Dagur - 13.01.1987, Síða 2

Dagur - 13.01.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 13. janúar 1987 j/iðtal dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiöari._______________________________ Stefnubreyting hjá Alþýðubandalaginu? Alþýðubandalagið birti um helgina framboðslista flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra fyrir komandi alþingiskosningar. Það vekur athygli að í öðru sæti listans er Svanfríður Jónasdóttir, oddviti Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Dalvík- ur. Svanfríður hefur, eins og kunnugt er, verið meðmælt sölutillögum meirihluta bæjarstjórnar Dalvíkur á hlut bæjarins í Útgerðarfélagi Dalvík- inga h.f. og Söltunarfélagi Dalvíkur. Margir hafa furðað sig á þessari stefnu hennar, því hún geng- ur þvert á yfirlýsta stefnu Alþýðubandalagsins. Engu að síður náðist algjör samstaða um þetta mál milli Alþýðubandalagsfulltrúanna og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en þessir flokkar skipa nú meirihluta bæjarstjórnarinnar. Það þarf engum að koma á óvart þótt sjálf- stæðismenn vilji selja hlut bæjarins í arðbærum fyrirtækjunum. Það er í samræmi við þeirra stefnu. Hitt er vægast sagt mjög óvenjulegt og nánast einsdæmi, að Alþýðubandalagið styðji þá í slíkum málum. Þó er svo komið að menn sjá nánast engan mun á stefnu Sjálfstæðisflokksins og Alþýðubandalagsins á Dalvík. Svanfríður Jónasdóttir hefur verið í broddi fylk- ingar í sölumálinu og beint spjótum sínum sér- staklega að Kaupfélagi Eyfirðinga. Hún hefur sýnt það áður í ræðu og riti að henni er sérstak- lega í nöp við KEA. Slík er þráhyggja hennar gagnvart KEA að nánast er um ofstæki að ræða. Framganga Svanfríðar Jónasdóttur í „Dalvíkur- málinu" svokallaða, hefur vakið reiði margra Alþýðubandalagsmanna og á kjördæmisþingi þeirra sem haldið var á Akureyri um helgina, var málið sérstaklega tekið til umræðu, með tilliti til framgöngu Svanfríðar. Þeir sem lengst vildu ganga, vildu að Svanfríður tæki alls ekki sæti á listanum. Þau sjónarmið voru ofurliði borin. Forsvarsmenn Alþýðubandalagsins hafa á tyllidögum kennt sig við félagshyggju. Fulltrúar Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Dalvíkur hafa með framkomu sinni sýnt, að þeir hafa félags- hyggju síst að leiðarljósi og standa mun nær Sjálfstæðisflokknum í skoðunum. Með því að setja oddvita sinn í bæjarstjórn Dalvíkur í annað sæti framboðslista Alþýðubandalagsins í Norður- landskjördæmi eystra, hefur flokkurinn þar með opinberlega viðurkennt þessa skoðun sem sína og ætlar að leggja af stað í kosningabaráttuna með það veganesti. Félagshyggjufólki ætti að verða þessi stað- reynd víti til varnaðar. Kannski er þetta jafnvel upphafið að allsherjar stefnubreytingu Alþýðu- bandalagsins um land allt. Það væri skiljanlegt í ljósi þess að Alþýðubandalagið hefur átt mjög undir högg að sækja á undanförnum árum og þarf nauðsynlega á andlitslyftingu að halda. Hitt vita menn, að það er alltaf stutt öfganna á milli. BB. „Ég gekk með fyrsta verð- launapeninginn minn um hálsinn í mörg ár“ - Spjallað við Vöndu Sigurgeirsdóttur, landsliðskonu í knattspyrnu Það eru ekki mörg ár síðan skipulegar æfíngar og keppnir í kvennaknattspyrnu voru tekn- ar upp hér á landi og í langan tíma var knattspyrnan hér álit- in eingöngu