Dagur - 13.02.1987, Page 10

Dagur - 13.02.1987, Page 10
10 - DAGUR - 13. febrúar 1987 Lifandi ord „Mikill er drottinn og mjög vegsamlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur Sálm. 145,3. Við sjáum í Biblíunni, hvernig þjónar Guðs kom- ust í snertingu við Guð og voru gagnteknir af mikil- leika hans. Davíð tignar Drottin sem skapara og lýsir mikilleika hans í sköpunar- verkinu. En í sömu andrá og hann talar um mikilleika Guðs, minnir hann á smæð mannsins. „Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörn- urnar, er þú hefir skapað, hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans?“ Sálm. 8.4-5. Hvarvetna í sköpuninni má sjá mikilleikann, fjöl- breytileikann og fegurðina. Viskan sem að baki býr, er vissulega órannsakanleg. Pví er hollt að spyrja sjálfan sig: Hef ég komist í snert- ingu við mikilleika Guðs? Kem ég auga á vegsemd hans? Er Drottinn Guð mik- ill í huga mínum? Eða er ég haldinn blindleika hvað dýrð Guðs varðar? Drottinn var mikill í hjörtum þeirra manna og kvenna sem Ritningin grein- ir frá. Þess vegna var guðs- óttinn og lotningin fyrir Guði, sá þáttur, sem mótaði og helgaði líf þeirra. Jafnvel í þungum raunum er hægt að skynja mikilleika Guðs. Eftir sára þjáningu sagði Job: „Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig.“ Job. 42,5. Brýnast er þó, að sjá mikilleika Guðs í elsku hans til mannanna. í hjálpræðis- verki Krists kemur gleggst í ljós, hve mikill Guð er í kærleika og hve fús hann er að fyrirgefa. Ó, syng þú um dýrd Guðs á himnanna hæð; syngið nýjan söng, hvert hjarta, hver tunga, hver taug og hver æð. Öll veröldin vegsami Drottin. Grattan pöntunarlisti Vor- og sumarlisti 1987 kominn Glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Verð kr. 250.00, + póstkrafa ATH: Aðeins 500 listar verða seldir fyrir Norðurland Umboð Akureyri sími 96-23126 Kjördæmisráð Norðurlands eystra: Fundur um framboðs- listann á laugardag Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra boðar til fundar laugardaginn 14. febrúar klukkan 15.00 í Strandgötu 9, Akur- eyri. Á fundinum verður fjallað um framboðslista flokksins í kjördæminu vegna væntanlegra alþingiskosninga. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Kjördæmisráðsins. Firmakeppni í knattspyrnu innanhúss Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir þátttöku í firmakeppni innanhúss 1987. Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri og í nágrenni. Heimilt er fyrir tvo aðila að sameinast um lið í keppnina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í lið. Með þátttökutilkynningum skal fylgja nafnalisti yfir þá leikmenn er þátt taka og er óheimilt að breyta þeim lista eftir að keppni er hafin. Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn sem voru á launa- skrá fyrirtækis 1. febrúar sl. Bent skal sérstaklega á að leikið verður samkvæmt nýjum reglum, er samþykktar voru á síðasta K.S.Í. þingi. Þátttökulistum, ásamt þátttökugjaldi, kr. 4.000 fyrir 1 lið, kr. 7.000 fyrir 2 lið og kr. 2.000 fyrir hvert lið umfram 2, skal skila til Sveins Björnssonar Plastiðj- unni Bjargi eða Davíðs Jóhannssonar N.T. umboð- inu, fyrir 23. febrúar 1987. K.R.A. - Verslunin jhútiog / lann Sunnuhlíð 12, sími 22484. Erum að taka upp mikið af nýjum vörum. Meðal annars: Peysur - Blússur - Hliðartöskur - Þunna náttsloppa og mikið af skartgripum. Frá tónleikum Kammerhljómsveitar Akureyrar fyrr í vetur. Kammertónleikar í Akureyrarkirkju Þriðju tónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar verða haldnir í Akureyrarkirkju nk. sunnudag og hefjast þeir kl. 