Dagur - 14.04.1987, Page 11
14. apríl 1987 - DAGUR - 11
Elín R. Líndal:
Nokkur áhersluatriði
sem snerta okkur öll
Aðalfundur
Akureyrardeildar R.K.Í.
verður haldinn í húsnæði deildarinnar í Kaupangi
við Mýrarveg þriðjudaginn 21. þ.m. kl. 20.30.
Dagskrá.
Öll venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Fjölskyldan er sá hornsteinn
þjóðfélagsins sem hvað mikil-
vægast er að viðhalda og styrkja,
ekki síst á tímum hraða og
streitu. Að því ber að stefna að
uppbygging atvinnulífsins, tekju-
skipting og skipan kjaramála
miðist við að fjölskyldum sé gert
kleift að lifa eðlilegu fjölskyldu-
lífi. Nútíma þjóðfélagshættir
með sífellt jafnari atvinnuþátt-
töku beggja kynja hafa breytt
þeirri verkaskiptingu sem við-
gengist hefur öldum saman. Einu
gildir hvort fólki finnst þessi þró-
unn jákvæð eða neikvæð, ekki
verður aftur snúið. Atvinnuþátt-
taka kvenna hefur vaxið með ári
hverju og mun vaxa enn frekar.
Öllum ætti því að vera ljóst
mikilvægi þess að tryggja öryggi
og vellíðan barna meðan for-
eldrarnir vinna utan heimilisins.
Bygging og rekstur dagvistar-
heimila er sjálfsögð viðbót í upp-
eldi barna.
Mikilvægt er að barna- og fjöl-
skyldubætur með 3 börnum eða
fleirri nái því að launa foreldri
fyrir heimavinnu, kjósi það að
gæta barna sinna heima. Jafn-
framt er brýnt að sett verði hið
fyrsta löggjöf er tryggi félagslegt
öryggi þ.e. ákvæði hinna ýmsu
laga er lúta að þessum málum
verði samræmd, þannig að þau
taki betur mið af þjóðfélagi nú-
tímans og þess er vænt má.
Fæðingarorlof verði lengt enn
frekar og við það miðað að heima-
vinnandi maki fái fullar trygg-
ingabætur.
Heimilið og skólinn
Við foreldrar verðum að gera
okkur grein fyrir að hluti upp-
eldis barna okkar fer fram innan
veggja skólans. Enda er gert ráð
fyrir því í grunnskólalögunum að
grunnskólinn leitist við að haga
störfum sínum í sem fyllstu sam-
ræmi við eðli og þarfir nem-
endanna og stuðli að alhliða
þroska, heilbrigði og menntun
hvers og eins. Ein mikilvægasta
forsendan fyrir árangri í skóla-
starfi er hæfni kennarans til að
leiðbeina og miðla nemendunum
af þekkingu sinni, jafnframt er
kennara ætlaður hlutur í uppeldi
og þroska barnanna. Peim fjár-
munum sem varið er til að bæta
menntun kennara svo sem endur-
menntun þeirra, starfsþjálfun og
annað það er tryggir okkur sem
hæfasta kennara alls staðar í
skólakerfinu, þeim fjármunum er
vel varið. Óhæfa er að nauðsyn-
legri stuðnings- og sérkennslu sé
ekki haldið uppi í öllum skólum
landsins.
Elín R. Líndal.
Skólinn og vinnan
Forsenda framfara er þekking á
viðfangsefninu. Margþætt við-
fangsefni þjóðfélagsins krefjast
fjölbreyttra möguleika í öflun
menntunar. Mikilvægt er að
menntamálunum sé sinnt af víð-
sýni og framsýni. Leggja ber
áherslu á verkmenntun og starfs-
þjálfun og mikilvægi hennar til
undirbúnings ungu fólki fyrir lífs-
starfið og til að uppfylla kröfur
vinnumarkaðarins um hæft
starfsfólk, á það jafnt við þá sem
fást við almenn störf og stjórn-
endur. í tækniþjóðfélagi þarf
fræðslukerfið nauðsynlega að
geta sinnt viðbótar- og endur-
menntunarþörfinni í nær öllum
greinum framleiðslu og þjónustu
þar sem verklag er miklum breyt-
ingum háð og getur úrelst tiltölu-
lega fljótt.
Efling fullorðinsfræðslunnar er
tímabær og er vel framkvæman-
leg með auknum hlut útvarps,
Áskorun til framsóknarmanna:
Herðum
í könnun sem Félagsvísinda-
stofnun Háskólans gerði og birt-
ist í Degi í gær kemur í ljós að
Framsóknarflokkurinn er í sókn í
Norðurlandskjördæmi eystra
miðað við sams konar könnun
sem gerð var fyrir nokkrum
vikum. Þessi niðurstaða kemur
mér ekki svo mjög á óvart. Ég
hef fylgst með kosningabarátt-
unni og raunar tekið þátt í henni
sjálfur og ég veit að vel hefur ver-
ið unnið. Ég vil þó undirstrika
það rækilega að þetta er könnun
en ekki niðurstaða kosninga. Ef
þetta væri niðurstaða kosning-
anna tel ég að við framsóknar-
menn gætum vel við unað. Ég vil
því eindregið vara framsóknar-
menn við of mikilli bjartsýni þó
þessi skoðanakönnun sé flokkn-
um í hag. Það eru aðeins örfáir
dagar til kosninga og vil ég hér
með skora á alla flokksbundna
framsóknarmenn og aðra stuðn-
ingsmenn flokksins að vinna vel
fram að kosningum, herða sókn-
ina og þá trúi ég ekki öðru en úr-
slit kosninganna verði viðunandi
fyrir Framsóknarflokkinn í þessu
sóknina
Svavar Ottesen.
kjördæmi miðað við aðstæður.
