Dagur - 23.06.1987, Page 2
2 - DAGUR - 23. júní 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL PÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÚRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari.__________________________
Seinheppinn
ráðherra
Skýrt var frá því í Degi í gær að Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra hafi öllum að
óvörum leigt heimavist Hússtjórnarskólans
að Laugum til einkaaðila. Heimamenn höfðu
gert ráð fyrir að rekstur skólahúsnæðisins að
Laugum yrði með sama hætti í sumar og
undanfarin sumur, þ.e. að aðstandendur Hér-
aðsskólans að Laugum starfræktu þar sumar-
hótel og hagnaðurinn rynni til skólans. Að
sögn skólastjóra Héraðsskólans hafði ráð-
herra látið í það skína að engra breytinga
væri að vænta í þessum efnum og því kom
ákvörðun hans mönnum í opna skjöldu.
Menntamálaráðherra naut í þessu máli
dyggrar aðstoðar Halldórs Blöndal alþingis-
manns, en samkvæmt upplýsingum Dags vill
mikill meirihluti heimamanna óbreytt rekstr-
arfyrirkomulag. En leigutekjurnar renna
beint í ríkiskassann og þar með er Héraðs-
skólinn að Laugum sviptur mikilvægri tekju-
lind, sem hefur hjálpað verulega til með að
láta enda ná saman í rekstrinum.
Það er hreint með ólíkindum hversu
menntamálaráðherra er seinheppinn í verk-
um sínum. Hann virðist einungis leita ráða
hjá samflokksmönnum sínum, sem greinilega
hirða ekki um að segja honum allan sannleik-
ann hverju sinni. Ráðherrann mun að sjálf-
sögðu ekki breyta ákvörðun sinni hvað varðar
val á leigutaka - enda hefur hann sýnt það í
verki að hann telur sig eingöngu taka réttar
ákvarðanir.
Þau gerræðislegu vinnubrögð, sem þeir
flokksbræður Sverrir og Halldór viðhafa í
þessu máli, munu ekki auka hróður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Það er í sjálfu sér ekki áhyggjuefni
Dags en blaðinu er vel kunnugt um fjölmarga
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem hafa
þungar áhyggjur af vanhugsuðum aðgerðum
ráðherrans í skólamálum Norðlendinga.
Laugamálið kemur í kjölfar brottvikningar
fræðslustjóra kjördæmisins, en sá brottrekst-
ur varð síður en svo til þess að auka vinsældir
menntamálaráðherra, enda sérkennilega að
verki staðið.
Nýrrar ríkisstjórnar bíða mörg og erfið verk-
efni. Eftirmanns Sverris Hermannssonar í
embætti menntamálaráðherra bíður það erf-
iða verkefni að ná sáttum við skólamenn á
Norðurlandi eystra. Þetta nýjasta tiltæki
Sverris í kjördæminu er síst til þess fallið að
lægja öldurnar. BB.
-viðtal dagsins.______________
„Verðum með eitt-
hvað fyrir alla“
- Magnús Jónsson, forseti JC Súlna á Akureyri
segir frá ökuleikni ‘87 á Akureyri og öðru starfi JC
Ökuleikni er nokkuð sem
menn hafa sýnt mismikla hæfi-
leika í, sumir telja sig afburða
snillinga á þessu sviði, en eru
þó bæði sjálfum sér og öðrum
stórhættulegir sökum þess að
þeir valda ekki þeim farartækj-
um sem þeir aka. Keppni í
ökuleikni hefur nú farið fram
hér á Akureyri í tíu ár og
tíunda keppnin fer fram á
planinu fyrir framan Alþýðu-
húsið næstkomandi laug-
ardag. Einn þeirra sem vinnur
að undirbúningi keppninnar er
Magnús Jónsson, forseti JC
Súlna á Akureyri.
- Hvernig verður keppninni
háttað þetta árið?
„Það verður boðið upp á
eitthvað fyrir alla og reynt í þetta
sinn að gera eitthvað fyrir
börnin. Keppnin hefst um hádegi
og fyrst verður keppt með fjar-
stýrða bíla. Þetta verður meira
sýningaratriði frekar en hitt og
við ætlum að reyna að láta bæjar-
stjórann og lögreglustjórann
leiða saman hesta sína. Síðan
koma börnin á þríhjólunum og
þá minni tvíhjól. Þá verður keppt
á fullorðinshjólum og það skal
tekið fram að við verðum með
hjól fyrir þá sem þess þurfa.
