Dagur - 11.05.1987, Qupperneq 5
11. maí 1987 - DAGUR - 5
Ársskýrsla Kaupfélags Eyfirðinga 1986:
Yfirlit um starfsemi KEA
Verslunarsvið Kaupfélags Ey-
firðinga er sem fyrr veltuhæsta
starfssvið félagsins, með 1980
millj. króna veltu á árinu 1986.
Svo sem vænta má eru umsvif
verslunarinnar mest í stærsta
byggðakjarnanum, Akureyri.
Þau eru þó mikil á félagssvæðinu
öilu og er veltuhlutfall utan
Akureyrar 26,8% eða 531,5
millj.
Tölur um veltu verslunardeilda
er að finna annars staðar í árs-
skýrslu KEA og verða ekki rakt-
ar einstökum liðum hér. Þó er
rétt að benda á að meðaltals-
aukning lækkar vegna minnkunar
í krónutölu í nokkrum vöru-
flokkum og þá sérstaklega vegna
verðlækkunar á olíuvörum. Sölu-
aukning í verslunum KEA á
Akureyri varð að meðaltali 28%
árið 1986, og u.þ.b. 30% á
Dalvík.
Dagvöruverslun á Akureyri er
að stærstum hluta í höndum
Kaupfélags Eyfirðinga. Til þess
að þjóna því hlutverki rekur
KEA átta dagvöruverslanir á
Akureyri. Kjörmarkaður KEA
Hrísalundi hefur 45,4% af
umsetningu matvörudeildar, en
fimm stærstu verslanirnar samtals
92,0%. Rekstrarárið 1986 stað-
festir ennþá hagkvæmni stærri
verslana, og er rekstrarafgangur
matvörudeildar í heild svipaður
og hagnaður Kjörmarkaðar.
í sérvörum er verslunin miklu
dreifðari, en Kaupfélagið er ráð-
andi markaðsafl í hluta hennar
a.m.k.
Vöruhúsið hefur sem heild
aukið markaðshlutdeild sína.
Nokkrir vöruflokkar, t.d.
rafmagnstæki, eru greinilega í
sókn. Þrátt fyrir að rekstur Vöru-
hússins gengi betur heldur en
árið 1985 tókst ekki að ná endum
saman. Ljóst er að Vöruhúsið
þarf að endurskipuleggja.
Byggingavörudeild bjó við
ófullnægjandi aðstöðu í því hús-
næði sem hún fékk til umráða
1961. Það stendur nú til bóta því
að á árinu 1986 keypti KEA
aðstöðu og húsnæði BTB- h/f,
Lónsbakka. Byggingavöruversl-
un félagsins hefur nú verið
skipulögð í syðri byggingunni og
verður hún að fullu flutt þangað
svo fljótt sem unnt er. í okt.-nóv.
1986 flutti Timburvinnsla KEA í
hluta af ytri skemmunni og sam-
einaðist hún timburvinnslu sem
þar var. Með þessari bættu
aðstöðu varð þegar veruleg
magnaukning í sölu byggingar-
efnis.
Raflagnadeild hefur þrátt fyrir
samdrátt í byggingariðnaði hag-
stæðan rekstur. Hún selur stóran
hluta veltu sinnar í heildsölu til
fjölmargra viðskiptavina um land
allt. Raflagnadeildin býr við
ófullnægjandi aðstöðu og er ljóst
Sjávarútvegur
Árið 1986 var vinnsla með svip-
uðum hætti og undanfarin ár hjá
fiskvinnslustöðvum KEA á
Dalvík, Hrísey og Grímsey. Til
hliðar má sjá nákvæmar tölur
varðandi afla sem barst til stöðv-
anna á síðasta ári. Einnig er þar
að finna tölur er varða fram-
leiðslu þeirra og sölu.
Afkoma fiskvinnslustöðvanna
á síðasta ári, sérstaklega fryst-
ingarinnar, veldur verulegum
áhyggjum. Ástæða þess að fryst-
ingin kemur lakar út en oft áður,
er sú að staða dollars er mjög
veik. Einnig var fiskvinnslan fyrir
verulegu áfalli þegar skreiðar-
birgðir félagsins voru seldar á
síðasta ári, en verðið sem fékkst
fyrir skreiðina var mun lægra en
gert hafði verið ráð fyrir.
Eins og kunnugt er tekur KEA
þátt í útgerð fimm togara og eins
togbáts. Það hefur vart farið fram
hjá neinum að nú stendur fyrir
dyrum að endurnýja þennan flota
að verulegu leyti. Gerður hefur
verið samningur við skipasmíða-
stöð í Flekkefjord í Noregi um
smíði á togara fyrir Útgerðar-
félag Dalvíkinga hf. í stað bv.
Björgvins EA 311. Einnig hefur
verið gerður samningur fyrir
Útgerðarfélag KEA í Hrísey við
skipasmíðastöð, sem einnig er í
Flekkefjord, um smíði á nýjum
togara í stað bv. Snæfells EA
740.
Gert er ráð fyrir að nýju skipin
verði afhent í maí eða júní á
næsta ári. Ætlunin er að halda
áfram óbreyttri útgerð Björgvins
og Snæfellsins þar til nýju skipin
að úr því þarf að bæta hið fyrsta.
Véladeild KEA náði ekki
umsetningu ársins 1985 og eru
ástæður þess eflaust margar.
