Dagur - 23.06.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 23.06.1987, Blaðsíða 1
mwi 70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. júní 1987 115. tölublað Mörg snið HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Langflestir lesa Dag Samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Islands gerði fyrir Samband íslenskra auglýsinga- stofa í maí sl., hefur Dagur langmesta útbreiðslu allra dagblaða á Norðurlandi eystra og einnig mesta ef litið er á Norðurland í heild. Hvorki Akureyrarbær: Höfðingleg gjöi - úr dánarbúi Kristjáns Eldjárn Fyrir nokkru tók menningar- málanefnd fyrir erindi frá Þór- arni Eldjárn þar sem hann býður Akureyrarbæ að gjöf frummyndina af brjóstmynd sem gerð var af Davíð Stefáns- syni frá Fagraskógi. Kristján Eldjárn átti þessa mynd og er hún úr dánarbúi hans. Ákveðið var að þiggja þetta boð með þökkum og er brjóst- myndin komin til bæjarins þótt ekki hafi formleg afhending farið fram. Afsteypa af þessari mynd er á Amtsbókasafninu og önnur í Davíðshúsi. Ekki hefur verið ákveðið hvenær formleg afhend- ing fer fram né hvar frummynd- inni verður valinn staður. SS meira né minna en 79% svar- enda í Norðurlandskjördæmi eystra sögðust sjá Dag daglega eða oft, DV er í öðru sæti, en 57% svarenda sögðust sjá það daglega eða oft og Morgun- blaðið er í þriðja sæti með 44%. Á Norðurlandi vestra sögðust 33% svarenda sjá Dag daglega eða oft en í frétt frá Sambandi íslenskra auglýsingastofa er ekki gefið sérstaklega um útbreiðslu annarra dagblaða á Norðurlandi vestra. Útbreiðsla Dags er svæðis- bundnari en nokkurs annars dagblaðs, enda leggur Dagur langmesta áherslu á fréttir af Norðurlandi og er reyndar eina blaðið sem hefur blaðamenn í fullu starfi á Norðurlandi utan Akureyrar, þ.e. á Húsavík, Sauðárkróki og Blönduósi. Þegar litið er á landið allt hefur Morgunblaðið samkvæmt könn- uninni forystu, því 75% svarenda sögðust sjá það daglega eða oft. DV er í öðru sæti með 67%, síð- an Þjóðviljinn með 20%, Tíminn með 19% og Dagur með 11% á landsvísu. Alþýðublaðið rekur síðan lestina en einungis 5% sögðust sjá það daglega eða oft. I frétt frá SÍA er gerður samanburður á lestri dagblað- anna nú og í sams konar könnun árið 1983. Dagur er ekki með í þeim samanburði, enda ekki gef- inn út daglega á þeim tíma sem fyrri könnunin var gerð. BB. DNG: Veltan þrefaldast I gær sögðum við frá því að fundist hefðu merki um byggð frá því fyrir árið 1000 að Granastöðum í Eyjafirði. Hér er einn leiðangursmanna að teikna upp fornar menjar, líkast til eldstæði. Uppgreftri fer að ljúka á þessu ári en hér er um að ræða verkefni fyrir næstu sumur ef vel á að vera, að sögn Bjarna Einarssonar. Mynd: HörðurGeirsson. Veitustjórn Akureyrar: Gjaldskrá Hitaveitunnar verði hækkuð um 7,16% - vandi hitaveitunnar enn óleystur „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur. Við erum með þre- falda veltu miðað við sama tíma í fyrra,“ sagði Kristján Jóhannesson framkvæmda- stjóri DNG á Akureyri. Kristján sagði að þrír aðilar fyrir sunnan væru farnir að selja sænskar færavindur og sam- keppnin því mjög hörð. „íslensk- ir sjómenn hafa tekið okkar færa- vindum mjög vel og við erum því mjög hressir." Kristján sagði að þeir framleiddu eins mikið og þeir önnuðu, en rúmlega 20 manns vinna hjá fyrirtækinu. Þeir DNG-menn eru nú að hefja byggingu húss yfir starfsemi sína og verður það á Berghóli í Glæsibæjarhreppi. Húsið verður 900 fermetra einingahús frá Möl og sandi á Akureyri. Kostnaðar- áætlun hljóðar upp á 17 milljónir króna. mþþ Stjórn veitustofnana á Akur- eyri samþykkti einróma á fundi 19. júní síðastliðinn að leggja til að gjaldskrá Hita- veitu Akureyrar verði hækkuð um 7,16%. Sú hækkun er í fullu samræmi við hækkun byggingavísitölu sem var 293 stig um áramót en var komin