Dagur - 26.11.1986, Page 9

Dagur - 26.11.1986, Page 9
26. nóvember 1986 - DAGUR - 9 —íþróttÍL Umsjón: Kristján Kristjánsson íslandsmótið í handknattleik: Heil umferð í 1. deildinni f kvöld KA mætir efsta liöinu UBK í Kópavogi í kvöld fer fram heil umferð í 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik. KA leikur gegn UBK í Digranesi í Kópavogi kl. 20 og strax á eftir leika Stjaman og Fram á sama stað. í Hafnarfirði leika FH og Val- ur kl. 20.15 og strax á eftir leika Haukar og Víkingur á sama stað. í Laugardalshöll leika Armann og KR kl. 20.15. Breiðablik er eina taplausa lið- ið í deildinni og hefur komið á óvart með góðri frammistöðu. Liðið er með 8 stig eftir fjóra leiki og er í efsta sæti deildarinn- ar. KA-liðið hefur einnig staðið sig nokkuð vel það sem af er móti og m.a. unnið tvo síðustu leiki sína í deildinni. KA er með 6 stig Lyftur opnaðar I - um helgina. Möguleiki á því að önnur lyftan á Dalvík verði opnuð á sunnudag „Við ætlum að opna hér skíða- íyftur um næstu helgi,“ sagði Ivar Sigmundsson forstöðu- maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli er hann var inntur eftir því máli. „Þegar er okkar álit að það sé kominn snjór til þess að opna eitthvað af lyftum en í dag er ekki Ijóst hversu margar þær verða,“ sagði ívar. „Það hefur verið ófært hingað upp eftir í tvo daga fyrir bíla, þannig að það hlýtur að vera orð- ið skíðafæri og við munum því hafa opið yfir miðjan daginn um helgina. Þá er nánast búið að ákveða það, ef ekki verður allur snjór farinn að vígja nýju lyftuna annan laugardag en það skýrist betur í næstu viku,“ sagði ívar Sigmundsson. Samkvæmt þessu geta Akur- eyringar farið að draga fram skíðagræjurnar og gera sig klára í Fjallið um helgina. Dagur kannaði einnig hvernig ástandið væri annars staðar á Norðurlandi. Á Siglufirði er enn langt í land að lyftur verði opnað- ar og varla viðbúið að það verði gert fyrr en eftir áramót. Á Dalvík er ástandið mun skárra og er jafnvel möguleiki á því að önnur lyftan í Böggvis- staðafjalli verði gangsett á sunnudag. í gærkvöld var fundur hjá Skíðaráði Dalvíkur þar sem það mál var rætt en blaðinu er ekki kunnugt um það hver niður- staðan varð. í Ólafsfirði vantar enn tölu- vert mikinn snjó til þess að lyftur í fjallinu verði opnaðar. Einnig vantar snjá til þess að gera göngubrautir og hafa menn aðeins sést á gönguskíðum á göt- um bæjarins. Á Húsavík er kominn tölu- verður snjór og er verið að skoða það um þessar mundir hvort hægt verður að opna lyftur á næstu dögum eða vikum. ásamt Fram, Val og FH. Liðið á fyrir höndum erfiðan leik í kvöld gegn UBK en með góðum leik getur KA stöðvað sigurgöngu Kópavogsbúana. Einn ónefndur liðsstjóri KA-liðsins sagðist ekki vera hræddur við leikinn og var sannfærður um næsta auðveldan sigur sinna manna. Á eftir leik KA og UBK leika Stjarnan og Fram og má búast við hörku viðureign. í Hafnar- firði leika FH og Valur og má einnig búast við jafnri viðureign þar. Á eftir leika Haukar og Vík- ingur og verða Víkingar að telj- ast mun sigurstanglegri. í Reykjavík leika Ármann og KR og má búast við jafnri viðureign þó KR-ingar verði að teljast ívið sigurstranglegri. Það mun mæða mikið á Hafþóri Heimissyni, lcikmanni KA ■ kvöld er liðið mætir UBK í Kópavogi. Haustmót HKRA: Fyrstu leikir á sunnudag - en þá leika 6., 5. og 4. flokkur Haustmót yngri flokka í hand- knattleik á vegum HKRA hefst á sunnudaginn kemur en þá leika KA og Þór í 6., 5. og 