Dagur - 11.02.1987, Qupperneq 12
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 11. febrúar 1987
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 24 CM CM CM
Rækjuskipið Sjávarborg, e.t.v. betur þekkt sem „Flakkarinn“, kom til
Akureyrar í gær með 90 toon af rækju. Myndin er tekin er unnið var við
löndun úr skipinu. Mynd: rþb
Akureyri:
Þriðji hlýjasti
janúarmánuður
á öldinni
Janúarmánuður síðastliðinn
var sennilega sá þriðji hlýjasti
á þessari öld hér á Norður-
landi. Ef miðað er við tölur frá
Akureyri þá var meðalhitinn
þar 2,1 stig í janúar en það er
4,2 stigum hærra en meðaltal
janúarmánaða á árunum 1951-
1980.
Aðeins árin 1947 og 1972 hefur
janúarmánuður verið hlýrri á
Akureyri. Árið 1947 var meðal-
hitinn í mánuðinum 3,2 stig en
2,5 stig árið 1972.
Mesti hiti í janúar síðastliðn-
um á Akureyri mældist 11,3 þann
23. janúar en fyrsta dag ársins var
mest frost, -11,6 stig.
Úrkoma í mánuðinum var
mjög lítil, aðeins 6 mm. Það er
einungis um 13% af meðal úr-
komu í janúajr árin 1951-1980.
Sólskinsstundir í mánuðinum
voru einungis 6,3 og er það
nálægt meðallagi. Aldrei varð
sérlega hvasst í mánuðinum, þó
fór vindstyrkur í 8 vindstig 24.
dag mánaðarins. Mesti vindhraði
sem mældist í vindhviðu sem ekki
varði í 10 mínútur var 66 hnútar
en það jafngildir 12 vindstigum.
Áð sögn Öddu Báru Sigfús-
dóttur veðurfræðings þá má segja
að ástæðan fyrir þessum miklu
hlýindum sé afstaða hæða. Segja
má að allan mánuðinn hafi hæðir
verið yfir Norðurlöndum og
Austur-Evrópu sem beindu suð-
lægum vindum hingað norður á
hjara veraldar en ollu hins vegar
fimbulkuldum annars staðar sem
kunnugt er. ET
Atvinnumál á Hvammstanga:
Bjartsýni ríkjandi
haust að rækjan væri að mestu
horfin af innfjarðarmiðunuht í
Húnaflóa, þá verður ekki annað
sagt en að ýmsum hafi þótt útlitið
heldur, svart fyrir Hvammstanga
sem að verulegu leiti hefur byggt
atvinnulíf sitt á rækjunni til
margra ára.
Laugardaginn 6. febrúar
síðastliðinn beitti atvinnumála-
nefnd Hvainmstanga sér fyrir
fundi um atvinnumál á
staðnum. Frummælendur á
fundinum voru tólf og um 80
manns voru á fundinum.
Þegar það varð ljóst síðastliðið
smábátaeigenda:
Dalvík:
Mjög biýnt aö
dýpka höfnina
Nýlega eru hafnir grjótflutn-
ingar til fyllingar undir fyrir-
hugaða smábátabryggju á
Sauðárkróki. Er talið að bíl-
hlössin verði um 500 sem flutt
verða utan frá Hvalnesi á
Skaga og er reiknað með að
þetta verði 2-3 vikna vinna,
miðað við að 5 bílar verði í
keyrslunni. Fyrir dyrum stend-
ur hjá Sauðárkróksbæ að
bjóða út flutning á kjarnaefni
og gerð flotbryggja í smábáta-
höfninni.
Nýlega voru opnuð tilboð í
grjótflutningana. Þrjú tilboð
bárust, það lægsta frá Firði sf. og
Stefáni Guðjónssyni upp á
2.592.000. Króksverk var með
2.819.416 og Viggó Brynjóifsson
Skagaströnd með 4.384.000.
Kostnaðaráætlun tæknideildar
Sauðárkróksbæjar hljóðar upp á
3.507.200. Stefán Guðjónsson er
vinnuvélaeigandi á Sauðárkróki
og Fjörður sf. samanstendur af
allmörgum bílstjórum úr Vöru-
bílstjórafélagi Skagafjarðar. -þá
Smábátahöfn á Sauðárkróki:
500 bílhlöss
í uppfyllinguna
„Dýpkun hafnarinnar er á
okkar óskalista og eitt af þeim
verkefnum þar sem eru hvað
brýnust. Hins vegar strandar á
því að það er ekki til tæki til að
vinna á þessu. Botninn er
þannig að ekki er hægt að dæla
þessu heldur þarf grafskip og
eftir að Grettir sökk í Faxa-
flóanum hefur ekki verið um
það að ræða að hægt væri að
ráðast í þetta,“ sagði Valdimar
Bragason, bæjarfuUtrúi á
Dalvík.
. „Þetta er ákaflega brýnt til
þess hreinlega að geta notað þá
garða sem fyrir eru. Það er mjög
hæpið að komast að þeim á tog-
urunum,“ sagði Valdimar einnig.
