Dagur - 26.02.1987, Síða 13

Dagur - 26.02.1987, Síða 13
26^éöf‘úéf'tÖ»7--D Ályktun SUF um fjölskyldumál Samband ungra framsóknar- manna telur að efla þurfi stöðu fjölskyldunnar í þjóðlífinu. Mikilvægt er að stuðla að því að fjölskyldan geti átt fleiri og lengri samverustundir en nú er. Þýðingarmikið í þessu skyni er að stytta vinnutíma foreldra. Þess vegna þarf á næstu árum að leggja höfuðáherslu á aukna framleiðni í öllum atvinnu- greinum landsmanna. Það er forsendan fyrir hærri launum og meiri kaupmætti sem gerir auka- vinnu óþarfa til að framfleyta fjölskyldunni. Einnig þarf að skipuleggja vinnutíma þannig að fjölskyldan geti verið meira saman. SUF telur að eitt af því sem skipti hvað mestu máli fyrir örugga afkomu fjölskyldunnar er tryggt húsnæði á viðunandi kjörum. Á því kjörtímabili sem er senn á enda hefur verið stigið mjög stórt skref í þá átt að gera fjölskyldum kleift að komast yfir eigið húsnæði á viðráðanlegum kjörum. SUF telur að gera þurfi betur og auka valkostina innan kerfis- ins, t.d. að auka framboð leigu- húsnæðis og íbúða á félagslegum grundvelli. Koma þarf á húsaleigustyrkjum til að jafna húsnæðiskostnað og minnka útgjöld fjölskyldunnar. Tekið verði tillit til mismunandi fjöl- skyldugerða við hönnun hús- næðis. Skapa þarf skilyrði fyrir gott uppeldi barna og unglinga og félagslegt öryggi fjölskyldna með börn. Byggja þarf upp útivistar- svæði þar sem tekið er tillit til þarfa allra aldurshópa. Tryggt verði öryggi og vellíðan barna meðan foreldrar vinna úti með byggingu og rekstri dag- vistunarheimila fyrir öll börn sem verði foreldrum til aðstoðar og eðlileg viðbót við uppeldi á hei- milum. Komið verði á fjölskyldu- launum til foreldra sem eiga börn á dagheimilaaldri. Á þann hátt verði foreldrum veittir valkostir um á hvaða hátt þeir kjósa að hafa á gæslu barna. Fjölskyldu- laun verði greidd beint til for- Eiríkur Valsson, kosningastjóri B-listans í Reykjavík, fjallar um kosninga- undirbúninginn í sínu kjördæmi. íþrótta- og æskulýðsmál í höndum frjálsra félaga SUF telur að íþrótta- oog æsku- lýðsstarf eigi að vera sem mest í höndum frjálsra félaga og sam- taka þeirra. Auka ber samvinnu þeirra aðila sem að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum vinna. Meiri félagsstarfsemi og félagsmálafræðslu í skóla - Aukum samnýtingu skólahúsnæðis SUF telur að brýnt sé að auka félagsstarfsemi og félagsmála- fræðslu í skólum. Leggja þarf áhérslu á samnýtingu skólahús- næðis og annarra opinberra bygg- inga sem ætlaðar eru til tóm- stundastarfa og tryggja þarf afnot félagasamtaka og einstaklinga af þessu húsnæði sem kostur er. i Iþróttir fyrir alla aldurshópa og ekki síst aldraða Byggja þarf upp íþróttastarf fyrir fullorðna og sá hópur mun fara stækkandi á næstu áratugum, og hann má alls ekki gleymast við skipulagningu íþrótta- og tóm- stundastarfs. íþrótta- og tómstundamál fatlaðra SUF leggur áherslu á áframhald- andi uppbyggingu á starfsemi fatlaðra í íþróttum og tómstund- um. Áríðandi er samheldni og hópvinna fatlaðra sem eru að mörgu leyti afskiptari en gerist og gengur í þjóðfélaginu. íþróttir og tómstundir eru einmitt samein- ingartákn þeirra eins og annarra þegna. Sveitarstjórnir sinni íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum Hvetja þarf sveitarstjórnir til að sinna íþrótta-, æskulýðs- og tóm- stundamálum meir en nú er. Tal- ið er að i því felist öflugasta tæk- ið sem völ er á í báráttunni gegn fíknefnavandanum. Rekstur æskulýðsmiðstöðva er mikilvæg- ur í þessum efnum, enda þjóna þær m.a. þeim hópum unglinga sem ekki taka þátt í starfi íþrótta- félaganna. Félögin reisi eigin mannvirki - Eflum íþróttasjóð og félagsheimilasjóð - byggingarstyrki á byggingartíma SUF telur að sem flest íþrótta- og æskulýðsfélög eigi að eiga kost á uppbyggingu eigin mannvirkja. í því skyni er brýnt að efla íþrótta- sjóð ríkisins