Einnig verður keppt á léttum bif-
hjólum og síðan stærri hjólum og
ekki má gleyma fjórhjólunum en
í þeim flokki verðum við að binda
okkur við ökuleyfi þar sem ekki
er hægt að hleypa hverjum sem
er á þessi tæki innan um marg-
menni. Síðan verður flokkur
fólksbíla og að lokum flokkur
jeppa og stærri bíla.“
- Verður boðið upp á eitthvað
fleira?
„Já, þarna verður Hjálparsveit
skáta að sýna sinn útbúnað og
tæki. Nýir bílar verða sýndir og
einnig verður þarna bíll á vegum
Fararheillar ‘87 en það er umferð-
arátak á vegum tryggingafélag-
anna. Þessi bíll er svona dæmi
um hvernig getur farið í umferð-
inni ef ógætilega er ekið. Ætlunin
er li'ka að reyna að fá veltibílinn
svokallaða, en það er bíll sem er
ætlaður til þess að sýna fólki
hvernig öryggisbeltin verka þegar
á reynir í veltum. Þessi bíll hefur
verið sýndur fyrir sunnan undan-
farið. Síðan verða einnig einhver
skemmtiatriði og óvæntar uppá-
komur í hléum.“
- Og hverjir standa að þessum
umferðardegi?
„Það eru Bindindisfélag öku-
manna, JC Súlur og Hjálparsveit
skáta. Núna í þessari viku er
stúkuþing í Alþýðuhúsinu
sem lýkur á laugardaginn og
þetta verður nokkurs konar
endapunktur á þinginu. Þetta er í
tíunda sinn sem keppnin er hald-
in hér á Akureyri og því ætlunin
að hafa þetta svolítið veglegt.
Akureyri hefur líka alltaf verið
með eina fjölmennustu keppn-
ina. Verðlaunapeningar verða
veittir og einnig gefur hjálpar-
sveitin sérstaka bílpúða sem
sveitin hefur verið að selja
undanfarið.“
# Eina Pepsí!
Golf er vinsæl íþrótt. Og á
Akureyri er golfvöllur góður.
Fyrir skömmu var Coca Cola
mótið haldið á golfvellinum
að Jaðri við Akureyri. Meðal
spilara var Pétur Björnsson
framkvæmdastjóri Vífilfells.
Fyrir þá sem ekki vita er kók-
ið framleitt hjá þVí fyrirtæki.
Pétur þessi hafði með sér
dreng er dró fyrir hann golf-
settið. Eftir að hafa spilað
átján holurnar, segir sagan
að Pétur hafi launað pilti
vinnuna og spyr síðan hvort
ekki megi bjóða honum
eitthvað.
Saklaus og bláeygur rétt
eins og hver annar skáta-
drengur segir pilturinn: Jú,
kannski eina Pepsí!
Hér segir af manni sem kom
léttur heim af sjónum og
hugðist bregða sér á dans-
leik. Eftir snögga sturtu var
tekið til við að gera sig dálítið
smart. Maður þessi opnaði
skáp og fór að leita að einu
og öðru, en atburður þessi
átti sér stað heima hjá móður
piltsins. Þar sem maðurinn
var að gramsa i skápnum
datt honum í hug að setja
brilljantín i hár sitt. Fann
túbu og skellti í hárið. ‘Að
þessu loknu fer hann fram og
taka þau tal saman, pilturinn
og móðirinn. Spyr móðirin
hvað hann hafi borið í hár sér
og fær við þvi greinargóð
svör.
Náfölnar móðirin, en dró
síðan piltinn aftur inn á bað
og tók til við að þvo hár hans
af ákefð mikilli. Skýringin á
skjótum viðbrögðum móður-
innar var sú að maðurinn hafði
alls ekki borið brilljantín í hár
sitt heldur háreyðandi krem.
Ekki hlaut maðurinn neinn
skaða af og er í dag hárprúð-
ur. Hann er hins vegar hættur
að fara í skápa annars staðar
en heima hjá sér.
• Brilljantín