Æ ofan í æ berast kvartanir
vegna hafna á Norðurlandi
eystra. Skemmst er að minnast
þess. að Akureyrin tók niðri í
Húsavíkurhöfn sem er orðin full
af sandi. Hún hefur ekki verið
dýpkuð lengi. Á Dalvík er það
hins vegar ekki sandurinn sem er
til trafala heldur þykk móbergs-
hella sem þarf að grafa í burtu.
Ljóst er að víða er úrbóta þörf og
hafa margir lýst furðu sinni á lágu
framlagi ríkisins til þessara mála
á árinu samkvæmt fjárlögum.
Valdimar Bragason var einnig
inntur eftir ástæðunni fyrir því að
bæjarstjórnin fékk frest til febrú-
arloka til að skila fjárhagsáætlun.
Hann sagði að það væri einfald-
lega ekki búið að vinna hana.
„Það eru ný lög sem segja að
þetta skuli búið fyrir janúarlok.
En það er ákvæði um það í
lögunum að ráðuneytið geti veitt
þennan frest og mönnum fannst
rétt að sækja formlega um hann,“
sagði Valdimar. SS
Óánægja meðal
Vilja færa dragnótaveiöar utar
- hlutur bolfisks hjá dragnótabátum hefur aukist gífurlega
Klettur, félag smábátaeigenda
við Fyjafjörð og Skjálfanda-
flóa, hefur farið þess á leit við
Atvinnumálanefnd Akureyrar
að hún leggi fram umsögn um
dragnótaveiðar í Eyjafirði.
Félagið leggur til að gerðar
verði verulegar breytingar á
heimildum til þessara veiða
sem smábátaeigendur telja að
ógni afkomu þeirra og
skynsamlegri nýtingu fiski-
stofna.
Ingvi Árnason formaður
félagsins sagði í samtali við Dag
að það sem farið væri fram á væri
að sú lína sem dragnótabátum er
óheimilt að veiða innan væri færð
utar.
Lína þessi liggur núna frá Síla-
nesi austan fjarðarins í Brimnes
vestan fjarðarins og liggur því
sunnan Hríseyjar. Fyrir nokkrum
árum lá línan í Stekkjanes vestan
fjarðar og skar eyjuna. Ingvi
sagði að það væri krafa smábáta-
eigenda að línan yrði færð yst í
fjörðinn og lægi þannig frá
Kjálkanesi í austri í Brík norðan
Ólafsfjarðar.
„Þetta er alveg voði fyrir okkur
á þessum smábátum. Við getum
ekki fallist á það að umsvif
útgerðar á stærri bátum þurfi að
kæfa okkur á minni bátunum.
Það er þegar komið að því,“
sagði Ingvi.
Dragnótaveiðar voru að sögn
Ingva upphaflega hugsaðar til
þess að nýta kola betur en gert
var. Bátunum var þó heimilt að
hafa ákveðið hlutfall af bolfiski í
aflanum. Á undanförnum tveim-
ur árum hefur hlutur bolfisks hins
vegar aukist gífurlega en hlutur
smábáta skerst að sama skapi.
„Ég held að það megi einnig
flokka þetta undir slysavarnamál
sem við förum fram á. Það gefur
auga leið að þegar þessi ágangur
er inni í fjörðunum þá verða litlu
bátarnir að flýja út fyrir þá stóru,
jafnvel á mið sem þeir ráða ekki
við,“ sagði Ingvi.
Að sögn Ingva hafa sveitar-
stjórnir á Dalvík og Grenivík
þegar lýst stuðningi við kröfur
smábátaeigenda og sagðist hann
nú vonast eftir hjálp bæjaryfir-
valda hér við að hafa áhrif á
ráðuneyti.
„Við leituðum til atvinnu-
málanefndar því hér er um að
ræða 23 menn sem hafa af þessu
fasta atvinnu. Það þætti mikið ef
allt f einu væri sagt upp 23 mönn-
um hjá einhverju fyrirtæki vegna
þess að einhver annar vildi taka
yfir störfin þeirra,“ sagði Ingvi að
lokum. ET
Á fundinum á laugardaginn kom
þó í ljös gð ótti' margra um
atvinnuleysi hefur verið óþarfur,
frekar er að vanti fólk til vinnu en
hitt. Að sögn viðmælanda blaðs-
ins er næg vinna hjá Meleyri og
auk þess er unnið að nýum verk-
efnum hjá sláturhúsi kaupfélags-
ins, en það er úrbeining á kjöti
fyrir Japansmarkað og kjötsögun
fyrir Svíþjóð. Við þetta starfa
sautján manns. Þá er verulega
bjart framundan hjá sauma-
stofunni Drífu, en talið er að
fyrirtækið styrki stöðu sína veru-
lega á markaðnum með því að
fara út í sjálfstæða sölu á fram-
leiðslu sinni.
Þrátt fyrir að frekar illa horfi á
sumum sviðum s.s. í landbúnað-
inum, þá verður ekki annað sagt
en að bjartsýni um framtíðina
hafi verið lokaniðurstaða fundar-
ins á Hvammstanga, og sú svart-
sýni sem var þar við líði í haust sé
nánast horfin. G.Kr.