og að félagsheimila- sjóður haldi sínum mörkuðu tekjustofnum. Þessir sjóðir eru undirstaða uppbyggingarstarfs þeirra aðila sem vinna að íþrótta- og tómstundamálum. Efling þeirra er skilyrði þess að þetta starf haldi áfram að eflast og þróast í takt við auknar kröfur nútímans. Æskilegt er að sjóðir þessir veiti fjármagn til íþrótta- mannvirkja og félagsheimila strax á byggingartíma þeirra. Jafnframt eru sveitarfélög hvött til þess að styðja mannvirkjagerð félaganna á sams konar hátt og ríkið. Endurskoðun íþróttalaga - Fjármögnun íþrótta- hreyfingarinnar SUF telur að endurskoða þurfi íþróttalög. í þeirri endurskoðun þarf að marka stefnu í fjármögn- un íþróttahreyfingarinnar, svo að þeir sem stýra þessu starfi geti einbeitt sér að öðrum viðfangs- efnum en fjáröflun. Stjórn SUF, sem kjörin var á Hrafnagili sl. haust. Efri röð f.v.: Þorsteinn Húnbogason, Yesturlandi, Sigurður Jónsson, Austurlandi, Bragi V. Bergmann, Norðurlandi eystra, Gissur Pétursson, formaður, Reykjavík, Guð- mundur Gylfi Guðmundsson, Reykjavík, Hjörtur Bergmann Jónsson, Suðurlandi, Lárus Finnbogason, Reykjavík og Sveinn Bernódusson, Vestfjörðum. Fremri röð f.v.: Guðrún Sighvatsdóttir, Norðurlandi vestra, Þórunn Guðmundardóttir, Reykjavík og Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Suðurlandi. Á myndina vantar Hall Magnússon, Reykjavík og Þórð Ægi Óskarsson, Reykjanesi. Mynd bv. Alyklun um skattamál Miðstjórnarfundur SUF fagnar þeim áfanga sem næst þegar ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar kemur á staðgreiðslukerfi skatta hér á iandi. Brýnt er að hér verði ekki látið staðar numið. Vinna þarf sleitulaust áfram að endurskoðun skattkerfisins, sérstaklega þeim þáttum er snúa að fyrirtækjum og einstaklingum með atvinnu- rekstur. Brýnt er að rýmka mjög heimildir skattstjóra til að áætla tekjur á sjáfstæða atvinnu- rekendur sem skattar þeirra ráð- ast af. Miðað verði við að endur- skoðuninni ljúki fyrir árslok 1987 svo að á árinu 1988 gildi ný skatta- löggjöf jafnt fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki. Notað verði ann- að hærra skattþrep fyrir há- tekjur. Það skref sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur nú stigið er aðeins fyrsta skrefið í heildarendurskoðun á tilhögun beinna skatta og óbeinna, endur- skoðun er miðar að því að upp- ræta skattsvik. Skýrsla „skatt- svikanefndar" verði höfð að leiðarljósi í áframhaldandi starfi við að bæta þau göt skattkerfisins sem skattsvikurum eru ennþá fær. Skattsvik verði meðhöndluð í dómskerfinu með sama hætti og hver önnur sakamál er lúta að fjársvikum. Bæta verður kjör þeirra sem við skatteftirlit starfa svo fjölga rnegi starfsliði þar og skattstofurnar fái betur þjónað því hlutverki sem þeim ber við rannsókn skattsvika. Myndir & texti: Bragi V. Bergmann Tveir fulltrúar frá Norðurlandi eystra í þungum þönkum, Þorsteinn Sigurðs- son og Unnur Pétursdóttir. eldra frá ríki og miðist við tekjur og fjölskyldustærð. Lög um fæðingarorlof verði endurskoðuð þannig að þau tryggi öllum foreldrum greiðslu hjá Tryggingastofnun ríkisins án tillits til atvinnuþátttöku. Jafn- framt verði fæðingarorlof lengt. Heimavinnandi maki fái fullar tryggingabætur eins og aðrir launþegar. Skólatími verði samfelldur og börn fái málsverð í skólum og aðstöðu til heimanáms. Aukið verði samstarf heimila og skóla. Tryggt verði að fatlaðir nemendur hafi jafna aðstöðu til skólanáms og aðrir. Nauðsynlegt er að starfsfólk í uppeldisstéttum fái betri kjör einkum kennarar og fóstrur, þannig að þau störf verði eftirsóttari en áður. Stóraukin verði fræðsla um skaðsemi ávana- og fíkniefna í skólum, heilsugæslustöðvum og fjöl- miðlum. Efldur verði stuðningur við tómstundastörf ungmenna t.d. þær íþróttagreinar sem eru vel til þess fallnar að stuðla að samveru fjölskyldunnar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.