Dagur - 10.03.1987, Page 9
10. mars 1987 - DAGUR - 9*
íþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Kylfingar:
Golfferðir til
Mallorca
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn bauð upp á
golfferð til Mallorca um pásk-
ana og seldist sú ferð upp á
nokkrum dögum. Nú hyggst
ferðaskrifstofan bjóða upp á
aðra golfferð þangað. Hún
hefst 29. apríl og stendur yfir í
19 daga.
Þegar hafa um 20 kylfingar og/
eða fjölskyldur þeirra bókað sig í
þessa ferð en alls eru frátekin 40
sæti fyrir kylfinga og þeirra fólk í
ferðina. íslenskur fararstjóri
verður með hópnum, Jón Hauk-
ur Guðlaugsson og mun hann
m.a. sjá um golfmót fyrir hópinn.
Þá er ferðaskrifstofan einnig
með tveggja vikna golfferðir til
Mallorca í maí. Allar nánari upp-
lýsingar fást hjá umboðsmönnum
SL um allt land og á aðalskrif-
stofunni Austurstræti 12 og úti-
búinu Hótel Sögu.
Óðinsmenn eru enn taplausir í Norðurlandsriðli 1. flokks í blaki. Þessi mynd
var tekin er þeir lögðu A lið Skauta að velli fyrir skömmu. Mynd: kk
V
Gunnar Georg Gunnarsson úr KA sýndi bestu glímurnar í unglingaflokki á
íslandsmótinu í júdó. Félagi hans Jófríður Jónsdóttir glítndi best í kvenna-
flokki.
Maraþon-knattspyrna:
KS-ingar settu
Norðurlandsmet
- spiluðu í 31 klukkustund
Atta knattspyrnumenn úr
meistaraflokki KS á Siglufirði
léku maraþonknattspyrnu um
helgina og spiluðu þeir í sam-
tals 31 klukkustund. Þetta var
gert í fjáröflunarskyni vegna
fyrirhugaðrar æfingaferðar
meistaraflokks félagsins til
Danmerkur um páskana.
Strákarnir hófu leikinn kl. 13 á
föstudaginn og spiluðu til kl. 20 á
laugardagskvöld en á klukkutíma
fresti fengu þeir 5 mínútna hvíld.
Þessi árangur mun vera Norður-
landsmet en gamla metið áttu
knattspyrnumenn úr KA.
Óðinn og Völsungur
enn taplausir
- í Norðurlandsriðli 1. fiokks í blaki
Nú er farið að sjá fyrir endann
á keppni í Norðurlandsriðli
karla og kvenna í blaki 1.
flokks, sem staðið hefur yfir
síðan í desember. Enn eru þó
nokkrir leikir eftir en eins og
staðan er í dag, standa Oðins-
menn best að vígi í karlaflokki
og stúlkurnar í Völsungi best í
kvennaflokki.
Um daginn léku Óðinn A og
Skautar A í riðlakeppninni og
unnu Óðinsmenn nokkuð örugg-
an sigur, 3:0. Þeir eru því enn
taplausir en A lið Skauta hefur
tapað einum leik. Þessi tvö lið
berjast um sigur í riðlinum og
þau eiga eftir að mætast aftur
þann 21. mars.
Önnur úrslit í karlaflokki urðu
þau að A lið Skauta sigraði B lið
Óðins 3:0, HSÞ sigraði B lið
Skauta 3:2, Skautar B sigruðu
Óðin B 3:1 og A lið Óðins sigr-
aði B lið Skauta 3:0.
í kvennaflokki sigraði Eikin lið
Óðins 3:0 og síðan unnu Völs-
ungsstelpurnar Eikiria 3:0.
Staðan í Norðurlandsriðli í
flokkum karla og kvenna er
þessi:
Karlar:
Óðinn A 6 6-0 18:1 12
Skautar A 5 4-1 12:8 8
HSÞ 5 2-3 9:11 4
Skautar B 61-5 8:16 2
Óðinn B 4 0-4 1:12 0
Konur:
Völsungur 3 3-0 9:0 6
Eik 3 1-2 3:6 2
Óðinn 2 0-2 0:6 0
Siguröur vann og
skorar á Valdísi
Sigurður Magnússon og félagi hans Cees van de Ven urðu aftur
jafnir í getraunaleiknum um helgina, báðir með 6 leiki rétta.
Það varð því að draga um það hvor héldi áfram eins og segir í
reglunum. Það kom í hlut Sigurðar og hann hefur skorað á
hana Valdísi Hallgrímsdóttur (hans Bjössa), frjálsíþróttakonu
í næstu umferð. Valdís er mjög ánægð með að fá að taka þátt
í leiknum og ætlar sér stóra hluti þar. Sigurður er frekar
smeykur um að detta nú loks úr keppninni en það kemur í Ijós
um helgina hvort hefur betur.
Sigurður:
Valdís:
Everton-Southampton 1
Leicester-Charlton 1
Luton-Man.United x
Man.City-Chelsea 1
Oxford-Liverpool 2
Q.P.R.-Nott.Forest 1
Blackburn-Stoke x
C.Palace-Birmingham 1
Grimsby-W.B.A. x
Huddersf.-Sheff.Utd. 1
Millwall-Oldham 1
Sunderland-Plymouth x
Everton-Southampton 1
Leicester-Charlton x
Luton-Man.United 2
Man.City-Chelsea 1
Oxford-Liverpool 2
Q.P.R.-Nott.Forest 2
Blackburn-Stoke x
C.Palace-Birmingham 1
Grimsby-W.B.A. 2
Huddersf.-Sheff.Utd. 2
Millwall-Oldham x
Sunderland-Plvmouth 1
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fímmtudögum
svo enginn verði nú af vinningi.