karlaíþrótt. í dag er kvennaknattspyrna við- urkennd íþróttagrein í landinu og nýtur mikilla og sívaxandi vinsælda. Þær eru ekki margar stelpurnar á landsbyggðinni sem hafa haldið áfram fót- boltaiðkun alveg til fullorðins- ára. Vanda Sigurgeirsdóttir frá Sauðárkróki sem í dag er 21 árs er ein af þeim örfáu sem það hafa gert og hún og ein stúlka vestan af fjörðum eru þær einu frá stöðum utan Faxaflóasvæðisins sem leikið hafa með landsliði. Vanda byrjaði snemma að keppa með strákunum í Tindastóli og gerði það allt til unglingsár- anna, að hún byrjaði að leika með kvennaliðum. Vanda varð orðlaus í fyrstu þegar hún var spurð hvort hún hefði aldrei fundið fyrir því að vera álitin skrýtin vegna áhuga síns á fótbotanum. „Nei, ég var svo ung þegar ég byrjaði í þessu. Fólk hefur vanist því að ég væri alltaf í fótbolta og kannski margir haldið að ég væri strákur. Það var líka engu líkara en strákarnir litu á mig sem kyn- bróður sinn, þeir voru orðnir því svo vanir að ég væri með þeim í fótbolta, að ef stelpur komu og báðu um að fá að vera með, sögðu þeir að engar stelpur fengju að vera með. Þeir gleymdu því alveg að ég var stelpa.“ - Hvenær byrjaði íþróttaferill- inn? „Ég byrjaði í íþróttum þegar ég var sex ára. Þá var Ingimund- ur Ingimundarson íþróttakenn- ari hér og það voru haldin 4 víða- vangshlaup yfir veturinn. Þeir sem stóðu sig best í hlaupunum í hverjum aldursflokki fengu við- urkenningarspjöld og þeir sem bestum árangri náðu að jafnaði í öllum hlaupunum fengu verð- launapening. Ég var fyrst í öllum hlaupunum í mínum flokki og fékk að launum gullpening. Þess- um peningi var ég svo montin af, að ég gekk með hann um hálsinn í mörg ár og borðinn í fánalitun- um var orðinn svo snjáður að hann var alveg litlaus. “ - Hvenær byrjaðir þú svo í fótboltanum? „Við fluttum til Danmerkur, þar sem mamma stundaði nám. í frímínútunum í skólanum voru stelpurnar í mömmuleik, en af því að ég var ekkert fyrir mömmuleikinn, fór ég út og þá var ekkert annað að gera en fara í fótbolta með strákunum og þannig komst ég í kynni við fót- boltann. Við fluttum heim aftur til íslands þegar ég var 10 ára, til Dalvíkur. Þaðan voru þá engir yngri flokkar í keppni á íslands- móti, en í staðinn var komið á keppni milli hverfisfélaga í bænum. Ég man eftir að ég og Arnljótur Davíðsson unglinga- Vanda Sigurgeirsdóttir. landsliðsmaður í Fram, sem síð- asta sumar lék í meistaraflokki í fyrsta skipti, stofnuðum knatt- spyrnufélagið Chaplín. Við vor- um stutt á Dalvík og fluttum aft- ur á Krókinn. Þegar ég var að fara á fyrstu æfinguna hjá Tinda- stóli mætti ég tveim stelpum sem sögðu að það þýddi ekkert fyrir mig að fara lengra, þær hefðu ekki fengið að vera með. En ég fékk að vera með. Á miðri æfing- unni spurði þjálfarinn mig hvað ég héti. „Vanda,“ sagði ég. „Vanda!“ sagði hann. Þá hélt hann að ég væri strákur. Strák- arnir sögðu þá að ég væri í fót- bolta með þeim, en.ég hugsa að Danni þjálfari hefði ekki lofað mér að vera með hefði hann vitað fyrir æfinguna að ég var stelpa. Síðan lék ég með strákunum í íslandsmótinu alveg upp í fyrra árið í þriðja flokki. Ég man eftir að karlarnir á Siglufirði hlógu í hálftíma eftir að stelpan á kantin- um hafði platað bakkarann og gerðu óspart grín að honum. „Léstu stelpuna leika á þig!