Dagur - 08.01.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 08.01.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 8. ianúar 1987 um áramótaball Ingvar Rafnsson. „Nei, aldrei." - Hefurðu komið í Dynheima áður? „Já, tvisvar." - Finnst þér þetta ball frá- brugðið öðrum sem þú hefur ver- ið á? „Nei, alls ekki.“ - Hvað um ölvunina? „Mér finnst hún sko meiri en venjulega, frekar rnikil." - Myndirðu vilja að áramóta- böll yrðu öðruvísi en önnur böll? „Eg myndi vilja fá alla á einn stað, alla aldurshóþa ekki að skipta fólkinu á staði eins og Dynheima, H-100 og Sjallann. A eftir ættu síðan allir að safnast saman í göngugötuna." - Einhver sérlega minnis- stæður atburður? Soffía Pálsdóttir, Bryndís Þórisdóttir og Kristín Kjartansdóttir. Troðfullt dansgólf í upphafi árs 1987. - Einhver minnisstæður atburður eða áramótaheit? „Nei ekkert af því taginu.“ - Að lokum, skemmtirðu þér vel? „Já, já ágætlega." Soffía Palsdottir Kristín Kjartansdóttir Bryndís Þórisdóttir allar 17 ára - Hvaðan eruð þið stelpur? S: „Héðan.“ K: „Héðan, en bý hjá frænku minni í Bandaríkjunum." B: „Sauðárkróki." - Einhver sérstök ástæða fyrir að koma hingað á áramótaball? „A: Skemmta okkur! Okkur finnst síðasta sort að fara í Hlíð- arbæ, Dynheimar eru ekta dans- staður (diskótek)." - Hafið þið komið hingað áður? K: „Ég kom síðast fyrir tveim árurn." - Finnst þér þetta ólíkt því sem það var þá? K: „Nei, ekki svo.“ - Er þetta ekki frábrugöið skemmtunum í Bandaríkjunum? K: „Jú, fólkið er öðruvísi og í Dynheimum Áramót - nýtt ár. Þessi orð fela í sér algjöra nýjung, eitthvað sem er alveg óvitað og við getum tekist á við hlutina, oft af auknum krafti og vissu um að allt muni ganga betur. Þessum tímamótum fögnum við mikið (sumir of mikið) og á misjafna vegu. Á nýársnótt ákvað ég að rölta í Dynheima því ég vissi af fenginni reynslu að þar yrði margt um manninn og mikið um að vera, allir bjóðandi nýtt ár velkomið á hinn eina sanna hátt. Fyrsta klukkutímann á nýju ári voru unglingarnir að mæta á staðinn en fljótlega eftir það var dansgólfið orðið troðfulit og aðrir staðir hússins fylltust jafnt og þétt. Það var alveg örugg- lega verið að halda upp á komu nýs árs! Plötusnúðarnir gerðu úttekt á vinsælum lögum liðins árs (svo og liðinna ára), hvar- vetna mátti heyra (og sjá) áramótaóskir ýmsum til handa. Sprengjur sprungu, marglitar pappírsræmur héngu á öxlum einstaka og furðulegir hattar prýddu höfuð sumra (hattar sem eingöngu eru í tísku þessa nóttl). Greinilegt var að þessi aldurshópur sem þarna var saman kominn, tók á móti nýju ári jafn fagnandi og eldra fólkið því sannkölluð áramótastemmn- ing réði húsum í Dynheimum þessa nýársnótt! Ingvar Rafnsson 16 ára - Hvers vegna ákvaðstu að fara á ball í stað þess að vera heima þessi áramót? „Mér líkar svo æðislega við að skemmta mér!!“ - Hefurðu verið á áramóta- balli áður? Helen og Lilja Fossdal. „Já, ég byrjaði með Kristjönu (Kittý).“ - Strengdirðu eitthvert ára- mótaheit? „Nei, engin heit.“ Vigfús Magnússon 16 ára - Mér hefur borist til eyrna að þú sért ekki héðan, hvaðan ertu? „Ég er frá Suðurlandinu en ég bjó hér á Akureyri þangað til fyrir hálfu ári.“ - Af hverju ertu þá hér á balli er ekki mikið meira um að vera á Suðurlandinu? „Ég kom hingað sérstaklega til að fara á áramótaball hér í Dyn- heimum. Ég hef sko verið hérna áður á áramótaballi." - Finnst þér þetta ball frá- brugðið hinu áramótaballinu sem þú hefur verið á hér? „Nei, mér finnst þetta allt mjög líkt.“ - Hvað með ölvunína? „Mér finnst hún líka svipuð og áður.“ - Þætti þér meira fjör ef það væru hljómsveit eða skemmti- atriði? „Nei, það skiptir mig engu máli hvort það er sérstök skemmtun í tilefni áramótanna." Vigfús Magnússon.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.