Ég vil því biðja alla stuðnings-
menn Framsóknarflokksins að
hafa samband við skrifstofur
flokksins í kjördæminu og taka
virkan þátt í kosningastarfinu
þessa síðustu daga. Framsóknar-
menn! Tökum höndum saman
þessa síðustu daga og höldum
forustunni í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Svavar Ottesen.
sjónvarps og myndbandatækni.
Oflug fræðsla fullorðinna sem
annarra skilar sér aftur til þjóð-
félagsins.
Mikilvægi æðri menntunar fyr-
ir þjóðfélagið verður seint metið
til fulls, ávallt verður þó að gæta
þess að menntunin taki mið af
þörfum þjóðfélagsins fyrir
menntun á hverju sviði.
Á undanförnum árum hefur
Háskóli íslands, Kennaraháskól-
inn, bændaskólarnir, Tækniskól-
inn auk margvíslegra rannsókna-
stofnana sinnt fjölbreyttum verk-
efnum á sviði æðri menntunar,
kennslu og þjálfunar til margvís-
legra starfa. Allar þessar stofnan-
ir verða að hafa möguleika á að
fylgjast með nýjungum hver á
sínu sviði.
Jöfn aðstaða til náms óháð
búsetu eða efnahag er grund-
vallarréttindi sem ekki má víkja
frá.
Málefni aldraðra
Vinna þarf skipulega að undir-
búningi og aðlögun að verklok-
um aldraðs fólks. Koma þarf á
meiri sveigjanleika en nú er með
vinnutilhögun og gefa fólki kost á
hlutastörfum síðustu vinnuárin,
kjósi fólk að halda hluta af sínum
störfum eftir að ellilífeyrisaldri er
náð er sjálfsagt að stuðla að slíku
meðan starfskraftar leyfa. Vinn-
an er eldra fólki mikilvæg, þess
vegna er full ástæða til að það
ráði sem mest sínum málum.
Þannig notast líka þjóðfélaginu
lengur þekking og reynsla aldr-
aðra. Eiín R. Líndal.
Höfundurinn skipar 3. sæti B-
listans í Norðurlandskjördæini
vestra.
Keflavíkurflugvöllur
ný flugstöð
Veitingarekstur — útboð
Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli býður út veitinga-
rekstur í nýju flugstöðinni.
Um er að ræða allan veitingarekstur í flugstöðinni, þar með talið mötuneyti
starfsfólks, frá júní 1987 og fram til ársloka 1990.
Eftirtalin svæði samtals 1.114 fermetrar og búnaður tilheyra veitingarekstri;
1. Aðaleldhús á 2. hæð, 387 fermetrar alls, með tilheyrandi búnaði til matar-
gerðar og uppþvottar, kælum, frystum og öðrum geymslum og aðstöðu
fyrir starfsfólk.
2. Mötuneyti starfsfólks á 2. hæð, 321 fermetrar alls, með afgreiðsluborðum
og tilheyrandi búnaði og borðum og stólum fyrir 190-200 manns.
3. Veitingaafgreiðsla og bar við biðsal á 2. hæð, 133 fermetrar alls, með til-
heyrandi búnaði en aðliggjandi veitingarými með borðum og stólum, um
275 fermetrar alls.
4. Aðstaða fyrir takmarkaða veitingaþjónustu við útsýnisstað á 2. hæð, 23
fermetrar, með tilheyrandi búnaði en aðliggjandi er veitingarými með borð-
um og stólum, um 68 fermetrar.
5. Veitingabúð í gróðurskála á 1. hæð ásamt búri, 250 fermetrar alls, með
tilheyrandi búnaði.
Lágmarksgjald fyrir aðstöðuna er kr. 10.600.000.- á ári.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræðistofunni, Fellsmúla 26,
Reykjavík, frá og með mánudeginum 13. apríl gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skuiu berast Almennu verkfræðistof-
unni eigi síðar en 29. apríl 1987.
Tilboðum skal skilað til Almennu verkfræðistofunnar fyrir kl. 14.00 föstudaginn
8. maí 1987.
Flugmálastjórn á
Keflavíkurflugvelli.
Ráðskonu vantar
til starfa hjá Tilraunastöðinni á Möðruvöllum.
Upplýsingar í símum 24477 og 21084 á kvöldin.
Framtíðarstarf
Okkur vantar laghentan mann til starfa
pokaverksmiðju okkar.
Upplýsingar um starfið veita:
Tryggvi Sveinbjörnsson og Sveinn Björnsson.
Sjálfsbjörg Akureyri
Bugðusíðu 1
Sími 96-26888.
Símar J-listans
á kosningaskrifstofunni Glerárgötu 20
26710 og 26097 og 26644