Dagur - 14.04.1987, Side 2
2 - DAGUR - 14. apríl 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 530 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRIMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari._____________________________
Stærsta skoðana-
könnunin
Samkvæmt skoðanakönnun, sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands vann fyrir Dag um fylgi
stjórnmálaflokkanna á Norðurlandi, tapar Sjálf-
stæðisflokkurinn verulegu fylgi í báðum Norður-
landskjördæmunum miðað við síðustu alþingis-
kosningar og tveimur þingmönnum. Framsóknar-
flokkurinn tapar einnig verulegu fylgi í Norður-
landskjördæmi vestra og öðrum þingmanni sínum
þar, en reyndar er mjög mjótt á mununum milli 2.
manns Framsóknarflokks og efsta manns Borgara-
flokks. Á Norðurlandi eystra hefur fylgi Framsókn-
arflokksins hins vegar aukist miðað við fyrri skoð-
anakannanir. Alþýðubandalagið tapar lítillega og
Alþýðuflokkur einnig, ef fylgi Bandalags jafnað-
armanna í síðustu alþingiskosningum er lagt við
fylgi Alþýðuflokks.
Niðurstöður þessarar skoðanakönnunar gefa til
kynna að „görnlu" flokkarnir fjórir muni allir tapa
fylgi í komandi kosningum, mismunandi miklu þó,
og það fylgi flytjist yfir á Kvennalista, Þjóðarflokk
og klofningsframboðin.
Á Norðurlandi eystra virðist enn ljósara en áður
að J-listi, S-listi og Þ-listi koma ekki manni að, og
atkvæði greidd þessum flokkum komi engum að
gagni. Greinilega kemur fram að fólk virðist
aimennt hafa misst trúna á Sjálfstæðisflokkinn
sem stórt og samhent afl í íslenskum stjórnmálum
og fylgið reitist af þeim jafnt og þétt. Uppsveifla
Alþýðuflokks er með öllu horfin og stöðugt virðist
fjara undan Jóni Baldvin og félögum. Þeir ná ekki
inn manni á Norðurlandi vestra og eru algerlega
vonlausir um að ná inn tveimur mönnum á
Norðurlandi eystra.
Á Norðurlandi vestra virðist Borgaraflokkurinn
hagnast á því hversu veik framboð D-lista og
A-lista eru. Ekki er því ólíklegt að fylgi Framsókn-
arflokksins þar eigi eftir að aukast á ný, enda um
að ræða langsterkasta framboðið í kjördæminu.
Það yrði vissulega skarð fyrir skildi ef Stefán Guð-
mundsson, einn dyggasti baráttumaðurinn fyrir
jafnvægi í byggð landsins, félli út af þingi.
Sem fyrr segir er útkoma Framsóknarflokksins á
Norðurlandi eystra betri en í fyrri skoðanakönnun-
um en þó vantar nokkuð upp á að flokkurinn hafi
náð að endurheimta það fylgi sem hann hafði í síð-
ustu alþingiskosningum.
Rétt er að hafa það í huga að skoðanakannanir
gefa einungis vísbendingar um stöðu mála en eru
enginn stórisannleikur. Félagshyggjufólk á
Norðurlandi má því ekki láta deigan síga, en
leggjast á eitt með að tryggja Framsóknarflokkn-
um sem allra besta útkomu í þeirri skoðanakönnun
sem þjóðin öll tekur þátt í þann 25. apríl n.k. Sú
skoðanakönnun verður fyllilega marktæk. BB.
^viðtal dagsins.
Það vekur alltaf nokkra athygli
þegar nýir menn taka við stöð-
um eins og stöðvarstjóri Pósts
og síma eða eitthvað viðlíka, á
smærri stöðum úti á landi.
Fólk er gjarnan forvitið að vita
eitthvað um þann nýkomna og
þar er undirritaður engin
undantekning, enda fór ég á
fund Sigurðar Hermannssonar
stöðvarstjóra Pósts og síma á
Blönduósi, síðan um áramót,
og lagði fyrir hann nokkrar
spurningar um hann sjálfan og
starfið.
- Pú kemur frá Vestmanna-
eyjum, varstu búinn að vera þar
lengi?
„Ég er búinn að vera þar í ein
tíu eða ellefu ár, en ég er fæddur
hér og uppalinn. En ég fór til
Hornafjarðar fyrst eftir að ég
kláraði Loftskeytaskólann."
- Er það algeng menntun
símamanna?