í 314 stig í byrjun júní. Tonnið af heitu vatni myndi þannig hækka úr 63,60 kr. í 68,15 kr. Til samanburðar má geta þess að tonnið hækkaði um 22% í Reykjavík, sem er svipað að krónutölu og 7,16% hækkun á taxta H.A. og kostar tonnið nú 25 kr. í höfuðborginni. Franz Árnason hitaveitustjóri sagðist halda að það kæmi betur út ef taxtinn hækkaði á 3ja mán- aða fresti eins og vísitalan en hinu væri ekki hægt að neita að vísitalan hefði hækkað ansi mikið á þessu ári. Þetta væri stórt stökk í krónum talið fyrir notendur hitaveitunnar frá síðustu hækkun sem var í janúar. „Það hefur ekki fundist lausn á Iðnverkakonur á Akureyri: Þriðjungur orðið fyrir kynferöislegri áreitni Þriðja hver iðnverkakona á Akureyri hefur orðið að þola kynferðislega áreitni á vinnu- stað sínum. Þetta eru niður- stöður könnunar sem Vinnan, tímarit ASÍ, og Iðja, Félag verksmiðjufólks á Akureyri, gerðu í samráði við Valgerði Bjarnadóttur um miðjan maí. I könnuninni var rætt við 37 konur sem valdar höfðu verið af handahófi af félagaskrá Iðju. Af þessum 37 konum töldu 23 að kynferðisleg áreitni ætti sér stað á íslandi og 10 þeirra höfðu orðið fyrir henni sjálfar. Þrjár töldu slíka áreitni ekki vera til staðar og 11 svöruðu með „ég veit ekki“. Af konunum 37 voru 15 sem höfðu konu sem næsta yfirmann en 22 karlmann. Það vekur hins vegar nokkra athygli að 9 af þeim tíu, sem orðið höfðu fyrir áreitni, voru úr síðarnefnda hópnum. Ekki síst er þetta athyglisvert þar sem í fæstum til- fellum voru það yfirmennirnir sjálfir sem voru sekir. Við framkvæmd könnunarinn- ar var gengið út frá skilgreiningu sem gefin var út af Alþjóðasam- bandi frjálsra verkalýðsfélaga, á því hvað telst kynferðisleg áreitni. Samkvæmt henni má skipta áreitninni í tvo flokka. Líkamleg áreitni telst hvers kon- ar þukl og káf, þar með taldar nauðgunartilraunir. Munnleg áreitni er það hins vegar kallað þegar viðkomandi verður fyrir kynferðislega niðurlægjandi ummælum eða klámbröndurum. Af konunum tíu höfðu þrjár að- eins orðið fyrir munnlegri áreitni. Engin kvennanna hafði orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartil- raun á vinnustað, en tvær þeirra höfðu ítrekað orðið fyrir því að farið var fram á samræði. í viðtölum við konurnar kom fram að viðbrögð þeirra við ósómanum eru mismunandi. Fjórar þeirra báru harm sinn í hljóði, aðrar létu yfirmann vita og enn aðrar létu hendur skipta. Aðspurðar hvert þær myndu leita eftir aðstoð gegn kynferðis- legri áreitni nefndu flestar kon- urnar yfirmenn en næst komu trúnaðarmenn og verkalýðsfé- lag. ET málefnum hitaveitunnar í við- ræðum við ríkisvaldið þannig að staðan er óbreytt frá því sem hún var áður en þær viðræður hófust. Hins vegar var sú ákvörðun tekin að halda í við verðlagsþróun burtséð frá því hvort yrði hægt að fá aðstoð til að framkvæma lækkun. Þá yrði bara gerð lækk- un og síðan ntyndi taxtinn halda áfram að hækka samkvæmt verð- lagsþróun eins og allt annað,“ sagði Franz. Samkvæmt þessari hækkun verður fastagjald B1 3.644 kr. og fastagjald B2 304,35 kr. Veitu- stjórn leggur einnig til að húshit- unartaxtar Rafveitu Akureyrar taki sömu breytingum eins og venjan hefur verið. Einnig taki gjöld samkvæmt 4. og 5. grein gjaldskrárinnar sömu breyting- unt. Franz skýrði frá því að hann hefði átt fund með þingmönnum kjördæmisins ásamt þeim Sigurði J. Sigurðssyni, formanni veitu- stjórnar, og Úlfari Haukssyni, í því skyni að kynna þeim málefni hitaveitunnar og sagðist hann vonast til að þeir létu málið til sín taka í nýrri ríkisstjórn. „Ég held að menn hafi orðið sammála um þessa hækkun núna í þeirri von að eitthvað gerðist á næstu mán- uðum,“ sagði Franz að lokurn, en beiðnin verður tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi í dag. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.