4. flokki í íþróttahúsi Glerár- skóla. Hvort liö sendir þrjú lið í 6. og 5 flokki og tvö lið í 4. flokki. Þeir yngstu hefja leikinn strax kl. 9 á sunnudagsmorgun en þá leika KA og Þór í 6. flokki A. Kl. 9.35 leika B-lið sömu flokka og þar á eftir kl. 10.10 leika C-liðin. Leikir 5. flokks hefjast kl. 10.45 með viðureign A-liðanna og strax á eftir eða kl. 11.30 mætast B- liðin. Kl. 12.15 leika síðan C-lið- in í 5. flokki. Loks mætast liðin í 4. flokki, A-liðin kl. 13.00 og B- liðin kl. 13.45. Þarna gefst fólki upplagt tæki- færi á að sjá þá yngstu í fyrstu alvöru leikjum vetrarins og verð- ur örugglega hart barist í þeim öllum. Á fimmtudaginn í næstu viku leika svo KA og Þór í 3. flokki í sama móti og fer sá leikur fram í Skemmunni og hefst kl. 17.30. Ævar endur- kjörinn formaður - knattspyrnudeildar Völsungs Lyfturnar í Hlíðarfjalli verða opnaðar um helgina. Það er því óhætt fyrir skíðafólk að draga fram græjurnar. Kvennaknattspyrna: Aðalfundur knattspyrnudeild- ar Völsungs var haldinn fyrir skömmu. A fundinum var m.a. kosin ný stjórn fyrir næsta ár. Fimm af þeim níu sem skipuðu stjórnina í sumar verða áfram í nýju stjórninni en það eru þeir Ævar Akason formaður, Arni Grétar Gunnarsson varafor- maður, Þorgrímur Aðalgeirs- son ritari og ineðstjórnendurn- ir Sveinn Rúnar Arason og Jósteinn Hreiðarsson. Nýir í stjórnina komu þeir Ingólfur Freysson sem verður gjaldkeri og meðstjórnendurnir Arnar Guðlaugsson, Sigmundur Hreiðarsson og Sigurjón Sig- urðsson. Sigmundur Hreiðarsson er bet- ur þekktur sem knattspyrnumað- ur en knattspyrnuráðsmaður. Hann hefur leikið með liði Völsungs í fjölmörg ár og síðast í fyrra er liðið vann sér sæti í 1. deild. Sigmundur hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun þess í stað starfa í stjórn knatt- spyrnudeildarinnar. Ævar Ákason formaður sagð- ist ekki reikna með að rekstur deildarinnaar yrði neitt auðveld- ari næsta ár þrátt fyrir að Völs- ungur léki í 1. deild. „Innkoma af leikjum hefur ekki verið stór póstur í rekstrinum og ég á ekki von á að það hlutfall breytist mikið, nema þá að gengi liðsins verði þeim mun betra,“ sagði Ævar. Laugamótið Asgeir þjálfar Þór - í innanhússknattspyrnu um aðra helgi Ásgeir Pálsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Þórs í knattspyrnu næsta keppnis- tímabil og tekur hann yið af Gunnlaugi Björnssyni. Ásgeir hefur undanfarin ár þjálfað kvennalið Stjörnunnar með góðum árangri. í sumar sigraði lið Stjörnunnar í 2. deild og vann sér sæti í 1. deild ásamt KA. Þórsliðið hefur leikið í 1. deild undanfarin ár með misjöfnum árangri. Liðið sýndi ágætar fram- farir í sumar og með sama mann- skap ætti liðið að geta gert góða hluti næsta sumar undir stjórn Ásgeirs. Hið árlega Laugamót í innan- hússknattspyrnu verður haldið 6. og 7. desember næstkom- andi. Keppnin verður með svipuðu sniði og áður þ.e. leik- ið í 4-5 liða riðlum og tvö efstu liðin úr hverjum riðli komast í úrslitakeppni. Öllum félögum er heimil þátt- taka og er leyfilegt að senda fleiri en eitt lið. Þátttökugjald er kr. 3000 fyrir eitt lið en kr. 5000 fyrir tvö lið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin og sigurvegararn- ir hljóta Laugabikarinn til varð- veislu fram að næsta móti. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir 1. desember til Kristjáns Sigurðssonar í síma 43116 eða 43112 og gefur hann einnig allar nánari upplýsingar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.