Dagur - 25.02.1987, Blaðsíða 3
25. febrúar 1987 - DAGUR - 3
Háskóli á Akureyri:
Fjórar námsbrautir
í nánum tengslum
við atvinnulífið
í nýútkominni skýrslu háskóla-
nefndar Akureyrar eru settar
fram hugmyndir um að fyrst
um sinn verði þar kennt á fjór-
um námsbrautum þ.e.a.s. mat-
vælafræði, iðnrekstrarfræði,
rekstrarhagfræði og sjávarút-
vegsfræði. Námstími er áætl-
aður frá IV2 ári upp í þrjú ár og
kennsla mun heijast fyrst í iðn-
rekstrarfræði haustið 1987.
Almennt inntökuskilyrði á
þessar námsbrautir er stúdents-
próf eða sambærileg menntun. Á
vissum námsbrautum verður þó
krafist starfsreynslu. Gert er ráð
fyrir að námið samsvari 30 ein-
ingum á námsári þar sem hver
eining sé að jafnaði einnar viku
vinna.
Háskólanefnd á vegum
menntamálaráðuneytis telur að
stefna beri að kennslu í matvæla-
fræði haustið 1988. Skipaður hef-
ur verið starfshópur til að undir-
búa þá kennslu. Háskólanefnd
Akureyrar styður þessa stefnu en
leggur jafnframt til að námið
verði í beinni tengslum við
atvinnulífið en núverandi nám í
matvælafræði við HÍ.
Moka upp skelinni
Mjög góð skelveiði hefur verið
að undanförnu hjá bátum frá
Húnaflóahöfnum og í síðustu
viku bárust um 74 tonn á land
á Blönduósi, af þeim tveim
bátum sem róa þaðan á skel.
Veiði Blönduósbátanna hefur
verið einstök þessa síðustu viku,
þeir eru rúman sólarhring í túrn-
um og koma með 11 og upp í 23
tonn. Þetta hefur að sjálfsögðu
þýtt aukna vinnu hjá Særúnu hf
en þar hefur verið unnið fram eft-
ir á kvöldin og einnig var unnið
síðasta laugardag.
Á Hvammstanga eru tveir bát-
ar á skel og þeir koma með um
tólf lestir að landi á dag, sem er
það magn sem hæfir vinnslunni
þar. Þeir gætu eflaust komið með
mun meira að landi en þá hefðist
ekki undan í vinnslunni svo
ávinningurinn væri hæpinn. Svip-
aða sögu er að segja frá Skaga-
strönd en þaðan stunda tveir bát-
•ar skelina og þeir koma með 18
til 20 tonn á sólarhring sem hent-
arvelfyrirvinnslunaþar. G.Kr.
Örvar hæstur en
ekki Akureyrin
Tölur eru með þeim ósköpum
gerðar að nær endalaust er
hægt að leika sér að því að fá
nýja og nýja útkomu úr sama
dæminu, sé vilji fyrir hendi.
Þetta á ekki síst við um það
þegar verið er að reikna út
met af einhverju tagi.
í nýlegri skýrslu L.Í.Ú. um
aflaverðmæti og úthaldsdaga
togara er t.d. að finna eitt slíkt
dæmi. Með smá eftirgrenslan
kom í ljós að ekki höfðu allir
reiknað samkvæmt sömu reglum
og því breitast niðurstöður
nokkuð. Togarinn Örvar kemur í
efsta sæti með meðai skiptaverð-
mæti pr. úthaldsdag kr,
568.235.00 en Akureyrin færist í
annað sætið með 553.614.70 og
fleira breytist. Örvar er með 273
úthaldsdaga en ekki 287 eins og
segir í skýrslunni og meðal afli á
úthaldsdag verður 16.8 eða nán-
ast sami og hjá Akureyrinni, sem
er með 296 úthaldsdaga.
Það hefur ekki verið vani
þeirra Skagstrendinga að hreykja
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í Degi sl.
mánudag við birtingu á lista yfir
fjárframlög til Sels 2, að sagt var
að þrjár gjafir væru í minningu
Haralds Olafssonar, Báru Sigur-
jónsdóttur og Jónínu Steinþórs-
dóttir. Rétt var hins vegar að
þessir aðilar sendu allir fjárfram-
lög í minningu Flosa Pétursson-
ar. Viðkomandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
sér þótt vel gengi í útgerðinni,
menn hafa einfaldlega gengið að
sinni vinnu og þakkað í hljóði
gott gengi. En nú þótti sem sagt
sumum nóg komið og sögðu sem
svo að það þýddi ekkert annað en
vera með í meta stríðinu, þó ekki
væri nema móralsins vegna, þá
væri ekki ástæða til annars en að
geta þess hvað Skagstrendingar
leggðu þjóðarbúinu til. G.Kr.
Stefnt er að því að kennsla í
iðnrekstrarfræði hefjist strax
næsta haust. Námstíminn verður
ll/2 ár og námið að öllu leyti sam-
bærilegt við nám í iðnrekstrar-
fræði við Tækniskóla íslands.
