Dagur - 17.02.1987, Page 9
17. febrúar 1987 - DAGUR - 9
uþróttic_______________
Knatlspyma:
Guðbjöm til KA?
- þegar ákveöið með Ólaf og Jón
Guðbjörn Tryggvason
miðvallarleikmaðurinn sterki í
knattspyrnuliði íA var staddur
hér á Akureyri um helgina og
skoðaði aðstæður hjá KA og
átti í viðræðum við forráða-
menn félagsins. A þessu stigi
er þó ekki ljóst hvort Guð-
björn gengur til liðs við KA
fyrir komandi keppnistímabil
en hann yrði án efa liðinu mik-
iM styrkur.
Guðbjörn hefur leikið á annað
hundrað leiki með ÍA í 1. deild-
inni á undanförnum árum og
skorað 23 mörk, þar af 6 á síðasta
ári.
KA-menn hafa þó fengið
liðsstyrk, þar sem þeir Ólafur
Gottskálksson markvörður úr
IBK og Jón Sveinsson varnar-
maður, einnig úr ÍBK hafa
ákveðið að leika með liðinu
næsta sumar og er Jón þegar
kominn norður. Ólafur sem leik-
ur körfuknattleik með ÍBK kem-
ur norður þegar körfuknattleiks-
tímabilinu er lokið.
Bikarkeppni HSÍ:
„Þetta er hættu-
legur leikur“
- segir Þorleifur Ananíasson liðstjóri
KA um leikinn við ÍBV í kvöld
Handknattleikslið KA heldur
til Eyja í dag og leikur gegn
ÍBV í kvöld kl. 20 í bikar-
keppni HSÍ. KA-liðið á slæm-
ar minningar úr síðasta bikar-
leik í Eyjum en í fyrra tapaði
liöið mjög óvænt fyrir 3.
deildarliði Týs í keppninni og
var þar með úr leik.
„Þetta er hættulegur leikur,“
sagði Þorleifur Ananíasson lið*
stjóri KA aðspurður um leikinn.
„Eyjamenn hafa verið að sækja
sig að undanförnu og við megum
hafa okkur alla við til þess að
vinna þá. Það er allavega engin
hætta á því að við vanmetum þá í
þetta skipti,“ sagði Þorleifur.
KA-liðið er að koma úr ágætis
æfingaferð að sunnan, þar sem
liðið lék þrjá leiki á jafnmörgum
dögum, við FH, Stjörnuna og
KR.
Þórsmótið
í skíðagöngu
- fór fram um helgina
Þórsmót í skíðagöngu fór fram
í Hlíðarfjalli á laugardaginn.
Keppt var í fimm aldurs-
flokkum og var gengið með
hefðbundinni aðferð. Aðeins
var keppt í karlaflokkum og
virðist sem kvenfólk sé að
hætta þátttöku í göngumótum,
alla vega í elstu flokkunum.
Urslitin urðu þessi:
10 ára og yngri 1,5 km:
1. Ragnar Ingi Jónsson KA 9:59
2. Helgi H. Jóhannesson Þór 11:42
3. Anton Þórarinsson KA 12:26
11 og 12 ára 3,5 km:
1. Kári Jóhannesson KA 15:43
2. Arinbjörn Þórarinsson KA 19:30
13 og 14 ára 5,0 km:
1. Sigurður Helgason KA 25:08
2. Sverrir Guðmundsson KA 26:08
20 til 34 ára 10 km:
1. Ingþór Eiríksson Þór 38:11
2. Árni Antonsson KA 38:28
3. Jóhannes Kárason KA 35 til 50 ára 10 km: 45:11
1. Þorlákur Sigurðsson KA 44:30
Körfubolti:
Fyrstu stigin
til USAH
Hlíðarfjail:
Þeir hjá Skíðastöðum í Hlíðar-
fjalli hafa ákveðið að bjóða öll-
um Akureyringum frítt í skíða-
lyfturnar, í kvöld þriðjudag, mið-
vikudagskvöld og fimmtudags-
kvöld frá kl. 18 - 21 alla dagana.
Nú er afburðagott skíðafæri í
Fjallinu og skíðaskólinn í fullum
gangi. Akureyringar ættu því að
nýta þetta einstaka tækifæri og
fjölmenna í Fjallið.
USAH og Reynir áttu að leika
á HúnavöIIum á laugardaginn í
2. deild Islandsmótsins í körfu-
knattleik. Þetta var frestaður
leikur frá því í desember en
leikmenn Reynis mættu ekki
til leiks á laugardaginn.
