að færa þessa
skattheimtu frá ríkinu til sveitarfélaganna.Tekju-
skattslækkuninni er með öðrum orðum velt yfir á
sveitarfélögin og kemur þegnum þessa lands
ekki að neinu gagni. Verst kemur þetta niður á
íbúum smærri sveitarfélaganna út um landið.
Ef þessi gagnrýni er á rökum reist er Ijóst að
hér er um ákaflega alvarlega þróun að ræða, stór-
pólitískt mál sem má ekki fara í gegn án þess að
menn átti sig á samhenginu og því sem í raun er
verið að gera með þessum breytingum. HS
-viðtal dagsins.
i
j
„Ég var með teiknistofu,
skilta- og legsteinagerð hér í
bænum fyrir 6 árum, en flutti
þá til Reykjavíkur,“ sagði
Friðgeir Axfjörð sem fluttur er
til Akureyrar eftir nokkurra
ára búsetu í Reykjavík.
Friðgeir hefur fest kaup á húsi
við Fjólugötu númer 9 og sett
þar upp teiknistofu.
Friðgeir sagðist hafa haft mikið
að gera við að teikna í Reykja-
vík. Hann teiknar allt, ef svo má
að orði komast, en hefur mest
gaman af að teikna andlitsmynd-
ir. „Ég hef gert mikið af því að
taka ljósmyndir sjálfur, þá get ég
ráðið skuggum og ljósi og teikna
svo eftir því. Ég hef líka gert
mikið af því að teikna í lit eftir
gömlum svart-hvítum myndum.
Friðgeir Axfjörð.
„Hef mest gaman af
að teikna andlitsmyndir"
Það hefur verið mjög vinsælt. Ég
er t.d. nýbúinn að teikna tvo
gamla bændahöfðingja fyrir fé-
lagsheimili á Suðurlandi. Þær
þóttu mjög vel heppnaðar. Það
var ekki fyrr en um 1950 sem far-
ið var að taka litmyndir.11
- Þú lætur fólk þá ekki sitja
fyrir?
„Jú, jú, ef fólk vill það frekar.
En það er mikið seinlegri aðferð
þegar maður hefur svona góðar
litmyndir. Það nota flestir orðið
þá aðferð að taka ljósmynd og
teikna eftir henni. Mér finnst ég
geta unnið myndina miklu betur
ef ég vinn eftir Ijósmynd."
- Ertu þá með góða aðstöðu
til að ljósmynda?
„Ég er ekki búinn að koma
mér upp aðstöðu ennþá, en ég
hef gott pláss og það kemur með
tímanum. Ég er líka að hugsa um
að koma mér upp aðstöðu til að
steypa legsteina og garðskraut."
Friðgeir er Akureyringur, en
segist hafa flækst víða. Hefur
m.a. búið á Húsavík og Reykja-
vík, auk Akureyrar. Hann hefur
líka tekið sér ýmislegt fyrir
hendur. Er lærður teiknikennari
og kenndi teikningu bæði á
Akureyri og Húsavík í 8 ár.
Hann var einn af fyrstu nemend-
um Myndlista- og handíðaskól-
ans, segir námið þar á þeim tíma
sem hann var í skólanum hafa
verið stefnulaust og próflaust,
nemendur hafi bara teiknað og
málað allan daginn. Friðgeir
lærði einnig múrverk og varð
byggingameistari. Hann hefur
komið nálægt fjölmiðlun, tók
myndir og skrifaði fyrir DV í
fjöldamörg ár meðan hann bjó á
Akureyri. Friðgeir segir það hafa
verið ákaflega erilsamt starf og
hafi endað með því að hann var
sífellt á þönum og því gefist upp.
Friðgeir hefur verið svolítið í
„vídeóbransanum," eins og hann
kallar það sjálfur. „Ég er búinn
að vera með ljósmyndadellu síð-
an ég man eftir mér. Ég fór einu
sinni á námskeið í kvikmynda-
töku, það var fréttakvikmynda-
taka. Námskeiðið var haldið á
vegum Kodak og maður sendi
bara inn fullunnin verkefni. Þetta
var í fornöld, 1947 líklega. En
það var gaman að þessu og þetta
fór vel með teikningunum. Ég á
merkilegar kvikmyndafilmur sem
ég tók á þessum tíma, þær tækju
líklega 12-15 klukkutíma í sýn-
ingu. Ég þarf endilega að bjarga
þeim, koma þeim yfir á
myndbönd. Ég á m.a. heilsteypta
mynd af byggingu vinnuhælisins í
Kristnesi, Heklugos og Mynd-
lista- og handíðaskólann.“
- Hvernig vinnurðu myndirn-
ar sem þú teiknar?
„Kaninn kallar það bastarð.
Þetta er sambland af sprautu-
tækni og krít, ætli það sé ekki
kallað blönduð tækni hérna. Jón-
as Guðmundsson málaði mikið
með þessari tækni. En þetta er
mest krít, bara eins og krakkarn-
ir eru með í skólanum.“
- Hvað kostar mynd hjá þér?
„Það er voðalega misjafnt, fer
eftir því hvað ég er lengi með
þær. Þær dýrustu eru á 4-5000 kr.
Stundum er ég ekki nema augna-
blik að teikna mynd, sérstaklega
ef ég þekki manneskjuna og þá
eru myndirnar ódýrari, en stund-
um tekur þetta óhemju tíma og
þá verð ég að taka meira fyrir. Ég
hef líka teiknað stórar myndir og
þá er verðið bara eftir samkomu-
lagi.“
- Svona að lokum, hvernig
finnst þér að vera kominn heim?
„Mér finnst það ákaflega gott.
Maður festir hvergi rætur annars
staðar.“ -HJS
Mynd eftir Friðgeir.tSegist hafa mest gaman af að teikna andlitsmyndir.