Dagur - 06.03.1987, Qupperneq 13
'ól' rnárs i ðé/- DAGIJR- Í3
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna
- messa í Bægisárkirkju
á föstudagskvöld
Næstkomandi föstudagskvöld
verður dálítið sérstök guðs-
þjónusta í Bægisárkirkju á
alþjóðlegum bænadegi
kvenna. Konur munu taka
virkan þátt í liðum messunnar
og verður presturinn meira
sem aðstoðarmaður en í aðal-
hlutverki. Ingibjörg Sigurjóns-
dóttir, prestsfrú á Möðruvöll-
um, mun flytja hugvekju og
nokkrar konur úr prestakallinu
annast ýmsa liði, svo sem lest-
ur og bænaflutning. Ingólfur
Jónsson, organisti, mun sjá um
söngstjórn.
Alþjóðlegur bænadagur
kvenna er nú haldinn í hundrað-
asta skipti. F>að var árið 1887 sem
kona nokkur í Bandaríkjunum
gekkst fyrir bænadegi til hjálpar
bágstöddum innflytjendum.
Smám saman varð þessi dagur
útbreiddari og árið 1919 voru
þessi bænadagur og bænadagur
fyrir kristniboði sameinaðir í
einn bænadag; alþjóðlegan bæna-
dag kvenna. Fyrsti föstudagur í
mars hefur hefur verið valinn
sem bænadagur og er yfirskrift
þessa dags „Komið, fögnum fyrir
drottni."
Aðalfundur KA í kvöld:
Fjallað um
byggingu
íþróttahúss
í kvöld verður aðalfundur
Knattspyrnufélags Akureyrar
haldinn í KA-heimilinu. Fund-
urinn hefst klukkan 20.30 og
eru allir KA-menn hvattir til
að mæta.
Dagskrá fundarins er þannig
að fyrst eru venjuleg aðalfundar-
störf, skýrsla stjórnar og kosning-
ar. Síðan verða fluttar skýrslur
allra deilda og því næst mun
söguritunarnefnd gera grein fyrir
stöðu mála varðandi ritun 60 ára
sögu félagsins. Einnig má búast
við almennum umræðum um það
sem er á döfinni hjá félaginu.
Síðast en ekki síst mun svo
gestur fundarins, Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSI, fjalla
um byggingu íþróttahúsa og
fjármögnunarleiðir. Eins og
komið hefur fram stendur til að
KA ráðist í byggingu eigin
íþróttahúss og er þar um gríðar-
lega mikið verkefni að ræða og
mikilvægt að allir hjálpist að.
Hvammstangi:
Jón L. teflir
fjöltefli
Jón L. Árnason stórmeistari
kemur til Hvammstanga og teflir
fjöltefli í grunnskólanum. Fjöl-
teflið er öllum opið og þurfa
menn aðeins að gæta þess að
mæta tímanlega og hafa með sér
töfl. Koma Jóns er mikill hvalreki
á fjörur skákáhugamanna í sýsl-
unum, þar sem það háir iðulega
skákmönnum landsbyggðarinnar
hvað þeir fá fá tækifæri til að tefla
við sterka skákmenn. Fjölteflið
hefst klukkan fjórtán og fer fram
í grunnskólanum eins og fyrr
sagði. G.Kr.
Iþróttir helgarinnar
Völsungur leikur fyrsta heima-
leikinn í 3. deildinni í hand-
bolta í nýja íþróttahúsinu á
Húsavík á laugardaginn kl. 14.
Mótherji Völsungs er lið ÍH úr
Hafnarfirði.
Visa-bikarmót SKÍ, Her-
mannsmótið fer fram í Hlíðar-
fjalli um helgina og verður keppt
í svigi og stórsvigi í flokkum
karla og kvenna. Keppnin hefst
kl. 10.30 báða dagana.
Annar hluti fslandsgöngunnar,
Lambagangan fer fram á laugar-
daginn. Keppnin hefst kl. 12 og
verður gengið frá Súlumýrum
ofan við Akureyri.
íslandsmótið í júdó fer fram í
íþróttahúsi Kennaraháskólans á
laugardaginn og hefst kl. 10. 44
keppendur frá júdódeild KA
taka þátt í mótinu.
Tilboð í herradeíld
Gallabuxur kr. 695.-
Gallajakkar kr. 1.695.-
Herra- og unglinga- leðurjakkar
verð frá kr. 11.900.-
Herrapeysur V-hálsmál kr. 1.190,-
Herraskyrtur kr. 390,-
Fallegur fatnaður
á ótrúlegu verði!
Fallegir
fermingarskór
ÞJÓIILÍF
Skilnaður:
Reynslusögur
Kona:... Mér fannst sem fótunum
hefði skyndilega verið kippt undan
mér og þessi fasti punktur í tilverunni,
maðurinn sem ég elskaði og hafði
deilt með gleði og sorg, væri mér
gjörsamlega glataður...
Mér tókst þó að halda andlitinu í
vinnunni en grenjaði þeim mun meira
í einrúmi...
Karlmaður:... Núna er liðið um það
bil hálft ár frá skilnaðinum. Það væri
argasta lygi ef ég segðist vera búinn
að ná áttum. Ég burðast enn með
góðar tilfinningar í garð konunnar
fyrrverandi. Ást? Veit það ekki. Ég er
líka fullur reiði í garð hennar. Reiði yfir
því að hún hefur neytt mig til að breyta
lífi mínu og taka upp nýjan lífsstíl sem
ég kann ekki við ...
Unglingur:... Ef ég mun einhvern-
tíma gifta mig, þá vona ég að það
hjónaband muni endast þar til
dauðinn aðskilur oss ...
Mexíkó: Land
andstæðnanna
... Níu klukkutímaflug færði mig inní
annan heim, þar sem ég þurfti að læra
að lifa uppá nýtt.. Eftir sex mánaða
dvöl höfðu öll skilningarvit aðlagast
staðháttum, hin skítugu stræti voru
orðin heillandi, ilmurinn frá matsölu-
stöðunum sem vakti ógleði í byrjun
var orðinn lokkandi og mannþröngin
aðlaðandi...
Kæri Jón Baldvin:
- Bréf trá Svani Kristjánssyni.
... Dettur þér virkilega í hug, að
Sjálfstæðisflokkurinn geri þig að
forsætisráðherra, jafnvel þó þú sért
eini maðurinní landinu, að eigin sögn,
sem hefur sérstaklega lært til þess
starfs í skóla ...
Eggert feldskeri og
náttúruverndin
Líf útlagans:
- Douglas Ivez Rivera Pineda
Ó, þú sæli reykur
Iðunn og Kristín
Steinsdætur
:
Q
Memphishönnunin:
... Svo dýr, að jafnvel fjársterkustu
aðilar hugsa sig tvisvar um áður en
þeir fjárfesta í einum Memphisstól
eða -borði... Hlutirnir hafa þegar
öðlast söfnunargildi, þó að ekki séu
nema sex ár frá því að Memphishóp-
urinn kom fyrst fram ...
fiwmibút