Enn liggja KA-
menn í Eyjum!
- Liðið úr leik í bikarkeppninni eftir 8 marka tap,
16:24 gegn IBV í gærkvöld
„Þetta var hörkuleikur sem
var hnífjafn iengst af en þeir
náðu að sigla fram úr í lokin og
sigra örugglega. Við spiluðum
illa að undanskildum Brynari
Kvaran markverði. Fyrri hálf-
leikur var þokkalegur en það
var ekki heil brú í leik okkar í
Iokin,“ sagði Þorleifur Anan-
íasson liðsstjóri KA eftir tapið
gegn ÍBV í bikarkeppni HSI í
gærkvöld. Leikurinn sem fram
Islandsmótið í júdó:
Gunnar og Jófríður
glímdu best
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær unnu KA-menn marga
glæsilega sigra á íslandsmótinu
í júdó sem fram fór í Reykja-
vík á laugardaginn. Við höfum
þegar sagt frá árangri þeirra í
flokkakeppninni en einnig
voru veitt verðlaun fyrir bestu
glímurnar í unglinga-, karla-
og kvennaflokki og þar bættu
KA-menn við sig verðlaunum.
í unglingaflokki voru veitt
verðlaun fyrir bestu glímuna.
Það var Reino Fagerlaund lands-
liðsþjálfari sem gaf þau verðlaun
og hann valdi sjálfur þann kepp-
anda sem að hans áliti glímdi fal-
legustu glímurnar. Það var KA-
maðurinn Gunnar Georg Gunn-
arsson sem þótti sýna hvað bestu
taktana og hann hlaut því verð-
launin.
í karla- og kvennaflokki voru
einnig veitt verðlaun þeim er
þóttu hafa sýnt bestu glímurnar.
Verðlaunin voru Murata ljón en
þau verðlaun gaf japanskur
júdóþjálfari, Murata að nafni, er
starfaði hér fyrir nokkrum árum.
í karlaflokki var það að sjálf-
sögðu Bjarni Friðriksson úr
Ármanni sem styttuna hlaut en í
kvennaflokki sýndi Jófríður
Jónsdóttir úr KA fallegustu glím-
urnar.
Alls fengu KA-menn 34 verð-
laun og er það besti árangur
þeirra hingað til. Að þessu sinni
tóku 10 stúlkur úr KA þátt í mót-
inu í fyrsta skipti. Þær stóðu sig
frábæríega vel og lofa góðu fyrir
framtíðina.
Þegar sagt var frá úrslitunum í
gær slæddust inn tvær villur. Sagt
var að sigurvegarinn í léttasta
flokknum í flokki 13-14 ára pilta
héti Friðrik Sveinsson, það er
ekki rétt því Friðrik er Hreins-
son. Þá var sagt að Birgir Björns-
son hefði unnið Steingrím Njáls-
son í úrslitum í flokki drengja en
það er ekki rétt, Steingrímur
sigraði Birgi og varð íslands-
meistari. Þetta leiðréttist hér
með og er beðist veívirðingar á
þessum mistökum.
fór í Eyjuni endaði 24:16
heimamönnum í hag og mæta
þeir HK í næstu umferð en KA
er úr leik. Þetta í annað skiptið
á jafnmörgum áruin sein KA-
menn eru slegnir út úr bikar-
keppninni, í Vestinannaeyj-
um. í fyrra tapaði liðið fyrir
Tý-
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og í hálfleik höfðu KA-menn eins
marks forystu 10:9. Eyjamenn
jöfnuðu fljótlega í síðari hálfleik
og náðu yfirhöndinni. Þó var
jafnræði með liðununt fram í
miðjan hálfleikinn og þetta eins
til tveggja marka munur. En um
miðjan síðari hálfleik tóku
heimamenn góðan kipp, skildu
KA-menn eftir og sigruðu örugg-
lega 24:16 sent fyrr sagði.
Brynjar Kvaran var bestur í
liði KÁ og þá áttu þeir Pétur
Bjarnason og Guðmundur
Guðmundsson ágæta kafla. Aðrir
léku nokkuð undir getu.
í liði ÍBV voru þeir Sigurbjörn
Óskarsson og Jóhann Pétursson
bestir og þá var markvarslan
nijög góð í lokin.
Mörk KA: Pétur Bjarnason 6,
Eggert Tryggvason 5, Guðmund-
ur Guðmundsson 3, Jón Krist-
.jánsson 1 og Friðjón Jónsson 1.
Mörk ÍBV: Sigurbjörn Óskars-
son 10, Jóhann Pétursson 7, Þor-
steinn Viktorsson 3, Sigurður
Friðriksson 2, Eyjólfur Bragason
1 og Hörður Pálsson 1.
Leikinn dæmdu tveir heima-
menn. þeir Ómar Jóhannsson og
Björn Elíasson og'eins og Þor-
leifur Ananíasson sagði, var
þeirra staða erfið og það átti alls
ekki að eiga sér stað að heima-
menn dæmdu þennan leik. „En
við töpuðum leiknum ekki á
dómgæslurini," sagði Þod'eifur
ennfremur.