Dagur - 26.11.1986, Qupperneq 12
RAFGEYMAR VIÐHALDSFRflR
, . VELJIÐ RÉTT
I BILINN, BATINN, VINNUVÉLINA MERXI
CM
C\l
cö
cn
Hótel á
Skagaströnd?
Svo gæti farið að áður en langt
um líður verði opnað hótel á
Skagaströnd . Engin vafi er á
að margir myndu fagna til-
komu hótels á staðnum, ekki
síst þeir sem standa í viðskipt-
um ýmiss konar og þurfa því
gjarnan að gista á ferðum sín-
um um landið.
Pær hugmyndir sem uppi eru
um hótel á Skagaströnd eru þær
að taka eina hæð í nýbyggingu
Hólaness og Skagstrendings und-
ir reksturinn, en í þeim tilllögum
sem liggja fyrir er gert ráð fyrir
að þar verði þrjú tveggja manna
herbergi og fimm eins manns her-
bergi auk matsalar og eldhúss. Af
þeim upplýsingum sem fengust
varðandi þetta má ljóst vera að
vel er hugsanlegt að matsalur
fyrirhugaðs hótels (ef af verður)
verði það stór að þar yrði hægt að
halda nokkuð stórar veislur eða
skemmtanir af einhverju tagi. Til
þessa hefur engin slík aðstaða
verið fyrir hendi nema í félags-
heimilinu Fellsborg.
Önnur fyrirhuguð starfsemi í
húsinu mun verða skrifstofur
fyrirtækjanna tveggja sem að
byggingunni standa auk þess sem
skrifstofur hreppsins munu flytja
þangað. Þá hefur heyrst að sýslu-
mannsembættið muni jafnvel
hafa þar aðstöðu en ekkert mun
vera afráðið í því sambandi.
G.Kr.
Vinnumarkaðurinn:
Þensla heldur
áfram að aukast
- er mest utan höfuðborgarsvæðisins
,Ég og vinur minn hundurinn erum að leika okkur í snjónum,
Mývatnssveit:
Flutninga-
bíll fraus
fastur á
Söndunum
Vöruflutningabílstjóri frá
Húsavík sem lagöi af stað það-
an klukkan 11.00 í fyrrakvöld,
áleiðis til Mývatnssveitar var
ekki kominn fram klukkan
8.00 í gærmorgun.
Eftir klukkan 8.00 var farið að
grennslast fyrir um manninn og
fannst hann á Söndunum á leið-
inni frá Húsavík til Mývatnssveit-
ar. Bíllinn hafði bilað'og loftið
frosið á loftkerfi bílsins. Vegna
þess komst hann hvorki aftur á
bak né áfram. Tók bílstjórinn þá
ákvörðun að hafast við í bílnum,
þar til hjálp bærist. Veður var
frekar leiðinlegt á þessum
slóðum, hvasst og skafrenningur.
Árekstur varð í Reykjahlíðar-
þorpi í fyrradag. Þar var lítill
pallbíll á leið eftir Austurlands-
vegi og skall á jeppa er stað-
næmdist á gatnamótum Múlaveg-
ar og Austurlandsvegar. Mun bíl-
stjóri pallbílsins hafa misst stjórn
á bílnum í snjó og hálku, en mjög
hált hefur verið á vegum og götum
í Mývatnssveit að undanförnu.
gej-
Norðurland eystra:
Þingmenn vilja vara-
flugvöll á Akureyri
- „spurning hverju menn hafa efni á,“
segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður
Þjóðhagsstofnun hefur í sam-
vinnu við Vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins lokið
könnun á atvinnuástandi nú í
haust og horfum í vetur.
Könnunin tekur til atvinnu-
greina með um 70% allra
ársverka og eru einungis land-
búnaður, fiskveiðar, póstur og
sími og opinber þjónusta önn-
ur en sjúkrahús undanskilin.
Helstu niðurstöður könnunar-
innar eru þær að þensla á vinnu-
markaðinum hefur haldið áfram
að aukast frá því í fyrrahaust.
Þenslumerkin, þ.e.a.s. fjöldi
Iausra starfa eru fyrst og fremst
utan höfuðborgarsvæðisins og
lætur nærri að þrír fjórðu hlutar
lausra starfa séu úti á landi. Eftir-
spurn eftir fólki til starfa umfram
framboð virðist því vera minni á
höfuðborgarsvæðinu en utan
þess. Ófylltar stöður á landinu
öllu voru í byrjun október 2700
Heildaraflinn í október er víð-
ast hvar mun minni en í sama
mánuði í fyrra. Á Norðurlandi
komu 54.043 tonn að landi nú,
en 69.996 tonn í fyrra. Þetta
gerir samdrátt upp á 22,8%.
Hér er aðalorsökin mun minni
loðna, eða 46.582 tonn í októ-
ber nú á móti 60.663 tonnum í
fyrra.
Togararnir veiddu 5.519 tonn á
móti 7.033 í október ’85. Bátarn-
ir komu með 48.524 tonn nú en
62.963 í fyrra. Aðeins þorskafli
togaranna hefur aukist lítillega
en voru á sama tíma í fyrra um
1600.