“ kölluðu þeir. Það kom stundum fyrir að strákarnir í hinum liðun- um voru að stríða strákunum á Króknum á að þeir væru meiri aumingjarnir að vera með stelpu í liðinu. Þeir svöruðu því þannig, að hinir væru þá ennþá meiri aumingjar að eiga ekki stelpu sem væri nógu góð til að komast í liðið hjá þeim. Sturtuvandamál kom varla upp fyrr en ég var komin upp í þriðja flokk. Þá fór ég alltaf á undan strákunum í sturtu og ég man eftir að þegar við vorum að keppa á Húsavík, að strákarnir á Húsavík þurftu að ganga fram hjá dyrunum á bún- ingsklefanum, en þeir þorðu það ekki vegna þess að þær voru ein- hverra hluta vegna opnar.“ - Hvenær byrjaðir þú svo í kvennafótboltanum? „Haustið ’81 settist ég á skóla- bekk í MA og fór þá að æfa með kvennaliði KA og æfði með þeim um veturinn. Vorið eftir sendi KA í fyrsta skipti kvennalið til keppni, en ekki var þá langt síð- an keppni í kvennaknattspyrnu hófst hér á landi. Ég fór heim um vorið, en þjálfari KA vildi endi- lega fá mig í leikina. Ég spilaði síðan með liðinu, sem lék í ann- arri deildinni um sumarið, við komumst í úrslit en töpuðum fyr- ir Víði í Garði í úrslitakeppni. Um sumarið var haldið svokallað Bautamót á Akureyri þar sem fyrstu deildar liðin komu til keppni. Ég sá að stelpurnar í þessum liðum voru ekkert betri en ég og það varð til þess að það varð enn áleitnara hjá mér að reyna að komast í fyrstu deildar lið. Mig hafði alltaf dreymt um að komast í landslið og ef ég ætti að eiga möguleika á því varð ég að spila með fyrstu deildar liði. Ég dreif mig því suður á Akranes næsta vor. Ég þekkti engan í fót- boltanum á Skaganum, en átti systur þar sem lagði hart að mér að koma. Þegar ég var stödd í Munaðarnesi um vorið fékk ég boð frá Steini Helgasyni þjálfara ÍA að koma á Skagann á sunnu- dag, en þá færi fram úrslita- leikurinn í Litlu bikarkeppninni gegn sjálfum íslandsmeisturun- um Breiðabliki. Ég mætti síðan í leikinn og var sett inn á í byrjun seinni hálfleiks til prufu, í stöðu bakvarðar og lenti á móti Ástu B. Gunnlaugsdóttur. Ég hafði aldrei spilað þessa stöðu áður en gekk samt þokkalega. Það lá samt við að ég fagnaði þegar ein Skaga- stelpan meiddist og ég var færð í tengiliðinn. Við unnum þennan leik, sem var með fyrstu leikjun- um sem Breiðablik tapaði. Ég hef síðan leikið með ÍÁ síðustu fjögur árin og átt fast sæti í lið- inu. Fyrsta sumarið var liðið ungt, en á uppleið og næsta sum- ar ’84 urðum við íslandsmeistarar og líka sumarið efftir. Síðasta vor misstum við svo flugið eftir að 9 af 16 sem voru í liðinu árið áður hættu. Landsliðsdraumurinn rættist á árinu 1985 og lék ég landsleikina það sumar og síðasta sumar líka, alls 8 leiki. Til að gera langa sögu stutta, þá ætlar Vanda að leika með Skaganum að sumri. Um síðustu helgi fór hún ásamt Skagaliðinu á innanhússmót í Köln, í boði liðs- ins sem Laufey Sigurðardóttir spilaði með í fyrra. Er þetta ann- að skiptið sem Skagaliðið fer til útlanda til keppni, á árinu 1985 tók það þátt í útimóti í Hollandi svonefndu Harlem Cup, þar sem liðið bar sigur úr býtum. í vetur spilar Vanda með fyrstu deildar liði ÍS í körfubolta, en hún er einnig mjög góð í þeirri grein. Aðrar íþróttagreinar sem hún hefur stundað eru: Frjálsar, sund, blak, skíði og skák. -þá

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.