Dagur - 26.02.1987, Side 2

Dagur - 26.02.1987, Side 2
2 - DAGUR - 26. febrúar 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari.____________________________ Norðurlönd og utanríkísmálin í ræðu sinni á Norðurlandaráðsfundi í Hels- inki fjallaði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra um samstarf Norðurlandanna á ýmsum sviðum. Nokkrar deilur urðu um það, hvort Norðurlandaráð ætti að vera vettvang- ur fyrir umræður um utanríkismál. íhaldsöflin sneru þar bökum saman gegn því og gekk ekki hnífurinn á milli Sjálfstæðisflokksins og annarra íhalds- og hægriflokka á Norðurlönd- um. Steingrímur Hermannsson kom hins veg- ar inn á þetta og sagði: „Af mörgum ástæðum er æskilegt að Norðurlöndin standi saman og komi sem mest fram sem ein heild. Ástand heimsmála er þannig, að engin þjóð getur látið það afskiptalaust. Sameinuð geta Norðurlöndin haft veruleg áhrif. Ég nefni kjamorkuvopnakapphlaupið, sem er fyrir löngu komið á svo alvarlegt stig, að segja má að heimurinn standi á bjargbrún- inni. í þeim efnum er ekkert viðunandi nema útrýming kjarnorkuvopna. Þótt þetta mál sé fyrst og fremst í höndum stórveldanna, verða Norðurlöndin að beita áhrifum sínum eins og þau geta. Ég nefni einnig vaxandi mengun og spill- ingu umhverfis. Þar er af nógu að taka. Slysið í Chernobyl færði okkur heim sanninn um það að hin fjölmörgu kjarnorkuver eru óörugg og ógnun við heimsbyggð. Þau verður að setja undir strangt alþjóðlegt eftirlit. Eyðing skóga og annars gróðurs og mengun vatna eru nærtæk dæmi. Er furðulegt hve hægt gengur að fá þar snúið vörn í sókn. Eitt alvarlegasta dæmið um spillingu umhverfis er eyðing hins svonefnda óson- lags. Fyrir því eru nú óyggjandi sannanir. Samt sem áður þrjóskast menn við og haldið er áfram framleiðslu þeirra efna, sem tjóninu valda. Á slíkum sviðum og fjölmörgum öðrum þurfa Norðurlöndin að beita sér í vaxandi mæli. Norðurlandabúar eru þekktir fyrir að vera víðsýnt fólk, sem byggir ákvarðanir sínar á rökrænni hugsun. Norðurlöndin sameinuð geta því átt stóru hlutverki að gegna í þeirri viðleitni að bæta mannlíf á þessari jörð," sagði Steingrímur Hermannsson á fundi Norðurlandaráðs. HS viðtal dagsins________________ „Krabbameinsfélögin hafa alitaf verið fremst í flokki í baráttunni gegn reykingum“ - segir Þorvarður Örnólfsson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur Krabbamcinsfélag Reykjavík- ur er merkilegt félag sem hefur unnið, ásamt öðrum krabba- meinsfélögum, að baráttunni gegn krabbameini um langt skeið. Þessi barátta fer fram á mörgum vígstöðvum og eitt af því sem félagið beitir sér fyrir er fræðsla í skólum landsins um skaðsemi reykinga og tengsl þeirra við krabbamein. Margir hafa heyrt um þessa fræðslu og notið góðs af en færri þekkja fólkið sem stend- ur þar að baki. Þorvarður Örnólfsson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavík- ur, var staddur á Akureyri á dögunum ásamt aðstoðar- mönnum sínum og notaði blaðamaður tækifærið og ræddi við hann. - Hvaðan ert þú af landinu, Þorvarður? „Ég er fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð og ólst þar upp til átján ára aldurs. Mamma var m.a. af Kjarnaætt í Eyjafirði og pabbi var af Víkingavatnsætt í Kelduhverfi. Það er því drjúgur Norðlendingur í mér en auðvitað er ég fyrst og fremst Súgfirðing- ur.“ - Hvers vegna fluttist þú suður átján ára gamall? „Pabbi var útgerðarmaður og kaupmaður á Suðureyri og hafði um skeið umfangsmikinn atvinnurekstur. Þegar við syst- kinin stálpuðumst þá var það bæði ósk okkar og foreldra okkar að við gætum menntast. Það varð svo úr að við fluttum öll suður til Reykjavíkur. Pabbi var við útgerð áfram en hætti því svo og vann lengi í Útvegsbankanum í Reykjavík.“ - Hvernig var skólagöngu þinni háttað? „Ég hafði lokið tveimur fyrstu bekkjum menntaskóla áður en við fluttum suður og ég lauk stúd- entsprófi nokkru eftir komuna til Reykjavíkur. Ég var í mörg ár við kennslu og kenndi eingöngu við Kvennaskólann í Reykjavík, aðailega stærðfræði. Ég hélt áfram að kenna og settist í laga- deild Háskóla íslands og þaðan lauk ég námi árið 1966. Ég fór aldrei út í lögfræðistörf en réði mig sem framkvæmdastjóra hjá Félagsstofnun Stúdenta árið 1968 og var fyrsti maðurinn sem var í því starfi. Þar var ég í fimm ár og tók þátt í miklu uppbyggingar- starfi. Árið 1973 hætti ég þarna og fór til Barnavinafélagsins Sumargjafar og var fram- kvæmdastjóri þar í tvö ár. Öll þessi ár hafði ég haft mik- inn áhuga fyrir heilbrigðismálum, einkum áfengis- og tóbaksvörn- um, og þegar starf framkvæmda- stjóra Krabbameinsfélags Reykjavíkur losnaði sótti ég um það og var ráðinn. Ég kom með ýmsar nýjar hugmyndir um það hvernig mætti ná árangri í barátt- unni við krabbameinið og ná bet- ur til ungs fólks með fræðsluna." - í hverju voru þessar hug- myndir frábrugðnar eldri hug- myndum? „í fyrsta lagi var ákveðið að byrja fræðsluna hjá yngri börnum en áður hafði tíðkast. Einnig var reynt að láta þau fræða enn yngri börn. Það var líka nýjung að fara inn í bekkina, einn og einn í einu. Það má segja að ég hafi haft það að einkunnarorðum að besta aðferðin til að berjast gegn reyk- ingum ungs fólks sé barátta unga fólksins sjálfs gegn reykingum. Þetta hefur líka reynst vel að öllu leyti.