Leikmenn USAH svo og dóm-
arar voru mættir og var USAH
því dæmdur sigurinn og er þetta
fyrsti sigur liðsins í vetur. Eftir
því sem Dagur hefur fregnað
töldu leikmenn Reynis áð þeir
hefðu ekki verið látnir vita af
KKÍ að leikurinn ætti að fara fram
á laugardaginn og þeir því ekki
mætt.
Um næstu helgi leika Reynir
og USAH í 2. deildinni og fer
leikurinn fram í Sandgerði.
Umsión: Kristján Kristjánsson
Akureyrarmeistar í stórsvigi stúlkna, Fv. Erna Káradóttir sem varð í 2. sæti, sigurvegarinn Guðrún Ágústdóttir sem
einnig sigraði í svigi og Kristrún Birgisdóttir sem varð í 3. sæti. Mynd: rpb
Akureyrarmótið í alpagreinum:
Guðrún vann tvöfalt
Akureyrarmótið í alpagreinum
í flokki 15 - 16 ára stúlkna og
pilta fór fram í Hlíðarfjalli á
laugardag og sunnudag. Þátt-
taka var sæmilega í piltaflokki
en Iítil í stelpnaflokki. Veður
og skíðafæri var eins og best
verður á kosið, báða keppnis-
dagana.
Úrslitin urðu þessi:
Stórsvig stúlkna:
1. Guðrún Ágústsdóttir KA 2:19.42
2. Kristrún Birgisdóttir KA 2:22.05
Stórsvig pilta:
1. Jóhannes Baldursson KA 2:09.14
2. Heiðar Jónsson KA 2:16.49
3. Vilhelm Þorsteinsson KA 2:16.53
Svig stúlkna:
1. Guðrún Agústsdóttir KA 1:21.91
2. Erna Káradóttir KA 1:22.68
3. Kristrún Birgisdóttir KA 1:23.05
Svig pilta: 2. Kristinn Svanbergsson KA 1:11.19
1. Vilhelm Þorsteinsson KA 1:10.72 3. Stefán Ákason KA 1:16.19
Vilhelm Þorsteinsson Akureyrarmeistari í svigi á fullri ferð. Mynd: rþb
A-lið KA sigraði
á Laugamótinu
A-lið KA sigraði á Laugamót-
inu í innanhússknattspyrnu
kvenna sem fram fór á Laug-
um í Reykjadal á sunnudag-
inn. Liðið sigraði alla andstæð-
inga sína á mótinu og er þetta
annað árið í röð sem KA vinn-
ur mótið. Alls mættu 7 lið til
leiks að þessu sinni frá 4 félög-
um. Eitt frá Laugaskóla og tvö
lið frá KA, Þór og KS og léku
allir við alla.
Úrslit leikja urðu þessi:
KS A-KS B 5:5
Þór B-KA A 3:14
KA B-Laugar 7:6
Þór A-KS A 5:2
KS B- ÞórB 4:3
KA A-KA B 7:4
Þór A-Þór B 11:6
KA B-KS B 5:5
Laugar-KA A 5:7
KS A-Þór B 4:6
Þór A-KA B 9:2
KS B-Laugar 2:7
KA B-KS A 6:2
KA A-KS B 5:3
Laugar-Þór A 4:7
Þór B-KA B 3:8
Þór A-KA A 4:6
KS A-Laugar 3:8
KS B-Þór A 0:8
KA A-KS A 10:0
Laugar-Þór B 5:2
KA A sigraði sem fyrr sagði í
öllum sínum leikjum. Þór A varð
í öðru sæti, tapaði aðeins einum
leik og í þriðja sæti varð KA B.
Vormót BLI
á Akureyri
Blaksamband íslands hefur kynnst blakinu á Ólympíuleikun-
veitt blakdeild KA heimild til
að halda Vormót BLÍ 1987.
Hafa KA-menn hugsað sér að
halda mótið til minningar um
Hermann Stefánsson en hann
er sagður vera forfaðir blaksins
á íslandi.
Hermann byrjaði að kenna
íþróttina í MA árið 1936 eða fyrir
rétt rúmuin 50 árum. Hann hafði
um í Berlín 1936.
Fyrirkomulag mótsins ræðst af
fjölda þátttökuliða. Þátttöku þarf
að tilkynna fyrir 24. febrúar.
Reiknað er með hámarki einu
karla- og einu kvennaliði frá
hverju félagi. Nánari upplýsingar
veita þeir Stefán Magnússon í
síma 96-26823 og Gunnar Garð-
arsson í síma 96-24476.