Samdráttur í sölu landbúnaðar-
tækja og varahluta í þær svo og
harðnandi samkeppni er ein af
orsökunum. Á árunum eftir 1980
var bifreiðasala frá þeim umboð-
um sem deildin seldi fyrir mjög
lítil, sem aftur varð þess valdandi
að varahlutasala í bifreiðum
minnkaði. Nú hefur hins vegar
verið góð sala í bifreiðum, og
ætti sú sala að skila sér í aukinni
varahlutasölu nk. ár. Á árinu
1986 var búvélaverkstæðinu lok-
að og húsnæðið nýtt fyrir hjól-
barðasölu og fl.
í smásöluverslun félagsins utan
Akureyrar hefur aðstaða dag-
vöruverslunar á Siglufirði verið
bætt en keypt voru ný kæli- og
frystitæki í verslunina. Fyrir-
hugað er að breyta verslun úti-
búsins í Hrísey á árinu 1987.
Ennfremur er ætlunin að bæta
aðstöðu byggingarvörudeildar á
Dalvík og hefja endurbætur á
verslun félagsins f Ólafsfirði.
Öllum félagsmönnum KEA er
ljóst að umfang smásöluverslunar
félagsins er mjög rnikið. Það er
því afar þýðingarmikið að þróun
í smásöluverslun sé fylgt. Hún
tekur sífellt breytingum en hraði
breytinganna er mismunandi og
má segja að þar séu áraskipti.
Mörg innri og ytri skilyrði hafa
áhrif á þetta þróunarferli og má
þar nefna þróun almennt í þjóð-
félaginu, ýmsa efnahagsþætti,
breytingar í neyslumynstri og
lífsstíl, tækniþróun og fleira.
Þær verslanir sem aðlaga sig
best að þeim endurmetnu gildum
og breyttu kröfum sem eiga sér
stað, eiga besta möguleika á að ná
árangri í rekstri.
SKYLDUSPARNAÐUR
ORÐSENDING TIL LAUNÞEGA
Á ALDRINUM 16 TIL 25 ÁRA
Launþegar á skyldusparnaðaraldri
eru hér með hvsttir til að fylgast
gaumgæfilega með því, að
launagreiðendur dragi lögboðinn
skyldusparnað af launum og geri skil til
Veðdeildar Landsbanka íslands.
Hafi það brugðist, er þeim bent á að snúa
sér til lögfræðings, sem fer með málefni
skyldusparnaðar hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík.
Sími: 28500.
^ IlúsnæÖisstofnun ríkisins
Auglýsing
varðandi nafnbreytingu þeirra sem veittur hefur
verið íslenskur ríkisborgararéttur með lögum.
Meö lögum nr. 11, 24. mars 1987 um veitingu ríkis-
borgararéttar er þeim sem fengið hafa íslenskan ríkis-
borgararétt meö lögum aö uppfylltu því skilyrði að þeir
tækju upp íslensk nöfn samkvæmt lögum um mannanöfn
nr. 54/1925 veitt heimild til aö fá núverandi nöfnum sínum
breytt meö nýju þannig aö þau samrýmist ákvæöum þeim
sem gilda um þá sem fá ríkisborgararétt meö lögum nr. 11/
1987. Á þetta viö um þá sem fengið hafa ríkisborgararétt
á tímabilinu 1952-1980.
Ákvæði þess efnis er í 2. gr. laga nr. 11/1987 og hljóðar
svo:
„Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni, íslenskt ríkisfang
meö lögum og skulu þá börn hans fædd síðan, heita
íslenskum nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn, en
hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér
íslenskt eiginnafn - ásamt því sem hann ber fyrir - er börn
hans taka sem kenningarnafn. Honum skal þó heimilt, ef
hann kýs heldur, aö breyta svo eiginnafni sínu aö það full-
nægi kröfum laga um mannanöfn.
Þeim sem hafa áöur fengið íslenskt ríkisfang meö lögum
meö því skilyröi aö þeir breyttu nafni sínu I samræmi viö
ákvæöi þeirra laga sem veriö hafa með öörum hætti í því
efni en hér aö ofan greinir, skal heimilt, til september 1987,
aö fá nöfnum sínum breytt þannig aö þau samrýmist
ákvæðum þessara laga.“
Þeir sem óska eftir að fá nafni sínu breytt í samræmi viö
heimild í ofangreindu ákvæði skulu senda umsókn sína
eigi síöar en 30. september nk. til dómsmálaráðu-
neytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, á eyðublööum er þar
fást.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 30. apríl 1987.
koma. Norsku skipasmíðastöðv-
arnar taka gömlu togarana upp í
kaupverð nýju skipanna. Nýi
Björgvin verður 50 metra langur
og 12 metra breiður og nýja Snæ-
fellið verður 49 metra langt og 12
metra breitt.
Fyrr á þessu ári stofnaði Kaup-
félag Eyfirðinga nýtt fyrirtæki á
Dalvík, Fiskiland. í upphafi mið-
ast framleiðslan við pakkaðan
fisk í lofttæmdar umbúðir, en
síðar á þessu ári verður hafin
framleiðsla á tilbúnum fiskrétt-
um. Framleiðsla fyrirtækisins er
seld í kjörbúðum á Eyjafjarðar-
svæðinu. Einnig er ætlunin að
markaðssetja framleiðsluna á
ýmsum öðrum stöðum þegar
fram líða stundir.
Framtíðarskipulag fiskmót-
töku á Akureyri er nú til sér-
stakrar athugunar, en ljóst má
vera, að ekki verður unað við
sífelldan hallarekstur í þessari
starfsemi.
ALHLIÐA TRYGGINGAR
TM.TRYCCINC
ER TRAUST