Dagur - 06.03.1987, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 6. mars 1987
„Það má víða auka
hagkvæmni"
- segir Helgi Ólafsson rafvirki
Það er kunnara en frá þurfí að
segja að víða leynast hugvits-
menn í þessu ágæta landi
okkar. Þeim er það sameigin-
legt að láta ekki mikið yfir eig-
in ágæti, nema svona einum og
einum, og því veit fólk ógjarn-
an af afrekum þessara manna.
Á Hvammstanga er maður
sem fáir vita af, enda þótt
þeir sem hann þekkja viti vel
að þar er á ferðinni einn þessara
manna. Sennilega þykir það svo
sjálfsagt að Helgi Ólafsson raf-
virkjameistari fái góðar hug-
myndir að fólki sem umgengst
hann dags daglega finnst óþarfi
að vera að minnast á það.
En það finnst ekki öllum og
þar með talinn undirritaður sem
hitti Helga að máli á Vertshúsinu
á Hvammstanga fyrir skömmu.
- Hvað ert þú að fást við núna
Helgi?
„Eg er að reyna að gera sumt
af vélunum í saumastofunni
Drífu sjálfvirkt. Það er um að
ræða vissar vélar í sambandi við
þvottinn, og þær verða raf- og
tölvustýrðar. Við erum nú rétt að
byrja á þessu en höfum samt náð
talsverðum árangri.“
- Hvað vinnst helst við þetta,
og hvað með kostnaðinn?
„Það vinnst margt við þetta.
T.d. eykst framleiðsluhraðinn og
kostnaður pr. kíló í framleiðslu
lækkar. Kostnaðurinn við þessar
Helgi Ólafssun
breytingar hjá Drífu verður smá-
munir einir hjá því sem nýjar vél-
ar myndu kosta. Það er alveg
öruggt að það má víða auka hag-
kvæmni með aðgerðum sambæri-
legum þessum."
Helgi hefur fengist við margt
annað en vélar á prjónastofu, og
má m.a. nefna að hann smíðaði
hitastýritæki fyrir böðin í sund-
lauginni á Hvammstanga og hafa
þau reynst vera mun nákvæmari
en áður þekktist.
Þá smíðaði Helgi skólabjöllu-
kerfi bæði fyrir Hvammstanga og
Laugabakkaskóla. Bjöllukerfi
þessi eru bæði miklu ódýrari og
fyrirferðarminni en þau sem buð-
ust frá öðrum. Bjöllukerfið er
ákaflega einfalt í notkun og ptill-
ingin helst í fjóra sólarhringa þó
rafmagn fari af. Kostnaður við
bjöllukerfið í Grunnskóla
Hvammstanga var um 50 þúsund
en hefði að öllum líkindum orðið
um 150 þúsund miðað við það
sem bauðst frá öðrum. G.Kr.
Peugeot 205. „Besti bíll í heimi“
Peugeot 205 hefur verið valinn „besti bíll í heimi"
annað árið í röð af hinu virta býska bílablaði
„Auto Motor und Sporf'.
Peugeot 205 sameinar aksturseiginleika, þœgindi,
öryggi og sparneytni betur en nokkur annar bíll í sínum
verðflokki að mati kröfuharðra Þjóðverja.
Peugeot205 erframdrifinn, fjöðrun í sérflokki, kraftmikill
og hljóðlátur.
Komið, reynsluakið og sannfœrist.
Verðfrá kr.: 318.700-
Peugeot 309.
Nýr bíll frá Peugeot
Við bjóðum velkominn til íslands nýjan glœsilegan
fulltrúa frá Peugeot, Peugeot 309.
Miklar rannsóknir og reynsla af Peugeot 205,
hárnákvœm vinnubrögð, því hann er að mestu settur
saman af vélmennum, tryggja hátœknileg gœði.
Peugeot 309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með
fjöðrun í Peugeot gœðaflokki. Það ásamt eyðslu -
grönnum vélum og lágri bilanatíðni gera 309 að bíl fyrir
íslenskar aðstœður.
Verð frá kr.: 403.600-
:h£un.LLT.y
Sýnum Reugeot árg. 1987
um helgina
6. mars 1987 - DAGUR - 11
Peugeot 505.
Flaggskipið frá Peugeot
Peugeot 505 hefur sannað ágœti sitt með margra ára
reynslu við íslenskar aðstœður.
Peugeot 505 er rúmgóður, þœgilegur, traustur og
sparneytinn bíll.
Peugeot 505 er fáanlegur bœði sem fjögurra dyra
fólksbíll og skutbíll með sœtum fyrir allt að átta.
Peugeot 505 er kraftmikill bíll með fjöðrun í sérflokki og
splittað drif að aftan o.fl. o.fl.
Verð frá kr.: 606.300,-
Peugeot 205 GTI
Bíllinn sem sigraði Evrópu nú loks fáanlegur á íslandi.
Peugeot 205 GTI, fremstur á meðal jafningja, hefur
vegna frábœrra aksturseiginleika verið valinn
„Sportlegi bíll ársins" af flestum virtustu bflablöðum
Evrópu.
Peugeot 205 GTI er fáanlegur með 115 hestafia vél
með viðbragð 8,6 sek. í 100 km hraða og 130 hestafla
vél með viðbragð 8,1 sek. í 100 km hraða.
Þegar sest er undir stýri er orðið „stjórnklefi" efst í huga
ökumannsins. Sœtið gefur réttan stuðning og öllum
mœlum og stjórntœkjum komið svo fyrir að ökumaður
hafi góða yfirsýn og greiðan aðgang.
Innifalið í verði: Álfelgur, litað gler, þokuljós að framan,
snúningshraðamœlir, olíuþrýstimœlir, digitalklukka o.fl.
Verð frá kr.: 618.700,-
ALCLiiGUL'L
Opið laugardag, kl. 13-17.
Opið sunnudag, kl. 13-17.
VÍKINGUR SF
Furuvöllum 11, Akureyri
u
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2. Sími 42600.