Háskólanefnd Akureyrar legg-
ur til að tekin verði upp kennsla á
þriggja ára námsbraut í rekstrar-
hagfræði þar sem sérstök áhersla
verði lögð á markaðsfræði.
Verulegur hluti þeirra greina
sem kenndar verða í iðnrekstrar-
fræði eru nátengdar greinum í
rekstrarhagfræði og sjávarútvegs-
fræði. Þannig verður í mörgum
tilfellum um sameiginlega fyrir-
lestra að ræða.
Ein af meginforsendum fyrir
því að nefndin telur rétt að stefna
að þriggja ára námsbraut í sjáv-
arútvegsfræði er einmitt að hinar
brautirnar þrjár veiti þá þegar
60% af greinum sem brautin
krefst. Einnig telur nefndin sýnt
að íslenskur sjávarútvegur þarfn-
ist mjög kunnáttufólks.
Tillögur um kennslu í sjávarút-
vegsfræðum eru sniðnar eftir
sjávarútvegsskólanum í Tromsö í
Noregi sem íslendingar hafa
talsvert sótt í. Sá skóli krefst 18
mánaða starfsreynslu og til þess
meðal annars að eiga möguleika
á framhaldsnámi þar er talið rétt
að setja svipuð skilyrði í háskóla
á Akureyri.
Nefndin telur rétt að stefna að
því að halda fyrirlestrum í lág-
marki en byggja námið að miklu
leyti upp á verkefnum í nánum
tengslum við atvinnulífið. ET
Almennir
stjórnmálafundir
B-listans
Laugardag 28. febrúar aö Laugaborg kl. 14.00.
Sunnudag 1. mars aö Þelamerkurskóla kl. 15.00.
(Ath. breyttan fundartíma.)
Frummælendur verða:
Valgeröur Sverrisdóttir
og
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson. ||[ ^
Þátttakendur á fundunum auk þeirra verða: Guö-
mundur Bjarnason, Þóra Hjaltadóttir, Valdimar
Bragason og Bragi V. Bergmann.
Fundirnir eru
öllum opnir.
B-listinn Norðurlandskjördæmi eystra.
Framlialcls
þorrablót
Félags aldraðra verður 7. mars og hefst kl. 7 eh.
Þeir sem áður urðu frá að hverfa láti skrá nöfn sín að
nýju hjá Helgu Frímannsdftur.
Þorramatur * Skemmtiatriði * Dans.
Aðgöngumiðar afhentir miðvikudag og föstu-
dag í næstu viku kl. 2-5 og kosta kr. 750,-
Framhaldsþorrablótið verður haldið í Húsi
aldraðra. Stjórnin.
Félag Málmiðnaðarmanna Akureyri
Fundarboð
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri
verður haldinn laugardaginn 28. þ.m. í Alþýðuhúsinu
og hefst kl. 13.00.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Kjaramál.
4. Fjármál.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
Skákþing
Akureyrar 1987
hefst á sunnudaginn 1. mars kl. 14.00 í opna
flokknum.
Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi, norræna afbrigð-
inu. Teflt verður þrisvar í viku, á sunnudögum, miðvikudögum
og föstudögum. Umhugsunartími er 40 leikir á 2 klst. á kepp-
anda, síðan fer skákin í bið.
Keppni í kvennaflokki hefst einnig á sunnudaginn 1. mars kl.
14.00.
Keppni í unglingaflokki (15 ára og yngri), drengja og telpna-
flokki 12 ára og yngri hefst laugardaginn 28. febrúar kl. 13.30.
Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi næstu þrjá laugar-
daga, þrjár umferðir í senn. Umhugsunartími er Vz tími á kepp-
anda. Vegleg verðlaun verða veitt í öllum flokkum.
Þátttökugjöld eru sem hér segir:
Fullorðnir kr. 800.-
Unglingar (f. '71 og síöar) kr. 400.-
Drengir og stúlkur (f. '74 eða síðar) og í kvennaflokki kr. 100.-
Hraðskákmót Akureyrar í unglinga- og drengjaflokki verður
laugardaginn 21. mars kl. 13.30 og í flokki fullorðinna og í
kvennaflokki sunnudaginn 29. mars kl. 14.00.
ATH. Febrúar 10 mín. mótið verður á morgun fimmtudag kl.
20.00. Öllum er heimil þátttaka í þessum mótum. Teflt er í
félagsheimili Skákfélags Akureyrar, Þingvallastræti 18.
Skákfélag Akureyrar.
Ódýr vinnufatnadur
Herragallabuxur.
St. 30-40. Verð aðeins kr. 795.-
Vinnuskyrtur.
St. 38-45. Verð aðeins 522.-
Fínrifflaðar flauelsbuxur.
St. 31-40. Verð aðeins 660.-
Grófrifflaðar flauelsbuxur.
St. 32-38. Verð kr. 850.-
Heilsuskórnir margeftirspurðu
komnir aftur.
St. 36-41. Verð kr. 821.-
Gjörid svo vel að líta inn
það marg-borgar sig.
W
u^SEu
Eyfjörð
Hjattsyrargotu 4 sími 22275