Önnur teikn um aukna þenslu
á vinnumarkaðinum eru þau að í
október voru að jafnaði um 360
manns á atvinnuleysisskrá og er
það um helmingi minna en á
sama tíma í fyrra.
Mestur er skorturinn á verka-
fólki og iðnaðarmönnum og er
það aðallega í málm- og skipa-
smíðum, fiskvinnslu og vefjar- og ’
fataiðnaði. Nú sem fyrr er skort-
ur á fiskvinnslufólki nær ein-
göngu utan höfuðborgarsvæðis-
ins.
Hvað starfsmannahald í vetur
varðar þá er ekki að sjá að
umtalsverðar breytingar séu í
vændum. Samkvæmt vísbending-
um frá fyrirtækjum, virðist eftir-
spurn eftir starfsfólki úti á landi
aukast eftir áramótin en á höfuð-
borgarsvæðinu er búist við að
störfum fækki um 1200 fram í
apríl á næsta ári. ET
Norðurland:
miðað við október í fyrra svo og
rækjuveiðin sem er mun meiri
nú.
Ef við berum saman októ-
berafla á nokkrum stöðum á
Norðurlandi nú og í fyrra má
greina samdrátt nærri alls staðar.
Tölurnar frá ’85 eru í sviga:
Skagaströnd 742 (869), Sauðár-
krókur 699 (1.188), Siglufjörður
26.135 (34.768), Ólafsfjörður
2.310 (3.268), Dalvík 1.033
(561), Akureyri 9.582 (11.194),
Húsavík 436 (561), Raufarhöfn
8.476 (16.362) og Þórshöfn 3.760
(227).
„Menn eru sammála um að
Sauðárkrókur sé besti staður-
inn. En spurningin er, á hverju
höfum við efni varðandi vara-
flugvöll fyrir millilandaflug,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon
Þarna skera Dalvík og Þórs-
höfn sig úr með mun meiri afla í
október á þessu ári en í fyrra. En
ef miðað er við fyrstu tíu mánuði
ársins þá má greina verulega
aukningu á öllum þessum
stöðum, nema á Sauðárkróki og
Raufarhöfn: Skagaströnd 9.272
(9.026), Sauðárkrókur 8.035
(10.661), Siglufjörður 100.787
(88.127), Ólafsfjörður 16.289
(13.132), Dalvík 13.174 (11.312),
Akureyri 57.537 (55.633), Húsa-
vík 8.731 (8.514), Raufarhöfn
49.799 (66.909) og Þórshöfn
9.588 (4.304). SS
alþingismaður. Hann ásamt
öllum öðrum alþingismönnum
Norðurlands eystra hafa lagt
fram tillögu á Alþingi þess efn-
is að skorað verði á ríkisstjórn-
ina að láta kanna svo fljótt sem
unnt er hvort gera ætti Akur-
eyrarflugvöll að varavelli fyrir
millilandaflug hér á landi.
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa farið fram nokkuð miklar
umræður um varaflugvöll fyrir
millilandaflug og hvar slíkur völl-
ur skuli staðsettur.
Tillaga þingmanna Norður-
lands eystra kemur í kjölfar til-
lagna um að varavöll skuli gera á
Sauðárkróki.
Samkvæmt skýrslu nefndar
sem skipuð var af samgönguráð-
herra segir að veður og aðflugs-
skilyrði séu betri á Sauðárkróki. í
greinagerð sem fylgir tillögu
þingmanna Norðurlands eystra
eru raktir kostir þess að hafa
varavöll á Akureyri. Þar er m.a.
talað um vel búið sjúkrahús,
staðsetningu miðað við vinsæl-
ustu ferðamannastaði landsins,
ágæti flugvallarins og flugaf-
greiðslunnar, tiltölulega góð tæki
miðað við íslenskar aðstæður og
að ódýrt sé að lengja flugbraut-
ina.
„Ég held að menn geri sér ekki
grein fyrir þeim rekstrarkostnaði
sem er samfara því að reka svona
flugvöll. Að öllum líkindum þarf
að bæta einhverju við tækjabún-
að á Akureyri, en allt sem fyrir er
nýtist til fulls, auk þess sem þessi
völlur er í notkun frá morgni til
kvölds. Á öðrum stöðum er
kannski um eina ferð að ræða á
degi hverjum og þarf fullt starfs-
lið á slíkan völl. Einnig er það að
þróun er mjög ör í flugleiðsögu-
tækjum og gerir það aðflug við
þrengri aðstæður öruggt og gerir
landfræðilega erfiðleika nánast
að engu,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon.
í kjölfar þessarar tillögu
alþingismannanna hefur bæjar-
stjórn Sauðárkróks samþykkt að
ganga til samninga við landeig-
endur þess lands sem hugsanlega
kemur til greina fyrir lenginu
flugbrautarinnar á Sauðárkróki.
Aðrir flugvellir sem til greina
koma sem varaflugvöllur eru
Egilsstaðaflugvöllur og Aðaldals-
flugvöllur við Húsavík. gej-
Lakari afli í október
- miðað við sama mánuð í fyrra