“ - Voru fleiri á þessari sömu skoðun? „Já, ég fékk strax mikinn hljómgrunn, bæði hjá stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur og hjá stjórn Krabbameinsfélags íslands. Það verður að skýra það að Krabbameinsfélag Reykjavík- ur er aðeins eitt af rúmlega tuttugu Krabbameinsfélögum á landinu. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hafði tekið að sér fyrir nokkuð mörgum árum að sinna þessu fræðslustarfi, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land. Við gátum nýtt okkur fyrri tengsl félagsins við skólanna þannig að greiðara samstarf fékkst fyrir bragðið þegar við fór- um út í breyttar baráttuaðferðir. Ég byrjaði sem framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur 1. nóvember 1975 og við hófum fræðslu í tilrauna- skyni í nokkrum skólum í Reykjavík. Þetta gaf það góðan árangur og góðar vonir um fram- haldið að það var ákveðið að halda áfram með fræðsluna á svipaðri braut.“ - Viltu nefna einhverja sér- staka menn sem komu mest við sögu krabbameinsfélagsins á þessum tíma og stuðluðu að fræðslu og áróðri gegn reyking- um? „Krabbameinsfélögin hafa allt- af verið í fremstu röð í baráttunni gegn reykingum á íslandi. Ég vil fyrst nefna prófessor Níels Dung- al sem stofnaði Fréttabréf um heilbrigðismál og ritaði í þau fjölda greina um skaðsemi reyk- inga. Hann var á undan sinni samtíð að mörgu leyti. Síðan kom Bjarni Bjarnason, læknir, og fetaði í fótspor hans af geysi- legum áhuga. Það mætti auðvitað nefna fleiri en mér finnst þeir tveir standa upp úr. Við í krabbameinsfélögunum höfum fengið góðan hljómgrunn og stuðning frá mörgum aðilum í heilbrigis- og menntakerfinu og fleirum utan félaganna sem vildu styðja þetta átak.“ - í hverju er þitt starf núna aðallega fólgið? „Ég byrjaði einn í þessu og þetta var byggt þannig upp að það var farið í skólana og talað við nemendurna. Það voru ekki teknir stórir hópar í einu heldur farið í bekkina og rætt við nemendur í minni hópum. Rætt var um ýmsar hliðar reykinga- vandamálsins og fyrri árin var unnið að ýmsum verkefnum í hópvinnu undir stjórn kennara og síðan var talsvert um það að Háskóli á Akureyri: Þrjú hundruð nemend- ur á fjórða starfsári í áætlun um nemendafjölda í háskóla á Akureyri er gert ráð fyrir að á fjórða starfsári skól- ans og þar eftir verði nem- endur um 300 á ári. Þá er mið- að við kennslu á fjórum braut- um iðnrekstrarfræði, matvæla- fræði, rekstrarhagfræði og sjávarútvegsfræði. í þessum áætlunum er gert ráð fyrir því að 19% nemenda að meðaltali, hverfi frá námi á ári hverju og þriggja ára námsbraut útskrifí því 55% þeirra sem innrituðust á fyrsta ár. Aðsókn í matvælafræði í HÍ hefur verið lítil undanfarin ár. Engu að síður telur nefndin að með því að bjóða upp á hag- nýtara nám hér, megi gera ráð fyrir að 20 nemendur innritist ár hvert og kennsla hefjist haustið 1988. Nemendafjöldi á 2. ári yrði því samkvæmt „19% reglunni“ 16 og 13 á þriðja ári, samtals 49 nemendur. í TÍ sækja árlega 80 manns um nám í iðnrekstrarfræði en aðeins 30 komast að. í skýrslunni er því gert ráð fyrir mikilli aðsókn í þetta nám en samt sem áður lagt til að einungis 30 nemendur verði teknir inn í upphafi og því aðeins kennt í einni bekkjardeild á hvoru ári. Gert er ráð fyrir að 10% þeirra nemenda sem innrita sig árlega í viðskiptadeild HÍ, sækist eftir námi í rekstrarhagfræði, eða um 30 manns. Auk þess er gert ráð fyrir öðrum eins fjölda þeirra sem ekki hafa hug á viðskipta- fræðinni. Því er gert ráð fyrir að kennsla hefjist 1988 í tveimur bekkjardeildum. Um 10 íslendingar sækja árlega sjávarútvegsskólann í Tromsö. I skýrslu háskólanefnd- ar Akureyrar er gert ráð fyrir 80% þessa fólks auk þess sem annað eins bætist við. Því er gert ráð fyrir 20 nemendum á fyrsta ári, haustið 1988. Miðað við áðurnefndar for-: sendur verði nemendafjöldi skól- ans veturinn ’87/’88 30 nemendur. Þeir verða 154 ’88/’89, 234 ’89/’90 og 300 nemendur veturinn ’90/’91. Ef miðað er við 30 nemenda hámark í bekkjardeild verða 14 deildir við skólann vetur- inn ’90/’91. ET

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.