17. Einar Jóhannesson klartinettu- leikari flytur ásamt hljómsveit- inni tónverkið „Inngangur, stef og tilbrigði fyrir klarinett og hljómsveit" eftir Rossini. Auk þess leikur hljómsveitin „Tvö ljóðræn lög“ eftir Grieg og „Kveðjusinfóníuna“ eftir Haydn. Konsertmeistari hljómsveitarinn- ar er Lilja Hjaltadóttir og stjórn- andi Roar Kvam. Einar Jóhannesson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og var Gunnar Egils- son kennari hans. Hann braut- skráðist þaðan 1969 og hélt þá til framhaldsnáms við Royal Coll- ege of Music í London. Þaðan tók hann lokapróf 1974 og stund- aði eftir það kennslu í London auk þess. sem hann starfaði í hljómsveitum í Englandi og á N,- írlandi. Einar hefur undanfarin ár starfað í Sinfóníuhljómsveit íslands og oft komið fram sem einleikari bæði hér heima og er- lendis. Æskulýðsmót í Þelamerkurskóla Nú um þessa helgi fer fram æskulýðsmót á vegum ÆSK (Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti). Mót þessi hafa verið haldin í 10 ár, fyrst í Stóru- tjarnaskóla en síðustu árin í Þela- merkurskóla og er þetta fjórða mótið sem þar er haldið. Ein- kunnarorð þessa móts nú eru: VIÐ ERUM EITT í KRISTI. Þátttakendur eru vfða að af Norðurlandi og er lágmarksaldur 14 ár. Mótið verður sett á föstudags- kvöld og því lýkur með guðs- þjónustu í Möðruvallaklausturs- kirkju á sunnudag kl. 11. Við- fangsefni þau sem unglingarnir glíma við eru bæði líkarnlegs og andlegs eðlis. íþróttir, göngu- ferðir og leikir verða ofarlega á baugi, en þess á milli verður unn- ið með efni mótsins, hvernig við getum tekið höndum saman og sameinað hina sundruðu hjörð mannkynsins, - sameinað hana undir merki Krists. Rætt verður Stefán. Pétur. Auður. Bjarni. VIÐ HÖLDUM FUNDI Laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00 í samkomuhúsinu Grund, Svarfaðardai. Kaffiveitingar Sunnudaginn 15. febrúar ki. 21.00 í Barnaskóla Bárðdæla. Kaffiveitingar FUÖL.MENNUM Sérframboð í Norðurlandskjördæmi eystra. um sundrun fjölskyldulífsins í nútíma samfélagi og samskipti ungs fólks bæði í líkamlegu og andlegu tilliti. í guðsþjónustunni á sunnudag munu unglingarnir leiða sönginn, lesa upp og flytja orð Guðs á frjálsan og líflegan hátt. Sr. Svav- ar A. Jónsson prestur í Ólafsfirði flytur hugleiðingu. Þessi guðs- þjónusta er ætluð allri fjölskyld- unni, jafnt þeim yngstu sem elstu. Æskulýðsfélag Möðru- vallaklaustursprestakalls annast undirbúning mótsins og sér sóknarpresturinn sr. Pétur Þór- arinsson um mótsstjórn ásamt sr. Jóni Helga Þórarinssyni form. ÆSK og Pétri Þorsteinssyni æskulýðsfulltrúa. íþróttir helgarinnar Tveir leikir fara fram í kvöld í bikarkeppni Blaksambands íslands, báðir í íþróttahúsi Glerárskóla. KI. 20 leika KA og Óðinn í karlaflokki og strax á eftir hefst leikur KA og Eik- ar í kvennaflokki. Tindastóll og Þór leika á Sauð- árkróki í kvöld kl. 20 í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik. Kl. 18 í kvöld hefst í íþrótta- höllinni á Akureyri, opið ungl- ingamót í badminton og því verð- ur fram haldið kl. 10 í fyrramálið. Það verður ýmislegt að gerast hjá skíðafólki um helgina. Á Siglufirði fer fram bikarmót í alpagreinum í flokki 13-14 ára. Akureyrarmótið í svigi og stór- svigi fer fram í Hlíðarfjalli og hefst keppni kl. 11 bæði laugar- dag og sunnudag. Þórsmótið í skíðagöngu fer fram í Hlíðarfjalli á laugardag og hefst kl. 13. Keppt verður í öllum aldurs- flokkum. Loks má geta þess að 12 ára krakkar úr SRA ætla að heimsækja jafnaldra sína á Dal- vík á iaugardaginn og etja við þá kappi á skíðum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.