„Kannski ekki almenn mennt-
un en það voru nokkuð margir
sem fóru í þennan skóla. Loft-
skeytaskólinn var lagður niður
fyrir nokkrum árum, en á sínum
tíma var þetta þriggja ára nám og
að því loknu fórum við á svo-
kölluð símritaranámskeið og yfir-
simritaranámskeið. Okkar starf í
landi fólst í telexvinnu og þess
háttar og í ritsímaafgreiðslu
líka.“
- Byrjaðir þú þá að vinna hjá
Pósti og síma á Hornafirði?
„Nei, ég var nú hérna í línu-
flokknum hjá honum Skúla í ein
fjögur sumur sem polli og svo var
ég aðeins línumaður hjá Rarik.
Svo fór ég til Hornafjarðar fyrst
’71 og var þá í eitt ár og fór svo
þangað aftur ’74 og var í tvö og
hálft ár og fór þá til Vestmanna-
eyja.“
- Var það búið að blunda í þér
einhvern tíma að koma hingað
aftur?
„Já það var búið að blunda í
mér en maður hafði í sjálfu sér
ekki í neitt að fara, ekki hjá þess-
ari stofnun a.m.k., en svo sá ég
mér leik á borði þegar þessi staða
losnaði og sótti um.“
Reikna með að
ílengjast hér
- segir Sigurður Hermannsson
í viðtali dagsins
- Pið eruð hér í eldgömlu húsi
og búið við þröngar aðstæður, en
það er búið að vinna nokkuð að
framkvæmdum undir grunn fyrir
nýtt hús Pósts og síma hér á
staðnum. Hvert verður framhald-
ið á því?
„Já við búum vægast sagt við
mjög lélegar aðstæður hér. Eins
og er, er nú óvíst um framhaldið
við nýja húsið en ég held að það
sé nú ekki mjög langur tími þar
til útboðsgögn verða tilbúin. En
svo á eftir að taka ákvörðun um
hvað mikið verður framkvæmt,
það átti að reyna að gera þetta
fokhelt og með gleri í haust, en
svo eru nú fjárvandræði hjá
stofnuninni m.a. út af því að þeir
fengu ekki þá hækkun sem þeir
fóru fram á.“
- Hvað vinnið þið mörg hjá
Pósti og síma á Blönduósi?
„Við erum ellefu og svo eru að
vísu tveir tæknimenn á Hvamms-
tanga sem heyra undir okkur
líka.“
- Er sjálfvirka stöðin hér orð-
in gamaldags?
„Hún er í sjálfu sér ekkert
meira gamaldags en annars stað-
ar úti á landi þar sem ekki er búið
að setja upp þessar svokölluðu
# Eftirsjá í
bergmáiinu
Miklar hræringar eru nú í
heimi fjölmíðlanna og
mannaskipti ör. Dagur hefur
ekki farið varhluta af þróun-
inni. Blaðamenn hafa flust
yfir á aðra fjölmiðla, farið í
nám eða önnur störf, eins og
gengur og gerist og er vissu-
lega slæmt að sjá á bak góð-
um starfsmönnum. Dagur
heldur hins vegar sínu striki
og sést það ekki hvað síst á
því hvað blaðið er drjúgt öðr-
um fjölmiðlum við frétta- og
efnisöflun þeirra. Blaðamenn
Dags sjá oft og iðulega heilu
fréttasíðurnar endurspeglast
á síðum annarra blaða
nokkru seinna en þær birtust
í Degi - jafnvel kannast þeir
við eigið orðalag. Sá sem
hvað duglegastur hefur verið
við að útbreiða þannig fréttir
og annað efni Dags er Jón G.
Hauksson, fréttaritari DV á
Akureyri. En nú heyrum við
að þessi ötuli starfsmaður
Dags, nei fyrirgefið, DV á
Akureyri, sé að hætta með
haustinu og verður slæmt að
sjá á eftir svo góðu bergmáli.
# Einmana-
leiki
S&S hefur það eftir áreiðan-
legum heimildum að Gunnar
Helgason, kosningastjóri
Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri, sé frekar einmana á
skrifstofu þeirra G-lista
manna, þar sem mjög fáir
leggi leið sfna þangað til að
spjalla. Gunnari mun að von-
um leiðast einveran og hefur
hann gripið til þess ráðs að
fara í reglubundnar heim-
sóknir á Slökkvistöðina á
Akureyri, til að fá sér kaffi,
líta í blöðín og rabba við
starfsmennina. Kosninga-
skrifstofan er nefnilega
skammt frá Slökkvistöðinni.
Sömu heimildir segja, að
þegar vinir og kunningjar
Gunnars fréttu af þessum
heimsóknum hans, hafi þeir
brugðist skjótt við og séu
farnir að skipuleggja heim-
sóknir til hans á kosninga-
skrifstofuna, svo honum leið-
ist ekki. Svona eiga vinir að
vera...