Dagur


Dagur - 26.11.1986, Qupperneq 5

Dagur - 26.11.1986, Qupperneq 5
Jesendahornid. Illa sandborið Margrét Guðmundsdóttir hringdi: „Ég verð að kvarta yfir því hve lítið er borið af sandi á götur og gangstéttir. Ég nefni sem dæmi Hlíðargötu og göturnar þar í grennd. í Hlíðargötunni býr mik- ið af eldra fólki sem geymir bíl- ana sína niður við Hamarsstíg, enda gatan einn svellbunki. Þetta fólk þarf jafnvel að skríða niður brekkuna til þess að komast í bíla sína. I öllu þessu hverfi hefur ekki verið borið á sandkorn í meira en hálfan mánuð. Ég vil endilega biðja hlutaðeigandi aðila að huga að úrbótum áður en alvarlegt slys verður af þessum sökum. Gangandi vegfarendur eiga mun auðveldara með að komast klakklaust leiðar sinnar ef vel er sandborið. Með von um skjót viðbrögð. Meiri sand á göturnar Kona á Brekkunni hafði sam- Sagðist hún vita til þess að fólk band við blaðið og vildi koma því hreinlega veigraði sér við því að á framfæri við bæjarstarfsmenn fara út vegna stórhættulegrar að þeir sinntu betur því mikil- hálku sem væri víða þessa dag- væga verkefni að sandbera götur. ana, aðallega í hliðargötum. Böm á Ijós- lausum hjólum Karlmaður hringdi: Vildi hann koma á framfæri þeirri ábendingu til foreldra að láta börn sín ekki vera á ljóslaus- um hjólum. Sagði hann það vera mjög áberandi að börn væru á ljóslausum hjólum, t.d. á leið í skólann í myrkrinu á morgnana og væri það stórhættulegt. Það væri lítið mál að kippa þessu í lag og ættu foreldrar að athuga þessi mál hjá börnum sínum. Valborg Davíðsdóttir að störfum á nýju stofunni sinni í Bakkahlíð 41 á Akureyri. Ný hárgreiðslustofa: Salon Hlíð Valborg Davíðsdóttir hár- greiðslumeistari, opnaði um helgina hárgreiðslustofu í Bakkahlíð 41 á Akureyri. Stof- an ber nafnið Salon Hlíð og býður hún upp á alla almenna hárgreiðsluþjónustu eins og litanir, skol, strípur, perman- ent, klippingu, lagningu og blástur. parna er boðið upp á Climazon lampa en hann tryggir enn betri árangur á skemmri tíma en áður við litun, skol og permanent. Auk þess selur Valborg allar hársnyrtivörur m.a. frá Joico. Salon Hlíð er opin eftir sam- komulagi og verður opið að minnsta kosti tvö kvöld í viku og á laugardögum, þannig að fólk sem á erfitt með að komast frá yfir daginn getur pantað á öðrum tíma og síminn er 23303. Árni Árnason sá um hönnun stofunnar og Trésmiðjan Þór smíðaði innréttinguna sem er hin glæsilegasta. 26. nóvember 1986 - DAGUR - 5 Grattan pöntunarlisti Haust- og vetrarlisti 1986 kominn Umboð Akureyri sími 23126. Verð kr. 200.00 + póstkrafa Til að fá vörurnar fyrir jól þarf að panta fyrir 7. des. Blað sem erlesið upptilagna Blaðið að norðan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 Fiskeldismenn Opinber fyrirlestur um siátrun, meöferö og gæöa- eftirlit á eldisfiski veröur haldinn föstudaginn 28. nóv. nk. kl. 16.00 á Hótei Sögu. Fyrirlesari verður Sverre Ola Roald, dýralæknir, sem er distriktssjef i Fiskeridirektoratets kontroll- verk í Noregi. Áhugamenn um fiskeldi eru hvattir til þess aö mæta. Landbúnaðarráðuneytið, Dýraverndunarfélag íslands. Á söluskrá Þórunnarstræti: 6 herb. sérhæð 149 fm ásamt bílskúr, herb. og sameign á neðri hæð. Hafnarstræti: 2ja herb. íbúð, laus strax. Gránufélagsgata: 2ja herb. íbúð. Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Sólvellir: 4ra herb. íbúð á 3. hæð, hugsanleg skipti á stærri íbúð. Gránufélagsgata: 180 fm þrjár hæðir og ris. Hólabraut: Efri hæð í tvíbýlishúsi, afhending strax. Brekkugata: 3ja herb. íbúð. Norðurgata: 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Norðurgata: 3ja herb. íbúð á efri hæð í tvíbýli. Lundargata: 150 fm einbýlishús á tveimur hæðum, algjör- lega endurbyggt. Hjalteyri: 115 fm einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara, mikið endurnýjað, afhending strax. Tjarnarlundur: 2ja herb. einstaklingsíbúð, afhending sam- komulag. Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn. Fasteignasalan hf opið frá Gránufélagsgötu 4, efri hæð, sími 21878 kl. 5—7 e.n. Hreinn Pálsson, lögfræðingur Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur Hermann R. Jónsson, sölumaður Jóter IBwð á niðursoðnu grænmeti frá K. Jónsson og Co. Mikill afsláttur. Tilboðið stendur til áramóta á öllu félagssvæðinu. Kjörbúðir

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.